Morgunblaðið - 28.08.2021, Page 21
LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2021 MORGUNBLAÐIÐ 21
Nintendo Switch
Það er einhvern veginn
eitthvað svo frábært að
geta dundað sér í tölvu-
leik og er framboð
þeirra orðið gríðarlegt.
Ekki er verra að hægt
er að fá í Nintendo
Switch alla gömlu leik-
ina frá Nintendo eins
og Super Mario, Mario
Cart, Street Fighter og
margt fleira. Auk þess er hægt að taka
stýripinnana af svo tveir geta spilað
saman enda er maður manns gaman.
Jakkapeysa frá
Farmers Market Iceland
Lykill að vellíðan er að
verða aldrei kalt og vera í
einhverju mjúku og þægi-
legu. Það er því kjörið að
verða sér út um hlýja ull-
arpeysu og ekki er verra
að fylgir með aukatala svo
hægt sé að hneppa alveg
upp í háls. Til að peysan
endist lengur eru olnboga-
bætur úr leðri en tölurnar
eru þjóðlegar og eru úr
ekta lambshorni. Ómiss-
andi flík.
Merlin-Canvas-skórinn frá Shoes for Crews
Þægilegir hálkuþolnir skór til að nota innandyra frá framleiðanda
skófatnaðar sem ætlaður er vinnandi fólki. Merlin-Canvas-skórinn
er með gott grip og vatnsheldur með sérstaka húðun sem hrindir
frá sér heitum vökva. Það er því engin hætta á að kaffið brenni tær
í þessum skóm.
Það má alltaf bæta þægindin
Kindle Oasis frá Amazon
Ein besta leið til að láta tímann
líða er að lesa en það vill enginn
dröslast með sjópoka með 50
kílóum af bókum. Það er því
kjörið að nýta sér tæknina
sem er okkur ávallt til halds og
trausts og splæsa í Kindle Oasis.
En ef maður tímir því ekki eða
er kominn með of mörg
tæki í káetuna má alltaf
hala niður Kindle-
appinu í góða spjald-
tölvu. Bara muna að
útvega sér bækurnar áður
en haldið er til sjós. Þrátt fyrir
nettengingu um borð í skipunum getur
netið verið hægt.
Alpaka-sokkar frá Fellhof
Ullin er alltaf góð en hún kann að
verða of þykk fyrir inniveruna. Al-
paka-sokkarnir sem fást hjá Múla-
lundi eru hins vegar fullkomnir þar
sem þeir eru þunnir, mjúkir og hlýir.
Dásamlegir þegar maður liggur í
kojunni með eitthvað skemmtilegt
að lesa.
Það fylgir því mikið álag að vera á sjó. Það er því mikilvægt að geta haft það notalegt og átt nægt framboð af afþreyingarefni þegar
tækifæri gefst til hvíldar annars vegar. Til að hámarka hvíldina er ekki nóg að geta dormað heldur þarf manni einnig að líða vel og
geta dreift huganum á meðan maður saknar þeirra sem heima eru. Tísku- og græjusérfræðingur 200 mílna fann því til skyldunnar
og tók saman stuttan lista yfir ómissandi hluti á lengri túrum.