Morgunblaðið - 28.08.2021, Blaðsíða 10
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
E
kki þarf að fræða lesendur um
þann vanda sem skapast hef-
ur um allan heim vegna plast-
mengunar. Þótt plast sé mikið
undraefni og geri heilmikið gagn ef
það er notað í réttum tilgangi og farg-
að með réttum hætti, þá veldur plast-
ið bæði sjónmengun og skaða á
plöntu- og dýralífi ef það berst út í
náttúruna og tekur óralangan tíma
fyrir plastefni að brotna niður.
Plastvandinn verður ekki lagaður á
einum degi en íslenska sprotafyr-
irtækið Marea er að þróa þaraplast
sem gæti a.m.k. leyst vandann að
hluta.
Julie Encausse er stofnandi og
framkvæmdastjóri Marea en þær
Eydís Sigurðardóttir Schiöth og
Edda Björk Bolladóttir hafa unnið
með henni að þróunarvinnunni:
„Við hófum þetta verkefni í maí á
síðasta ári og getum verið ánægðar
með það hversu langt við höfum kom-
ist á þessu röska ári,“ segir Julie en
fyrirtækið hefur þegar þróað tvær
tegundir þaraplasts með ólíka eig-
inleika og standa prófanir á vörunni
núna yfir. „Um er að ræða efni sem
heyrir strangt til tekið undir hóp efna
sem kölluð eru lífrænt plast, en þara-
plastið hefur alveg sérstaka eig-
inleika og þess vegna reynum við
frekar að nota það heiti.“
Gæti hentað utan um
grænmeti og fiskflök
Leynd hvílir yfir þeim aðferðum sem
Marea notar til að umbreyta þara í
efni með svipaða eiginleika og plast
en Julie segir ferlið snúast um að
nýta fjölliður sem unnar eru úr þar-
anum. Fjölliðurnar má móta í filmu
sem t.d. getur hentað sem umbúðir
utan um matvæli, en hefur líka þann
eiginleika að brotna niður við réttar
aðstæður. Hefur Marea þegar þróað
tvær gerðir af þarplasti: Þaraplast C
sem hefur eiginleika sveigjanlegrar
filmu og getur t.d. verið heppilegt til
að vefja þétt utan um grænmeti, og
svo Þaraplast M sem svipar til selló-
fans og vonir standa til að geti komið í
stað þeirra plastþynna sem settar eru
á milli fiskflaka þegar þeim er pakkað
í pappírs- og frauðplastsöskjur.
Segir Julie að fyrstu tilraunir
bendi til að þaraplastið hafi þá eig-
inleika sem leitað er að en vitaskuld
geti margt komið upp á í því langa og
ítarlega prófunarferli sem núna
stendur yfir.
Þá segir hún Marea ekki eina fyrir-
tækið í heiminum sem hafi komið
auga á að nota þara sem hráefni til
Þaraplast leysir
fjölda vandamála
Plast framleitt úr fjölliðum sem unnar eru úr þara
ætti að henta sem umbúðir utan um matvæli en
brotna síðan niður eins og annar lífrænn úrgangur.
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2021
Við óskum sjómönnum og útgerðarmönnum velfarnaðar á komandi fiskveiðiári.
Nautic ehf., Ármúli 1, 108 Reykjavík - 5400515 - www.nautic.is