Morgunblaðið - 25.08.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2021
Það var ekki þróttmikill Boris
Johnson sem í gær ávarpaði
landa sína eftir að hafa átt fjarfund
með Joe Biden og öðrum sem stöðu
sinnar vegna hafa verið taldir til
helstu leiðtoga ver-
aldar. Og það var
auðvitað helsti leið-
toginn – eða sá sem
hingað til hefur ver-
ið talinn helsti leið-
toginn – sem olli
slíkum vonbrigðum
að Johnson var með
daufasta móti.
- - -
Johnson hafði
reynt að fá Bi-
den til að gefa sér
betri tíma í að reyna
að koma í veg fyrir
að brottförin frá
Afganistan yrði enn ömurlegri fyr-
ir marga þá sem þar dvelja og enn
meira niðurlægjandi fyrir ríkin sem
fylgdu Bandaríkjunum inn í landið
á sínum tíma, en það tókst ekki.
- - -
Biden hafði fengið þau fyrirmæli
frá leiðtoga talíbana að hann
skyldi hypja sig á brott með allt sitt
lið í lok mánaðar. Dveldi það lengur
hefði slíkt alvarlegar afleiðingar!
- - -
Á sama tíma ferðast varaforseti
Bandaríkjanna um Austurlönd
og ræðir þar meðal annars um yfir-
gang Kína á Suður-Kínahafi. Til-
gangur ferðarinnar er ekki síst að
efla tengsl Bandaríkjanna við nokk-
ur ríki í Asíu og sannfæra þau um
að þau geti treyst á Bandaríkin.
- - -
Ýmsir spyrja nú hvort að afglöp
Bidens í Afganistan hafi áhrif
á stöðu Bandaríkjanna annars stað-
ar, meðal annars austast í Asíu.
Svarið er augljóslega já, spurningin
er aðeins hversu mikið tjónið er og
hvort að Bandaríkin geti lappað
upp á trúverðugleikann þegar Bi-
den hverfur úr embætti.
Boris Johnson
Talíbanar sögðu nei,
Biden sagði ókei
STAKSTEINAR
Joe Biden
Mikið úrval lita
bæði á áklæði
og grind.
Sérsmíðum
allt eftir
pöntunum.
Íslensk hönnun og
framleiðsla frá 1960E60
Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is
Stóll E-60 orginal kr. 38.600
Retro borð 90 cm kr. 142.000
(eins og á mynd)
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Barnaheill leggur af stað í söfnun á morgun sem
ber heitið Lína okkar tíma. Verkefnið snýr að
vernd stúlkna á flótta í Síerra Leóne og verða
Línu Langsokk-armbönd seld því til styrktar.
„Við erum að vinna með að flytja út sérþekk-
ingu og ætlum að aðstoða samfélögin við að bera
kennsl á ofbeldið, fræða og setja upp alls konar
ferla svo eitthvað sé nefnt.[…] Kynbundið ofbeldi,
kynlífsþrælkun, mansal og kynferðisofbeldi er
mjög stórt samfélagslegt vandamál í Síerra Leóne
og við erum að vinna með markvissum hætti að því
að valdefla ungar stúlkur og konur,“ segir Kol-
brún Pálsdóttir, verkefnastjóri erlendra verkefna
hjá Barnaheillum.
Að sögn Kolbrúnar hallar verulega á jafnrétti
kynjanna í Síerra Leóne en 39% stúlkna eru giftar
fyrir 18 ára aldur þar í landi og 64% kvenna beittar
ofbeldi af hendi maka síns. Var neyðarástandi lýst
yfir fyrir tveimur árum vegna kynferðisofbeldis
og hefur ástandið einungis versnað í faraldrinum
þar sem ungar stúlkur flosna í miklum mæli úr
skóla. Ríkir nú mikil þörf á markvissri vinnu.
hmr@mbl.is
Armbönd til verndar stúlkum
- 39 prósent stúlkna gift-
ar fyrir 18 ára aldur
Ljósmynd/Barnaheill
Armbönd Barnaheill mun hefja sölu á armbönd-
um á morgun til styrktar stúlkum á flótta.
Búast má við því að styttan af Héðni
Valdimarssyni, alþingismanni og
verkalýðsleiðtoga, verði reist á sín-
um stað við Hringbraut á næstu vik-
um. Styttan var tekin niður árið
2018 því laga átti stöpulinn undir
henni. Við skoðun á styttunni kom í
ljós að festingar og boltar inni í
henni voru illa farnir og ráðast
þurfti í viðgerð. Eins og kom fram í
Morgunblaðinu í júní hefur Helgi
Gíslason myndhöggvari nú lokið
viðgerð á styttunni. „Okkar maður
er laus úr sóttkví,“ sagði Helgi þá.
Kristín Róbertsdóttir, formaður
Húsfélags alþýðu, sem er eigandi
styttunnar, segir að næsta verk á
dagskrá sé að steypa stöpulinn og
það verði gert innan tíðar. „Er ekki
alltaf best að steypa fyrir frost?“
segir hún. Kristín hefur áður greint
frá því að viðgerðin á styttunni af
Héðni hafi reynst dýr. Einnar millj-
ónar styrkur fékkst úr húsafrið-
unarsjóði árið 2019 til viðgerða á
stöplinum. Sigurjón Ólafsson gerði
styttuna af Héðni og var hún sett
upp árið 1955. hdm@mbl.is
Steypa brátt stöpulinn
fyrir styttuna af Héðni
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hringbraut Stöpullinn verður brátt steyptur og þá fer Héðinn á sinn stall.