Morgunblaðið - 25.08.2021, Síða 18

Morgunblaðið - 25.08.2021, Síða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2021 Raðauglýsingar Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að breytingum á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016/2028. Akstursíþróttasvæði og jaðarsport við Gunnarsholtsveg, breyting á landnotkun Byggðaráð í umboði sveitarstjórnar Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 22.7.2021 tillögu að breytingu á landnotkun í aðalskipulagi sveitarfélagsins fyrir akstursíþróttasvæði og jaðarsport þar sem hluti núverandi skógræktar- og landgræðslusvæði SL28 verði gert að íþróttasvæði ÍÞ6. Þjóðólfshagi 1, breyting á landnotkun Byggðaráð í umboði sveitarstjórnar Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 22.7.2021 að gerðar verði nauðsynlegar breytingar á skilgreiningu landnotkunar í aðalskipulagi sveitarfélagsins fyrir hluta úr landi Þjóðólfshaga, þar sem hluti núverandi frístundabyggðar verði gerður að íbúðabyggð. Borgarbraut 4, breyting á landnotkun Byggðaráð í umboði sveitarstjórnar Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 22.7.2021 að gerðar verði nauðsynlegar breytingar á landnotkun lóðar nr. 4 við Borgarbraut í aðalskipulagi sveitarfélagsins, þar sem núverandi íbúðarnotkun verði breytt í verslunar- og þjónustunot. Gaddstaðir, breyting á landnotkun Byggðaráð í umboði sveitarstjórnar Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 22.7.2021 að gerðar verði nauðsynlegar breytingar á skilgreiningu landnotkunar í aðalskipulagi sveitarfélagsins fyrir hluta úr landi Gaddstaða, þar sem hluti núverandi frístundabyggðar verði gerður að íbúðabyggð. Tillögurnar liggja frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 6. október 2021. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is Haraldur Birgir Haraldsson Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra RANGÁRÞING YTRA Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-14. Opin vinnustofa kl. 9-12. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.30-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. Sími 411-2600. Bólstaðarhlíð 43 Morgunkaffi í kaffihorninu kl. 10. Spiladagur, frjáls spilamennska kl. 12.30-15.50. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11. Opin Listasmiðja kl. 9-12. Línudans kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30- 12.30. Samsöngur kl. 13.30-14.15. Opin Listasmiðja kl. 13-15.30. Síð- degiskaffi kl. 14.30-15.30. Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 13.45-15.15. Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur frá Smiðju kl. 13. Brids í Jónshúsi kl. 13. Hraunsel Mánudagur: Myndlistarklúbbur kl. 9, stóla-jóga kl. 10 og félagsvist kl. 13. Þriðjudagur: Brids kl. 13. Miðvikudagur: Stóla-jóga kl. 10, línudans kl. 11, bingó kl. 13 og handverk kl. 13. Fimmtudagur: Pílukast kl. 13. Föstudagur: Línudans kl. 10 og brids kl. 13. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Dansleikfimi með Auði kl. 10. Framhaldssaga kl. 10.30. Handavinnuhópur, opin vinnustofa kl. 13-16. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag byrjum við daginn á postulíns- málun í handverksstofunni okkar kl. 9, kl. 10.30 verðurspiluð píla í setustofunni okkar. Eftir hádegi verður svo skemmtilegt spurninga- spil kl. 13 og við endum daginn á hlaðvarpi kl. 14.30. Verið öll velkom- in til okkar á Vitatorg. Hlökkum til að sjá ykkur! Seltjarnarnes Leir á Skólabraut kl. 9. Botsía í salnum á Skólabraut kl. 10. Kaffispjall í króknum alla morgna. Handavinna og kaffi í salnum á Skólabraut milli kl. 13 og 16. Allir eru velkomnir til þátttöku í félags- starfinu. Minnum á vatnsleikfimina á morgun kl. 7.10 og svo aftur kl. 18.40 og leikfimina í salnum á Skólabraut kl. 11 með Birki. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar Honda CR-V Executive 5/2016 Ekinn 97 þ. km. Flottasta typa með leðurinnréttingu, glerþaki og öllum lúxus. Einn eigandi frá upphafi. Verð: 3.750.000,- www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. 200 mílur Nú "&&$# þú það sem þú !ei%a# að ' FINNA.is ✝ Jón Otti Jóns- son fæddist í húsi foreldra sinna á Vest- urgötu 36a í Reykjavík. Hann lést 9. ágúst 2021. Hann var yngstur barna hjónanna Gyðu Sigurðar- dóttur og Jóns Otta Vigfúsar Jónssonar skip- stjóra. Systkini Jóns voru Vigdís, f. 1918, Sigurður, f. 1922, og Sigríður, f. 1925. Jón ólst upp við Vesturgöt- una. Gekk í Miðbæjarskólann og lauk sveinsprófi í prentiðn frá Ríkisprentsmiðjunni Gu- tenberg, þar sem hann starf- aði hálfa starfsævina. Jón, eða Nonni frændi, sem hann var ávallt nefndur innan fjölskyldunnar, var alla tíð einhleypur og barnlaus. Nonni var mikill félags- málamaður. KR átti stóran þátt í lífi hans, sem og margra annarra í fjölskyldunni. Sunddeild KR bar þar hæst. Jón var stjórn- armaður þar á tuttugu ára tíma- bili, þar af for- maður á annan áratug. Jón bar heiðursmerki úr gulli frá fé- lagi sínu KR, einnig Sund- sambandi Íslands og Íþrótta- sambandi Íslands. Þá tók hann þátt í starfi Miðdals- félagsins, félags sumarhúsa- eigenda í Laugardal. Útför Jóns fór fram frá kapellunni í Fossvogi í kyrr- þey að ósk hins látna 16. ágúst 2021. Jarðneskar leif- ar Nonna hvíla í leiði for- eldra hans í Fossvogs- kirkjugarði. Þá er nafni minn og móð- urbróðir, Jón Otti Jónsson eða Nonni frændi, kominn í draumalandið þar sem við öll endum einn daginn. Hann hef- ur sjálfsagt verið hvíldinni feginn eftir veikindi sem hafa smátt og smátt dregið úr hon- um þrótt undanfarin ár. Nonni frændi hefur alltaf verið stór þáttur í mínu lífi og mér reiknast til að við höfum búið í sama húsi á Vesturgötu 36a í ein 25 ár. Nokkrar minn- ingar koma upp þegar ég hugsa til tímans á Vesturgöt- unni. Fyrsta bíóferðin mín með Nonna á cowboy-mynd Roy Rogers og þegar við gengum daglega saman áleiðis til vinnu hvor í sína prent- smiðjuna. Mér er líka minn- isstætt þegar Jónína var á spítalanum að eiga okkar ann- að barn og við biðum frétta. Þá var aðeins einn sími í hús- inu svo Nonni tók að sér að vakta símann svo við misstum örugglega ekki af símtalinu frá spítalanum. Það var alltaf gott að hafa Nonna frænda sem hauk í horni. Ungur að árum fetaði Nonni í fótspor systkina sinna og gekk til liðs við KR og var alla tíð mikill KR-ingur. Hann lét til sín taka í sunddeildinni, bæði sem iðkandi og síðar for- maður. Hann reyndi að fá mig í sundið allt frá því ég var þriggja ára gamall en bolta- greinarnar heilluðu mig meira, en það var í lagi á meðan það var innan KR. Árið 1964 byrjaði Nonni að byggja sér sælureit í Miðdal við Laugarvatn. Þar var alla tíð gestkvæmt og fjölskylda og vinir nutu samvista á Birki- bakka. Nonni var afskaplega barngóður og ég fór mikið með drengina mína þangað og síðar fengu barnabörnin einnig að njóta verunnar þar. Nonni tók virkan þátt í uppbyggingu í Miðdal, lagði göngustíga, brýr og gróðursetti tré svo eitthvað sé nefnt. Nonni var afar vanafastur og með allt sitt á hreinu. Hann las mikið allt fram á síðasta dag og fylgdist vel með þjóð- félagsumræðunni. Segja má að Nonni hafi verið límið í stór- fjölskyldunni, en hann var afar frændrækinn og færði fréttir af ættmennum. Það var hefð fyrir því að Nonni kæmi til okkar á gamlárskvöld og ann- an dag jóla sem okkur þótti vænt um. Ég kem til með að sakna þess að kíkja á Nonna og fara í alls kyns útréttingar. Nonni minn hvíl þú í friði, minning um góðan mann mun lifa. Jón Otti Ólafsson. Nonni frændi móðurbróðir farinn. Jón Otti frændi var ávallt kallaður innan fjölskyldunnar Nonni frændi. Þannig þekkt- um við Nonna öll. Ávallt var gott að hafa Nonna nálægan, öðlingsdrengur, öflugur stuðn- ingsmaður og sá fjölskyldu- meðlimur er var límið fyrir okkur yngri kynslóðir. Bústaður Nonna í Laugar- dal, Birkibakki, var okkur öll- um sem félagsmiðstöð. Allir alltaf velkomnir. Mannkostir Nonna voru á einn veg og skilja eftir sig góðar minningar. Minningar ógleymanlegar. Takk fyrir allt og allt. Einar Gíslason. Jón Otti Jónsson Vinur minn Jón- as kristniboði var jarðaður í dag frá Fossvogskirkju. Hann Jónas var skemmtilegur maður og góður. Ég kynntist honum í Kristni- boðssambandinu og í Kristni- boðsfélagi karla. Hann var Jónas Þórir Þórisson ✝ Jónas Þórir Þórisson fædd- ist 7. ágúst 1944. Hann lést 8. ágúst 2021. Útförin var gerð 19. ágúst 2021. fróður og góður að ræða við. Hann fór oft á kristniboðs- mót á Löngumýri í Skagafirði og naut þess meðan heilsan leyfði. Hann starf- aði á Basar Kristniboðssam- bandsins í Austur- veri á mánudögum. Hann var góður starfsmaður. Ég vil votta konu hans og fjölskyldu samúð mína. Það var gott að heimsækja þau. Jón Pálmi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.