Morgunblaðið - 09.08.2021, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. ÁGÚST 2021
Dregið hefur úr trausti til lögreglu
hér á landi, þrátt fyrir að rúmlega
átta af hverjum tíu beri nú traust til
lögreglu og
hennar starfa.
Lækkunin skýr-
ist fyrst og
fremst af minnk-
andi trausti með-
al fólks í yngsta
aldurshópnum;
18 til 25 ára.
Þetta er á meðal
þess sem fram
kemur í nýrri
rannsókn á við-
horfum landsmanna til þjónustu og
starfa lögreglu sem framkvæmd
var af Félagsvísindastofnun á vor-
mánuðum. Rannsóknin er nýtt til
þess að bæta starf lögreglu ef þörf
er á.
Áhrif af samfélagsbyltingum
Margrét Valdimarsdóttir, dósent
í lögreglufræði við Háskólann á
Akureyri og doktor í afbrotafræði,
vann rannsóknina. Ein af kenn-
ingum hennar er að ungt fólk sé til-
búnara til að taka meiri afstöðu,
eins og til kynþáttamismunar.
Traust yngsta aldurhópsins mælist
nú um 60% en þróunin er ekkert
einsdæmi. „Mér finnst líklegt að
það sé í fyrsta lagi einhvers konar
smitun frá umfjöllun um lögreglu í
öðrum löndum, eins og til dæmis í
Bandaríkjunum eftir George Floyd
og Black Lives Matter. Að það hafi
áhrif á það hvernig ungt fólk horfir
á lögregluna, þrátt fyrir að lög-
reglan á Íslandi hafi ekkert með
það að gera,“ segir Margrét, sem
vísar einnig til máls sem kom upp
síðasta haust þegar rasískt merki á
fatnaði lögregluþjóns var til skoð-
unar.
Traust kvenna minnkað
Þá telur Margrét einnig að nýj-
asta MeToo-bylgjan á Íslandi geti
haft áhrif á viðhorf ungra kvenna
til lögreglunnar. „Það sem er að
koma fram núna er að traust
kvenna til lögreglu hefur minnkað
meira en traust karla, og það getur
vel tengst MeToo. Konur hafa alltaf
treyst lögreglunni meira en karlar,
og það er alveg í samræmi við er-
lendar rannsóknir,“ segir Margrét.
Ungt fólk
taki meiri
afstöðu
- Traust til lögreglu
minnkað hér á landi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Lögregla Margrét nefnir kenningar
um ástæður þverrandi trausts.
Margrét
Valdimarsdóttir
Niðurrif á legsteinahúsi Páls Guð-
mundssonar myndhöggvara á Húsa-
felli hófst á föstudag og verður því að
fullu lokið fyrir mánaðamót. Páll
hafði reist húsið á grundvelli deili-
skipulags sem var búið að samþykkja
af byggingafulltrúa Borgarbyggðar
en auglýst undir röngu nafni og
röngu landnúmeri.
Sæmundur Ásgeirsson, nágranni
Páls, var ósáttur við þetta deiliskipu-
lag, sem gerði ráð fyrir nokkrum
byggingum við sameiginlegt bíla-
stæði inni á hans landi. Sæmundur
kærði byggingarleyfið en Páll byggði
húsið á grundvelli leyfisins, þrátt fyr-
ir fyrirvara um að það yrði á hans
ábyrgð í ljósi þess að leyfið væri í
kæruferli, að því er kom fram í niður-
stöðu Héraðsdóms Vesturlands.
Páli var gert að fjarlægja húsið á
eigin kostnað. Í færslu Páls á face-
booksíðu sinni í gær segir hann nið-
urstöðuna hafa valdið sér mikilli sorg
og vanlíðan. Sæmundur hafi gefið sér
von um að málið yrði leyst með sam-
komulagi en kröfur hans hafi verið
óaðgengilegar með öllu.
Sæmundur tjáir Morgunblaðinu að
ekki hafi verið um kröfur að ræða
heldur samningsdrög þar sem fæstar
tillögur snúi að Páli en stærstur hluti
þeirra að Borgarbyggð og varði aðal-
lega skipulagsmál en einnig bóta-
kröfu. Það sem snerti Pál var þrennt:
bílastæði á landi Sæmundar yrði ekki
lengur sameiginlegt, hámarksfjöldi
yrði settur á daglegar heimsóknir í
legsteinaskálann og Sæmundur yrði
ekki gerður ábyrgur fyrir legsteinum
sem hann hafði fengið að láni.
thorab@mbl.is
Þrjár „óaðgengilegar“ kröfur
Legsteinahús Húsið sem um ræðir hefur hýst legsteinasafnið á Húsafelli.
- Niðurrif hafið á legsteinahúsi Páls á Húsafelli
KOMDUÚT
AÐHJÓLA
EITTMESTA ÚRVAL LANDSINS AF REIÐ- OG RAFHJÓLUM
Skoðaðu úrvalið á orninn.is
ME I R I H R E Y F I NG - ME I R I ÁNÆG JA
Frábært fjölnota hjól
Álstell, 16 gírar
Vökvabremsur
Radioactive Red
99.990 kr.
MARLIN6
Frábært fjölnota hjól
Álstell - 24 gírar
Vökva diskabremsur
Læsanlegur dempari
Gunmetal
109.990 kr.
DS2
Frábært fjölnota hjól
Álstell - 24 gírar
Vökva diskabremsur
Matte Dnister Black
104.990 kr.
FX2Disc