Morgunblaðið - 06.08.2021, Page 6

Morgunblaðið - 06.08.2021, Page 6
Vandi Landspítalans er fjölþættur og verður ekki leystur með auknum fjárframlögum einum og sér. Þetta sagði Bjarni Benediktsson, efna- hags- og fjármálaráðherra, í samtali við mbl.is í gær. Mikið álag er á Landspítalanum sem starfar nú á hættustigi. Mönnun er víða tæp og löng bið eftir þjón- ustu. Álagið er sérstaklega mikið á bráðamóttöku spítalans í Fossvogi. Félag sjúkrahúslækna sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem staðan á spítalanum er sögð vera „íslenskum yfirvöldum til skammar“. Spurður hvort það komi til greina að auka fjárframlög til Landspítal- ans í ljósi ástandsins svarar fjár- málaráðherra játandi. „Að sjálf- sögðu kemur til greina að bæta viðnámsþrótt heilbrigðiskerfisins til samræmis við aðstæður en þær að- stæður sem hafa skapast núna eru ekki beinlínis vegna kórónuveiru- faraldursins,“ segir Bjarni. Hann bætir við að fjárframlög til heilbrigðiskerfis- ins hafi verið auk- in verulega á þessu kjörtíma- bili en að afköst hafi ekki aukist í takt sem þykir áhyggjuefni. Þá sagði Bjarni að húsnæðismál spítalans væru ákveðinn „þröskuld- ur“ sem þyrfti að yfirstíga. „Við stöndum í miðju verki við að reisa nýtt þjóðarsjúkrahús og það er þolinmæðisverk að komast í gegnum þetta tímabili sem nú bíður okkar. Við erum á miklu framkvæmdaskeiði núna.“ unnurfreyja@mbl.is Kemur til greina að auka framlög - Vandi Landspítalans er fjölþættur Bjarni Benediktsson Ljósmynd/Þorkell Þorkelsson Álag Mikið hefur mætt á starfsfólki Landspítalans vegna kórónuveiru. „Bregðast verður strax við gríðar- legu álagi á heilbrigðiskerfið, sem er nú komið yfir þolmörk, með auknum fjárveitingum svo hægt sé að tryggja öryggi sjúklinga og starfs- fólks og halda uppi viðunandi þjón- ustustigi,“ segir meðal annars í minnisblaði sem BSRB sendi stjórn- völdum í gær vegna kórónuveiru- faraldursins. BSRB kallar eftir því að stjórn- völd viðurkenni mikilvægt framlag framlínustarfsfólks í baráttunni gegn heimsfaraldrinum með álags- greiðslum. Þá er lagt til að skimað verði fyrir kulnun hjá þessum hópi svo hægt verði að grípa inn og tryggja lífsgæði og lífskjör fólks. BHM sendi stjórnvöldum sömu- leiðis minnisblað í gær og þar er tekið undir að stutt verði við fram- línustarfsfólk. Jafnframt er lagt til að áhersla verði lögð á velferð og at- vinnustig fremur en ótímabært að- hald í ríkisfjármálum eins og það er orðað. Bandalagið hvetur stjórnvöld til að framlengja m.a. hlutabótaleið- ina, viðspyrnustyrki, ráðningar- styrki og fleiri úrræði. Einnig telur bandalagið að bjóða eigi atvinnuleit- endum upp á símenntun í auknum mæli án þess að skerða bætur. Fara fram á álagsgreiðslur - BSRB og BHM sendu stjórnvöldum minnisblöð í gær 6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2021 GEFÐU STARFSFÓLKINU DAGAMUN Suðurlandsbraut 30 | 577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fasteignamat B59 hótels í Borgar- nesi hefur verið lækkað um þriðjung í kjölfar úrskurðar yfirfasteignamats- nefndar um að fella úrskurð Þjóð- skrár um fyrra mat úr gildi vegna þess að ekki hefði verið staðið rétt að málum. Samkvæmt því á eigandinn væntanlega 3,7 milljónir króna inni hjá Borgarbyggð í ofteknum fast- eignasköttum fyrir árið í ár og svip- aða fjárhæð vegna síðasta árs. Fyrirtækið BS-eignir ehf. á hótel- eignina og verslunar- og skrifstofu- húsnæði í tengdri byggingu en húsin standa við Borgarbraut 57-59 í Borg- arnesi. Eigandi fyrirtækisins var ekki sáttur við fasteignamat húsanna þeg- ar hann bar það saman við mat á öðr- um hótelum í Borgarnesi og sveitar- félaginu í heild og hótel á Suðurlandi í svipaðri fjarlægð frá Reykjavík. Mat- ið á hótelinu virtist vera miklu hærra. Beðið eftir endurgreiðslu Þegar Þjóðskrá hafnaði því að lækka fasteignamatið til samræmis við keppinauta hótelsins kærði eig- andi B59 hótels til yfirfasteignamats- nefndar. Nefndin komst að þeirri nið- urstöðu vorið 2020 að húsið væri ekki rétt metið og að það orkaði einnig tví- mælis að beiting matsaðferðarinnar væri í samræmi við lög. Var lagt fyrir Þjóðskrá að taka málið til meðferðar að nýju. Það hefur Þjóðskrá nú gert, rúmu ári eftir að yfirfasteignamatsnefnd úrskurðaði. Matið á hótelbyggingunni fyrir árið í ár lækkar úr 776 millj- ónum króna í rúmar 513 milljónir, eða um 263 milljónir króna. Allar eign- irnar eru nú metnar á 587 milljónir í stað 876 milljóna áður. Er þetta um þriðjungslækkun á fasteignamati. Ekki kemur fram í úrskurði Þjóð- skrár hvaða aðferðum var beitt við nýja matið. Borgarbyggð hefur innheimt fast- eignaskatt og önnur fasteignagjöld í samræmi við gildandi fasteignamat á hverjum tíma. Lækkun fasteigna- skatts hótelsins getur gróflega reikn- að numið 3,7 milljónum króna fyrir árið í ár og litlu lægri fjárhæð fyrir síðasta ár. Endurgreiðslan getur tek- ið til fleiri ára. Hjörleifur B. Kvaran, lögmaður eiganda hótelsins, segir að úrskurðurinn hafi verið sendur til Borgarbyggðar og reiknar hann með endurgreiðslu á ofgreiddum fast- eignagjöldum. Rétt að skoða matið Spurður hvort þessi úrskurður hafi fordæmisgildi um aðrar hótelbygg- ingar eða verslunar- og skrifstofuhús- næði segist Hjörleifur ekki hafa trú á því að þetta sé einstakt tilfelli. Hann segist ekki hafa forsendur til að full- yrða að fasteignamat sé almennt rangt reiknað en víðar en þarna kunni þó að vera pottur brotinn. Ráðleggur hann eigendum slíkra mannvirkja að skoða fasteignamat á eignum sínum. Fasteignamatið lækkað um þriðjung - Þjóðskrá lækkar fasteignamat B59 hótels í Borgarnesi um 262 milljónir í kjölfar úrskurðar yfirfast- eignamatsnefndar - Lögmaðurinn telur að víðar kunni að vera pottur brotinn í útreikningi mats Morgunblaðið/Baldur B59 hótel Fasteignamat hótelbyggingarinnar á Borgarbraut 59 lækkaði um 262 milljónir við leiðréttingu. „Við lögðum áherslu á mikilvægi þess að horfa fyrst og fremst til þess hversu margir væru alvarlega veikir frekar en að einblína á fjölda smit- aðra. Það rímar við yfirlýsingar for- ystufólks ríkisstjórnarinnar og ým- issa annarra,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins. Hann fór ásamt framkvæmda- stjórum Viðskiptaráðs og Samtaka ferðaþjónustunnar á fund forystu- manna ríkisstjórnarinnar fyrr í vik- unni en stjórnmálamennirnir hafa verið að funda með ýmsum um stöð- una í kórónuveirufaraldrinum og viðbrögð við henni. Fagnar endurmati stjórnar Halldór Benjamín segir að fram- kvæmdastjórarnir hafi farið yfir sjónarmið atvinnulífsins í heild, hvaða áhrif ráð- stafanir í sótt- vörnum hafi haft og væntingar þeirra um fram- tíðina. Hann seg- ist taka undir málflutning Kára Stefánssonar um að nota beri tím- ann sem gefst með núgildandi takmörkunum til að meta hvort smitin leiði til alvarlegra veikinda og innlagna á sjúkrahús eða ekki. Spurður um áhrif aðgerða á at- vinnulífið lýsir Halldór þeirri skoðun sinni að efnahagslega standi sam- félagið ekki undir öðrum eins vetri og þeim síðasta. Komið sé að þol- mörkum í þeim efnum. Því sé gott til þess að vita að ríkisstjórnin sé að endurmeta stöðuna. helgi@mbl.is Komið yfir þanþol hjá atvinnulífinu Halldór Benjamín Þorbergsson - Forystufólk fundar með ráðherrum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.