Morgunblaðið - 28.08.2021, Page 12

Morgunblaðið - 28.08.2021, Page 12
Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is E rtu búinn að koma þér fyrir með kaffibolla við hönd? spyr blaðamaður er Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Lands- sambands smábátaeigenda (LS), svarar í símann. „Já,“ segir hann. „Og svo þessa dýrindisrandalínu frá síðustu jólum sem ég var að taka úr frysti. Djöfull góð.“ Blaðamaður getur ekki annað en sagt frá því að ekki hafi fengist góð randalína frá því að amma dó enda smurði hún kreminu svo þykkt á milli – að akureyrskum sið. „Heyrðu,“ segir Örn skyndilega. „Ég sendi þér mynd af þessari því hún er ekta akureyrsk,“ bætir hann við og lýsir því að ekki sé farið spar- lega með kremið norðan heiða. Eftir nokkurt hjal um tertumenn- ingu er ekki annarra kosta völ en að snúa sér að tilgangi samtalsins og spyrja hvað sé efst á baugi í grein- inni á komandi fiskveiðiári. „Það sem mér finnst mjög aðkallandi er að bæta ímynd sjávarútvegsins með- al þjóðarinnar. Mér finnst mjög al- varlegt mál hversu umræðan er orð- in neikvæð um greinina, landsmenn ekki nógu jákvæðir gagnvart sjávar- útveginum,“ svarar Örn. „Menn mega ekki gleyma því að fólk eins og félagsmenn okkar, þeir eiga allt undir því að kerfið haldist í stórum dráttum óbreytt. Þeir hafa byggt upp sín fyrirtæki með það fyr- ir augum að geta treyst á stöðug- leika og sátt,“ bætir hann við. Líta jákvætt á strandveiðar Örn segir hins vegar til þætti innan sjávarútvegsins sem hafa jákvæða ímynd og bendir á strandveiðarnar en veiðitímabilinu lauk fyrr í mán- uðinum eftir að veiðiheimildir sem ráðstafað var kláruðust. Mikilvægt sé að efla þessar veiðar og tryggja með lögum öllum strandveiðibátum 48 veiðidaga. „Það er að hverjum bát séu tryggðir tólf dagar á mán- uði og strandveiðitímabilið nái yfir fjóra mánuði.“ Hann telur vel hægt að leysa þann vanda að tryggja nægar veiði- heimildir innan ramma veiðiráð- gjafar Hafrannsóknastofnunar fyr- ir 48 daga. Telur hann strandveiðar og línuívilnun best heppnuðu veið- arnar innan atvinnu- og byggða- kvótakerfisins sem fer með 5,3% af útgefnu aflamarki. „Þá eiga ein- faldlega þeir sem eru í þessum hóp- um [strandveiðum og línuívilnun] að njóta forgangs að veiðiheim- ildum innan þessa 5,3 prósenta. Það sem verður eftir fari í byggðakvót- ana og þá fyrst og fremst til dag- róðrabáta, því það eru þeir sem gefa byggðarlögum líf og þurfa mest á þessum heimildum að halda.“ Strandveiðarnar skipa sífellt mikilvægari sess í atvinnulífinu að sögn Arnar. „Í sumar voru um 700 bátar á strandveiðum og þá að minnsta kosti jafn margir sem hafa atvinnu af þessu á sjó. Það eru allt- af að koma inn nýir aðilar sem eru að uppgötva að þetta eigi vel við þá. Já og vel á minnst; nánast allt selt í gegnum fiskmarkaði og fjölmörg störf í landi sem fylgja.“ Áhyggjur af skerðingum Veruleg skerðing verður á útgefnu aflamarki í þorski á nýju fiskveiðiári og nemur lækkun milli ára 13%. „Þetta verður erfitt ár,“ segir Örn. „Menn eru að reyna að kaupa meiri heimildir til að draga úr áhrifum skerðingarinnar en djúpt er á þeim. „Stærri útgerðirnar hafa forgang í að ná þessum veiðiheimildum til sín.“ Í ljósi þessa er blaðamaður knúinn til að spyrja um afstöðu sambands- ins til hugmynda um að fyrna veiði- heimildir sem fyrir eru og setja á uppboð og selja hæstbjóðanda. „Þetta er ákveðið vandamál og við viljum að farið sé mjög varlega í all- ar svona breytingar. Ef verið er að tala um uppboð – að það verði ofan á að komandi stjórnvöld hafi það á stefnuskrá sinni að boðnar verði upp veiðiheimildir – verður að leggja mikla áherslu á að haga útboðum þannig að hægt sé að tryggja veiði- heimildir til þessara minnstu aðila, að þeir njóti ákveðins forgangs, að þeirra réttur sé varinn.“ Hann segir að LS standi vörð um veiðirétt félagsmanna. Uppboð eða fyrning hafi ekki verið á dagskrá hjá núverandi stjórnvöldum og því ekki verið rætt innan LS. Hann telur litl- ar líkur á að breyting verði þar á, en ef svo verður þurfi að skoða vand- lega hvernig útfærslum verður hátt- að verði það stefna stjórnvalda að fara hina svokölluðu fyrningarleið og bjóða upp heimildirnar. Taki gjald af stærri útgerðum Þá beinir Örn máli sínu að veiði- gjöldunum og bendir á að oft sé minnst á aukna gjaldtöku af nýtingu sameiginlegrar auðlindar. „Verði gerð krafa um slíkt hef ég viðrað þá hugmynd að álag verði sett á veiði- gjald hjá þeim sem eru komnir yfir ákveðið efra mark í veiðiheimildum.“ Þannig verður, að mati hans, dregið úr þeirri þróun sem hefur leitt af sér aukna samþjöppun í greininni og komið til móts við kröfuna um aukna gjaldheimtu, en þó þannig að það komi ekki niður á smærri útgerðum. Að lokum kveðst framkvæmda- stjórinn sannfærður um að það sé töluvert meira af ýsu í hafinu um- hverfis Ísland en fiskifræðingar telja. „Það verður að auka við ýsu- kvótann á [komandi] fiskveiðiári. Þær veiðiheimildir sem hafa verið gefnar út eru of litlar miðað við þá ýsugengd sem nú er. Með óbreytt- um aflaheimildum endurtaka sig sömu vandræðin og verið hafa á yfir- standandi fiskveiðiári að heimildir í ýsu duga ekki til að ná þorskinum. Þá var bætt við ýsukvótann, sem ég tel einsýnt að verði að gera á næstu mánuðum.“ „Alvarlegt mál hversu umræðan er orðin neikvæð“ Morgunblaðið/Eggert Smábátaútgerðirnar setja svip sinn á byggðir landsins. Sérstaklega þegar strandveiðarnar fara fram. Ímynd greinarinnar er stærsta viðfangsefni sjávarútvegsins á kom- andi fiskveiðiári að mati framkvæmdastjóra Landssambands smá- bátaeigenda. Leggur hann til breytt fyrir- komulag veiðigjalda og aukna áherslu á dag- róðrabáta í ráðstöfun atvinnu- og byggða- kvóta. Morgunblaðið/Eggert Örn Pálsson leggur til að aukin veiðigjöld verði lögð á útgerðirnar með mesta aflamarkið. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Boltafiski landað að morgni í Þórshöfn á dögunum. 12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2021 Aflaverðmæti á strandveiðum sumarsins er um fjórir milljarðar króna og er vertíðin sú stærsta í þrettán ára sögu strandveiða við landið. Aldrei hefur meiri afli komið á land eða alls 12.146 tonn, þar af 11.139 tonn af þorski. Aflahæsti báturinn á vertíðinni var Agla ÁR 79 sem kom alls með 51 tonn að landi, en Agla reri á svæði A, frá Arnarstapa til Súða- víkur. Á B-svæði, frá Norðurfirði til Grenivíkur, var Jón Magg ÓF aflahæstur með 38,6 tonn. Lund- ey ÞH var aflahæst á C-svæði, frá Húsavík til Djúpavogs, með 38 tonn og Snjólfur SF 65 á D-svæði, frá Hornafirði í Borgarnes með 46 tonn. Meðalafli á bát var 18 tonn, sem er 349 kílóum meira en í fyrra. Meðalafli á bát í róðri var 673 kíló, aukning um 15 kíló á dag frá síðasta ári. Leyfi til veiða fengu 688 bátar og lönduðu 672 þeirra afla. Flestir voru bátarnir á A-svæði í ár eins og venjulega, en þar landaði 261 bátur afla. Mestur fjöldi á strandveiðum var árið 2012 þegar 759 bátar stunduðu veiðar. Strandveiði 2021

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.