Morgunblaðið - 06.08.2021, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 06.08.2021, Qupperneq 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2021 Loftslagsumræðan fer vaxandi þessar vikurnar. Er þá ekki vel við hæfi að rifja upp nokkur atriði henni tengd frá fyrri tíð? Miklu fleira mætti til tína en hér verður gert, enda sannarlega af nógu að taka. „Dagur jarðar“ Fyrsti „Dagur jarðar“ var hald- inn 22. apríl árið 1970. Um 20 milljónir Bandaríkjamanna tóku þátt í atburðum dagsins, sem ein- kenndust aðallega af dómsdags- spám um endalok mannlífs, dýra- lífs og jafnvel jarðarinnar í heild. Meðal spámannanna var George nokkur Wald, líffræðingur við Har- vard-háskólann. Spá hans var: „Siðmenningin mun líða undir lok innan 15 til 20 ára ef ekki verður gripið til aðgerða gegn þeim vanda sem að mannkyninu steðjar.“ Á sama tíma hafði líffræðing- urinn Paul R. Ehrlich, sem talinn var mjög marktækur, uppi dóms- dagsspár um hörmulegar afleið- ingar fólksfjöldaaukningar, sem hann sagði ýmsa sérfræðinga telja að mundi þegar árið 1975 hafa í för með sér stórum meira hungur á heimsvísu en nokkur gæti trúað. Undir þetta tók Denis Hayes, að- alskipuleggjandi jarðardagsins 1970, er hann sagði: „Nú þegar er það orðið of seint að koma í veg fyrir hungursneyð á heimsvísu.“ Árið 1970 sagði Ehrlich líka að eft- ir 10 ár yrðu öll veigamestu sjáv- ardýr úrdauð og árið 1971 var eftir honum haft að um árið 2000 yrðu Bretlandseyjar örsnauðar og að þar mundu búa 70 sveltandi millj- ónir. Ísöld Reyndar einkenndust spádómar um loftslag og endalok siðmenn- ingar á áttunda áratugnum mest af forspám um komandi ísöld. Fjöl- margir vísindamenn sem taldir voru marktækir létu hafa eftir sér ógnarspár um kólnandi heim, upp- skerubrest og hungur. Jöklar áttu að skríða fram og nokkrir meira að segja spáðu því að innan nokkurra ár- hundraða mundu jökl- ar hylja stóran hluta norðurhvels jarðar. Hitnandi heimur Upp úr 1980 tóku spárnar að breytast. Það hætti nefnilega að kólna og jafn- aðarhitinn fór lítillega hækkandi ár af ári. Ýmsir sem höfðu hástöfum spáð komandi ísöld skiptu furðu fljótt um tón. Líka komu fram nýir spá- menn. Þar má nefna Al Gore - Al- bert Arnold Gore jr., bandarískan demókrata fæddan 1948. Hann hef- ur verið í stjórnmálum í á þriðja tug ára, var varaforseti Bandaríkj- anna í tíð Bills Clintons og bauð sig fram til forseta á móti George W. Bush árið 2000 en tapaði. Al Gore er heitur umhverfissinni og afar virkur sem slíkur. Bók hans An Inconvenient Truth (Bagaleg sannindi), sem varð grunnur heimildarmyndar með sama heiti, aflaði honum bæði frama og fjár – og meira að segja Nóbelsverðlauna. Í þessum verkum er ýmsu haldið fram sem stað- reyndum sem reynst hefur allt annað. Þar á ekki síst við um línu- rit, sem kallað hefur verið hockeys- tick (hokkíkylfa) vegna lögunar sinnar og er afrakstur Michaels Manns og tveggja félaga hans. Línuritið á að sýna þróun hitastigs á jörðinni síðustu 1.000 árin en hef- ur verið kallað umdeildasta lofts- lagsframsetning síðustu ára. Höf- undar línuritsins unnu nefnilega verk sitt svo að ekki kemur fram hið svokallaða miðaldakuldaskeið, sem stóð frá um það bil 1300 til 1800. Þetta virðist hafa verið gert í áróðursskyni og til að undirstrika áhrif mannsins og gerða hans á loftslagið. Samtíminn Nefna mætti fleiri lofts- lagsspámenn seinni tíma sem sett hafa fram tímasetta heims- lokaspádóma, enda af nógu að taka bæði á meðal „vísindamanna“, áhrifavalda og stjórnmálamanna, sem bergmála upphrópanir hver annars. En hefur þú tekið eftir því hve hljóðnaði þegar Covid-19 var komin nokkuð á strik? Það heyrðist eitt og eitt kvak en hinir háværustu hurfu sem næst að fullu í umfjöllun fjölmiðla. Þetta átti við um til dæmis sænsku hnátuna Gretu Thunberg, sem var allt að því sí- fellt í fréttum, og sænskur kven- biskup líkti við Jesú Krist, sem vakti loftslagsótta með ungmenn- um – einnig hér á landi – og húð- skammaði ráðamenn heimsins á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóð- anna er þeir lutu svo lágt að klappa henni lof í lófa. Veiran Hér á landi þögnuðu várpost- ularnir líka að mestu. Allt hvarf í skugga veiru, ættaðrar austan úr Kína. Veiru sem vakti raunveruleg- an ótta við alvöruvá; ótta um heilsu og afkomu; ekki einungis ein- staklinga heldur ekki síður at- vinnugreina og heilla þjóða. En hefur þú þá líka tekið eftir því að nú, þegar stig af stigi hefur náðst viðspyrna gegn veirunni með höftum og bóluefnum, heyrist á ný í þeim sem héldu sig um stund- arsakir til hlés? Þeir eru farnir að æfa taktinn sem taka á við. Aftur er ógnarboðskapurinn borinn fram að hætti sértrúarmanna sem ekki líða öndverðar skoðanir og mæta þeim sem ekki eru þægir og und- irgefnir með upphrópunum og upp- nefnum en alls ekki rökum eða grundaðri umræðu um hugsanlegar aðrar orsakir hlýnunar – svo sem náttúrulegar – eða jafnvel það að hlýnun kunni að vera til góðs. Várpostularnir eru komnir á kreik. Þeir hafa séð að unnt er að láta almúgann hlýða – eins og í við- fanginu við Covid-19. Er þá ekki tilvalið að nýta undirgefnina sem lærst hefur til framgangs málefn- inu; baráttunni gegn hinni ætluðu vá – hlýnun loftslagsins? Er þetta gleymt? Eftir Hauk Ágústsson » Þeir eru farnir að æfa taktinn sem taka á við. Haukur Ágústsson Höfundur er fyrrv. kennari. 69. gr. laga nr. 100/ 2007 hljóðar svo: „Bæt- ur almannatrygginga, svo og greiðslur sam- kvæmt 63. gr. og fjár- hæðir skv. 22. gr., skulu breytast árlega í samræmi við fjárlög hverju sinni. Ákvörðun þeirra skal taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en vísitala neysluverðs.“ Und- irritaður fær nokkrar krónur til framfærslu frá TR, sem heyrir undir fyrrgreind lög. Samkvæmt þeim taldi undirritaður að hækkun til hans ætti að vera meiri en 3,6%, sem hækkunin nam frá TR, þar sem vísitala launaþróunar, sem byggist á launaþróun og birt er mánaðarlega hjá Hagstofu Íslands, var hærri og kærði undirritaður ákvörðun TR til úrskurðarnefndar velferðarmála. Í svari TR til úrskurðarnefndarinnar vísar TR í það að í 69. gr. sé aðeins vísað til launaþróunar en ekki launa- vísitölu og vitnar í álit Umboðsmanns Alþingis, mál nr. 9818/2018, sem kemst að þeirri niðurstöðu að ráð- herra sé heimilt að ákveða hvaða pró- sentuhækkun sem er, ef miðað er við vísitölu. Undirrituðum var kunnugt um álit umboðsmanns en vildi láta reyna á hvort úrskurðarnefndin myndi hafna því að launavísitala sýndi launaþróun. Undirritaður kærði þá að ekki skyldi vera farið eft- ir launaþróun, þar sem launaþróunin sýndi á þeim tíma sem fjárlögin voru til umfjöllunar yfir 6% meðalhækkun launa á árinu 2020. Hagstofan gefur út breytingar á launaþróun og nota opinberir aðilar þá útreikninga við kjarasamninga op- inberra starfsmanna sem bundnir eru launaþróun. Ekki verður annað séð, þegar farið er inn á vefsvæði Hagstofunnar, en að það sem hún kallar launavísitölu séu niðurstöður útreikninga á launaþróun. Þar segir undir liðnum laun og tekjur: „Út- reikningar á launaþróun og launum byggjast á upplýsingum úr launa- rannsókn Hagstofu Íslands. Launa- rannsóknin er byggð á úrtaki fyrir- tækja, sveitarfélaga og stofnana með tíu eða fleiri starfsmenn og er gagna aflað mánaðarlega rafrænt fyrir öll störf, safnað er ítarlegum upplýs- ingum um laun, launakostnað, greiddar stundir og ýmsa bakgrunns- þætti starfsmanna og launagreið- enda. Mánaðarleg launavísitala mæl- ir mánaðarlegar breytingar á reglulegum launum á íslenskum vinnumarkaði. Birtar eru niðurstöður eftir launþegahópum og atvinnu- grein.“ TR vitnar í fjármálaráðherra (þingskjal 1053-266) þar sem ráð- herrann segir: „Það er mat hverju sinni í fjárlagagerðinni hvernig taka skuli mið af launaþróun, en almennt má segja að gengið sé út frá með- alhækkunum á kjarasamningum.“ Ekki verður annað skilið af orðum ráðherrans en að hann sé að segja að starfsmenn fjármálaráðuneytis séu að fara eftir launaþróun og megi sjálfir ákveða hver sú launaþróun er og þurfi þá væntanlega ekki að fara eftir út- reikningum Hagstof- unnar þegar kemur að ákvörðun bóta TR. Nú fyrir nokkrum dögum fengu þingmenn og ráð- herrar hækkun launa upp á 6,2%. Ekki er ann- að vitað en það sé sam- kvæmt vísitölu Hagstof- unnar um launaþróun en ekki útreikningum starfsmanna fjár- málaráðuneytis, sem allt eins geta verið fengnir með spilastokk. TR segir í svari til úrskurðar- nefndarinnar: „Í ljósi þess að ákvörð- un um hækkun á lífeyri kæranda er tekin af öðru stjórnvaldi vill Trygg- ingastofnun vekja athygli á því að stofnunin hefur aðeins þær upplýs- ingar sem að framan greinir um þær forsendur sem miðað var við þegar ákvörðun um hækkun ellilífeyris var tekin. Telji úrskurðarnefnd ástæðu til þess að fá frekari upplýsingar um þær forsendur þyrfti að fá þær hjá því stjórnvaldi sem kom að ákvörð- uninni.“ Undirritaður sneri sér því sjálfur til þess ráðherra sem TR fellur undir, barnamálaráðherrans. Engar rök- semdir var á þeim bæ að fá um hvern- ig þessi 3,6% hækkun til mín var fengin. Barnamálaráðherrann segir því sem næst að honum komi þetta ekki við, þótt undir TR falli mál fá- tækra öryrkja sem hafa börn á fram- færi. Svar ráðherrans er eftirfarandi: „Það kemur því í hlut fjármála- og efnahagsráðherra við undirbúning og í frumvarpi til fjárlaga hvert ár að taka ákvörðun um hvaða viðmiðanir eru lagðar til grundvallar við gerð til- lagna um hækkun bóta almanna- trygginga.“ Nú er það svo að fjárkröfur fyrnast á fjórum árum. Undirrituðum er það undrunarefni að Öryrkjabandalagið skuli ekki fyrir löngu vera farið af stað með að reyna að hnekkja þeirri lítilsvirðingu og mismunun sem ör- yrkjum er sýnd. En ég er ekki hissa á sinnuleysi LEB. Þar hefur fólk þá skoðun að helst eigi að heimta kjara- bætur fyrir fólk með fullar hendur fjár, afnema eigi allar skerðingar og fólk með háar tekjur eigi að fá fullar bætur frá TR að auki. Nýhættur for- maður LEB er nú komin á lista hjá barnamálaráðherranum þar sem hún mun sjálfsagt berjast fyrir þeim mál- stað. Hann er í samræmi við kröfur tveggja öryrkja sem sæti eiga á Al- þingi, sem hafa háar tekjur en heimta fullar greiðslur frá TR að auki. Bætur almanna- trygginga Eftir Sigurgeir Jónsson Sigurgeir Jónsson »Undirritaður sneri sér því sjálfur til þess ráðherra sem TR fellur undir, barna- málaráðherrans, því tvisvar verður gamall maður barn. Höfundur er sjómaður í Suðurnesjabæ. hellrar@simnet.is Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og trygg- ir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.