Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.08.2021, Qupperneq 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.08.2021, Qupperneq 14
VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.8. 2021 menntaskóla og var komin inn í háskóla í Tex- as þegar ástin greip í taumana og hún fór frek- ar með kærastanum til Danmerkur. „Um sumarið vann ég á Keflavíkurvellinum og hitti þar Frank Sinatra og konuna hans Barböru. Þau voru í einkaflugvél og hún kom út í dyr vélarinnar á bleikum slopp og í bleik- um skóm með stórum bleikum dúskum úr kan- ínuhárum. Með aflitað ljóst hár. Þau voru rosa- lega næs og spurðu hvort ég vildi ekki fá af mér mynd með sér. Þannig að einhvers staðar er til polaroid-mynd af mér með Frank Sinatra og frú,“ segir hún og hlær. „Þá man ég að ég hugsaði: nei, ég get ekki farið til Ameríku! Ég enda kannski með aflit- að hár í bleikum slopp og bleikum dúskaskóm eins og hálfviti! Nei, ég færi þá heldur til Dan- merkur,“ segir hún og skellir upp úr. „Kannski var þetta bara afsökun af því ég var ástfangin,“ segir Dísa en í Danmörku skellti hún sér í kennaranám í Ribe, elsta bæ Danaveldis. „Ég ákvað bara að prófa eitt ár, það lægi ekkert á,“ segir hún og segir það í raun sitt mottó í lífinu. „Það liggur ekkert á! Hvert eru allir að flýta sér?“ Happdrættisvinningur kom sér vel Dvölin í Danmörku var ánægjuleg, enda eign- aðist Dísa þar vini til lífstíðar. Íslenski kærast- inn hélt sína leið, en Dísa kynntist dönskum manni og saman eignuðust þau soninn Christ- opher Þórarin. Eftir kennaranámið hóf hún tölvufræðinám í Árósum og leigði þar einbýlis- hús með skólasystrum frá Ribe. Eftir tölvu- fræðinámið leigði hún ásamt barnsföður sínum bóndabæ við Silkiborg og þangað fengu þau senda frá foreldrum hennar átta hesta, til að þjálfa og selja. „Það var mikið djammað, en ég drekk aldrei mikið því ég hlakka alltaf svo til að vakna á morgnana,“ segir hún og hlær. „Ég geri bara það sem mig langar til að gera og er með eina reglu; að það sé engin regla,“ segir Dísa sem flutti svo heim með soninn unga. Fyrst um sinn bjuggu þau í kjallaranum hjá ömmu og afa. „Ég hef eiginlega bara búið á Laufásveg- inum, í Danmörku og hér á Skeggjó.“ Dísa nær í ljósmynd af börnunum fjórum, tveimur drengjum og tveimur stúlkum, það yngsta nú átján ára. Blaðamaður hefur á orði hve falleg þessi börn séu. „Já, takk fyrir það, mér finnst þau mjög vel heppnuð, enda fjögur með fjórum. Ég valdi bara alltaf þá bestu, þú sérð nú bara hvað Bjarni er sætur!“ segir hún og hlær sínum dill- andi hlátri. Það var svo árið 1991 að Dísa var í reiðtúr einu sinni sem oftar, og reið sem leið lá frá Laxnesi. Á hlaðinu á Skeggjastöðum stóð þá vinur Dísu, Sigurbjörn Jónsson listmálari, en Pálmi í Hagkaup, fyrrverandi tengdafaðir hans, hafði átt Skeggjastaði en var þá nýlát- inn. „Hann segir mér að það eigi að fara að selja staðinn, þannig að daginn eftir keyrði ég niður í Hagkaup, fór upp á aðra hæð þar sem skrif- stofur voru, og keypti býlið af dánarbúi Hag- kaups. Það var í rúst; það þurfti að gera allt. Ég átti auðvitað engan pening enda nýkomin úr námi, en það sem hafði gerst var að ég hafði fengið happdrættisvinn- ing löngu áður,“ segir hún og útskýrir að þeg- ar hún var unglingur hafi verið að leggja hringveginn og hægt hafi verið að kaupa skuldabréf sem seld voru fólki til að fjár- magna verkið. Þeir sem þau keyptu fengu um leið happdrættismiða. Dísa fékk slíkt skuldabréf í fermingargjöf og vann í happdrættinu milljón krónur. „Ég hugsaði strax að ég myndi bjóða öllum vinkonunum til Spánar, en afi dró mig niður í banka og lét mig leggja peninginn inn á lok- aðan reikning. Þessi peningur hafði ávaxtast í yfir fimmtán ár og gat ég því keypt húsið, en á þessum tíma var ég líka í vinnu hjá Land- mælingum Íslands að laga tölvukerfið hjá þeim.“ Bauð Bowie til Íslands á hestbak Næstu árin fóru í að gera upp húsið smátt og smátt, með hjálp góðra vina og iðnaðarmanna. Dísa var þá farin að kenna tölvunarfræði, fyrst í Versló og síðar í Háskóla Reykjavíkur. Ingi- björg Sóllilja dóttir hennar fæddist 1996. Það var alltaf líf og fjör á Skeggjastöðum. „Húsið var eins og járnbrautarstöð og hér mættu allir og amma þeirra. Þarna mættu meðlimir hljómsveita eins og Travis, Simply Red, Blur og svo auðvitað vinir og vanda- menn,“ segir hún og segir húsið á þeim tíma hafa verið líkt gömlu hippakomúnunum. Áður hafði Dísa hitt David Bowie, en hún var ein af skipuleggjendum tónleikanna sem hann hélt hér árið 1996. Það er saga að segja frá því hvernig það kom til! „Ég hef verið Bowie-aðdáandi síðan ég var átta ára. Ég var ákveðin í því að ég myndi hitta þennan mann, enda búin að eyða miklum tíma í hann. Ég sagði við Löllu frænku, Ragnheiði Hanson, að ég vildi bjóða honum á hestbak. Við fórum upp í fyrirtæki pabba hennar og sendum fax til umboðsmanns Bowies. Og ekk- ert svar. Og við sendum annað fax, og ekkert svar. Ragnheiður sagði að þetta þýddi ekkert en ég gafst ekki upp. Svo eftir að hafa sent tíu föx kom svar, en þarna var komið fram í nóv- ember 1995. Í svarinu stóð: „Ég get haldið tón- leika 21. júní á næsta ári. Ég hef mikinn áhuga á Íslandi og ætla að vera þar í þrjá daga.“ Við Lalla bara stóðum og horfðum hvor á aðra. Við vorum sem sagt að fara að halda tónleika, og það stærstu tónleika á Íslandi, og höfðum auð- vitað aldrei gert neitt slíkt áður,“ segir Dísa og ’ Ef við berum ekki virðingu fyrir jörðinni eða dýr- unum, þá erum við ekkert hér. Við þurfum aðeins að endur- hugsa forgangsröðunina; hverju við einbeitum okkur að. Við þurfum að nostra við jörðina en ekki skemma hana. Dísa og maður hennar Bjarni Grímsson eru hér ásamt Brynju dóttur sinni fyrir þó nokkrum árum á hestbaki í Mongólíu. Árið 1996 bauð Dísa David Bowie til Íslands. Dísa og frænka hennar Ragnheiður Hanson skemmtu honum í þrjá daga.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.