Morgunblaðið - 25.08.2021, Blaðsíða 28
Víðir Sigurðsson í Tókýó
vs@mbl.is
ÍR-ingurinn Helgi Björnsson er í
óvenjulegu hlutverki á Ólympíumóti
fatlaðra. Hann tekur þar þátt í 400
metra hlaupi en er þó ekki formlega
skráður til leiks, heldur er hann svo-
kallaður aðstoðarhlaupari Patreks
Andrésar Axelssonar sem keppir í
400 metra hlaupi í flokki blindra á
mótinu í Tókýó á laugardaginn.
Helgi hleypur með Patreki til að
leiðbeina honum um brautina og
þarf því sjálfur að vera í góðri æf-
ingu. Það ætti að ganga upp því
sjálfur hefur Helgi æft hlaup og
fleiri greinar frjálsíþrótta um árabil
og hefur hlaupið 400 metrana á 51,16
sekúndum. Íslandsmet Patreks í
flokki blindra er hins vegar 56,85
sekúndur.
„Við Patrekur höfðum æft lengi í
sama húsi. Síðan kom það upp fyrir
þremur árum að hann vantaði að-
stoðarhlaupara, ég bauð mig fram
og það þróaðist út í þetta,“ sagði
Helgi þegar Morgunblaðið ræddi við
hann í Tókýó í gær.
Helgi sagði að ekki væri víst að
allir áttuðu sig á því hvers eðlis hlut-
verk hans væri. „Það er miklu fjöl-
breyttara en sést í sjónvarpinu og
fer að miklu leyti fram fyrir utan
hlaupabrautina. Minnsti hlutinn er á
brautinni sjálfri. Patrekur þarf að
vera með bindi fyrir augunum á
svæðinu, keppnin hjá honum fer
fram í kolniðamyrkri þannig að í ein-
ar 30-40 mínútur sér hann alls ekki
neitt og getur ekki bjargað sér með
mikið. Stærsta hlutverkið fer því
fram áður en við komum út á braut-
ina, allt frá því að rölta um matsal-
inn, um keppendasvæðið þar sem
bundið er fyrir augu hans og loks inn
á völlinn,“ sagði Helgi.
Í hlaupinu sjálfu þarf samhæfing
Patreks og Helga að vera góð. „Já,
það hjálpar alla vega til að við séum
ágætlega samstíga. Keppni í 400
metra hlaupi er dálítið frábrugðin
100 metra hlaupi að því leyti að ég
þarf að láta hann vita hvenær kemur
að beygjunum og hvenær þær enda,
ásamt því að gæta þess að hann stígi
ekki á línu sem er mun erfiðara en í
100 metra hlaupi. Þetta er því eigin-
lega orðið að tæknigrein.“
Hann telur að Patrekur muni
hæglega geta bætt Íslandsmet sitt í
Tókýó en það geti þó orðið erfitt að
komast áfram úr undanrásunum.
„Hann hefur aldrei verið í betra
formi, æfingarnar hérna hafa lofað
góðu, og ef við náum að setja saman
gott hlaup á hann alveg að geta bætt
sig. Ég held að hann sé í hörku-
standi. Það er alltaf möguleiki á að
komast áfram en það eru margir af-
ar öflugir hlauparar hérna og gæðin
í þessari grein hafa aukist mjög
hratt. Fyrst og fremst er að bæta
tímann og ná löglegu hlaupi. Í 400
metrum eru alltaf einhverjir sem
stíga á línu og gera hlaupið ógilt svo
þetta getur verið dálítið lottó. Fyrst
og fremst er að ná sínu besta, ljúka
sínu hlaupi og sjá hverju það skilar,“
sagði Helgi Björnsson aðstoð-
arhlaupari.
Ljósmynd/ÍF
Tókýó Helgi Björnsson aðstoðarhlaupari og Patrekur Andrés Axelsson, hlaupari á Ólympíumóti fatlaðra, búa sig
undir að ganga inn á Ólympíuleikvanginn í gærkvöldi, en Patrekur var þar annar fánabera Íslands.
Stærsta hlutverkið
utan hlaupabrautar
- Helgi er aðstoðarhlaupari Patreks á Ólympíumótinu
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840
www.bilo.is | bilo@bilo.is
Komdu í BÍLÓ
!
Árgerð 2021, ekinn 12 Þ.km, bensín & rafmagn, sjálfskiptur.
IQ.LIGHT LED - Matrix. Raðnúmer 253022
VW GOLF GTE
M BENZ C 300E
NEW
Nýskráður 01/2020, ekinn 14 Þ.km, bensín & rafmagn,
sjálfskiptur (9 gíra). Raðnúmer 251912
.
4MATIC AMG
VERÐ 5.990.000
VERÐ 8.390.000
Þessir síungu strákar eru klárir
í að selja bílinn þinn
Kíktu við, hringd
eða sendu okkur
skilaboð!
Hlökkum til!
Indriði Jónsson
og Árni Sveinsson
u
BMW 330E
Nýskráður 01/2020, ekinn 23 Þ.km, bensín & rafmagn (plug
in), sjálfskiptur (8 gíra). Leður, lúga o.fl. Raðnúmer 252859
LUXURY LINE
VERÐ 6.990.000
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 237. DAGUR ÁRSINS 2021
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Róðurinn þyngist hjá Fylki í Pepsi Max-deild kvenna í
knattspyrnu eftir 1:0-tap fyrir Stjörnunni í Garða-
bænum í gærkvöld. Fylkiskonur eru í slæmum málum
með 12 stig í níunda sæti deildarinnar, stigi frá öruggu
sæti, en bæði Keflavík og Tindastóll eiga leik til góða á
Árbæinga.
Stjarnan er hins vegar með 23 stig í fimmta sæti
deildarinnar og á leik til góða á Selfoss sem er í fjórða
sætinu. Stjarnan er í raun í harðri baráttu um að ná
þriðja sæti deildarinnar. »23
Róðurinn þyngist hjá Fylki í efstu
deild kvenna eftir tap í Garðabæ
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Fimm kvikmyndir, tvær heimildarmyndir og þrjár kvik-
myndir í fullri lengd, eru tilnefndar til Norrænu kvik-
myndaverðlaunanna í ár og fyrir Ísland er það kvik-
mynd Kristínar Jóhannesdóttur, Alma. Verðlaunin
verða veitt í átjánda sinn 2. nóvember á þingi Norður-
landaráðs í Kaupmannahöfn. Verðlaunaféð nemur 300
þúsund dönskum krónum og skiptist jafnt milli hand-
ritshöfundar, leikstjóra og framleiðanda. Hinar fjórar
kvikmyndirnar sem tilnefndar eru eru Flugt frá Dan-
mörku eftir leikstjórann Jonas Poher Rasmussen, Ens-
ilumi frá Finnlandi eftir Hamy Ramezan, Gunda frá Nor-
egi eftir Victor Kossakovskíj og Tigrar frá Svíþjóð eftir
leikstjórann Ronnie Sandahl.
Alma tilnefnd til kvikmyndaverð-
launa Norðurlandaráðs 2021