Morgunblaðið - 23.08.2021, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2021
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur
Urður Egilsdóttir
urdur@mbl.is
Stefan Löfven, forsætisráðherra
Svíþjóðar, tilkynnti í gær í ávarpi að
hann muni ekki sækjast eftir því að
leiða Sósíaldemókrata áfram á
flokksþingi í nóvember og muni í
kjölfarið láta af störfum sem for-
sætisráðherra. Löfven hefur verið
formaður Sósíaldemókrata í nærri
tíu ár og forsætisráðherra í sjö ár.
Róstusamt sumar
Þetta kjörtímabil hefur hins veg-
ar reynst Löfven erfitt en eftir
kosningar 2018 ríkti stjórnarkreppa
í fjóra mánuði áður en Miðflokk-
urinn, Frjálslyndi flokkurinn og
Vinstriflokkurinn féllust á að styðja
áframhaldandi stjórn Sósíaldemó-
krataflokksins og Græningja með
Löfven sem forsætisráðherra.
Í júní á þessu ári samþykkti
meirihluti sænska þingsins van-
trauststillögu á ríkisstjórn hans og
er það í fyrsta skipti í sögu Svíþjóð-
ar sem það hefur gerst. Kveikjan að
tillögunni var ákvörðun ríkisstjórn-
arinnar um að aflétta hömlum á
leiguverði nýs íbúðarhúsnæðis.
Í kjölfarið sagði Löfven af sér en
fékk skömmu síðar umboð til að
mynda nýja ríkisstjórn eftir að leið-
toga stjórnarandstöðunnar mistókst
að mynda stjórn. Löfven tók þá aft-
ur við embætti í júlí. Löfven hafði
áður gefið til kynna að hann ætlaði
að starfa annað kjörtímabil og kom
tilkynning hans í gær mörgum að
óvörum. Í ræðu sinni sagði Löfven
að árin sem hann hefði gegnt emb-
ættinu hefðu verið stórkostleg. „Allt
verður þó sinn endi að taka og ég
óska eftirmanni mínum alls hins
besta.“ Þá sagðist hann ætla að láta
af embætti í haust til þess að gefa
eftirmanni sínum nægan tíma til að
undirbúa sig fyrir næstu þingkosn-
ingar sem fara fram 11. september
árið 2022.
Ekki vitað hver tekur við
Óvíst er hver það verður en frá
því að Löfven tók við formennsku
Sósíaldemókrata hefur flokkurinn
ekki haft neinn augljósan staðgengil
fyrir Löfven. Sænska fréttastofan
TT hefur hins vegar bent á fjár-
málaráðherrann Magdalenu And-
ersson sem mögulegan frambjóð-
enda. Hún hefur gegnt því embætti
síðustu sjö árin og tekið við embætti
forsætisráðherra í fjarveru Löfven.
Þá hefur heilbrigðisráðherrann
Lena Hallengren einnig verið nefnd
sem mögulegur frambjóðandi. Ef
Andersson eða Hallengren yrðu
kjörnar væri það í fyrsta sinn sem
kona gegnir embætti forsætisráð-
herra í Svíþjóð.
Kosið verður um nýjan formann
Sósíaldemókrataflokksins 3. til 7.
nóvember og verður sænska þingið
síðan að samþykkja formanninn
sem forsætisráðherra.
Stefan Löfven hættir í haust
- Hættir sem formaður Sósíaldemókrataflokksins og forsætisráðherra Svíþjóðar
- Óvissa um hver eftirrennari hans verður - Kosningar í byrjun nóvember
AFP
Stjórnmál Löfven hefur verið formaður Sósíaldemókrata í nærri tíu ár og
forsætisráðherra í sjö ár. Hann mun láta af þeim embættum í haust.
Fjöllistamað-
urinn Josephine
Baker, sem barð-
ist með frönsku
andspyrnuhreyf-
ingunni í síðari
heimsstyrjöld-
inni og var áber-
andi í baráttu
gegn kynþátta-
fordómum, verð-
ur fyrsta svarta
konan sem lögð verður til hvílu í
Pantheon-grafhýsinu í París. Emm-
anuel Macron, forseti Frakklands,
staðfesti að leifar Baker yrðu lagð-
ar til hvílu í grafhýsinu 30. nóv-
ember en forsetinn er sá eini sem
getur tekið þá ákvörðun. Fjöl-
skylda hennar hefur óskað eftir því
frá árinu 2013 og meðal annars
safnað um 38 þúsund undirskriftum
því til stuðnings. Baker fæddist árið
1906 í Bandaríkjunum og fluttist til
Parísar 19 ára. Þegar heimsstyrj-
öldin braust út smyglaði hún m.a.
kortum og leyniskjölum frá and-
spyrnumönnum inn á landsvæði
sem Þjóðverjar höfðu hernumið.
Baker lést árið 1975.
Fyrsta svarta konan
til hvílu í Pantheon
Baráttukona
Josephine Baker.
FRAKKLAND
Boris Johnson,
forsætisráðherra
Bretlands, sagði
í tilkynningu í
gær að leiðtogar
G7-ríkjanna
myndu ræða
ástandið í Afg-
anistan á morg-
un.
„Það er mik-
ilvægt að alþjóðasamfélagið vinni
saman að því að tryggja öruggan
brottflutning fólks frá landinu,
komi í veg fyrir neyðarástand og
styðji afgönsku þjóðina í að nýta
stuðningin sem hún hefur hlotið
síðustu 20 ár,“ sagði Johnson í til-
kynningunni.
G7-ríkin eru Bretland, Kanada,
Frakkland, Ítalía, Japan og
Bandaríkin. Bretland er nú í for-
ystusæti ráðsins og hefur Johnson
ítrekað reynt að boða til fundar
síðastliðna viku. Á fimmtudag
sendu G7-ríkin frá sér fyrstu yfir-
lýsinguna í tengslum við yfirtöku
talíbana. Hvöttu þau talíbana til
þess að tryggja öryggi þeirra sem
nú flýja höfuðborgina Kabúl.
Bandaríkjamenn hafa sent þús-
undir hermanna til landsins til að
tryggja öryggi á flugvellinum, en
Bandaríkjamenn stefna að því að
ljúka flutningi fólks frá landinu
fyrir mánaðamót. Önnur G7-ríki
hafa gefið í skyn að víkka þurfi út
þann tímaramma.
Leiðtogar ríkjanna
ræða Afganistan
Boris Johnson
G7-RÍKIN
Að minnsta kosti átta eru látnir eftir að fellibyl-
urinn Grace skall á austurströnd Mexíkó á laug-
ardag. Fellibylurinn er með þeim öflugustu sem
skollið hafa á Mexíkó um árabil en meðalvind-
hraðinn var 55 metrar á sekúndu. Olli Grace því
stórfelldri eyðileggingu með aurskriðum og flóð-
um. Meðal hinna látnu voru móðir og fimm börn
hennar sem urðu undir aurskriðu sem féll á heim-
ili þeirra í borginni Xalapa.
AFP
Fellibylurinn Grace olli stórfelldri eyðileggingu