Morgunblaðið - 25.08.2021, Síða 17
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2021
✝
Þórður Ólafs-
son fæddist 20.
október 1938 í
Reykjavík. Hann
lést á HSU 17.
ágúst 2021. For-
eldrar hans voru
Ólafur Helgi Þórð-
arson, f. 10.6. 1906,
d. 4.3. 2001, og
Ólafía Sigurð-
ardóttir, f. 27.7.
1906, d. 10.6. 1984.
Alsystkini hans: Sigþór Ólafs-
son, f. 18.1. 1942, d. 28.2. 2010,
og Guðríður Ólafsdóttir, f. 12.3.
1946. Bræður hans sammæðra:
Reynir Ásberg Níelsson, f. 26.4.
1931, d. 12.4. 2021, og Oddfreyr
Ásberg Níelsson, f. 12.10. 1933,
d. 29.9. 1971.
Eiginkona Þórðar er Guðný
Björg Óskarsdóttir, f. 2.9. 1949,
frá Bjarnastöðum í Selvogi.
Börn þeirra eru: 1) Ólafía Helga,
f. 7.10. 1969, eiginmaður Brynj-
ar Birgisson, synir þeirra eru
Daníel Orri og Arnór Daði. 2)
Óskar, f. 7.5. 1977, eiginkona
Anna María Björnsdóttir, synir
þeirra eru Alex Helgi, Sebastían
Amor og Marínó Örn. 3) Sigrún
Dögg, f. 12.9. 1982, sambýlis-
maður Haraldur Þorvarðarson,
börn þeirra eru Birta, Kolbeinn
Ari og Svala Rún.
Fyrri eiginkona Þórðar var
hann ýmis störf sem tengjast
sjónum, til að mynda í löndun og
sem vaktmaður í togurum.
Þórður vann mikið í ýmsum
félagsmálum. Hann starfaði fyr-
ir Verkalýðsfélagið Boðann,
sem síðar sameinaðist Eflingu,
lengst af sem formaður, árin
1977-2017. Starfaði í sambands-
stjórn Sjómannasambands Ís-
lands 1976-2002, sat í miðstjórn
ASÍ 1980-2000 var stjórn-
arformaður atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs 1995-2006 ásamt því
að starfa fyrir Lífeyrissjóð Suð-
urlands.
Þórður starfaði mikið að
íþróttamálum. Hann var for-
maður Umf. Þórs árin 1971-1981
og eftir það sinnti hann sjálf-
boðaliðastörfum fyrir félagið,
m.a. við uppbyggingu og viðhald
knattspyrnuvallar sveitarfélags-
ins, sá um áramótabrennuna um
árabil ásamt öðrum störfum.
Þórður tók þátt í pólitísku
starfi bæði í heimabyggð og á
landsvísu. Hann sat í hrepps-
nefnd Þorlákshafnar í 12 ár.
Þórður starfaði fyrir Framsókn-
arflokkinn og sat m.a. í mið-
stjórn hans um árabil en sein-
ustu árin var hann miðflokks-
maður.
Útför Þórðar fer fram frá
Þorlákskirkju í dag, 25. ágúst
2021, klukkan 14. Athöfninni
verður streymt á:
https://promynd.is/thordur
Hlekk á streymi má finna á:
https://www.mbl.is/andlat
Sigríður Jóna Clau-
sen, f. 29.8. 1942.
Börn þeirra eru: 1)
Eyjólfur Þórður, f.
14.8. 1962, fyrrver-
andi eiginkona
Jóna Ingunn Páls-
dóttir, börn þeirra
eru Eyjólfur Aðal-
steinn og Ída Bjarn-
ey. 2) Ólöf Arn-
björg, f. 15.10.
1964, eiginmaður
Pétur Ragnar Pétursson, synir
þeirra eru Björn Hlynur og Al-
exander Glói. 3) Aðalheiður El-
ín, f. 7.12. 1965, eiginmaður
Halldór Hafsteinsson, börn
þeirra eru Elísabet og Gunn-
laugur Steinar. Barnabarna-
börnin eru átta.
Þórður ólst upp á Hlíðarenda
í Ölfusi og flutti að Litlalandi í
Ölfusi upp úr 1960. Árið 1967
flutti Þórður til Þorlákshafnar
og bjó þar til æviloka.
Hann útskrifaðist sem bú-
fræðingur frá Bændaskólanum
á Hvanneyri árið 1958. Það ár
hlaut hann Morgunblaðsskeif-
una, sem veitt er fyrir hæstu ein-
kunn fyrir tamningar.
Þórður hóf starfsframa sinn
sem bóndi á Litlalandi ásamt því
að keyra vörubíl. Fljótlega fór
hann að stunda sjómennsku frá
Þorlákshöfn, eftir það vann
Elsku pabbi, tengdapabbi og
afi
Takk fyrir að vera alltaf til
staðar fyrir mig og mína.
Takk fyrir að keyra mig á öll
heimsins mót þegar ég var að
keppa.
Takk fyrir ferðirnar á Hlíðar-
enda til afa. Hjá Óla afa fengum
við að kynnast sveitalífinu, þar
var heyjað og þar var réttað.
Við fjölskyldan fórum mikið í
útilegur með tilheyrandi ferða-
lögum. Þú hafðir gaman af því að
ferðast og þér fannst gaman að
stoppa á ferðalögunum og taka
myndir af landslaginu.
Myndaalbúmin heima á Lyng-
berginu eru full af myndum eftir
þig.
Fljótlega eftir að ég fékk bíl-
próf var keyptur bíll handa mér.
Þú varst búinn að keyra mig út
um allt fram að þeim tíma.
Þú vildir síðan reglulega fá bíl-
inn minn lánaðan. Bíllinn kom til
baka fullur af bensíni. Ég tók
bensín í fyrsta skipti 21 árs göm-
ul á Laugarvatni. Vissi auðvitað
ekkert hvernig ég átti að gera
það, en það hafðist að lokum.
Reglulega komstu síðan í
heimsókn til mín í vinnuna og
fékkst bílinn minn lánaðan og
skilaðir honum fullum af bensíni.
Ég á eftir að sakna símtalanna
frá þér. Þú eða mamma hringduð
í mig á hverjum degi. Spjallið var
kannski ekki langt, bara rétt
svona til að kanna stöðuna á mér
og mínum. Athuga hvernig Halli
hefði það, Kolbeinn okkar og
Svala, perlan þín.
Ég held áfram símtölunum við
mömmu. Við munum minnast
þín.
Eftir að hafa farið yfir ævi
þína undanfarna daga sé ég
hversu miklu þú áorkaðir á lífs-
leiðinni.
Þvílík vinnusemi. Algjör
meistari. Takk elsku pabbi,
tengdapabbi og afi fyrir allt og
allt.
Hver minning er dýrmæt
perla.
Þótt minn elskulegi faðir
og kæri vinur
hafi nú kallaður verið heim
til himinsins sælu sala
og sé því frá mér farinn
eftir óvenju farsæla
og gefandi samferð,
þá bið ég þess og vona
að brosið hans blíða og bjarta
áfram fái ísa að bræða
og lifa ljóst í mínu hjarta,
ylja mér og verma,
vera mér leiðarljós
á minni slóð
í gegnum
minninganna glóð.
Og ég treysti því
að bænirnar hans bljúgu
mig blíðlega áfram muni bera
áleiðis birtunnar til,
svo um síðir við ljúflega
hittast munum heima á himnum
og samlagast í hinum eilífa
ljóssins yl.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Kveðja
Sigrún Dögg og fjölskylda.
Elsku pabbi, tengdapabbi og
afi lést á sjúkrahúsinu á Selfossi
17. ágúst. Á þessum erfiðu tím-
um sitjum við fjölskyldan og rifj-
um upp minningar sem við eig-
um. Pabbi hafði mikinn áhuga á
félagsstörfum og íþróttamálum
og var mikill tími sem fór í þau.
Pabbi var einn af þeim sem stóðu
að uppbyggingu á grasvellinum
hér í höfninni. Í mörg ár sá hann
alfarið um völlinn og var hann
mjög natinn við að halda honum
góðum og yfir sumartímann
eyddi hann tímanum eftir vinnu
uppi á velli. Sterk minning er líka
frá mörgum gamlárskvöldum
þegar hann kom heim eftir að
hafa kveikt í brennunni og ang-
aði húsið þá af olíulykt. Pabbi
vann í mörg ár við löndun hér við
höfnina, í nokkur sumur fékk ég
að vinna með honum við að telja
kassana upp úr togurunum.
Pabbi átti í mörg ár Trabant sem
vinnubíl og margir muna þegar
hann var alltaf með kaffibollann
á mælaborðinu og enginn skildi
hvernig hann gat keyrt með full-
an bollann án þess að úr honum
helltist eða hann dytti á gólfið.
Pabbi var mikið að hjálpa Óla
afa á Hlíðarenda og fór oft til
hans að aðstoða við bústörfin.
Okkur er minnisstætt eitt haust-
ið þegar sækja þurfti kindur frá
afa á næsta bæ að pabbi tók sæt-
in úr Trabbanum og setti nokkr-
ar kindur inn í bílinn og keyrði
með þær heim.
Þegar pabbi hringdi í mig til
að fá fréttir var allaf spurt
hvernig hafa strákarnir það og
hvernig er fiskiríið hjá Brynjari
svo var samtalið ekki lengra.
Pabbi var alltaf boðinn og bú-
inn að aðstoða ef við þurftum á
því að halda og þegar við vorum
að byggja húsið okkar fór hann
ófáar ferðirnar á Selfoss að ná í
það sem vantaði og fara með
ruslið á haugana.
Verkalýðsfélagið átti nokkra
bústaði og fórum við í ófáar bú-
staðarferðirnar með mömmu og
pabba. Í þessum ferðum var
pabbi alltaf að dytta að og eitt
sinn var hann búinn að rífa upp
spýtur á pallinum og kominn
undir pottinn að laga eitthvað.
Meðan mamma og pabbi áttu
ferðavagninn sinn var farið í
margar ferðir með þeim í útileg-
ur. Allar þessar minningar ásamt
mörgum öðrum ylja manni á erf-
iðum tíma.
Snemma á þessu ári sá maður
að heilsu pabba fór aftur og
þrekið minnkaði. Alltaf þurfti
samt að fara í bíltúr á hverjum
degi og kom það sér vel að síð-
asta vetur voru það þið mamma
sem annaðhvort keyrðuð Arnór
Daða á Selfoss eða sóttuð hann í
skólann. Þú varst líka svo
ánægður þegar mamma sagði
þér fyrir stuttu að við Brynjar
ætlum að fara út með Daníel
Orra sem er að hefja sitt mast-
ersnám í Lundi núna á næstu
dögum. Ég veit að þrátt fyrir að
þú sért ekki lengur hér með okk-
ur átt þú eftir að fylgjast áfram
með strákunum í því sem þeir
eru að gera.
Elsku pabbi, við munum gera
okkar besta til að halda utan um
mömmu nú þegar hún er orðin
ein og hefur ekki þann fasta
punkt að fara í bíltúrana með þér
eða eins og hún hefur gert und-
anfarnar vikur til að sitja hjá þér
uppi á spítala.
Hafðu þökk fyrir allt og allt
elsku pabbi, tengdapabbi og afi.
Þín verður sárt saknað.
Lóa, Brynjar, Daníel
Orri og Arnór Daði.
„Já væna mín, þetta líst mér
bara mjög vel á.“ – „Já, ég get
mætt.“ – „Já, ég skal gera það.“
Þessar setningar, ásamt svo
mörgum öðrum, hafa sótt á huga
minn síðustu vikur og daga. Víð
Þórður vorum nágrannar í Lyng-
berginu á níunda áratug síðustu
aldar, foreldrar kröftugra stráka
sem höfðu endalausa orku.
Strákarnir fóru að æfa sund og í
kringum sunddeildina hófst okk-
ar samvinna, ég varð gjaldkeri
deildarinnar og fékk Þórð með
okkur í lið. Það var mér til því-
líkrar gæfu að fá þennan öðling
til samstarfs.
Eftir stofnun körfuknattleiks-
deildar Þórs árið 1990 fóru strák-
arnir okkar að æfa körfu og aftur
lágu leiðir okkar Þórðar saman í
því starfi, ég sem gjaldkeri og
Þórður í fjáröfluninni. Það er svo
ómetanlegt að hafa með sér í
sjálfboðaliðastarfinu mann eins
og Þórð, alltaf tilbúinn til starfa
og einhvern veginn svo ótrúlega
fundvís á fé. Það var alltaf hann
sem talaði við „þá stóru“ og tókst
einhvern veginn að telja þeim trú
um að styrkur við starfið okkar
væri hverju fyrirtæki bara svo
mikið til góðs. En það var ekki
bara annarra fé sem hann fann,
hann lagði líka stundum fram
vinnu til fyrirtækja eða stofnana
gegn reikningi og innleggsreikn-
ingur þeirra reikninga var
ósjaldan reikningur körfunnar.
Hann fylgdist vel með hvort
samþykktir styrkir hefðu skilað
sér til deildarinnar og vildi alltaf
vita hvernig fjárhagsstaðan væri.
Þórður var líka ákaflega
áhugasamur um liðið okkar, leik-
menn og þjálfara, og virtist lifa
fyrir gengi þess á hverju tímabili.
Hann var á fullu í þessu starfi
meðan hann hafði heilsu til.
Fylgdist vel með allt þar til yfir
lauk.
Kæri Þórður, hafðu hjartans
þakkir fyrir allt þitt mikla starf í
þágu íþrótta hér í bæ og þá ekki
síst það sem að körfuboltadeild-
inni sneri. Guð blessi minningu
þína.
Innilegar samúðarkveðjur til
fjölskyldunnar og ástvina.
Sigrún Ágústsdóttir.
Þórður Ólafsson, fyrrum for-
maður Boðans í Þorlákshöfn og
stjórnarmaður í Eflingu, er
minnisstæður maður. Hann er
einn af þeim forystumönnum í
verkalýðshreyfingunni innan
ASÍ sem alltaf nutu mikillar virð-
ingar félaga sinna fyrir heiðar-
leika, einurð og drenglyndi.
Þórði kynntist ég fyrst í starfi
skrifstofustjóra ASÍ í aðdrag-
anda þjóðarsáttarsamninganna
1990. Samningagerð ASÍ var þá
undir agaðri verkstjórn forseta
og framkvæmdastjóra ASÍ og oft
langir vinnudagar. Þegar venju-
legum vinnudegi lauk, skiptum
við oft á milli okkar hringingum
til miðstjórnarmanna til að segja
tíðindi af samningum og kanna
sjónarmið þeirra til framvind-
unnar. Mér er minnisstætt eitt
sinn þegar Ásmundur Stefáns-
son hafði gert ráð fyrir að það
kæmi í minn hlut að hringja í
Þórð Ólafsson, þá sagði hann við
mig: „En kannski er það óþarfi
að hringja í Þórð. Við höfum allt-
af stutt hvor annan til góðra
verka.“
Þarna var Þórði vel lýst. Varla
hægt að hugsa sér betri sam-
verkamann. Hann var ekki bara
öflugur málsvari. Í öllum fé-
lagsstörfum hafði hann hlýja
nærveru. Hann var einstaklega
orðvar, málalengingar voru hon-
um ekki að skapi. Á fundum tók
hann oft til máls þegar líða tók á
fundinn og þá hlustaði salurinn.
Hann talaði alltaf fyrir máli með
rökstuðningi hins vinnandi
manns. Hreinskilinn og opinskár.
Þegar hann ákvað að styðja mál
var ekki aftur snúið. Það var gott
að eiga hann að stuðningsmanni.
Enn sá ég þennan góða hæfi-
leika þegar kom að sameining-
armálum Boðans og Eflingar. Þó
að ýmis rök mæltu með því að
Boðinn, stéttarfélagið sem hann
var í forystu fyrir, sameinaðist
félögum á Suðurlandi, hafði for-
maður Boðans mótað sér aðra
skoðun. Mikilvægast af öllu,
sagði hann, er að félagsmenn
Boðans komist í stórt og öflugt
félag sem tryggi bæði stöðu
þeirra í réttindum og kjörum.
Þar hefur Efling með samstarfs-
félögum í Flóanum yfirburða-
stöðu. Þar að auki þekki ég til
forystumanna í Eflingu og
treysti þeim vel.
Þegar kom að atkvæðagreiðsl-
unni um sameiningu Eflingar og
Boðans, ræddum við einu sinni
sem oftar um hvernig niðurstað-
an yrði. Hann fann fyrir nokkr-
um efasemdum hjá mér um já-
kvæða niðurstöðu. „Hafðu engar
áhyggjur,“ sagði hann. „Þetta
verður samþykkt með góðum
meirihluta.“ Hann hafði greini-
lega rætt við fjölmarga fé-
lagsmenn. Hér kom í ljós sem oft
áður hve vel hann þekkti fé-
lagsmenn sína. Hve mikla alúð
hann lagði í verk sín. Hann hafði
á réttu að standa. Sameiningin
var samþykkt með yfirgnæfandi
meirihluta.
Þórður vann ætíð verka-
mannastörf á þeim tíma sem
hann var formaður Boðans og
síðar stjórnarmaður í Eflingu.
Stundum kom hann beint úr
vinnunni á fundi í félaginu. Í öll-
um störfum sínum, hvort sem var
í verkalýðsmálum eða öðrum fé-
lagsmálum, var hann til fyrir-
myndar.
Við héldum sambandi okkar
áfram löngu eftir að við báðir
höfðum horfið frá störfum í
verkalýðshreyfingunni. Ég mun
sakna samtalanna við hann. Vin-
átta við slíka menn er okkur
ómetanleg í lífinu. Eiginkonu
hans Björgu og fjölskyldu sendi
ég samúðarkveðjur.
Þráinn Hallgrímsson.
Þórður Ólafsson
Ástkær maður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
REYNIR HALLGRÍMSSON
bóndi frá Kringlu,
lést miðvikudaginn 11. ágúst á HSN
Blönduósi. Útför hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Sigurbjörg Ólafsdóttir
Ólafur Baldur Reynisson Anna Hjálmarsdóttir
Hallgrímur Svanur Reyniss. Hildur Þöll Ágústsdóttir
Arnar Bjarki Reynisson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir og fósturfaðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og bróðir,
SVEINN GUNNLAUGSSON,
Hjallabraut 33,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn
17. ágúst.
Útförin verður auglýst síðar.
Jenný Jóna Sveinsdóttir Þorvaldur Böðvarsson
Sigríður Sigtryggsdóttir Pétur Pétursson
Agnes Sigtryggsdóttir Siamack Atiabi
barnabörn, barnabarnabörn og systur
Okkar ástkæra frænka,
SÓLVEIG GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Grýtu,
lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hlíð
Akureyri fimmtudaginn 19. ágúst.
Útför hennar fer fram frá Munkaþverár-
kirkju föstudaginn 27. ágúst klukkan 13.
Sérstakar þakkir fær starfsfólkið á Einihlíð fyrir hlýja og góða
umönnun.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sólveig Jóna Geirsdóttir
Okkar ástkæra
ERLA BJÖRK DANÍELSDÓTTIR,
Borgarnesi,
lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Brákarhlíð föstudaginn 20. ágúst.
Útförin fer fram föstudaginn 27. ágúst
klukkan 14 í Borgarneskirkju.
Fjölskyldan færir öllu starfsfólki Brákarhlíðar þakkir fyrir einstaka
umönnun og velvild þau ár sem Erla dvaldi í Brákarhlíð. Streymt
verður frá athöfninni. Virkan hlekk má nálgast á
https://www.mbl.is/andlat
Íris Inga Grönfeldt Gunnar Þór Þorsteinsson
Svafa Grönfeldt Matthías Friðriksson
Þóra Guðrún Grönfeldt Gylfi Konráðsson
og fjölskyldur
Ástkær lífsförunautur minn, móðir mín,
tengdamóðir og amma,
ANNA LILJA PÁLSDÓTTIR,
Heiðmörk 21, Hveragerði,
lést 20. ágúst á líknardeildinni í Kópavogi.
Útförin fer fram frá Hveragerðiskirkju
föstudaginn 27. ágúst klukkan 15.
Arnþór Ævarsson
Þorgerður Ösp Arnþórsdóttir Grettir Ólafsson
Óríon Reginn Grettisson