Morgunblaðið - 09.08.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. ÁGÚST 2021
Snertifletir
sem draga
úr smitum
Kynntu þér nanoSeptic á hreint.is
www.hreint.is s: 589 5000 hreint@hreint.is
Óhætt er að segja að það stefni í
mjög óvenjulegar kosningar í
næsta mánuði og er þá ekki aðeins
átt við að kosið er að hausti. Nú
þegar hefur komið fram að tveir
stjórnmálaflokkar, Sjálfstæð-
isflokkur og VG, hyggjast ekki
halda landsfundi
sína og fundir
annarra verða
án efa með
minnsta móti.
Þetta má skrifa
á veiruna, eða
öllu heldur að-
gerðir gegn
veirunni, og setur óneitanlega sér-
kennilegan svip á kosningarnar. Sú
staðreynd að flokksmenn geti ekki
hist, rætt mál og mótað stefnu er til
þess fallin að draga úr áhuga al-
mennings á stjórnmálum og um leið
draga úr þörf þeirra sem eru í
framlínu stjórnmálanna til að
hlusta á almenna flokksmenn. Þeir
hafa svo sem ekki alltaf gert mikið
með niðurstöður landsfunda sinna,
en þeim er þó hollt að þurfa að
standa skil á verkum sínum gagn-
vart almennum flokksmönnum.
- - -
Hætt er við að þessi skortur á
samtali fyrir kosningar ýti
enn frekar undir það að kosning-
arnar snúist um kórónuveiruna,
eins og sumir halda fram að þær
eigi að gera.
- - -
Sjálfsagt er óhjákvæmilegt að
kosningarnar snúist að ein-
hverju leyti um veiruna, en æski-
legt væri að það yrði í sem minnst-
um mæli. Veiran er á útleið, þjóðin
er þegar að mestu ónæm fyrir al-
varlegustu áhrifum hennar, en
kosningarnar í næsta mánuði snú-
ast um stefnuna til næstu fjögurra
ára.
- - -
Við skulum rétt vona að veiran
verði ekki miðpunktur allrar
umræðu allt næsta kjörtímabil.
Þess vegna er mikilvægt að kosn-
ingarnar nú snúist um annað og
meira en þann ófögnuð.
Skrýtnar kosningar
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Stefán Karel Torfason er sterkasti
maður Íslands árið 2021. Stefán
sigraði á lokametrunum í keppn-
inni Sterkasti maður Íslands sem
fór fram um helgina. Keppnin var
gríðarlega spennandi og réðst ekki
fyrr en í lokakeppnisgreininni hver
stæði uppi sem sigurvegari. Mótið
fór fram á Selfossi á laugardag og
lokaviðureignin fór fram í Reiðhöll-
inni í Víðidal.
Þar öttu kappi Stefán Karel og
Eyþór Melsteð Ingólfsson en Stefán
gat gengið lengra með Húsafells-
helluna og vann þar með mótið. Ey-
þór lenti í öðru sæti en Kristján
Sindri Níelsson endaði í því þriðja.
Stefán vann sér inn keppnisrétt á
World’s Ultimate Strongman-
mótinu, sem fer fram í Jacksonville
í Flórídaríki í Bandaríkjunum 17.
september næstkomandi.
Stefán Karel sterk-
asti maður Íslands
Morgunblaðið/Sigurður Unnar Ragnarsson
Sterkastur Stefán Karel Torfason vann keppnina í lokagreininni.
Covid-19-smit hafa nú greinst á þó
nokkrum hjúkrunarheimilum, meðal
annars á Grundarheimilunum, á
Dyngju á Egilsstöðum og á Eir. Þór-
dís Hulda Tómasdóttir, fram-
kvæmdastjóri hjúkrunarsviðs á Eir,
segir að heimilsmenn og aðstand-
endur taki smiti hjá starfsmanni,
sem greindist í liðinni viku, með stó-
ískri ró. „Þegar við hringdum í alla
og upplýstum um að það væri komið
upp smit þá var það eiginlega það
sem fólk bjóst við. Við höfum verið
frekar heppin fram að þessu,“ segir
Þórdís, en heimsóknarbann tók gildi
á deildinni sem starfsmaðurinn
starfar á til miðvikudags. Hún segist
ekki finna fyrir mikilli hræðslu við
smit hjá heimilismönnum. „Fólk
leggur traust á bólusetninguna og
komandi örvunarskammt. Almennt
eru íbúar og aðstandendur mjög
þakklátir fyrir að örvunarskammt-
urinn sé handan við hornið.“ Þórdís
reiknar með að örvunarskammt-
arnir verði í boði mjög fljótlega og
verði háttað með svipuðu sniði og í
vetur þegar heimilismenn voru bólu-
settir. „Hjúkrunarheimilin munu að-
stoða heilsugæslustöðvarnar við að
setja í sprauturnar og síðan spraut-
ar hvert hjúkrunarheimili fyrir sig.“
Takmarkaðar heimsóknir
Á Eir er heimsóknartími á milli kl.
15 og 18 á hverjum degi og biðlað er
til aðstandanda að einungis tveir
komi í einu sem eru ekki yngri en
þrítugt á meðan faraldurinn er í svo
örum vexti. „Það hefur gengið bara
mjög vel. Mér finnst fólk hafa sýnt
þessu mikinn skilning, bæði heim-
sóknarreglum og eins þessum lok-
unum sem gilda núna,“ segir Þórdís.
Fólk sé vel upplýst. urdur@mbl.is
Fólk leggur traust
á bólusetninguna
- Smit hafa greinst
á þó nokkrum hjúkr-
unarheimilum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bólusetning Heimilismenn fá
örvunarskammt bráðlega.