Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.08.2021, Síða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.08.2021, Síða 29
að Fielder muni hjálpa því að snúa við blaðinu en í raun kemur hann að- eins með fáránlegar hugmyndir að nýjungum í rekstrinum. Í einum þættinum lætur Fielder búa til hljóðeinangraðan kassa fyrir hótelherbergi sem foreldrar geti lát- ið börnin sín fara ofan í á meðan þau stunda kynlíf í herberginu og í öðr- um fær hann antíkbúðareiganda til að hafa opið allan sólarhringinn í þeirri von að fólk á fylleríi muni staulast inn í búðina, brjóta hluti þar inni og þurfa að borga fyrir þá. En það sem gerir þættina skemmtilega er ekki endilega Field- er sjálfur heldur hvernig uppátæki hans hafa áhrif á venjulegt fólk. Með sinni óþægilegu nærveru og einstak- lega misheppnuðum tilraunum til að mynda tengsl milli sín og annarra nær hann að varpa ljósi á innræti fólks. Þættirnir sýna líklega betur en nokkrir aðrir raunveruleika- þættir hvaða mann fólkið í þeim hef- ur að geyma. Þættirnir eru því háðsdeila á það flóð raunveruleikaþátta sem við horfum á nú til dags. Slíkir þættir eru byggðir á því að áhorfendur fái að sjá raunverulegt fólk í raunveru- legum aðstæðum og þannig skyggn- ast inn í hugarheim þess. En raun- veruleikaþættir eru sjaldnast raunverulegir; eftirvinnsla og klipp- ing breyta oft og tíðum framkomu fólks og svo má spyrja hvort hægt sé að haga sér eðlilega með mynda- vélar allt um kring. Snúið á hvolf Að einhverju leyti snýr Fielder þessu á hvolf í sínum þáttum. Í stað þess að klippa á milli atriða lætur hann þau dragast á langinn og bíður eftir að fólk bjargi sér úr aðstæðun- um í stað þess að gera það sjálfur. Oft leiðir þetta til kostulegra uppá- koma eins og eitt sinn er bensín- stöðvareigandi sagðist drekka hland barnabarns síns því það væri hreint og færði sér lukku. Aðrir hafa hagað sér svo furðulega að áhorfendur eru ekki vissir hvort um leikara er að ræða eða ekki. Fielder hefur þó sagt að enginn leikari sé í þáttunum og sá eini af þeim sem koma fram og viti hvað sé í gangi sé hann sjálfur. Karakter Fielders í þáttunum er einkennileg- ur. Fielder hefur sagt að hann ýki ýmsa eiginleika sína til að mynda karakterinn. Úr verður vandræða- legur og hálfóþægilegur ein- staklingur með alltof mikið álit á sjálfum sér og sínum hæfileikum. En sá Fielder sem við sjáum er fyrst og fremst einmana og þráir að tengj- ast öðrum en á erfitt með það. Oftast er nokkuð ljóst að Fielder er að leika og gera grín en stöku sinnum fer hann augljóslega úr kar- akter, t.d. þegar bensístöðvareig- andinn sagðist drekka hlandið. Stundum eru áhorfendur þó ekki vissir í sinni sök eins og í sambandi Fielders og fylgdarkonunnar Maci. Eru allir í hlutverki? Eftir stefnumót þeirra Fielders og Maci verður hann svo hrifinn af henni að hann býður henni á fleiri stefnumót og borgar fyrir það háar fjárhæðir. Eitt leiðir af öðru og þau kyssast einhverjum óþægilegasta kossi sögunnar inni á hótelherbergi sem Fielder leigir fyrir þau. Er horft er á þennan lokaþátt er maður fyrst um sinn nokkuð viss um að Fielder sé einungis að búa til fyndið efni fyrir þáttinn. En þegar líður á spyr maður sig hvort hann sé raunverulega orðinn hrifinn af Maci og hvort Maci sé orðin hrifin af hon- um eða einungis að vinna vinnuna sína. Ég verð að viðurkenna að þær mínútur þáttarins sem varið er í samband þeirra voru nánast óbæri- legar áhorfs, svo óþægilegar voru þær. Senurnar eru ótrúlega langar, dregnar á langinn og væmnar. Allt þó líklega af ásettu ráði. Hvort Fielder sé að leika eða ekki er kannski ekki rétta spurningin því vel gæti verið að svarið væri ein- hvers staðar þar á milli. Og það varpar ljósi á líf okkar allra. Með til- komu samfélagsmiðla erum við sí- fellt meðvitaðri um að það sé verið að fylgjast með okkur. Við högum okkur öðruvísi eftir því hvaða fólki við erum með og sjaldnar og sjaldn- ar erum við raunverulega ein. Spurningin ætti því mögulega að vera: Hvenær erum við að leika eitt- hvert hlutverk og hvenær ekki? Erum við einhvern tímann okkar sanna sjálf? Er okkar sanna sjálf yfirhöfuð til? Nathan Fielder horfir djúpt í augu Maci í loka- þætti þátta sinna. Er hann að leika eða raun- verulega hrifinn af henni? Ljósmyndir/Comedy Central 8.8. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 Speglaframlenging Kerrulás Hitablásarar Reiðhjólafestingar á bíl Tjalds Flugnanet fyrir börn og fullorðna Rafmagnspumpa Farangursteygjur og strekkibönd ikföng Allt í ferðalagið frá 3.845 4.485 2.995 frá 4.999 1.995 995 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 2.995Rafmangskælibox frá 9.999 KVIKMYNDIR Leikstjórinn Quentin Tarantino segir að hann hafi ekki leyft Christoph Waltz að æfa atriði fyrir kvik- myndina Inglorious Basterds með öðrum leikurum myndarinnar. Tarantino var svo uppnuminn af Waltz þegar hann réð hann í hlutverk nasistans Hans Landa, sem Waltz fékk Óskarsverðlaun fyrir, að hann vildi ekki að hinir leikararnir fengju að sjá hann fyrr en komið væri að því að taka upp atriði myndarinnar. Seg- ir Tarantino við IndieWire að hann hafi beðið Waltz að tóna karakterinn niður þegar rennt var í gegnum handritið. Fékk ekki að æfa með öðrum Waltz var í essinu sínu sem Landa. AFP BÓKSALA Í JÚLÍ Tekið saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda 1 Palli Playstation Gunnar Helgason 2 Litla bókabúðin við vatnið Jenny Colgan 3 Bréfið Kathryn Hughes 4 Leyndarmál Sophie Kinsella 5 Fimmtudags- morðklúbburinn Richard Osman 6 Fjölskylda fyrir byrjendur Sarah Morgan 7 Slétt og brugðið Árelía Eydís Guðmundsdóttir 8 Erfinginn Camilla Sten 9 Undir 1.000 kr. fyrir tvo Áslaug Björg Harðardóttir 10 Íslandsbók barnanna Margrét Tryggvadóttir 11 Litlir lærdómshestar – stafir Elisabeth Golding 12 171 Ísland Páll Ásgeir Ásgeirsson 13 Dauðahliðið Lee Child 14 Sjáandinn Stephen King 15 Risasyrpa – rokkstjörnur Walt Disney 16 Leysingar Stina Jackson 17 Sagnaland Halldór Guðmundsson 18 Faðir Brown G.K. Chesterton 19 Morðið við Huldukletta Stella Blómkvist 20 Órigamí Ýmsir höfundar Allar bækur Það sem heillar mig einna mest við lestur er tími, mig langar til þess að finna fyrir tímaskyni bókar og ég hef fundið að ef ég dett inn í ákveðinn takt þá verður lesningin sönn ánægja og ef ekki þá vil ég helst ekki klára hana. Hlutfallslega hef ég ekki lesið margar bækur í gegnum tíðina, jú eina-tvær hér og þar þegar skólinn lét mig, en það var í rauninni ekki fyrr en á síðasta árinu mínu í framhalds- skóla þegar ég var látinn lesa Sjálf- stætt fólk (1933-35) sem ég ákvað að ég þyrfti virkilega að gera lest- ur hluta af mínu daglega lífi. Lax- ness gamli með bókinni um Bjart í Sumarhúsum fannst mér ná að fanga tíma á ótrúlegasta hátt, hreinlega lét mig lifa með þessu fólki yfir þessa áratugi. Að ná slíkri tengingu við bók er einstök tilfinn- ing. Í gegnum heim kvikmyndanna kynntist ég höfundi sem mér finnst fara líka afskaplega vel með tíma, það er hinn ungverski László Kraszna- horkai en bækur hans Sátántango (1985) og The Melancholy of Res- istance (1989) hreyfast í gegnum tíma ólíkt öllum öðrum sem ég hef lesið, byggðar í kringum óendan- lega langar setn- ingar sem maður einfaldlega getur ekki slitið sig frá. Sögusviðin veðurbarin þorp og borgir á ungversku sléttunni sem eiga við mikla krísu að stríða. Annar höfundur sem hefur fangað tímaskyn mitt á undanförnu ári er Sjón. Mér fannst svo spennandi að lesa Mánastein (2013), ritstíll og taktur bókarinnar svo flottur og gríp- andi að ég kláraði hana á tveimur dögum og fór strax að kaupa Skugga-Baldur (2003). En aðeins ein bók hefur náð að fanga allt það sem ég hef elskað að uppgötva við lestur síðasta árið og náð að koma því fyrir í einni bók, en það er Laxness aftur með bókina Kristnihald undir jökli (1989). Þar fannst mér tímaskynið, stað- irnir, persónurnar og sagan alveg ein- staklega grípandi og falleg, eins og bókin væri samin sérstaklega fyrir mig. Um þessar mundir er ég að glugga í litla bók þar sem tími er sérstaklega tekinn fyrir en það er Um tímann og vatnið (2019) eftir Andra Snæ Magna- son. Ég á oft erfitt með að halda mér lesandi þótt ég elski að lesa, en ég er þakklátur fyrir þær bækur sem ég gef mér tíma í, svo lengi sem þær eyða ekki tímanum mínum með lélegri nýtingu á tímanum sínum. BRYNJAR LEÓ ER AÐ LESA Bækur og tími Brynjar Leó Hreiðarsson er kvikmynda- gerðarmaður, kassastarfs- maður og há- skólanemi.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.