Morgunblaðið - 28.08.2021, Qupperneq 11
plastgerðar: „Finna má örfá fyrir-
tæki sem nota efnasambönd úr þara
til að búa til lífplast en þeirra vörur
eru með aðra eiginleika en okkar,“
segir hún en verkefnið hefur m.a.
fengið styrk frá matvælasjóði og
tækniþróunarsjóði og er hýst af Sjáv-
arklasanum. Af samstarsfyrirtækjum
Marea má nefna Haskólann á Akur-
eyri og endurvinnslufyrirtækið Terra
sem um þessar mundir er að gera
prófanir á þaraplastinu til að mæla
hversu greiðlega það brotnar niður
með lífrænum úrgangi.
Stöðugt þrengt að plastnotkun
Þegar Julie er spurð um markaðs-
áætlanir Marea og samkeppnis-
umhverfið á plast- og lífplastsmark-
aði má heyra að hún er með báða
fætur á jörðinni. Hún segir of
snemmt að gera langtímaáætlanir um
skölun og útrás, og að markmið sé að
einblína á íslenskan markað fyrst um
sinn. „Við hugum ekki að virðiskeðj-
unni í miklum smáatriðum á þessu
stigi en gerum engu að síður ráð fyrir
að þaraplastið muni kosta meira en
hefðbundið plast unnið úr hliðar-
afurðum olíuvinnslu. Að því sögðu þá
eru meiri líkur en minni á að stjórn-
völd um allan heim haldi áfram á
þeirri braut að þrengja að plastnotk-
un og er skemmst að minnast reglna
sem banna notkun plasthnífapara,
plastdrykkjarröra og innkaupapoka
úr plasti.“
Julie ljóstrar því einnig upp að
Marea sé að skoða þann möguleika að
nota orku frá jarðvarmavirkjun við
framleiðslu þaraplasts og eins komi
til greina að nota þörunga sem rækt-
aðir eru í stýrðu umhverfi frekar en
að nýta þara sem fenginn er úr sjó
eða vötnum:
„Við höfum engar áhyggjur af hrá-
efnisskorti á þessu stigi og gaman að
sjá hvað þeir aðilar sem við höfum
rætt við sem nýta þara umhverfis
landið eru miklir fagmenn og um-
gangast þessa auðlind af nærgætni.
Hátækniræktun á þörungum, með
svipuðum aðferðum og eru t.d. not-
aðar hjá Algalífi, gæti samt haft
ákveðna kosti fyrir framleiðsluna,“
segir Julie og bætir við að þar sem
þari bindur mikið magn koltvísýrings
sé hugsanlegt að með notkun endur-
nýjanlegra orkugjafa geti framleiðsla
þaraplasts verið kolefnisneikvæð:
„Þari leikur stórt hlutverk í að fanga
koltvísýring sem berst úr andrúms-
loftinu í hafið og þegar öll skref eru
tekin með, frá ræktun þarans og þar
til þaraplastið er tilbúið til afhend-
ingar, ætti ferlið mögulega að geta
fangað meiri koltvísýring en það los-
ar.“
Julie áréttar að plast úr olíu-
afurðum sé ekki að fara að hverfa af
sjónarsviðinu í bráð og þjóni mikil-
vægum tilgangi, en miklu skipti að
nota plastið rétt og endurvinna þegar
það hefur þjónað hlutverki sínu.
„Gott dæmi um þetta eru fiskikerin
sem sjávarútvegurinn reiðir sig á og
vandséð að þar mætti nota annað
hráefni í staðinn. En framleiðendur
fiskikeranna gæta þess líka að við
endalok líftíma þeirra, sem er allt að
fimmtán ár, þá séu þau send til
endurvinnslu,“ segir hún.
„Notendur hafa rekið sig á að förg-
un þess lífplasts sem fæst á mark-
aðinum í dag er flóknari en fólk hafði
grunað og þarf að nota ólíkar aðferðir
fyrir ólíkar gerðir lífplasts, og passa
upp á að blanda lífniðurbrjótanlegu
plasti ekki með hefðbundnu plasti.
Einn plastpoki úr röngu efni getur
þýtt að ekki er hægt að endurvinna
heila pallettu af plastúrgangi. Þara-
plastið, aftur á móti, brotnar niður
eins og hver annar lífrænn úrgang-
ur.“
Margir vilja fá rúllu
Ævintýrið er rétt að byrja hjá Marea
og verður gaman að fylgjast með
fyrirtækinu á komandi árum. Gangi
prófanir á þaraplasti M og C vel
væru næstu skref að hefja fram-
leiðslu á meðalstórum skala og fá öll
tilskilin leyfi og vottanir enda gilda
strangar reglur um þau efni sem
komast í snertingu við matvæli. „Þótt
við séum komnar þetta skammt á veg
finnum við strax fyrir miklum áhuga
hjá íslenskum fyrirtækjum sem
myndu helst vilja geta pantað nokkr-
ar rúllur af þaraplasti strax í dag,“
segir Julie.Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Julie segir að framleiðsla þara-
plasts gæti mögulega verið kol-
efnisneikvæð enda bindur þara-
ræktun mikið af koltvísýringi.
AFP
Heimurinn glímir við vaxandi vanda vegna ófullnægjandi meðhöndlunar á
úrgangsplasti. Plastið safnast upp í náttúrunni og veldur miklu tjóni.
LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2021 MORGUNBLAÐIÐ 11
TRAUST
ÞJÓNUSTA
VIÐ ÍSLENSKAN SJÁVARÚTVEG Í ÁRATUGI
555 66777 | umb.is | Korngörðum 5, Reykjavík