Morgunblaðið - 23.08.2021, Page 16

Morgunblaðið - 23.08.2021, Page 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2021 Skýrsla starfshóps sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra um stefnumótun í fiskeldi sem gefin var út 23. ágúst 2017 lagði grunn að eignarhaldi og mikl- um fjárhagslegum ávinningi erlendra fjárfesta og íslenskra leppa þeirra. Stjórnar- formenn Arnarlax og Fiskeldis Austfjarða voru með þátttöku í starfshópnum meðal þeirra sem sömdu leikregl- urnar sjálfum sér og sínum til fjár- hagslega ávinnings. Málið fór síðan í gegnum alla stjórnsýsluna með litlum breytingum og var samþykkt á Alþingi Íslendinga á árinu 2019. Að þessu var stefnt Vissulega gerðu sumir sér grein fyrir að hverju var stefnt á þessum tíma. Í fundargerð stefnumótunar- hópsins frá 14.7. 2017 kemur vel fram hvert menn voru að fara: „Ákveðið að nefndarmenn fái send- ar glærur og áhættumatsskýrslu eftir klukkan 14 þegar hlutabréfa- markaði í Noregi hefur verið lokað.“ Hækkun í hafi með að skrá félögin á erlendan hlutabréfamarkað var að því er virtist búið að ákveða á þess- um tímapunkti og jafnvel töluvert fyrr. Í október 2017 kom áhugaverð frétt í Fréttablaðinu tæpum tveimur mánuðum eftir að stefnumótunar- skýrslan var gefin út. Þar kemur fram að Midt-Norsk Havbruk greiði að lágmarki 965 milljónir fyrir ný hlutabréf í Fiskeldi Austfjarða en ef fyrir- tækið fær leyfi til auk- innar framleiðslu á næstu árum gæti kaupverðið hækkað í allt að 3,9 milljarða króna. Verðmæti eldisleyfa Á árinu 2018 var byrjað að benda á mögulegan ofsagróða af sölu eld- isleyfa í nokkrum íslenskum fjöl- miðlum. Fram kom að verðmæti eldisleyfa laxeldisfyrirtækja í meiri- hlutaeigu erlendra aðila gæti verið frá u.þ.b. 1,5 til 3 milljónir króna á hvert tonn. Um það má deila hvort verðmæti eldisleyfa sé raunverulega þetta mikið. Í því sambandi má nefna að Ísland hefur verið á jaðar- svæði fyrir sjókvíaeldi á laxi en með væntanlegum hækkandi sjávarhita verða eldisleyfin verðmætari. Lax- eldið í sjókvíum hefur verið að fær- ast norðar með hækkandi sjávarhita og Ísland því eitt af þeim svæðum sem hafa vakið áhuga erlendra fjár- festa. Heimilaður lífmassi Fiskeldi Austfjarða hefur leyfi fyrir 18.500 tonna hámarkslífmassa af frjóum laxi og 2.300 tonnum af ófrjóum laxi, samtal 20.800 tonnum. Í umsóknarferli er 17.000 tonna há- marks heimilaður lífmassi og ef það fæst eru eldisleyfin orðin samtals 37.800 tonn. Fiskeldi Austfjarða ætti þá að geta framleitt um 50.000 tonn á ári. Verðmæti Fiskeldis Austfjarða Sumarið 2021 var verðmæti hlutabréfa Fiskeldis Austfjarðar um 36 milljarðar íslenskra króna og þar af verðmæti eldisleyfa u.þ.b. 25 milljarðar. Verðmæti eldisleyfa er því um 1,2 milljónir króna á tonn (25 milljarðar króna/20.800 tonn) eða um 650 milljónir króna á tonn ef teknar eru einnig með framleiðslu- heimildir sem eru í umsóknarferli. Höfundur hefur ekki aðgengi að jafn góðum gögnum og forsvars- menn Fiskeldis Austfjarða og geta þeir komið með nákvæmara verð- mat á eldisleyfum. Verðmæti eldis- leyfa Arnarlax er áætlað 1,6 millj- ónir króna á tonn. Munur á verðmæti eldisleyfa fyrirtækjanna kann að einhverju leyti að stafa af því að leyfi fyrir ófrjóan lax eru verðlögð lægra og meðalsjávarhiti nokkru hærri á Vestfjörðum og um- hverfisaðstæður að því leyti betri en á Austfjörðum. Tryggja sér eldissvæði með óraunhæfum ófrjóum eldislaxi Það að setja hindranir með ákvæði í lögum um fiskeldi, að hægt væri að halda eldissvæðum fyrir ófrjóan lax a.m.k. í fimm ár, gaf m.a. Fiskeldi Austfjarða möguleika á að halda sínum svæðum án þess að nýta þau til eldis eða greiða af þeim auðlindagjald. Það áhugaverða í þessu samhengi er að eldi á ófrjóum laxi hefur verið í þróun í áratugi og ekkert sem bendir til að því ljúki á næstu árum. Þessi hindrun var sett m.a. til að verja hagsmuni stjórnar- formanna Arnarlax og Fiskeldis Austfjarða sem voru í stefnumót- unarhópnum og settu leikreglurnar sjálfum sér og sínum til fjárhags- legs ávinnings. Auknar heimildir Til að geta nýtt 17.000 tonna eld- isleyfi í umhverfismatsferli til eldis á frjóum löxum þarf að auka heim- ildir í áhættumati erfðablöndunar. Eins og fram hefur komið í fyrri greinum er áhættumat erfðablönd- unar úthlutunarkerfi fyrir laxeldis- fyrirtæki í meirihlutaeigu erlendra aðila og hefur lítið sem ekkert með umhverfismál að gera. Áhættumat erfðablöndunar er endurskoðað að lágmarki á þriggja ára fresti og staðan getur því verið sú að Fisk- eldi Austfjarða sé með eldisleyfi fyrir frjóa laxa að verðmæti um 45 milljarðar króna jafnvel eftir nokk- ur ár. Ávinningur við sölu Eins og bent var á í fyrri grein var verðmæti eldisleyfa Arnarlax áætlað um 60 milljarðar króna og verðmæti eldisleyfa þessara tveggja fyrirtækja gæti því hugs- anlega numið allt að 105 millj- örðum króna. Að sjálfsögðu er ávinningurinn ekki í hendi fyrr en við sölu. Upphaflegir fjárfestar sem ekki eru búnir að selja geta tekið út mikinn ávinning með að selja strax. Það er alltaf tekin áhætta með að bíða með sölu á hlutabréfum, láta reyna á rekstrar- forsendur með aukinni samkeppni og lækkandi markaðsverði á laxi í framtíðinni. Lög um fiskeldi – verðmæti eldisleyfa Fiskeldis Austfjarða Eftir Valdimar Inga Gunnarsson » Fiskeldi Austfjarða getur verið með eld- isleyfi fyrir frjóa laxa að verðmæti um 45 millj- arðar króna jafnvel eftir nokkur ár. Valdimar Ingi Gunnarsson Höfundur er sjávarútvegsfræðingur og hefur m.a. unnið við ýmis mál tengd fiskeldi í rúm þrjátíu ár. valdimar@sjavarutvegur.is Sjaldnast erum við sammála um nokkurn skapaðan hlut, menn eða málefni. Okkur greinir á um leiðir að markmiðum sem sjálf- sagt er eðlilegt þótt stundum finnist manni nú nóg um. Eitt vona ég þó að við getum sameinast um. Það að bera um- hyggju fyrir börnum og að eiga þá von í hjarta að börnunum okkar farnist vel í lífinu. Það má reikna með því að þús- undir sex ára Íslendingar séu þessa dagana á leið í skólann í fyrsta sinn. Sannarlega tímamót í þeirra lífi og fjölskyldna þeirra. Samferða í skólann Fátt ef nokkuð er dýrmætara en að eiga raunverulegan vin. Vin sem vill verða samferða í skólann og bregst ekki, sama á hverju gengur. Og jafnvel þótt vinurinn sé ósýni- legur er hægt að finna fyrir honum. Þessi vinur býðst til að lýsa okkur veginn, fylgja okkur eftir hvert fót- mál og vaka yfir okkur, án þess þó að vera uppáþrengjandi eða íþyngj- andi á nokkurn hátt. Heldur þvert á móti, uppörvandi, hvetjandi og blessandi. Ómetanlegur vinur með þægilega nærveru sem býðst til að umvefja okkur kærleika sínum með raunverulegri en ólýsanlegri ná- lægð. Því hvet ég okkur öll til þess að sameinast í bæn fyrir börnunum okk- ar og þá ekki síst þeim sem þessa dag- ana fara með nýju töskuna sína á bak- inu í skólann í fyrsta sinn. Eldhúsborðið er ákjósanlegur stað- ur til bæna, hvort sem það er við morgun- eða kvöldverð. Þá getur ver- ið gott að biðja þegar komið er upp í á kvöldin eða bara hvenær sólarhrings- ins sem er. Það góða er að það geta og mega allir biðja. Best er að hafa orða- lagið einfalt, því það gerir bænina einlægari. Eitt er víst að það hefur enginn orðið verri maður af því að biðja og ég held að við ættum bara að láta það eftir okkur sem oftast. Bæn- in er nefnilega kvíða- stillandi. Hún er æfing í von og trausti og með henni fæst ólýsanleg innri ró og friður. Bænin gæti til dæmis verið einhvern veginn svona: Kæri Guðssonur, Jesús Kristur, þú sem sagðir: Leyfið börnunum að koma til mín og varnið þeim ekki, því að slíkra er Guðs ríki! Í dag komum við fram fyrir þig í þakklæti fyrir að mega samkvæmt þínu boði leggja allt sem á okkur hvíl- ir á þínar herðar. Því biðjum við þig nú að blessa öll þau börn sem á þessu hausti upplifa þau miklu tímamót að hefja skólagöngu. Vilt þú senda engla þína til að fylgja þeim eftir og gæta þeirra, vaka yfir þeim og vernda frá slysum og hættum og hverju því öðru sem kann að skaða þau. Gefðu að þeim sækist námið vel, verði áhugasöm og gef þeim einbeit- ingu. Gef að þau aðlagist skólanum og bekkjarfélögunum á eðlilegan hátt. Blessaðu samskipti bekkjarfélaganna og skólafélaganna allra. Forðaðu hverju barni frá því að lenda í einelti eða vera beitt ofbeldi hvers konar, andlegu eða líkamlegu, og forða þeim frá að taka þátt í slíku. Þroska með þeim tillitssemi og virðingu fyrir náunganum og ólíkum skoðunum. Jafnt gagnvart skóla- félögum, kennurum og skólastjórn- endum, foreldrum og systkinum sem og öðrum samferðamönnum. Hjálpa þú börnunum að upplifa skóladaginn skemmtilegan. Haf þú áhrif á þau. Gerðu þau fróðleiksfús og næm fyrir umhverfinu og öllu lífi. Láttu þau hlakka til næsta dags og hjálpaðu þeim að horfa full eftirvænt- ingar og vonar til framtíðar. Viltu einnig vaka yfir öllum öðrum nemendum. Á hvaða aldri eða stigi sem þau eru. Já, hvar sem hann eða hún kunna að vera stödd á sinni lífsins skólagöngu. Gefðu að allt nám verði viðkomandi nemanda til þroska, ánægju og heilla. Opna þeim leiðir til að viða að sér frekari þekkingu. Gefðu svo að allt nám verði þjóðfélagi okkar til gagns og heilla, framfara og blessunar. Upp- örvaðu hvern nemanda og styrktu. Gefðu honum einbeitingu og úthald til að takast á við verkefni sín. Við biðjum í trausti þess að þú legg- ir eyra þitt að ákalli okkar og munir vel fyrir sjá. Við biðjum til þín sem sagðir: Biðjið og yður mun gefast. Í Jesú nafni. Amen. Ekkert sameinar betur en bænin Með því að biðja fyrir börnunum okkar leggjum við framtíðina í Guðs hendur. Við stillum saman hugi, jafnt með velferð einstaklingsins og heild- arinnar allrar að leiðarljósi. Við verð- um meðvitaðri, upplýstari, skilnings- ríkari og ábyrgari um velferð barnanna okkar og þjóðfélagsins í heild. Við fljótum þar af leiðandi ekki eins hjálparvana og áhyggjufull inn í óljósa framtíðina. Ég er viss um að við getum ekki sameinast um neitt betra, börnum okkar og þjóð til handa og heilla. Með samstöðu-, kærleiks- og frið- arkveðju. - Lifi lífið! Bæn fyrir börnum sem hefja skólagöngu Eftir Sigurbjörn Þorkelsson »Ég vona að við get- um sameinast um að bera umhyggju fyrir börnum með þá von í hjarta að þeim farnist vel í lífinu. Leggjum framtíðina í Guðs hend- ur. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. Í félags-, heil- brigðis- og mennta- kerfinu hafa fé- lagsliðar oft verið hin gleymda stétt. Fé- lagsliðar hafa verið starfandi síðan 2003 á þessum sviðum. Jafnhliða hefur fjölgað gríðarlega í þessari stétt og fagnar félagið þeirri þróun. Í dag er samfélagið í krísu, mikið óöryggi um störf og óvissa um hvað framtíðin ber í skauti sér. Þetta hef- ur valdið miklu álagi á heilbrigðis- og velferðarkerfið. Yfir tvö þúsund félagsliðar eru út- skrifaðir og skorum við á stofnanir og fyrirtæki að auglýsa eftir fé- lagsliðum. Störf félagsliða skipta miklu máli fyrir samfélagið okkar. Félagsliðar aðstoða einstaklinga sem þurfa á sérhæfðri aðstoð að halda við at- hafnir daglegs lífs og styðja þá til sjálfshjálpar. Þeir aðstoða og leið- beina einstaklingum við að sinna fé- lagslegum og líkamlegum þörfum. Félagsliðar búa yfir þekkingu til að greina af innsæi mismunandi að- stæður fólks og geta metið á fagleg- an hátt hvenær þörf er á aðstoð til að ýta undir frumkvæði og sjálf- stæði hjá þjónustunotendum sínum. Markhópurinn hjá félagsliðum eru einstaklingar með fötlun, geð- raskanir, aldraðir, langveikir og aðrir sem vegna fötlunar eða sér- stakra aðstæðna þurfa stuðning til lengri eða skemmri tíma. Félagsliðar hafa þekkingu á þeim úr- ræðum sem til eru og vita hvar nálgast má viðeigandi upplýsingar. Félagsliðar vinna í samstarfi við annað fagfólk að gerð ein- staklings- og þjálfunar- áætlana. Vorið 2020 sam- þykkti mennta- og menningarmálaráð- herra að setja námslok félagsliða á 3. hæfniþrep, félagið fagnar þessari ákvörðun hjá ráð- herra. Félagsliðanámið er viðamikið og ítarlegt þriggja ára nám sem gerir þá reiðubúna í krefjandi og um leið gefandi störf að námi loknu. Félagsliðar hafa þurft að berjast fyrir störfum sínum með kjafti og klóm síðastliðin 18 ár. Nú óskum við eftir samstarfi við stofnanir og ráðu- neyti í þeirri von að staðinn verði vörður um störf félagsliða á Íslandi. Félagsliðar sækja fram Eftir Júlíus Sævar Júlíusson Júlíus Sævar Júlíusson » Yfir tvö þúsund fé- lagsliðar eru útskrif- aðir og skorum við á stofnanir og fyrirtæki að auglýsa eftir fé- lagsliðum. Höfundur er formaður Félags ís- lenskra félagsliða. Formadur@felagslidar.is Atvinna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.