Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.08.2021, Page 32
SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 2021
AVANA model 2570
L 224 cm Leður ct. 15 Verð 509.000,-
L 244 cm Leður ct. 15 Verð 529.000,-
LEUCA model 3186
L 167 cm Leður ct. 15 Verð 369.000,-
L 207 cm Leður ct. 15 Verð 419.000,-
STAN model 3035
L 170 cm Leður ct. 15 Verð 399.000,-
L 206 cm Leður ct. 15 Verð 449.000,-
ESTRO model 3042
L 164cm Leður ct. 15 Verð 379.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 419.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
LEVANTE model 3187
L 204 cm Leður ct. 15 Verð 409.000,-
L 224 cm Leður ct. 15 Verð 429.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur
(Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15
Íþróttaáhugamenn þurfa ekki að örvænta þótt Ólympíuleikarnir
taki enda í dag, sunnudag. Ekki lengi að minnsta kosti því enska
úrvalsdeildin hefur göngu sína á Símanum Sport á föstudag með
leik Arsenal og nýliða Brentford sem leika í fyrsta sinn í úrvals-
deildinni og í efstu deild síðan rétt eftir seinna stríð. Sjö leikir
verða á dagskrá á laugardaginn, þá mætast í fyrsta leik dagsins kl.
11:30 Manchester United og Leeds og í þeim síðasta Norwich og
Liverpool kl. 16:30. Stórleikur helgarinnar verður svo á milli Tott-
enham Hotspur og Manchester City á sunnudaginn kemur kl. 15:30.
Búast má við skemmtilegum leik en stjarna Spurs, Harry Kane,
hefur verið sterklega orðaður við City undanfarið og skrópaði á æf-
ingum hjá Spurs í síðustu viku.
Allir leikirnir verða sýndir á Símanum Sport og myndskeið af
mörkunum fara inn á mbl.is eins og venjan hefur verið síðustu tvö
tímabil.
Brentford mætir aftur
í efstu deild eftir meira
en 70 ára fjarveru.
AFP
Hvað gerir Kane?
Harry Kane er ekki sá vinsælasti meðal
stuðningsmanna Tottenham þessa dagana.
Enska úrvalsdeildin hefst aftur á föstudag með leik Arsenal og Brentford.
„Með „ráðum“ skal land
byggja,“ sagði í fyrirsögn í Morg-
unblaðinu 2. ágúst 1951. Var þar
lýst hinni miklu forsjárhyggju er
ríkti í stjórnkerfinu á þeim tíma
og er reyndar ekki með öllu horf-
in enn þótt margt hafi breyst.
Sagði í greininni af bónda í
Eyjafirði, sem fengið hafði leyfi til
að reisa sér votheysturn, en var
meinað að fjárfesta í heyhleðslu-
vél, sem nota mátti til að hirða
jöfnum höndum þurrhey og ný-
slegið gras í vothey.
Hafði bóndinn átt við
Fjárhagsráð eða nánar tiltekið
innflutnings- og gjaldeyrisdeild
Fjárhagsráðs án árangurs. Í
greininni kemur fram að Fjár-
hagsráði til stuðnings um allt er
varðar búvélakaup og bún-
aðartækni séu tvær nefndir,
vjelanefnd ríkisins og verkfæra-
nefnd ríkisins. Þá er nefndur sér-
stakur verkfæraráðunautur á
vegum Búnaðarfélags Íslands.
Síðan er tínd til úthlutunarnefnd
jeppabifreiða og heimilisdrátt-
arvjela sem lögum samkvæmt
skal í október ár hvert „gera
áætlun um það, hvað er nauð-
synlegt að flytja inn á næsta ári af
varahlutum til jeppabifreiða og
dráttarvjela, sem til eru í land-
inu, og einnig innflutning á nyt-
samlegustu verkfærum, sem afl-
vjelarnar geta dregið við vinnu
og flutninga, svo að þær komi að
sem bestum notum“.
Það var og.
GAMLA FRÉTTIN
Fargan ráða
og nefnda
Heyskapur stundaður án aðstoðar eða tilkomu heyhleðsluvélar.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Uma Thurman
leikkona
Móeiður Júníusdóttir
söngkona og guðfræðingur
Scarlett Johansson
leikkona