Morgunblaðið - 06.08.2021, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2021
malbikstodin.is | 864 1220 | Flugumýri 26 | Mosfellsbær
VIÐ ERUMSÉRFRÆÐINGAR Í
MALBIKUN
Malbikunarframkvæmdir eru okkar sérsvið. Við tökum að
okkur malbikun á bílastæðum, stígum, götum, vegum og hvar
sem þarf að malbika. Við tryggjum fyrirtaks þjónustu sem
svarar ýtrustu gæða- og öryggiskröfum. Hafðu samband.
Að minnsta kosti átta eru látnir og
þúsundir hafa þurft að yfirgefa
heimili sín í kjölfar mikilla gróður-
elda í suðurhluta Evrópu. Dauðs-
föllin urðu í Tyrklandi þar sem
slökkviliðsmenn glíma við eldana í
nokkrum strandbæjum, en 180 eldar
hafa kviknað þar í landi frá 28. júlí.
Á Ítalíu hefur fjöldi gróðurelda
þrefaldast miðað við meðalár. Tjón
af völdum eldanna um miðbik og
suðurhluta landsins er talið hlaupa á
milljónum evra. Á sama tíma hef-
ur norðurhluti Ítalíu þurft að glíma
við mikil flóð vegna úrhellisrigninga.
„Flóð og miklar rigningar í norðri,
eldar í suðri. Landinu hefur verið
skipt í tvennt,“ er haft eftir Fabrizio
Curcio, yfirmanni almannavarna
Ítalíu.
Björguðu fornminjum naumlega
Gróðureldarnir og hitabylgja
hrjáir einnig Grikkland þar sem hiti
hefur náð 45 gráðum. „Himinninn
var grár og rauður og aska féll yfir
okkur. Það var eins og það væri
heimsendir. Á þriðjudagskvöld kom
reykur inn í húsið mitt svo ég þurfti
að sofa með grímu því ég gat ekki
andað,“ sagði Eleni Myrivili hjá al-
mannavörnum Grikklands í útvarps-
viðtali í gær. Slökkviliðsmenn berj-
ast nú við rúmlega 100 elda sem
geisa víðs vegar um landið. Meðal
annars ógnuðu þeir fornum Ólymp-
íuleikvangi á Pelópsskaga og þurfti
að rýma tugi bæja í nágrenni við
leikvanginn. Naumlega tókst þó að
bjarga leikvanginum í gær en fleiri
en 170 slökkviliðsmenn, um 50 dælu-
bílar og sex þyrlur komu að slökkvi-
starfinu. urdur@mbl.is
AFP
Tyrkland Þúsundir manna hafa
þurft að yfirgefa heimili sín.
Eldar herja á
Suður-Evrópu
- Fjöldi gróðurelda þrefalt fleiri
FRÉTTASKÝRING
Urður Egilsdóttir
urdur@mbl.is
Ríkisstjóri New York-ríkis í Banda-
ríkjunum, Andrew Cuomo, á nú
ekki sjö dagana sæla er dyggustu
stuðningsmenn hans snúa við hon-
um bakinu. Á miðvikudag kynnti
ríkissaksóknari New York, Letitia
James, 168 blaðsíðna skýrslu um
háttsemi Cuomo. Niðurstaða rann-
sóknarinnar er sú að hann hafi kyn-
ferðislega áreitt að minnsta kosti
ellefu konur.
Ríkisstjórinn sætir nú sakamála-
rannsókn í Albany, ríkishöfuðborg
New York. Sú rannsókn mun taka
til brota síðustu þriggja ára en sam-
kvæmt lögum New York-ríkis fyrn-
ast kynferðisbrot eftir þann tíma. Í
skýrslu ríkissaksóknara kemur hins
vegar fram að Cuomo hafi skapað
fjandsamlegt og eitrað vinnuum-
hverfi þegar frá upphafi embættis-
töku sinnar.
Yfirgripsmikil rannsókn
Rannsókn hófst á háttsemi
Cuomo á síðasta ári í kjölfar þess að
nokkrar konur stigu fram með
ásakanir á hendur honum. Á fimm
mánaða tímabili ræddu rannsak-
endur við nærri 200 manns, meðal
annars starfsfólk Cuomos og ein-
hverjar þær kvenna sem höfðu haft
ásakanirnar uppi. Tugþúsundir
skjala, ljósmynda og texta voru
skoðaðar vegna rannsóknarinnar.
Í skýrslunni kemur fram að
Cuomo hafi meðal annars kynferð-
islega áreitt fyrrverandi og núver-
andi samstarfsmenn. Hann hefur
meðal annars verið sakaður um að
kyssa konu án samþykkis hennar,
að spyrja óviðeigandi spurninga út í
einkalíf eins fórnarlambanna, meðal
annars um það hvort viðkomandi
hefði áhuga á að stunda kynlíf með
eldri manni, og að þukla á brjóstum
einnar þeirra.
Fjölþætt málssókn
Cuomo er demókrati og lengst
starfandi ríkisstjóri nokkurs ríkis
Bandaríkjanna um þessar mundir,
en hann hefur gegnt embættinu frá
árinu 2011. Þá gegndi faðir hans
einnig embætti ríkisstjóra New
York frá 1983 til 1994 og var Cuomo
hvattur áfram til metorða innan
Demókrataflokksins. Fyrir nokkr-
um vikum gátu stuðningsmenn
borgað tíu þúsund Bandaríkjadoll-
ara, eða um 1,2 milljónir íslenskra
króna, fyrir að fá að blanda geði við
ríkisstjórann í lúxusíbúðinni hans á
Manhattan-eyju. Nú hafa hins veg-
ar flestir stuðningsmenn Cuomo
snúið baki við honum. Þar á meðal
mörg verkalýðsfélög og margir
samflokksmenn Cuomo svo sem
Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeild-
ar Bandaríkjaþings, og öldunga-
deildarþingmennirnir Chuck
Schumer og Kirsten Gillibrand hafa
sagt að Cuomo ætti að segja af sér.
Þá hefur Joe Biden Bandaríkjafor-
setieinnig óskað eftir afsögn ríkis-
stjórans. Nokkrir þingmenn segjast
nú undirbúa ákæru til embættis-
missis á hendur Cuomo fyrir afglöp
í starfi.
Ef sú ákæra verður lögð fram
myndi hún taka til fjögurra lykil-
mála. Það eru ásakanirnar um kyn-
ferðislega áreitni sem og meðhöndl-
un hans á gögnum
hjúkrunarheimila á tímum heims-
faraldursins, en Cuomo er talinn
hafa viljandi látið vantelja dauðsföll
af völdum Covid-19 á elliheimilun-
um. Þá er hann talinn hafa notað op-
inbert fé til þess að rita endurminn-
ingar sínar um heimsfaraldurinn og
gert mistök við byggingu brúar sem
hlaut nafn eftir ríkisstjóranum
Mario M. Cuomo, en Mario var faðir
Andrew Cuomo. Ákæran verður þó
líklega ekki lögð fram fyrr en þing-
menn eru þess fullvissir að þeir geti
sigrað lögfræðiteymi Cuomo. Sam-
kvæmt frétt á vef New York Times
yrði það í fyrsta lagi í lok septem-
ber. Verði ákæran lögð fram hefur
ríkisþingið 30 til 60 daga til þess að
hefja réttarhöld yfir Cuomo.
Reiðir á stuðning almennings
Til að koma Cuomo úr embætti
þyrfti svo samþykki meirihluta full-
trúadeildar ríkisþingsins og síðan
tvo þriðju hluta öldungadeildarat-
kvæða. Demókratar eru með yfir-
gnæfandi meirihluta í báðum deild-
um innan ríkisins. Margir telja að
Cuomo sé frekar að reiða sig á fylgi
almennra kjósenda en í nýlegri
könnun á meðal New York-búa
sögðust 59% vilja sjá hann segja af
sér, en 52% þeirra sem hafa kosið
Demókrataflokkinn vilja að hann
segi af sér. Kosið verður til embætt-
is ríkisstjóra á næsta ári og telja
kannanir að Cuomo hafi einungis
um 18% fylgi. Ef honum yrði vikið
úr starfi myndi vararíkisstjórinn,
Kathy Hochul, taka við embættinu
en hún yrði þá fyrsti kvenkyns rík-
isstjóri New York-ríkis.
„Ekki hver ég er“
Cuomo þverneitar ásökunum og
segir að um menningarlegan mis-
skilning á milli kynslóða sé að ræða.
Yfirlýsing sem hann gaf út á mið-
vikudag innihélt fleiri en 40 myndir
af honum og áberandi stjórnmála-
mönnum að faðmast til þess að sýna
fram á sakleysi í málinu. Meðal
stjórnmálamanna sem sjást á
myndunum eru fyrrverandi forset-
anir George Bush og Barack
Obama. „Staðreyndirnar eru frá-
brugðnar því sem hefur verið lýst.
Ég er 63 ára. Ég hef lifað allt mitt
líf í opinberri þjónustu. Þetta er
bara ekki sá sem ég er og hef aldrei
verið,“ sagði Cuomo í yfirlýsing-
unni. Hann heitir því að sitja sem
fastast í embætti þrátt fyrir saka-
málarannsóknina og yfirvofandi
málsmeðferð fyrir embættisbrot.
Hvað verður um Cuomo ríkisstjóra?
- Sætir rannsókn vegna gruns um hafa áreitt ellefu konur - Stuðningsmenn snúa baki við ríkisstjór-
anum - Á yfir höfði sér ákæru til embættismissis - Misskilningur milli kynslóða og menningarmunur
AFP
Ásakanir Andrew Cuomo, ríkisstjóri New York-ríkis, er sagður hafa áreitt fjölda kvenna kynferðislega, þ.á m. sam-
starfskonur sínar. Hann stendur nú frammi fyrir sakamálarannsókn og yfirvofandi málssókn fyrir embættisbrot.
AFP
Mótmæli Almenningur mótmælir á
götum New York-borgar.