Morgunblaðið - 23.08.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 23.08.2021, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2021 Svipast um í bænum Á Sauðárkóki fór í hönd óvenju merkilegt ár, hver viðburðurinn rak annan bæði í atvinnumálum og menningarlífi bæjarins sem átti 100 ára byggðarafmæli og kaupstað- urinn í örum vexti. Í desember- byrjun voru Sauðkrækingar 1.600 talsins og alls bjuggu í Skagafirði 4.067 manns. Króksurum hafði fjölgað um 6% á milli ára. Fyrsti skuttogari Skagfirðinga kom til Sauðárkróks í janúar og hafði strax veruleg áhrif til frambúðar á at- vinnulíf og afkomu bæjarbúa. Landsins forni fjandi lét sig ekki vanta og 15. febrúar rak töluverðan hafís inn Fjörðinn og fimm dögum síðar var ís- inn kominn að höfninni. 30 hús voru í byggingu í nýja hverfinu sunnan Sauðár eða á Gólanhæðum eins og gárungar köll- uðu Hlíðarhverfið. Húsin við Birki- hlíð risu eitt af öðru. Einnig voru umtalsverðar byggingafram- kvæmdir í bænum m.a. við byggingu nyrsta fjölbýlishússins við Víði- grund. Ný fyrirtæki voru stofnuð 1970 sem sköpuðu 60 störf, bærinn var í örum uppgangi með tilheyrandi vaxtaverkjum. Undanfarin ár hafði atvinna verið stopul yfir vetrarmán- uðina, en nú virtist ætla að verða breyting til batnaðar. En bæjarlífið var í föstum skorðum og í skjóli við kjörbúð Kaupfélagsins við Skagfirð- ingabraut sátu gjarnan á bekknum Siggi Stef og Mundi Gulla og ræddu málin. Þeir hétu fullu nafni Sigurður Stefánsson og Guðmundur Sigurðs- son. Mundi Gulla var smiður og frægur fyrir dugnað sinn og hörku. Hann reisti einn fánastengurnar sem lengi voru á Nöfunum. Hann hætti að vinna 78 ára. Mundi og Hermundur sonur hans áttu hest- hús á sjávarbakkanum og eftir því var tekið hvað þeir voru ávallt vel ríðandi. Stundum settist Sveinn Guðmundsson kjörbúðarstjóri og hrossabóndi hjá Sigga og Munda á bekkinn og þá var glatt á hjalla. Þessir höfðingjar settu svip sinn á bæjarlífið. Og ef menn gengu niður Skólastíginn og Knarrarstíginn og fjöruleiðina bak við Áka, birtist af- girt undraveröld. Þetta sumar dvaldi á Króknum Ljón norðursins eða Leó Árnason frá Víkum á Skaga, byggingameistari, skáld og listamaður. Hann ferðaðist gjarnan um bæinn uppáklæddur í hesta- kerru og puntaði heldur betur upp á bæjarlífið á afmælisárinu. Ljónið sagði að skáldskapurinn væri sann- ur en svonefndur sannleikur væri aftur á móti helber uppspuni. Á af- mælisárinu var Hákon Torfason bæjarstjóri. Sjálfstæðis- og fram- sóknarmenn mynduðu meirihluta. Bæjarstjórn Sauðárkróks skipuðu: Halldór Þ. Jónsson héraðsdóms- lögmaður og fulltrúi sýslumanns var forseti bæjarstjórnar (S), Björn Daníelsson skólastjóri (S), Erlendur Hansen rafvirkjameistari (A), Guð- jón Ingimundarson íþróttakennari (F), Guðjón Sigurðsson bakari (S), Marteinn Friðriksson fram- kvæmdastjóri Fiskiðjunnar (F) og Stefán Guðmundsson bygginga- meistari (F). Erlendur Hansen fulltrúi Alþýðuflokks sat einn í minnihluta. Rögnvaldur Gíslason ritaði fundargerðir bæjarstjórnar- innar, en síðar á árinu tók við Björn Björnsson sem seinna meir varð skólastjóri Barnaskólans. Halldór forseti bæjarstjórnar sagði í viðtali við Morgunblaðið 9. júní að ætlunin væri að stofna í bænum Iðnskóla fyrir Norðurland vestra og áhugi væri á að koma upp heimavist við Iðnskólann og Gagn- fræðaskólann. Hitaveitan var orðin rúmlega 20 ára og stefnt á end- urnýjun lagna. Halldór sagði að sjúkrahúsið væri gott, væri bara orðið of lítið og þörf á þriðja lækn- inum. „Fólk þarf að geta búið við sama öryggi á þessu sviði sem í höfuðstaðnum“ mælti forseti bæjar- stjórnar. Nýlega var gert sam- komulag milli sjö hreppa og Sauð- árkróks um læknamiðstöð í bænum í samræmi við samþykkt bæjar- stjórnarinnar frá 2. apríl um að vinna að stofnun slíkrar miðstöðvar í samvinnu við önnur sveitarfélög innan Sauðárkróks læknishéraðs. Á þessum tíma héldu fjölmargir Króksarar kindur í nágrenni bæjar- ins og gera enn. Blómleg hesthúsa- og fjárhúsabyggð var austan við Knarrarstíginn að sjávarbakkanum. Einnig var mikið líf uppi á Móum. Þá voru í hlutastarfi hjá kaup- staðnum svokallaðir bæjarsmalar sem þurftu að vera vel ríðandi og kunnugir sálarlífi íslensku sauðkind- arinnar. Þeirra starf var að bægja frá sauðkindum og hrossum sem leituðu í bæjarlandið. Á afmælis- árinu gegndu þessu virðulega starfi þau Ármann Kristjánsson og Ester Guðmundsdóttir. Þau bjuggu í Rússlandi við Kirkjutorg, en byggðu sér síðar hús við Sæmundargötu. Jónas Hróbjartsson frá Hróars- dal var verkstjóri hjá bænum. Einn- ig var Ólafur Þorsteinsson frá Vatni verkstjóri að því best er vitað. Hann vann áður í rörasteypu bæjarins, en varð verkstjóri eftir það. Unglinga- vinna var í boði hjá bænum um sum- artímann í umsjón verkstjóra bæj- arins. Elías B. Halldórsson listmál- ari stjórnaði byggingu íþróttavall- arins og hannaði áhorfendastúkuna við völlinn. Hjá Elíasi unnu m.a. Garðar Guðjónsson á jarðýtu og sléttaði völlinn, Sölvi Sveinsson, Reynir Kárason, Hannes Friðriks- son o.fl. Um sorphreinsun a.m.k. í neðri bænum sá Málfreð Friðriks- son með dyggum aðstoðarmönnum sínum, m.a. Sölva Sveinssyni og Magnúsi Sverrissyni. Það hét þá að vera í öskunni. Voru Sölvi og Magn- ús lánaðir úr bæjarvinnunni einn til tvo daga í viku til að aðstoða Malla skó. Hvolfdu aðstoðarmennirnir úr sorptunnum í bala sem lyft var upp á pallinn. Líklegt er að á afmælis- árinu hafi einnig þeir Bergur Guð- mundsson frá Nautabúi í Hjaltadal og Arnbjörn Jóhannsson frá Krossi aðstoðað Málfreð í öskunni. Guðmundur Þórðarson var þá með kontór í plastverksmiðjunni Dúða við Fornós þar sem slökkvistöðin er nú til húsa. Málfreð heimsótti gjarn- an Guðmund og var lítt ökufær á eftir, enda báðir ölkærir menn. Sorpið var urðað neðan við Skarð í samnefndu gili sunnan vegar. Svæðið var girt af en ruslið átti til að fjúka. Algengt var að veiðibjöll- urnar yrðu svo saddar á haugunum að þær urðu auðveld bráð. Eitt sinn eftir losun brunaði Malli skó á fullri ferð niður brekkuna að Göngu- skarðsárbrúnni, en svo óheppilega vildi til að afturendi Chevrolet vöru- bílsins K-29 rakst í annan brúar- stöpulinn svo allt lék reiðiskjálfi og mátti þá engu muna að drengirnir héldust á pallinum. Er yfir var kom- ið kom skóarinn í bílstjóragluggann og sagði við þá Sölva og Magnús sem voru rétt að byrja að jafna sig: Það er ekki skóarinn sem er vitlaus. Það er bíllinn sem er skakkur! Mál- freð var annálaður hagleiksmaður. Einhver óánægja hefur verið með sorphreinsun því í júlí skrifuðu 300 bæjarbúar bæjarstjórninni og ósk- uðu eftir því að sorphreinsun yrði framkvæmd a.m.k vikulega. Í fram- haldi velti bæjarstjórinn því fyrir sér hvort heppilegra væri að nota sorptunnur eða sorppoka. Í bænum var sannarlega mikið um að vera. Unnið var ötullega að undirbúningi 14. landsmóts UMFÍ og hátíðahalda í tilefni 100 ára byggðarafmælis bæjarins. Það var því í mörgu að snúast í sumarbyrjun á Króknum á þessu skemmtilega ári. Unnið var að byggingu nýs íþróttavallar, endurbótum á sund- lauginni fyrir landsmótið og ásamt mörgum öðrum framkvæmdum. Ívar Antonsson bar út póst til bæjarbúa og var stundum kallaður hinn beinlausi. Björn Daníelsson var skólastjóri barnaskólans við Freyju- götu 49. Björn var fyrirmannlegur og naut virðingar nemenda. Kenn- arar voru m.a Marteinn Steinsson, Gísli Felixson, Lissý Jónsdóttir og Þórir Stephenssen sóknarprestur. Edda Baldursdóttir og Guðjón Ingi- mundarson voru íþróttakennarar og var sá síðarnefndi einnig handa- vinnukennari. Ásgrímur skraddari Sveinsson var húsvörður. Hann not- aði gjarnan prik til að ýta nemend- um undir steypibaðið eftir æfingar við litla hrifningu nemenda. Friðrik Margeirsson var skóla- stjóri Gagnfræðaskóla Sauðárkróks. Kennarar voru Björn Björnsson stærðfræðikennari, Árni Þorbjörns- son kenndi dönsku o. fl., Jón Georgsson sem kenndi ensku með ósviknum Oxford framburði, Tómas Sveinsson, Frank Herlufsen, Hall- dóra Hallgrímsdóttir kenndi m.a. teikningu, Helgi Baldursson, Fið- björg Vilhjálmsdóttir kenndi mat- reiðslu, Guðjón Ingimundarson, Edda Baldursdóttir, Ingólfur Steinsson, Erla Jóhannsdóttir, Ingi- mundur Ingimundarson og Haukur Stefánsson er kenndi m.a. teikn- ingu. Nýlega hafði fyrsti áfangi nýs Gagnfræðaskóla verið tekinn í notk- un við Skagfirðingabrautina og áfram var haldið við byggingu skól- ans sem jafnframt hýsti Iðnskólann. Á afmælisárinu gátu nemendur tek- ið landspróf í Gagnfræðaskóla Sauð- árkróks sem þótti merkilegt. Kári Þorsteinsson trésmiður var hús- vörður í Gagnfræða0skólanum á af- mælisárinu. Á Króknum hafa alltaf búið hagyrðingar með húmorinn í lagi. Einn góður í bænum orti um kennarana í gagganum með kunna vísu Bólu-Hjálmars að leiðarljósi. Aumt er að sjá í einni lest Inga Helga með fýlupest. Frigga Mör með feitan hest fullan Árna og Tóta prest. Bær í örum uppgangi Bókarkafli | Árið 1971 var venju fremur viðburðaríkt á Sauðárkróki, því þá fögnuðu Sauðkrækingar 100 ára byggðarafmæli, haldið var í bænum Landsmót UMFÍ og fyrsti skuttogarinn kom til bæjarins, svo dæmi séu tekin. Í bókinni Á Króknum 1971 rekur Ágúst Guðmunds- son þessa sögu og dregur upp mynd af bæjarlífinu með ótal sögum og myndum af þeim sem bjuggu í bænum afmælisárið. Ljósmynd/Svanur Jóhannsson Símaflokkur Vaskur símaflokkur Þórðar Sighvatz að störfum, f.v. Svanur Jóhannsson, Þorsteinn Andrésson, Anton Ingimarsson og Stefán Ólafsson. Ljósmynd/Gunnar Helgason Ljón norðursins Leó Árnason, kallaður Ljón norðursins, sést hér á spjalli við Sigurð Magnússon, Sigga Skorr, á Landsmóti UMFÍ árið 1971.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.