Morgunblaðið - 06.08.2021, Page 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2021
ÓL Í TÓKÝÓ
Gunnar Egill Daníelsson
Kristján Jónsson
sport@mbl.is
Pedro Pichardo, Kúbverji sem
keppir fyrir hönd Portúgals, er ól-
ympíumeistari í þrístökki karla eftir
að hafa stokkið lengst allra í úrslit-
unum á Ólympíuleikunum í Tókýó
aðfaranótt fimmtudagsins. Pichardo
stökk 17,98 metra og setti um leið
landsmet í Portúgal. Stökkið reynd-
ist nóg til að tryggja gullverðlaunin
á hans fyrstu Ólympíuleikum. Í
öðru sæti lenti Zhu Yaming frá
Kína, en hann stökk 17,57 metra.
Fabrice Zango frá Búrkína Fasó
nældi í bronsverðlaun með stökki
upp á 17,47 metra.
Fyrstu ólympíuverðlaun Íslands
komu í þessari grein árið 1956 þeg-
ar Vilhjálmur Einarsson fékk silfur
í Melbourne. Fjórum árum síðar
setti Vilhjálmur Íslandsmet sem
enn stendur þegar hann stökk 16,70
metra. Sú lengd hefði dugað til að
hafna í 10. sæti á leikunum ef litið
er til árangurs þrístökkvaranna í
úrslitunum.
Saga Pichardo er áhugaverð.
Hann er 28 ára gamall, borinn og
barnfæddur Kúbverji sem keppti
fyrir hönd heimalandsins allt fram
til ársins 2017.
Í apríl það ár lét hann sig hverfa
þegar hann var staddur í Stuttgart í
Þýskalandi með landsliði Kúbu.
Pichardo hafði greinilega ekki
áhuga á að búa lengur á Kúbu en
um það hafa íbúarnir víst lítið val.
Hann nýtti því sömu úrræði og
handboltakappinn Róbert Julian
Duranona gerði á tíunda áratugn-
um. Nýtti íþróttaferð til að stinga
af. Dúkkaði hann upp sex dögum
síðar í Portúgal og skömmu síðar, í
lok apríl árið 2017, samdi Pichardo
við lið Benfica og hóf að keppa fyrir
þeirra hönd.
Seint á árinu 2017 öðlaðist hann
svo portúgalskan ríkisborgararétt
og hefur keppt fyrir hönd þjóð-
arinnar síðan. Tók hann þátt á sínu
fyrsta stórmóti fyrir Portúgal á
heimsmeistaramótinu í Doha í Kat-
ar árið 2019, þar sem hann lenti í
fjórða sæti. Fyrr í ár varð hann svo
Evrópumeistari innanhúss á Evr-
ópumeistaramótinu í Póllandi.
Gull til Bahamaeyja
Jamaíka er merkilegt íþróttaland
sem skarar fram úr á heimsvísu í
spretthlaupum en er frekar aft-
arlega á merinni í flestum öðrum
íþróttagreinum. Íþróttaárangri á
Bahamaeyjum svipar til árangurs
Jamaíka að því leytinu til að lang-
flest ólympíuverðlaun Bahamaeyja
hafa komið í spretthlaupum.
Gullverðlaun í 400 metra hlaupi
karla fóru til Bahamaeyja í gær
þegar Steven Gardiner kom fyrstur
í mark og sigraði nokkuð örugglega
á 43,85 sekúndum. Bronsverðlaunin
fóru til eyríkisins Grenada þegar
Kirani James hafnaði í 3. sæti í
hlaupinu á 44,19 sekúndum. Hann
sigraði í greininni í London 2012. Á
Bahamaeyjum búa tæplega 400 þús-
und manns en einungis um 100 þús-
und á Grenada.
Ólympíumeistari sem flúði
- Áhugaverð saga ólympíumeistarans í
þrístökki - Fékk ríkisborgararétt 2017
AFP
Þrístökk Pedro Pablo Pichardo stekkur til sigurs í Tókýó í gær.
Frakkland og Danmörk leika til úr-
slita í handknattleikskeppni karla á
Ólympíuleikunum í Tókýó. Frakk-
land vann Egyptaland en Danmörk
hafði betur gegn Spáni í hinum
undanúrslitaleiknum en úrslitin í
báðum leikjum urðu 27:23. Frakkar
eða Danir hafa orðið ólympíu-
meistarar síðustu þrjú skipti og
sömu þjóðir mættust í úrslitum
2016. Þá vann Danmörk en danska
liðið var þá undir stjórn Guð-
mundar Guðmundssonar. Tveir í
franska liðinu nú léku gegn Íslandi
í úrslitaleiknum árið 2008.
Aftur mætast
Frakkar og Danir
AFP
Stórkostlegur Mikkel Hansen skor-
aði 12 mörk fyrir Dani gegn Spáni.
Inter í Mílanó tilkynnti í gær að
Anna Björk Kristjánsdóttir, lands-
liðskona í knattspyrnu, væri gengin
í raðir félagsins en hún lék á síðasta
tímabili með Le Havre í Frakklandi
eins og Berglind Björg Þorvalds-
dóttir og Andrea Rán Hauksdóttir.
Inter hafnaði í 8. sæti í A-deildinni
á Ítalíu á síðasta tímabili. Anna
Björk er 31 árs gömul og leikur
sem miðvörður. Ítalía verður fjórða
landið sem hún flyst til vegna knatt-
spyrnunnar en áður lék Anna með
Örebro og Limhamn Bunkeflo í Sví-
þjóð en einnig PSV í Hollandi.
Anna Björk færir
sig til Mílanó
Morgunblaðið/Golli
Ítalía Anna Björk Kristjánsdóttir
mun leika með Inter Milan.
Jason Daði Svanþórsson úr
Breiðabliki var besti leikmaður
15. umferðar úrvalsdeildar karla
í fótbolta að mati Morgunblaðs-
ins.
Jason Daði átti mjög góðan leik
þegar Kópavogsliðið sigraði Vík-
ing 4:0 síðasta mánudag. Jason
skoraði tvö mörk og lagði upp
eitt í sannfærandi sigri. Hann
fékk tvö M fyrir frammistöðuna,
eins og fimm aðrir leikmenn í
umferðinni.
Varnarmennirnir Rasmus
Christiansen úr Val og Birkir
Valur Jónsson hjá HK eru í
fjórða skipti í liði umferðarinnar.
Fjórir leikmenn eru í fyrsta
skipti í liði umferðarinnar og þar
af tveir Stjörnumenn.
15. umferð
í Pepsi Max-deild karla 2021
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
24-3-3
Hannes Þór Halldórsson
Valur
Viktor Örn
Margeirsson
Breiðablik
Rasmus
Christiansen
Valur
Ragnar Bragi
Sveinsson
Fylkir
Birkir Valur
Jónsson
HK
Magnus Anbo
Stjarnan Atli Arnarson
HK
Jason Daði
Svanþórsson
Breiðablik
Eggert Aron
Guðmundsson
Stjarnan
Birnir Snær Ingason
HK
Hallgrímur Mar
Steingrímsson
KA
2
2
2
2
3
4
4
Jason bestur í 15. umferð
Kylfingar úr Golfklúbbi Kópavogs
og Garðabæjar eru í forystu bæði
í karla- og kvennaflokki að loknum
fyrsta keppnisdegi Íslandsmótsins
í golfi sem hófst á Jaðarsvelli á
Akureyri í gær.
Hlynur Bergsson lék á 66 högg-
um og kom inn í skála á fimm
höggum undir pari. Hann er með
þriggja högga forskot eftir fyrsta
keppnisdag af fjórum. Næstir
koma Jóhannes Guðmundsson og
Dagbjartur Sigurbrandsson úr
Golfklúbbi Reykjavíkur ásamt
Rúnari Arnórssyni úr Keili. Allir
léku þeir á 69 höggum. Tíu kylf-
ingar léku undir pari í karlaflokki
í gær en Jaðarsvöllur er langur og
býsna erfiður af meistaraflokks-
teigum í samanburði við aðra golf-
velli hérlendis.
Hulda Clara Gestsdóttir lék á
70 höggum og er með tveggja
högga forskot eftir 18 holur af 72.
Hulda er á einu höggi undir pari
en konurnar luku leik í gærkvöldi.
Anna Júlía Ólafsdóttir, einnig
úr GKG, lék á 72 höggum eins og
Helga Signý Pálsdóttir úr Golf-
klúbbi Reykjavíkur. Perla Sól Sig-
urbrandsdóttir úr GR er á tveim-
ur yfir pari og Ragnhildur
Kristinsdóttir á þremur yfir pari.
Ragnhildur hafnaði í 2. sæti í
fyrra eftir umspil og þykir líkleg
til afreka.
Hlynur notaði
aðeins 66 högg
- Kylfingar úr GKG efstir á Akureyri
Ljósmynd/golf.is
Efst Hulda Clara Gestsdóttir fékk
sjö fugla á hringnum.
Nú er aðeins vika í að enska
úrvalsdeildin í fótbolta snúi aft-
ur. Mér líður enn þá eins og það
séu nokkrir dagar síðan síðasta
tímabil kláraðist. Það tímabil var
það eftirminnilegasta sem ég
sem stuðningsmaður Leeds
United hef upplifað á minni lífs-
leið.
Ég var því miður aðeins átta
mánaða eða svo þegar liðið varð
síðast enskur meistari og ég
efast um að ég hafi fagnað mik-
ið. Ég man í það minnsta lítið eft-
ir slíkum fögnuði. Ég var lítill
polli þegar Leeds komst alla leið
í undanúrslit Meistaradeildar
Evrópu árið 2001.
Þrátt fyrir ungan aldur
man ég enn eftir ákveðnum
augnablikum. Ég man eftir auka-
spyrnumarki frá Ian Hart í átta
liða úrslitum gegn Deportivo La
Coruna og ég man eftir Lee
Bowyer skora sigurmark gegn
AC Milan. Þá man ég því miður
líka eftir jöfnunarmarki Rivaldos
fyrir Barcelona á 90. mínútu á
Elland Road eftir hetjulega bar-
áttu minna manna.
Örfáum árum síðar var
Leeds komið niður í C-deild og
því miður man ég mun betur eft-
ir þeim tíma. Töp gegn stór-
veldum á borð við Histon, Here-
ford og Oldham styrktu mig
mikið sem manneskju. Bréfber-
inn í Histon skoraði sigurmark
síns liðs gegn Leeds og gerði lífið
skemmtilegra.
Eftir sextán ár í neðri deild-
unum komst liðið mitt hins vegar
loksins aftur upp í efstu deild
fyrir síðustu leiktíð með hinn
stórkostlega Marcelo Bielsa á
hliðarlínunni. Liðið spilaði glæsi-
legan fótbolta og „dirty“ Leeds
er skyndilega orðið lið númer tvö
hjá mörgum. Nú nýt ég þess
loksins almennilega að eiga lið í
efstu deild.
BAKVÖRÐUR
Jóhann Ingi
Hafþórsson
johanningi@mbl.is
_ Enska meistaraliðið Manchester
City hefur fest kaup á enska landsliðs-
manninum Jack Grealish frá Aston
Villa. City greiðir 100 milljónir sterl-
ingspunda fyrir Grealish eða liðlega
sautján og hálfan milljarð. Um er að
ræða metupphæð hjá ensku félagi.
_ FC Barcelona tilkynnti í gær að
slitnað hafi upp úr samninga-
viðræðum við Lionel Messi sem er
með lausan samning. Messi sé því á
förum frá félaginu.
_ Barbára Sól Gísladóttir, bakvörður
Selfoss í knattspyrnu, hefur verið lán-
uð til danska félagsins Bröndby til ára-
móta. Fótbolti.net greindi frá þessu.
_ Danska knattspyrnufélagið Lyngby
tilkynnti í gær að félagið hefði keypt
Sævar Atla Magnússon, fyrirliða
Leiknis. Leikur hann því ekki meira
með Leikni í sumar.
Eitt
ogannað