Morgunblaðið - 28.08.2021, Qupperneq 12
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
E
rtu búinn að koma þér fyrir
með kaffibolla við hönd? spyr
blaðamaður er Örn Pálsson,
framkvæmdastjóri Lands-
sambands smábátaeigenda (LS),
svarar í símann. „Já,“ segir hann.
„Og svo þessa dýrindisrandalínu frá
síðustu jólum sem ég var að taka úr
frysti. Djöfull góð.“
Blaðamaður getur ekki annað en
sagt frá því að ekki hafi fengist góð
randalína frá því að amma dó enda
smurði hún kreminu svo þykkt á
milli – að akureyrskum sið.
„Heyrðu,“ segir Örn skyndilega.
„Ég sendi þér mynd af þessari því
hún er ekta akureyrsk,“ bætir hann
við og lýsir því að ekki sé farið spar-
lega með kremið norðan heiða.
Eftir nokkurt hjal um tertumenn-
ingu er ekki annarra kosta völ en að
snúa sér að tilgangi samtalsins og
spyrja hvað sé efst á baugi í grein-
inni á komandi fiskveiðiári. „Það
sem mér finnst mjög aðkallandi er
að bæta ímynd sjávarútvegsins með-
al þjóðarinnar. Mér finnst mjög al-
varlegt mál hversu umræðan er orð-
in neikvæð um greinina, landsmenn
ekki nógu jákvæðir gagnvart sjávar-
útveginum,“ svarar Örn.
„Menn mega ekki gleyma því að
fólk eins og félagsmenn okkar, þeir
eiga allt undir því að kerfið haldist í
stórum dráttum óbreytt. Þeir hafa
byggt upp sín fyrirtæki með það fyr-
ir augum að geta treyst á stöðug-
leika og sátt,“ bætir hann við.
Líta jákvætt á strandveiðar
Örn segir hins vegar til þætti innan
sjávarútvegsins sem hafa jákvæða
ímynd og bendir á strandveiðarnar
en veiðitímabilinu lauk fyrr í mán-
uðinum eftir að veiðiheimildir sem
ráðstafað var kláruðust. Mikilvægt
sé að efla þessar veiðar og tryggja
með lögum öllum strandveiðibátum
48 veiðidaga. „Það er að hverjum
bát séu tryggðir tólf dagar á mán-
uði og strandveiðitímabilið nái yfir
fjóra mánuði.“
Hann telur vel hægt að leysa
þann vanda að tryggja nægar veiði-
heimildir innan ramma veiðiráð-
gjafar Hafrannsóknastofnunar fyr-
ir 48 daga. Telur hann strandveiðar
og línuívilnun best heppnuðu veið-
arnar innan atvinnu- og byggða-
kvótakerfisins sem fer með 5,3% af
útgefnu aflamarki. „Þá eiga ein-
faldlega þeir sem eru í þessum hóp-
um [strandveiðum og línuívilnun]
að njóta forgangs að veiðiheim-
ildum innan þessa 5,3 prósenta. Það
sem verður eftir fari í byggðakvót-
ana og þá fyrst og fremst til dag-
róðrabáta, því það eru þeir sem
gefa byggðarlögum líf og þurfa
mest á þessum heimildum að
halda.“
Strandveiðarnar skipa sífellt
mikilvægari sess í atvinnulífinu að
sögn Arnar. „Í sumar voru um 700
bátar á strandveiðum og þá að
minnsta kosti jafn margir sem hafa
atvinnu af þessu á sjó. Það eru allt-
af að koma inn nýir aðilar sem eru
að uppgötva að þetta eigi vel við þá.
Já og vel á minnst; nánast allt selt í
gegnum fiskmarkaði og fjölmörg
störf í landi sem fylgja.“
Áhyggjur af skerðingum
Veruleg skerðing verður á útgefnu
aflamarki í þorski á nýju fiskveiðiári
og nemur lækkun milli ára 13%.
„Þetta verður erfitt ár,“ segir Örn.
„Menn eru að reyna að kaupa meiri
heimildir til að draga úr áhrifum
skerðingarinnar en djúpt er á þeim.
„Stærri útgerðirnar hafa forgang í
að ná þessum veiðiheimildum til
sín.“
Í ljósi þessa er blaðamaður knúinn
til að spyrja um afstöðu sambands-
ins til hugmynda um að fyrna veiði-
heimildir sem fyrir eru og setja á
uppboð og selja hæstbjóðanda.
„Þetta er ákveðið vandamál og við
viljum að farið sé mjög varlega í all-
ar svona breytingar. Ef verið er að
tala um uppboð – að það verði ofan á
að komandi stjórnvöld hafi það á
stefnuskrá sinni að boðnar verði upp
veiðiheimildir – verður að leggja
mikla áherslu á að haga útboðum
þannig að hægt sé að tryggja veiði-
heimildir til þessara minnstu aðila,
að þeir njóti ákveðins forgangs, að
þeirra réttur sé varinn.“
Hann segir að LS standi vörð um
veiðirétt félagsmanna. Uppboð eða
fyrning hafi ekki verið á dagskrá hjá
núverandi stjórnvöldum og því ekki
verið rætt innan LS. Hann telur litl-
ar líkur á að breyting verði þar á, en
ef svo verður þurfi að skoða vand-
lega hvernig útfærslum verður hátt-
að verði það stefna stjórnvalda að
fara hina svokölluðu fyrningarleið
og bjóða upp heimildirnar.
Taki gjald af stærri útgerðum
Þá beinir Örn máli sínu að veiði-
gjöldunum og bendir á að oft sé
minnst á aukna gjaldtöku af nýtingu
sameiginlegrar auðlindar. „Verði
gerð krafa um slíkt hef ég viðrað þá
hugmynd að álag verði sett á veiði-
gjald hjá þeim sem eru komnir yfir
ákveðið efra mark í veiðiheimildum.“
Þannig verður, að mati hans, dregið
úr þeirri þróun sem hefur leitt af sér
aukna samþjöppun í greininni og
komið til móts við kröfuna um aukna
gjaldheimtu, en þó þannig að það
komi ekki niður á smærri útgerðum.
Að lokum kveðst framkvæmda-
stjórinn sannfærður um að það sé
töluvert meira af ýsu í hafinu um-
hverfis Ísland en fiskifræðingar
telja. „Það verður að auka við ýsu-
kvótann á [komandi] fiskveiðiári.
Þær veiðiheimildir sem hafa verið
gefnar út eru of litlar miðað við þá
ýsugengd sem nú er. Með óbreytt-
um aflaheimildum endurtaka sig
sömu vandræðin og verið hafa á yfir-
standandi fiskveiðiári að heimildir í
ýsu duga ekki til að ná þorskinum.
Þá var bætt við ýsukvótann, sem ég
tel einsýnt að verði að gera á næstu
mánuðum.“
„Alvarlegt mál hversu umræðan er orðin neikvæð“
Morgunblaðið/Eggert
Smábátaútgerðirnar setja svip sinn á
byggðir landsins. Sérstaklega þegar
strandveiðarnar fara fram.
Ímynd greinarinnar er
stærsta viðfangsefni
sjávarútvegsins á kom-
andi fiskveiðiári að mati
framkvæmdastjóra
Landssambands smá-
bátaeigenda. Leggur
hann til breytt fyrir-
komulag veiðigjalda og
aukna áherslu á dag-
róðrabáta í ráðstöfun
atvinnu- og byggða-
kvóta.
Morgunblaðið/Eggert
Örn Pálsson leggur til að aukin veiðigjöld verði lögð á útgerðirnar með mesta aflamarkið.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Boltafiski landað að morgni í Þórshöfn á dögunum.
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2021
Aflaverðmæti á strandveiðum
sumarsins er um fjórir milljarðar
króna og er vertíðin sú stærsta í
þrettán ára sögu strandveiða við
landið. Aldrei hefur meiri afli
komið á land eða alls 12.146 tonn,
þar af 11.139 tonn af þorski.
Aflahæsti báturinn á vertíðinni
var Agla ÁR 79 sem kom alls með
51 tonn að landi, en Agla reri á
svæði A, frá Arnarstapa til Súða-
víkur. Á B-svæði, frá Norðurfirði
til Grenivíkur, var Jón Magg ÓF
aflahæstur með 38,6 tonn. Lund-
ey ÞH var aflahæst á C-svæði, frá
Húsavík til Djúpavogs, með 38
tonn og Snjólfur SF 65 á D-svæði,
frá Hornafirði í Borgarnes með 46
tonn.
Meðalafli á bát var 18 tonn,
sem er 349 kílóum meira en í
fyrra. Meðalafli á bát í róðri var
673 kíló, aukning um 15 kíló á dag
frá síðasta ári. Leyfi til veiða
fengu 688 bátar og lönduðu 672
þeirra afla. Flestir voru bátarnir á
A-svæði í ár eins og venjulega, en
þar landaði 261 bátur afla. Mestur
fjöldi á strandveiðum var árið
2012 þegar 759 bátar stunduðu
veiðar.
Strandveiði
2021