Morgunblaðið - 06.08.2021, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2021
Hrífunesbændur í Skaftártungu, þau
Sigurður Garðarsson og Inger Lang-
feldt, komu nýverið færandi hendi í
Skógasafnið með myndaspjald til
varðveislu á safninu. Á spjaldinu eru
myndir af Elínu Á. Árnadóttur, ljós-
móður og húsmóður á Hrífunesi, og
stórum hluta þeirra barna sem hún
tók á móti. Þórður Tómasson í Skóg-
um og Andri Guðmundsson, núver-
andi safnstjóri, veittu gjöfinni við-
töku.
Elín í Hrífunesi fæddist í Pétursey
í Mýrdal árið 1886. Hún náði háum
aldri, varð 87 ára, en hún lést árið
1973. Elín varð ljósmóðir í Skaft-
ártungu í Vestur-Skaftafellssýslu að-
eins 23 ára gömul. Eiginmaður henn-
ar var Jón Pálsson bóndi en þau
bjuggu í Hrífunesi frá 1910 til 1963
er Árni sonur þeirra tók við búskapn-
um.
Myndirnar voru teknar þegar
börnin voru komin á fullorðinsaldur.
Myndinni svipar því til skólaspjalda
sem algeng voru hér áður við útskrift
úr héraðsskólum.
Á spjaldinu er Elín ljósmóðir
ásamt 104 börnum, sem er stór hluti
þeirra barna sem hún tók á móti. El-
ín fékk myndina að gjöf frá sveit-
ungum sínum árið 1956 sem þakk-
lætisvott fyrir áralanga þjónustu en
hún starfaði í hartnær hálfa öld sem
ljósmóðir í heimasveit sinni.
Þórður hélt ávarp í tilefni þessarar
gjafar, hann nefndi hversu orðlögð
gestrisnin hefði verið í Hrífunesi hjá
Elínu og Jóni Pálssyni og börnum
þeirra. Margar ógleymanlegar minn-
ingar ætti hann frá því góða heimili
og þeirri miklu gestrisni sem mætti
honum í Hrífunesi.
Einstök mynd
Þórður minntist þess að hafa setið
að málsverði þar með Kristjáni Eld-
járn, forseta Íslands. „Er enn í
munni mér bragðið af nýveiddum
sjóbirtingnum sem var þar á borð-
um,“ sagði Þórður.
Hann þakkaði gjöfina og sagðist
oft hafa hugsað til þessarar myndar,
sem hann telur einstaka. Fátítt væri
að til væri mynd af ljósmóður með
ljósubörnin sín, hún rammaði á fal-
legan hátt inn ævistarf merkrar
konu.
Að lokum afhentu Sigurður og
Inger húsbændunum í Skógum, þeim
Þórði og Andra, nýja bók um ferða-
þjónustuna í Hrífunesi. Með í för var
Guðni Ágústsson, fyrrverandi land-
búnaðarráðherra, sem þakkaði Þórði
fyrir hönd þeirra hjóna þessa dýr-
mætu og einstöku stund.
Guðni fór hlýjum orðum um hið
einstaka ævistarf Þórðar Tómas-
sonar í Skógum. Án hans hefði safnið
í Skógum aldrei risið.
Skógasafn fékk
gjöf frá ábúend-
um í Hrífunesi
Gjöf Frá afhendingu myndar og bókar, f.v. Guðni Ágústsson, Þórður Tóm-
asson, Sigurður Garðarsson, Andri Guðmundson og Inger Langfeldt.
- Myndir af Elínu Á. Árnadóttur í
Hrífunesi og ljósubörnum hennar
Sósíalistaflokkurinn hefur kynnt til
leiks framboðslista í Suðurkjördæmi
fyrir komandi þingkosningar.
Fyrsta sætið skipar Guðmundur
Auðunsson stjórnmálahagfræð-
ingur. Listanum er sem fyrr hjá
sósíalistum stillt upp af „slembivöld-
um hópi meðal félaga flokksins“,
eins og það er orðað.
„Við stöndum á tímamótum. Hið
óréttláta samfélag sem öfgakapítal-
ismi nýfrjálshyggjunnar hefur troð-
ið upp á almenning riðar til falls.
Samt halda auðvaldsflokkarnir
áfram með þá stefnu sína að einka-
væða eignir almennings og almanna-
þjónustuna og ætla að halda því
áfram þvert á vilja þorra almenn-
ings. Við getum stoppað þetta,“ seg-
ir Guðmundur í
fréttatilkynningu
frá flokknum.
Birna Eik
Benediktsdóttir
framhaldsskóla-
kennari er í öðru
sæti, Ástþór Jón
Ragnheiðarson,
þjálfari og vara-
formaður ASÍ-
UNG, í þriðja
sæti og fjórða sætið skipar Arna
Þórdís Árnadóttir verkefnastjóri.
„Mér finnst það algerlega ótækt
og í raun alger firring að hér á landi
skuli finnast fátækt,“ er haft eftir
Birnu Eik.
Heiðurssæti listans í Suður-
kjördæmi skipar Viðar Steinarsson
bóndi.
Sósíalistar með lista
í Suðurkjördæmi
Guðmundur
Auðunsson
2021 ALÞINGISKOSNINGAR
OTTA VÖ TÆ
Af
. .
NÝJAR VÖRUR
FRÁ ZIZZI
Stærðir 14-32 eða 42-60
w.
veg
.
.
Hreyfilshúsi nsásveg 08 Reykjavik ím 81-155 ww.curvy.is
GLEÐILEGA
HINSEGIN
DAGA
Landssamband lögreglumanna
Landssamband lögreglumanna óskar
hinsegin félagsmönnum sínum og öllum
öðrum innan regnbogafjölskyldunnar
gleðilegra Hinsegin daga.
Níu sóttu um tvö embætti héraðs-
dómara sem dómsmálaráðuneytið
auglýsti laus til umsóknar 9. júlí
síðastliðinn. Um er að ræða ann-
ars vegar embætti dómara með
fyrsta starfsvettvang hjá Héraðs-
dómi Reykjavíkur og hins vegar
embætti dómara með fyrsta
starfsvettvang hjá Héraðsdómi
Reykjaness. Umsóknarfrestur
rann út 26. júlí sl.
Í frétt á vef ráðuneytisins
kemur fram að umsækjendur um
embættin eru: Björn Þorvaldsson
saksóknari, Bryndís Guðmunds-
dóttir lögmaður, Margrét Gunn-
laugsdóttir lögmaður, María
Thejll lögmaður, Nanna Magna-
dóttir, formaður og forstöðu-
maður, Sigurður Jónsson lög-
maður, Sigríður Rut Júlíusdóttir
lögmaður, Súsanna Björg Fróða-
dóttir aðstoðarsaksóknari og
Valborg Steingrímsdóttir sviðs-
stjóri.
„Allir umsækjendur sækja um
bæði embættin að frátaldri Sig-
ríði Rut Júlíusdóttur sem ein-
ungis sækir um embætti dómara
með fyrsta starfsvettvang hjá
Héraðsdómi Reykjavíkur.
Skipað verður í embættin frá 1.
október 2021,“ segir í frétt dóms-
málaráðuneytisins.
Níu sóttu um embætti héraðsdómara
Morgunblaðið/Þór
Héraðsdómur Reykjavíkur
Skipa á í embættin frá 1. október.