Morgunblaðið - 06.08.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 06.08.2021, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2021 Verið velkomin í sjónmælingu Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200 Opið virka daga 9.30–18 Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is „Ég skrifaði þessar sögur allar upprunalega fyrir svona tíu árum eða svo. Þær hafa legið í salti hjá mér þangað til í fyrra þegar ég var að taka til í tölvunni hjá mér og grisja. Þá fór ég yfir þær og fór svo að falast eftir útgáfu sem varð svo raunin,“ segir Sölvi Sveinsson um til- urð nýs smásagnasafns síns sem ber titilinn Lög unga fólksins – Átta tilbrigði við stef. Þetta er fyrsta skáldverk Sölva sem þó hefur fengist við ýmiss konar skrif, ritað endurminn- ingabók, ferðaþætti og fróðleikspistla, og er ekki síst þekkur fyrir verk sín um íslenskt mál. Smásagnasafnið hefur undirtitilinn Átta til- brigði við stef og segir Sölvi það vera vegna þess að sögurnar hverfist um sama þemað. „Allar sögurnar fjalla með einhverju móti um roskið fólk, svona á mínum aldri en samt af síð- ustu kynslóð. Þetta er ekki mín kynslóð sem ég er að skrifa um heldur sú sem er að kveðja núna.“ Titilinn Lög unga fólksins kallast skemmtilega á við þema sagnasafnsins. Nýr veruleiki, nútímatækni og breytt sam- félag blasir við þessu fólki á efri árunum og fjalla ýmsar sögurnar um þau viðbrigði. Í einni sögunni neitar karlmaður að fara á elliheimili og vill þaðan af síður losa sig við kindurnar sín- ar úr bakgarðinum. Í annarri kynnist eldri kona litlum strák og mynda þau fallegt sam- band þar sem ungur nemur og gamall temur. Kennslan er þó ekki síður á hinn veginn, því yngri kynslóðin hjálpar þeirri eldri að ná tök- um á tækninni. Ýmislegt út fortíðinni skýtur upp kollinum í sögunum og ákveðinn nostalgíublær liggur yfir þeim. „Langflest gamalt fólk sér æskuna í ein- hverjum rómantískum hillingum. Þá er hug- urinn búinn að vinsa úr allt sem er óþægilegt og sér allt í silfurlitum bjarma,“ segir höfund- urinn. Allt í öllu í menningarlífinu í Skagafirði Sögurnar gerast flestar í einhverjum ónefndum kaupstað út á landi, ein gerist þó í Reykjavík og önnur að mestu leyti austur á Reyðarfirði. Í káputexta bókarinnar nefnir út- gefandi að sögurnar eigi sér líklega rætur á uppeldisslóðum Sölva sjálfs, Sauðárkróki. Sölvi hefur í nógu að snúast þessa dagana því annað verk eftir hann kemur út á næstu dögum og þar spilar Sauðárkrókur stórt hlutverk. Það er ævisaga Eyþórs Stefánssonar tónskálds (1901-1999) og segir höfundurinn það ekki vera tilviljun að hún komi út í ár. Eyþór hafi nefni- lega búið alla ævi á Sauðárkróki og í ár séu ein- mitt 150 ár liðin síðan byggð hófst þar. „Það sem er svo merkilegt við hans feril er það að hann átti enga skólagöngu að baki nema barna- og unglingaskóla. Svo var hann bara stuttan tíma hjá Páli Ísólfssyni og Emil Thor- oddsen síðar og þá var hann orðinn fullorðinn maður og löngu farinn að semja tónlist.“ Eftir Eyþór liggja milli fimmtíu og sextíu lög og um fjörutíu þeirra hafa verið gefin út. Þekktust þeirra eru líklega Lindin, Bikarinn og Mána- skin. Eyþór var að sögn Sölva afar áberandi í menningarlífinu á Sauðárkróki. „Hann var allt í öllu í leiklist á Króknum. Alls lék hann 118 hlutverk og leikstýrði 32 sýningum fyrir leik- félagið og líklega litlu færri fyrir önnur félög í bænum. Síðan var hann viðloðandi kirkjusöng í sextíu ár. Hann byrjaði að syngja í kirkjukórn- um ellefu ára gamall og stýrði honum frá 1929 til 1972. Auk þess var hann kennari og stofnaði tónlistarskóla. Það er óhætt að segja að hann hafi verið allt í öllu í menningarlífi Skagfirð- inga.“ Sjálfur þekkti Sölvi Eyþór vel. „Hann hóf sinn búskap í foreldrahúsum mínum og það var samgangur milli heimilanna. Þannig kynntist ég honum og svo kenndi hann mér náttúrulega líka.“ Sölvi situr í ritstjórn tímaritsins Skagfirð- ingabók sem kemur út fyrir norðan nokkurn veginn árlega og hófst vinnan að ævisögu Ey- þórs í tengslum við það rit. „Í Skagfirðinga- bók birtist í hverju hefti ævisaga einhvers sem hefur sett svip á mannlífið í Skagafirði. Ég byrjaði að skrifa æviþátt fyrir tímaritið en sá strax að heimildirnar voru allt of miklar svo þetta hefði sprengt þann ramma sem settur er þar,“ segir höfundurinn. Getur skrifað það sem honum sýnist „Það var svolítið gaman að fást við þessi verk hlið við hlið því að í smásögunum þá ræð ég. Ég skrifa alveg það sem mér sýnist og laga persónur í huga mínum eins og ég vil hafa þær. En þegar maður er að skrifa ævi- sögu annars manns verður maður að hlíta heimildunum og mynda sér skoðun á mann- inum út frá þeim og því sem hann sjálfur gerði. Svo þetta var skemmtilegur tvíleikur ef svo má segja.“ Hingað til hefur Sölvi einungis gefið út efni af fræðilegum toga en snýr sér nú í fyrsta sinn að skáldskap. „Þetta er allt öðru vísi. Þarna ræð ég öllu en í hinu er það viðfangsefnið og heimildirnar sem stýra ferðinni. Í skáld- skapnum get ég skrifað það sem mér sýnist sem kannski sést á þessum sögum. Þær eru kannski flestar frekar raunsæislegar og fjalla með sínum hætti um ákveðna einsemd sem ellinni fylgir hjá mörgum en ég reyni nú að hafa einhvern smá húmor í þessu líka.“ Sölvi er ötull bókmenntagagnrýnandi en segir ekki erfitt að stíga hinum megin borðs og gefa sjálfur frá sér skáldverk. „Þegar mað- ur er orðinn roskinn eins og ég þá fylgir því ákveðið kæruleysi. Maður má ekki taka sjálf- an sig of hátíðlega og það hef ég heldur ekki gert sem gagnrýnandi. Ég hef reynt að bera virðingu fyrir verkum annarra. Þegar maður fær bók í hendur og hefur ekki mikinn tíma til að lesa hana, velta henni fyrir sér og skrifa síðan um hana þá verður maður að bera virð- ingu fyrir höfundarverkinu. Þetta er verk sem einhver einstaklingur er kannski búinn að leggja margra ára vinnu í og maður verður að skrifa um það af hæfilegri virðingu. Svo getur maður slett úr klaufunum þegar maður er að skrifa sjálfur.“ Spurður út í áform um frekari skrif segir Sölvi: „Ég er alltaf að skrifa eitthvað. Þegar maður hættir að vinna þá leggst maður ekk- ert í kör. Maður reynir að hafa eitthvað að gera. Við erum þrír núna í ritstjórn Skagfirð- ingabókar og segja má að í hverja bók fari um það bil eitt ársverk hjá okkur þremur samtals. Ég sýsla við það. Annars er ég alltaf eitthvað að grúska og skrifa mér til ánægju og yndis.“ Morgunblaðið/Einar Falur Frjáls „Í skáldskapnum get ég skrifað það sem mér sýnist, sem kannski sést á þessum sögum,“ segir Sölvi Sveinsson um nýútkomið smásagnasafn sitt, Lög unga fólksins. Slett úr klaufunum í skáldskap - Sölvi Sveinsson skrifar um roskið fólk í nýju smásagnasafni, Lög unga fólksins - Sendir einnig frá sér ævisögu Skagfirðingsins Eyþórs Stefánssonar tónskálds - Gaman að fást við verkin hlið við hlið Atvinna Niðurstöður nýrrar rannsóknar sýna að Neanderdalsmenn voru mögulega meiri fagurkerar en talið hefur verið. Sýnt þykir nú fram á að þeir hafi í raun málað á dropa- steina og bergmyndanir í spænsk- um helli fyrir meira en 60 þúsund árum. Kenningin um að Neanderdals- menn hafi borið eða sprautað rauð- leitu litarefni á berg í Cueva de Ardales-hellinum hefur verið um- deild síðan hún var fyrst sett fram árið 2018. En í skýrslunni nýju, sem AFP-fréttaveitan segir frá, kemur fram að talið sé að liturinn hafi ver- ið borinn á fyrir að minnsta kosti 64.800 árum, þegar nútímamenn höfðu ekki enn sest að í álfunni. Vísindamenn voru áður varkárir gagnvart fundinum á litum á berg- inu og sögðu að mögulega gætu litarefnin verið þar af náttúru- legum orsökum. En nýja rann- sóknin afskrifar það og er sagt að líkast sé því sem efninu hafi verið slett eða blásið á. Þá virðast litar- efnin ekki koma úr hellinum, áferð- in á þeim er allt önnur en í útfell- ingum í hellinum, og er því talið víst að þau hafi verið flutt á staðinn. Þá hafa rannsóknirnar sýnt að litarefnin voru borin á bergið á mis- munandi tímum á tímabili sem náði yfir allt að 10 þúsund ár. „Það styður kenninguna að Neanderdalsmenn hafi komið reglulega í hellinn, á nokkurra ár- þúsunda tímabili, til að setja mark sitt á hellinn með litum,“ er haft eftir Francesco d’Errico, einum höfunda skýrslunnar. Telja Neanderdalsmenn hafa mál- að myndir á veggi hellis á Spáni - Færðu litarefni á bergið fyrir rúmlega 60.000 árum AFP Litadýrð Hér má sjá hvernig litarefni hafa verið borin á bergmyndanir í hell- inum á Spáni. Talið er að elstu „verkin“ séu meira en 60 þúsund ára gömul.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.