Morgunblaðið - 23.08.2021, Blaðsíða 32
SÉRSMÍÐI
BORÐPLÖTUR OG
SÓLBEKKIR
AKRÝLSTEINN
Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík
Sími 587 6688 | fanntofell.is
Sérsmíðum eftir óskum hvers og eins. Þú kemur með
hugmyndina og við látum hana verða að veruleika með
vandaðri sérsmíði og flottri hönnun.
• Viðhaldsfrítt efni með mikla endingu og endalausa
möguleika í hönnun
• Sérsmíðum eftir máli
• Margrir litir í boði
• Gæðavörur úr harðplasti, akrílstein, Fenis og límtré
• Mikið úrval efna, áferða og lita
• Framleiðum eftir óskum hvers og eins
• Hentar jafnt fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum
og sólbekkjum síðan 1987
Jóhannes Atli Hinriksson opnaði um helgina einka-
sýninguna Marmari í Ásmundarsal. Verkin vann
hann sérstaklega fyrir sýninguna og eru þau blanda
af þrívíðum skúlptúrum og tvívíðum verkum.
„Óhlutbundin höggmyndalist er í besta falli orða-
leikur, í versta falli brandari. Hluturinn er alltaf
hlutbundinn. Það segir sig bók-
staflega sjálft, Jónas minn. Og
dag nokkurn verður ungur
listamaður loks miðaldra. Þá
hefur hann einn val-
kost (ef einn kost-
ur er þá val-
kostur): Hina
hreinu uppgjöf
fyrir klass-
íkinni,“ segir
um sýninguna á
Facebook. Hrá-
efnið sé einhvers konar
marmari eða svipi að
minnsta kosti til marmara.
Marmari til sýnis í Ásmundarsal
MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 235. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Chelsea, Liverpool, Brigthon og Tottenham eru með fullt
hús stiga á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu
eftir leiki helgarinnar. Romelu Lukaku fer vel af stað með
sínu nýja félagi, Chelsea, og það tók hann einungis fimm-
tán mínútur að koma sínu liði yfir í stórleiknum gegn
Arsenal á Emirates-vellinum í London. Þá reyndist Ma-
son Greenwood hetja Manchester United þegar liðið
heimsótti Southampton á St. Mary’s-völlinn en leiknum
lauk með 1:1-jafntefli. Dele Alli tryggði svo Tottenham
1:0-sigur gegn Wolves á Molineux-vellinum. » 27
Fjögur lið með fullt hús stiga á
toppi ensku úrvalsdeildarinnar
ÍÞRÓTTIR MENNING
Hólmfríður María Ragnhildardóttir
hmr@mbl.is
Svifflugfélag Íslands fagnaði á dög-
unum 85 ára starfsafmæli sínu með
pomp og prakt. Starfsemi félagsins
hefur farið fram á Sandskeiði frá
árinu 1937 og var því ekki nema við
hæfi að veislan færi þar fram. Gestir
komu að úr öllum áttum, bæði keyr-
andi og fljúgandi, og var uppistand-
arinn Ari Eldjárn fenginn til að hafa
ofan af fyrir mannskapnum. Kom að
sjálfsögðu ekkert annað til greina en
að skemmtikrafturinn yrði síðan
sendur á loft með einni svifflugunni.
Þórhildur Ída Þórarinsdóttir, for-
maður Svifflugfélags Íslands, segir
veisluna vel heppnaða. Margar
skemmtilegar uppákomur voru í af-
mælinu, meðal annars óvænt uppá-
tæki á vegum Fisfélags Reykjavíkur
en á annan tug flugvéla á þess vegum
kom fljúgandi frá Hólmsheiði og
flugu lágflugi yfir flugbrautina á
Sandskeiði.
Margt breyst á 85 árum
Svifflugfélag Íslands var stofnað
þann 10. ágúst árið 1936 og var
fyrsta flugið farið 31. janúar árið
1937. Hefur nú margt breyst síðan
þá en að sögn Þórhildar eru heim-
ildir um að fyrstu svifflugurnar hafi
verið sendar í loft upp með eins kon-
ar teygjubyssum í Vatnsmýrinni.
Voru þá svifflugurnar byggðar upp
eins og einn stór vængur og sátu
flugmennirnir í grindum þar sem
enginn flugmannsklefi var til staðar.
Í dag eru tímarnir breyttir og eru
nú meðal annars komnar svifflugur
sem ganga á rafmagni og þarf því
ekki að draga þær í gang.
Hvetur Þórhildur alla sem hafa
áhuga á flugi að kynna sér Svifflug-
félagið og starfsemi þess. Eru fé-
lagsmenn nú á fimmta tug og hefur
félagið leyfi frá Samgöngustofu til
að kenna nemendum svifflug. Að
sögn Þórhildar er þetta töluvert
ódýrara en hefðbundið flugnám og
er þetta jafnframt einn besti grunn-
ur sem fólk getur fengið fyrir at-
vinnuflugmennskuna. Geta ungling-
ar hafið nám við 13 ára aldur en til
að mega fljúga einflug eru nemar al-
mennt að taka verklega námið í
rúmlega 30 til 40 flugum til að ljúka
þeim æfingum sem eru í námskrá.
Tekur þetta oft ekki nema tvö sum-
ur.
Braut blað í sögunni
Þórhildur er eina konan í sögu fé-
lagsins sem hefur sinnt formennsku en
hún kynntist svifflugi fyrir hálfgerða
tilviljun. Hafði hún, ásamt tveimur vin-
konum sínum, endað á Sandskeiði
verslunarmannahelgina árið 1990, í
kjölfar þess að kunningi þeirra hafði
skrökvað því að svifflug myndi lækna
flughræðslu. „Þetta er að sjálfsögðu al-
gjör della því þér er skotið á loft eins
og tappa úr kampavínsflösku,“ segir
Þórhildur hlæjandi. Enduðu vinkon-
urnar þó á að láta reyna á þessa tilgátu
en eins og gefur að skilja var lækn-
ingamáttur svifflugsins takmarkaður.
Sat vinkona hennar uppi með flug-
hræðsluna en Þórhildur varð aftur á
móti heilluð og hefur hún nú lagt stund
á þetta áhugamál í rúm 30 ár.
Svifflugfélagið 85 ára
- Svifflugum ekki lengur skotið á loft með „teygjubyssu“
Afmæli Hópflug félaga í Fisfélagi Reykjavíkur kom Þórhildi og öðrum af-
mælisgestum skemmtilega á óvart. Á annan tug véla kom fljúgandi.
Ljósmynd/Baldur J. Baldursson
Flugskýli Afmælið var haldið í blíðviðri á Sandskeiði þar sem félagið hefur verið starfrækt frá fyrsta flugtaki í janúar 1937.