Morgunblaðið - 06.08.2021, Page 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2021
Vetrarsól er umboðsaðili
Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
40 ár
á Íslandi
Sláttutraktorar
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Eitt af því sem hefur einkennt
þetta ferðasumar er hve mikið hef-
ur verið af ferðamönnum frá
Bandaríkjunum
hér á landi og
þessar tölur
staðfesta það,“
segir Skarphéð-
inn Berg Stein-
arsson ferða-
málastjóri.
Tölur um hlut-
fallsskiptingu
þjóðerna úr
brottfarartaln-
ingum í júlí voru birtar á vef
Ferðamálastofu í vikunni. Þar kem-
ur í ljós að stærsti hópur ferða-
manna sem hingað komu voru
Bandaríkjamenn, eða 46,6% sé
horft til brottfara í þeim mánuði.
Þar á eftir koma Pólverjar og Þjóð-
verjar með 10,2% og 7,9% brott-
fara. Aðeins eru birtar hlutfalls-
tölur því beðið er eftir staðfestum
fjölda brottfararfarþega frá Isavia,
að því er segir á vef Ferðamála-
stofu.
Skarphéðinn segir í samtali við
Morgunblaðið að sögulega séð hafi
ríflega þriðjungur ferðamanna að
jafnaði komið frá Bandaríkjunum.
Því kveði við nýjan tón á þessum
óvenjulegu tímum. „Þetta er tals-
verð aukning. Að auki hafa margir
ályktað að stór hluti af brottförum
Pólverja taki til Pólverja sem búa
hér og starfa. Ef við tökum það
með í reikninginn þá er yfir helm-
ingur ferðamanna frá Bandaríkj-
unum.“
Skarphéðinn segir enn fremur
aðspurður að ferðamenn frá
Bandaríkjunum séu góðir gestir.
„Það sem maður hefur heyrt er að
bandarískir ferðamenn stoppi nú
lengur en þeir hafa almennt gert.
Það munar talsvert um það.“
Sé horft til markaðssvæða komu
flestir ferðamenn frá Norður-
Ameríku. Athygli vekur að aðeins
2,7% komu frá Asíu.
Nær helmingur ferðamanna Bandaríkjamenn
- Tæp 47% brottfara útlendinga frá landinu í júlí voru
Bandaríkjamenn - Stoppa lengur en þeir hafa áður gert
Skipting ferðamanna í júlí eftir þjóðerni
Samkvæmt brottfarartalningu Ferðamálastofu og Isavia
46,6%
Bandaríkjamenn
10,2%
Pólverjar
7,9%
Þjóðverjar
Bandaríkjamenn áttu tæplega helming
erlendra brottfara í júlí eða 46,6%
Pólland
10,2%
Þýskaland
7,9%
Annað þjóðerni 16,6%
Bretland 5,2%
Danmörk
2,2%
Ísrael
2,2%
Ítalía
2,0%
Frakkland 3,6%
Eystrasaltslöndin 3,5%
Skarphéðinn Berg
Steinarsson
Morgunblaðið/Eggert
Ferðamenn Bandaríkjamenn hafa
verið áberandi hér á landi í sumar.
Hólmfríður María Ragnhildardóttir
hmr@mbl.is
Líkur íslenskra kvenna á að fá grunn-
frumu- eða flöguþekjumein í húð á
lífsleiðinni hafa þrefaldast frá 1980.
Þetta kemur fram í niðurstöðum
rannsókna Jónas-
ar A. Aðalsteins-
sonar, sérnáms-
læknis í
húðlækningum í
Bandaríkjunum.
Grunnfrumu-
og flöguþekju-
mein eru algeng-
ustu krabbamein-
in sem finnast í
mönnum. Þótt
ólíklegt sé að
þessar tegundir húðkrabbameina
meinvarpist og valdi dauðsföllum þá
geta þau verið hvimleið og valdið
skaða. Síðustu 40 ár hafa líkurnar á
slíkum krabbameinum aukist talsvert
á Íslandi en meðal kvenna hafa þær
farið úr 3,2% yfir í 10,1% og meðal
karla úr 2,8% yfir í 7,3%.
Jónas vann rannsóknirnar undir
handleiðslu Laufeyjar Tryggvadóttur,
klínísks prófessors við Háskóla Ís-
lands, og Jóns Gunnlaugs Jónassonar,
prófessors við Háskóla Íslands. Hafa
rannsóknirnar verið birtar í alþjóðlegu
tímaritunum British Journal of Der-
matology og Journal of the American
Association of Dermatology.
Að sögn Jónasar eru niðurstöðurn-
ar óvæntar en sambærilegar rann-
sóknir erlendis frá benda til þess að
karlmenn séu almennt líklegri en
konur til að fá húðkrabbamein. Að ís-
lenskar konur séu berskjaldaðri fyrir
grunnfrumu- eða flöguþekjumeini í
húð er talið mega rekja til þess að
kvenfólk stundi sólböð oftar og sæki
meira í ljósabekki en karlmenn. Að
sögn Jónasar styður aukning á húð-
meinum á búk og fótleggjum kvenna
þessar tilgátur en slík svæði eru yf-
irleitt ekki mikið berskjölduð fyrir sól
á Íslandi.
Lyfjanotkun hefur áhrif
Auk ljósabekkja og sólbaða benda
erlendar rannsóknir einnig til þess að
ákveðin lyf gætu gert fólk berskjald-
aðra fyrir húðkrabbameini. Mynda þá
einstaklingar ónæmisbælingu eða
aukið næmi fyrir útfjólublárri geislun
í húð.
Niðurstöður Jónasar styðja þessa
tilgátu en í rannsókn hans voru sér-
staklega tekin fyrir lyfin hydrochlo-
rothiazide (HCTZ) sem er tekið við
háþrýstingi, TNF-alpha hindrar, sem
eru teknir við sjálfsónæmissjúkdóm-
um og statín sem er notað til að lækka
blóðfitu. Bentu niðurstöður til tengsla
milli HCTZ og aukinnar hættu á
grunn- og flöguþekjuæxlum. Aftur á
móti virtust statín og TNF alpha
hindrar einungis auka áhættuna á
flöguþekjumeinum en ekki grunn-
frumukrabbameini.
Aftur á móti vakti athygli að met-
formín, sem notað er gegn sykursýki,
virðist lækka áhættu á grunnfrumu-
krabbameini. Segir Jónas þær niður-
stöður afar áhugaverðar en þetta er
fyrsta rannsóknin sem sýnir fram á
slík tengsl. Geti þessar upplýsingar
mögulega nýst til að lækka áhættu á
grunnfrumumeinum hjá þeim ein-
staklingum sem fá ítrekað slík mein.
Rannsóknirnar hafa vakið nokkra
athygli erlendis en þær byggja á
gögnum úr Krabbameinsskrá sem
flest önnur lönd skrá og varðveita
ekki. Hefur Jónas nú hlotið Howard
Levine-verðlaunin og einnig verðlaun
frá Háskólanum í Connecticut.
Konur líklegri til að fá krabbamein
- Íslenskar konur eru þrisvar sinnum líklegri til að fá tiltekin húðkrabbamein en þær voru fyrir 40 ár-
um - Ljósabekkjanotkun og sólböð eru talin skýra hvers vegna konur eru berskjaldaðri en karlmenn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sólbað Mikil aukning hefur verið á grunnfrumu- og flöguþekjumeinum meðal ungra íslenskra kvenna.
Jónas A.
Aðalsteinsson
„Við erum gríðarlega stolt og ánægð
með þetta farsæla samstarf og verð-
uga verkefni með hljómsveitinni,“
segir Jón Ólafsson, stofnandi og
stjórnarformaður Icelandic Glacial.
Tilkynnt var í gær að íslenska
vatnsfélagið Icelandic Glacial og
hljómsveitin Rolling Stones hefðu
ákveðið að endurnýja samstarf sitt. Í
tilkynningu frá Icelandic Glacial
segir að samstarfið gangi út á að
draga úr umhverfisáhrifum af vænt-
anlegri tónleikaröð sveitarinnar í
Bandaríkjunum sem ber yfirskrift-
ina No Filter. Þetta mun vera fjórða
árið í röð sem samstarfið stendur en
ráðgert er að fyrstu tónleikarnir
verði í St. Louis 26. september.
Icelandic Glacial mun sjá Mick
Jagger og félögum fyrir íslensku há-
gæðavatni í glerflöskum ásamt
flokkunartunnum. „Frá upphafi hef-
ur fyrirtækið okkar lagt metnað í
umhverfismál og haft það að leiðar-
ljósi að starfsemi okkar sé kolefnis-
hlutlaus. Umhverfismálin eru hluti
af því hver við erum,“ er haft eftir
Jóni Ólafssyni í tilkynningu.
Jagger drekkur íslenskt vatn
- Icelandic Glacial og Rolling Stones semja um tónleika
AFP
Tónleikar Mick Jagger og félagar drekka íslenskt vatn á sviði næsta árið.