Morgunblaðið - 25.08.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2021
Verið velkomin
í sjónmælingu
Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200
Opið virka daga 9.30–18
25
ára
1996-2021
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Nýr öflugur fóðurprammi er vænt-
anlegur til Austfjarða á næstunni.
Það þykir ekki tíðindum sæta því
með auknu sjókvíaeldi hér við land
fjölgar fóðurprömmunum. Það sem
er nýstárlegt við þennan pramma
sem Fiskeldi Austfjarða hefur fest
kaup á er að hann er steinsteyptur
og getur staðið af sér stórar öldur,
allt að 11 metra að hæð.
„Við ákváðum að prófa einn þann-
ig pramma. Hann er eins og fljót-
andi klettur og þolir verri veður en
aðrir fóðurprammar. Hann þarf
minna viðhald og svo er hægt að
vinna meira úti á svæðunum, geyma
dót og annað,“ segir Guðmundur
Gíslason, stjórnarformaður Fisk-
eldis Austfjarða.
Sýndur á Aqua Nor
Ekki hefur verið ákveðið hvort
pramminn verði staðsettur í Fá-
skrúðsfirði eða Berufirði en ljóst er
að hann verður utarlega, þar sem
mest mæðir á.
Pramminn er frá ScaleAQ og ber
600 tonn af fóðri. Hann er 40 sinnum
20 metrar að stærð. Steinpramminn
er hannaður fyrir 5,5 metra stöðugt
ölduálag og í tilkynningu frá fram-
leiðandanum kemur fram að það
þýði að hann geti tekið á sig ein-
stakar öldur upp í 11 metra hæð.
Fóðruninni er stýrt úr landi og
þurfa menn ekki að vera um borð í
prammanum. Guðmundur segir að
eigi að síður sé þar góð aðstaða,
setustofa og eldhús. Menn geti feng-
ið sér kaffi og hvílt sig frá vinnu úti á
kvíunum. Hægt er að sofa þar, ef á
þurfi að halda.
ScaleAQ lét draga fóðurpramm-
ann til Þrándheims þar sem hann er
til sýnis í tengslum við fiskeldissýn-
inguna Aqua Nor en verður dreginn
til Íslands að sýningunni lokinni.
Ekki er búist við að margir erlendir
gestir geti skoðað prammann því
margir hafa afboðað komu sína á
sýninguna vegna faraldursins.
Steinpramminn getur gengið fyrir
rafmagni úr landi. Aðstæður eru til
þess á tveimur staðsetningum
sjókvía Fiskeldis Austfjarða. Ef raf-
magnið kemur úr landi þarf aldrei að
ræsa dísilvélarnar. Pramminn er
einnig útbúinn með tvíorkukerfi til
að nota þar sem ekki er möguleiki á
rafmagni úr landi. Þá er dísilvélin
keyrð á daginn og afgangsorkunni
hlaðið inn á rafgeyma sem duga yfir
nóttina þegar minni orkunotkun er.
Mikil viðskipti
Steinpramminn er þriðji fóður-
pramminn sem Fiskeldi Austfjarða
kaupir af ScaleAQ á stuttum tíma.
Fyrirtækið hefur einnig keypt
margar kvíar þaðan, fóðrunar- og
myndavélakerfi og annan búnað.
Fiskeldi Austfjarða er einn af
stæstu viðskiptavinum ScaleAQ, að
því er fram kemur í tilkynningu
fyrirtækisins. Guðmundur er
ánægður með búnað fyrirtækisins.
Segir að hann hafi sannað sig í
stormum síðasta vetrar.
Ljósmynd/ScaleAQ
Steinprammi Búið að merkja fóðurprammann Ice Fish Farm sem er móðurfélag Fiskeldis Austfjarða.
Steinpramminn er eins og
fljótandi klettur í hafinu
- Fóðurprammi Fiskeldis Austfjarða þolir 11 metra öldu
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Skiptar skoðanir koma fram í at-
hugasemdum íbúa í Laugarnes-
hverfi við umsókn Vöku hf. um end-
urnýjað starfsleyfi fyrirtækisins að
Héðinsgötu 2. Frestur til athuga-
semda rann út á dögunum og í síð-
ustu viku greindi Morgunblaðið frá
því að 65 íbúar hafi tekið sig saman
og mótmælt því að fyrirtækinu yrði
veitt starfsleyfi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Rósu Magnúsdóttur, deildarstjóra
umhverfiseftirlits hjá Heilbrigðis-
eftirliti Reykjavíkur, bárust alls 13
athugasemdir en mismunandi er
hversu margir eru að baki hverri
athugasemd. Rósa upplýsir að
vinnsla á starfsleyfi og greinargerð
standi yfir hjá heilbrigðiseftirlitinu.
Leggjast gegn móttökustöð
Eins og komið hefur fram í frétt-
um Morgunblaðsins hafa íbúar í
hverfinu gert ítrekaðar athugasemd-
ir við starfsemi Vöku þar. Starfsleyfi
fyrirtækisins var fellt úr gildi í júní
en í lok júlí fékk það undanþágu fyr-
ir hluta starfseminnar. Vaka hefur
nú sótt um endurnýjun starfsleyfis
til loka árs 2023, en starfsleyfið sem
fellt var úr gildi átti bara að gilda út
þetta ár. Umsókn Vöku er fjórþætt,
þ.e. fyrirtækið sækir um sérstakt
leyfi fyrir hvern starfsleyfisskyldan
hluta starfsemi þess. Þeir hlutar eru
móttökustöð fyrir úrgang, bílaparta-
sala, bifreiða- og vélaverkstæði og
hjólbarðaverkstæði.
Í umsögnum byggingarfulltrúa og
skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar
er ekki lagst gegn þremur síðast-
nefndu hlutum umsóknarinnar. Hins
vegar telst umsókn um móttökustöð
fyrir úrgang ekki vera í samræmi við
skipulag svæðisins.
Meirihluti hinna 13 athugasemda
sem bárust er jákvæður í garð starf-
semi Vöku. Óhætt er að segja að þar
kveði við nýjan tón því til þessa hafa
gagnrýnendur þess einir látið í sér
heyra. Hafa ber þó í huga að eins og
áður segir tóku 65 þeirra sig saman
um eina athugasemd. Áhugavert er
að í jákvæðu athugasemdunum er oft-
ast nær kveðinn sá tónn að vera Vöku
sé mikilvæg fyrir íþróttafélagið Þrótt.
„Vaka er umhverfissinnuð starf-
semi og skilar sínu og vel það þegar
kemur að hringrás endurnýtingar og
endurvinnslu. Að auki hefur fyrir-
tækið stutt íþróttastarf í hverfinu
með margvíslegum hætti og til að
mynda verið Þrótti ómissandi bak-
hjarl í fjölbreyttum verkefnum. Sam-
félagsþáttur starfseminnar er þannig
ríkur og bæði ábyrgur og framsæk-
inn,“ segja hjón sem segjast hafa búið
í hverfinu í þrjá áratugi.
Yrði áfall að tapa stuðningnum
„Ekki er annað að sjá en að fyrir-
tækið hafi brugðist vel við gagnrýni
um sjónmengun og gagnrýni er
varðar hljóðmengun, sem ætti þó
frekar að beina að starfsemi við
Sundahöfn. Til viðbótar má nefna
þá vigt sem félagið hefur gagnvart
íþrótta- og tómstundastarfi í hverf-
inu sem fjárhagslegur bakhjarl.
Það yrði t.d. mikið áfall fyrir
íþrótta-/Knattspyrnufélagið Þrótt
að tapa þeim stuðningi,“ segir í
annarri athugasemd sem barst heil-
brigðiseftirlitinu vegna umsóknar-
innar.
„Ég sit í stjórn knattspyrnudeild-
ar Þróttar og hef því kynnst hversu
mikilvægt er að öflug fyrirtæki í
hverfinu komi að styrktarmálum.
Því miður eru allt of fá fyrirtæki að
styðja við öflugt íþróttastarf en
Vaka gefur ekkert eftir þar. Það
skiptir ekki máli hvenær við heyrum
í Einari, eiganda Vöku, hann er allt-
af mættur með styrk og vinnufram-
lag, það er ómetanlegt. Ég veit það
fyrir víst að ef kosið yrði um þetta
mál hefði Vaka betur, ég er í virku
samtali við alla aldurshópa í hverfinu
og hef heyrt miklu meira af stuðn-
ingi heldur en hinu. Bolum ekki vin-
um okkar í burtu, takk,“ segir í
þeirri þriðju. Fleiri stjórnarmenn í
knattspyrnudeild Þróttar láta í sér
heyra: „Vitum við af eigin raun að
forsvarsmenn fyrirtækisins eru
ábyrgir einstaklingar sem hafa það
að markmiði að reka fyrirtækið eftir
öllum reglum og lögum. Auk þess
hefur fyrirtækið verið sterkur og
mikilvægur bakhjarl í íþróttastarfi
hér í Laugardal t.d. hjá knatt-
spyrnudeild Þróttar þar sem ég,
Pála Þórisdóttir, sit í stjórn og hef
gert sl. ár.“
Þróttarar slá skjaldborg um Vöku
- 13 athugasemdir bárust við umsókn Vöku um starfsleyfi að Héðinsgötu, flestar jákvæðar - Stjórn-
armenn í knattspyrnudeild Þróttar vilja ekki missa styrktaraðila - „Bolum ekki vinum okkar í burtu“
Morgunblaðið/Eggert
Höfuðstöðvar Skiptar skoðanir eru á starfsemi Vöku við Héðinsgötu.
Baldur S. Blöndal
baldurblondal@mbl.is
Þrír meistaranemar í Háskólasetr-
inu á Vestfjörðum greindust smitað-
ir af kórónuveirunni í gær. 40 bekkj-
arfélagar hinna smituðu, sem eru
allir á fyrra ári meistaranáms, eru
komnir í úrvinnslusóttkví. Þetta
staðfestir Peter Weiss, forstöðumað-
ur setursins.
„Þetta voru einkennasýnatökur [í
gær] og svo voru þeir nokkrir sem
fóru í sýnatöku eftir að hafa verið í
miklum samskiptum við þá smit-
uðu,“ segir Peter sem var að útbúa
aðstöðu fyrir einangrun hinna smit-
uðu þegar blaðamaður ræddi við
hann síðdegis í gær.
Þeir sem greindust smitaðir í gær
leigja húsnæði í miðbæ Ísafjarðar
ásamt samnemendum sínum. Núna
þarf að skipta þeirri íbúð upp og
sótthreinsa til þess að takmarka
snertifleti og koma hinum smituðu
fyrir í öðrum íbúðum.
Peter segir nemendur hafa verið
saman í Edinborgarhúsinu. „Við
leigjum stóran sal í Edinborgarhúsi
undir nemendur svo við erum með
gott rými,“ segir Peter en hann gerir
ráð fyrir því að rakningarteymið
sendi alla í skimun.
Í gærmorgun voru 8 með virkt
smit á Vestfjörðum og 11 í einangr-
un. Þær tölur kunna að hækka næstu
daga þegar smitrakningarteymið
rekur dreifingu smitanna.
Smit komu upp
í Háskólasetrinu
- 40 bekkjarfélagar í úrvinnslusóttkví
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Ísafjörður Háskólasetrið leigir sal
til kennslu í Edinborgarhúsinu.