Morgunblaðið - 06.08.2021, Qupperneq 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
»Sönghópurinn Olga Vocal Ensemble hélt tón-
leika í Háteigskirkju á miðvikudagskvöldið var.
Hópinn skipa fimm söngvarar, Jonathan Ploeg,
Arjan Lienaerts, Matthew Lawrence Smith, Philip
Barkhudarov og Pétur Oddbergur Heimisson. Þrír
þeirra eru búsettir í Hollandi og tveir á Íslandi.
Þema tónleikanna var „Aurora“, norðurljósin sem
mála fallegar myndir á himnum á dimmasta tíma
ársins. Og lagalistinn var fjölbreyttur, frá klass-
ískum sönglögum og djassi yfir í yfirtónasöng.
Norðurljósatónleikar Olga Vocal Ensemble í Háteigskirkju
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sáttar Jóhanna Guðbjörnsdóttir, Inga Árnadóttir og Guðrún Jóhannsdóttir.
Tónleikagestir Hans Ólason, Helena Mjöll Jóhannsdóttir, Sigríður Ein-
arsdóttir og Ólafur Jóhann Ólafsson voru meðal gesta á tónleikunum.
Sönghópurinn Olga Vocal Ensemble syngur
í Háteigskirkju. Hópurinn hefur sent frá sér þrjá
geisladiska og flytur afar fjölbreytileg sönglög.
Grímustund Gestir hlýddu á tónlistina með grímu fyrir vitum.
Bandaríski rithöfundurinn og tón-
listarblaðamaðurinn Patricia Ken-
nealy-Morrison er látin, 75 ára að
aldri. Á seinni árum sendi hún með-
al annars frá sér vísindaskáldsögur
sem tengdust rokktónlist en hvað
þekktasta bók hennar er sjálfs-
ævisaga um samband þeirra Jims
Morrisons, söngvara hljómsveit-
arinnar Doors.
Kennealy-Morrison lagði stund á
forn keltnesk trúarbrögð og blönd-
uðu þau Morrison blóði samkvæmt
þeim sið og gengu í hjónaband.
Morrison kallaði sig í texta „eðlu-
kónginn“ og í þeim anda kallaði
Kennealy-Morrison sig ætíð „eðlu-
drottningu“. Morrison lést af of-
neyslu eiturlyfja 27 ára gamall.
Rithöfundur Kennealy-Morrison var ósátt
við þá mynd af þeim Morrison sem birtist í
kvikmynd Olivers Stones um The Doors.
„Eðludrottning“
Morrisons látin
Bandaríski leik-
stjórinn og gam-
anleikarinn fjöl-
hæfi Mel Brooks,
sem er orðinn 95
ára gamall, send-
ir í haust frá sér
minningabók
sem hann kallar
All About Me! –
My Remarkable
Life in Show Business. Í frétt
Guardian segir að Brooks lofi að
fjalla þar um allt mögulegt, allt
frá tíma sínum í hernum að giftu-
ríku samstarfinu í grínframleiðslu
með Carl Reiner. Brooks hefur
unnið til Óskars-, Emmy-, Tony-
og Grammy-verðlauna fyrir fjöl-
breytileg og sígild verk fyrir hvíta
tjaldið og svið.
Mel Brooks sendir
frá sér ævisögu
Mel Brooks