Morgunblaðið - 23.08.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.08.2021, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2021 Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is UMFERÐAREYJAR Sérlausnir fyrir sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki Henta vel til að stýra umferð, þrengja götur og aðskilja akbrautir. Til eru margar tegundir af skiltum, skiltabogum og tengistykkjum sem passa á umferðareyjarnar. 2021 ALÞINGISKOSNINGAR FRÉTTASKÝRING Andrés Magnússon andres@mbl.is Í vor og sumar voru þess allir full- vissir að kosningabaráttan í haust yrði stutt og snörp og höfðu ýmsir á orði að allt færi á fullt eftir versl- unarmannahelgi. Á því hefur þó orð- ið nokkur bið. Á miðvikudag er mán- uður til kosninga. Kannski það sé ekki nema von, hefðbundin stjórnmál hafa nokkuð mætt afgangi á dögum kórónuveir- unnar, eins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokks- ins, hefur bent á. Þegar litið er til niðurstaðna í könnunum MMR allt frá kosning- unum fyrir fjórum árum verður hins vegar ekki séð að einhver kaflaskil hafi orðið í fylgissveiflum frá því að heimsfaraldurinn kom til Íslands. Jú, það má merkja að stuðningur við ríkisstjórnina jókst þegar farsóttin geisaði, en stjórnarflokkunum hefur orðið mismikið úr. Það verður t.d. ekki séð að Vinstri græn, sem fara bæði með forsætisráðuneyti og heil- brigðisráðuneyti, hafi fengið mikið fylgi fyrir sinn snúð. Jafnvel fengið skell, eins og gerðist um það leyti sem hópsmitið á Landakoti kom upp. Nú þarf að lesa kannanir með fyr- irvara um nákvæmni, vikmörkin eru nokkur og óvarlegt að taka hreyf- ingu um 1-2 prósentustig milli kann- ana of hátíðlega. Hjá því verður þó varla komist hjá smærri flokkunum, sem eru að fá milli 5-10% fylgi. En það má reyna að líta hjá hreyfingu milli einstakra kannana og horfa á hneigðina, líkt og sýnd er að ofan í myndritum um fylgi hvers flokks fyrir sig. Þar má til dæmis sjá ákveðnar hneigðir í fylgi Viðreisnar og Flokks fólksins, en það er samt ekki mikið að gerast þar og fylgið greinilega nokkuð seigt. Á hinn bóginn má greinilega sjá hvað Klaustursmálið var Miðflokknum eindregið áfall, en kannski ekki minna merkilegt hvernig Framsókn virtist fá það fylgi lóðbeint heim. Sjálfstæðis- flokkur mun minna ef nokkuð. Hins vegar kann að felast lærdómur í því hve skjótt Miðflokkurinn endur- heimti fylgi, að líkindum í kringum umræðu um orkupakkann góða, en það dalaði fljótt eftir að veiran tók öll völd. Á sama hátt er athyglisvert að skoða fylgi Vinstri grænna með hlið- sjón af fylgi bæði Samfylkingar og Pírata, því þar á milli er töluvert samhengi, sem í sjálfu sér á ekki að koma á óvart þar á hinum róttæka vinstri væng. Fróðlegt verður að sjá hvort Sósíalistar trufla það jafnvægi frekar. Kannski niðurstaðan sé sú, að þrátt fyrir krefjandi verkefni, flokkakraðakið og það allt, skuli fylgisveiflurnar á kjörtímabilinu ekki hafa verið meiri. Kannski er stjórnmálalífið rólegra en virðist á yfirborðinu og máske kosningabar- áttan verði ekki miklu æsilegri. B Framsókn C Viðreisn D Sjálfstæðisflokkur M Miðflokkur P Píratar S Samfylking V Vinstrigræn F Flokkur fólksins 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% ’21’20’19’18K 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% ’21’20’19’18K 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% ’21’20’19’18K 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% ’21’20’19’18K 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% ’21’20’19’18K 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% ’21’20’19’18K 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% ’21’20’19’18K 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% ’21’20’19’18K J Sósíalistar 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% ’21’20’19’18K Fylgi flokka samkvæmt skoðanakönnun MMR frá alþingiskosningum 28. október 2017 Kl au stu r Co vid -19 Co vid -19 La nd sr ét tu r Kl au stu r Bo rg ar stj ór na rk os nin ga r Pr óf kjö r St jór na rm yn du n Co vid -19 La nd ak ot3. or ku pa kk inn Bi rg itt a h æt tir Inn an flo kk sd eil ur Vg da la 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% ’21’20’19’18K Kosningabaráttan fer rólega af stað - Fylgissveiflur á kjörtímabilinu gefa vísbendingar um það sem koma skal

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.