Morgunblaðið - 09.08.2021, Qupperneq 12
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. ÁGÚST 2021
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur
BAKSVIÐ
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Jens Weidmann, seðlabankastjóri
Þýskalands, segir að Seðlabanki
Evrópu megi ekki hika við að stíga
á bremsuna í peningamálum ef
draga þarf úr verðbólguþrýstingi. Í
viðtali sem Welt am Sonntag birti
um helgina sagði Weidmann að
SBE yrði að herða peningastefn-
una jafnvel þótt það þýddi hærri
lántökukostnað fyrir evrulöndin.
„Það er ekki hlutverk SBE að
leysa fjármögnunarvanda aðildar-
ríkjanna,“ sagði Weidmann en auk
þess að stýra þýska seðlabankan-
um situr hann í stjórn SBE. Vill
hann að Seðlabanki Evrópu bregð-
ist við í samræmi við markmið
stofnunarinnar ef verðbólguhorfur
halda áfram að
versna. „Við
þurfum að vera
alveg skýr með
það að [SBE]
mun herða pen-
ingastefnuna ef
þróun verðlags
kallar á það […]
og við getum
ekki látið þá
ákvörðun litast af fjármögnunar-
kostnaði aðildarríkjanna.“
Að sögn Reuters hafa mörg að-
ildarríki evrusvæðisins stóraukið
skuldasöfnun sína í kórónuveiru-
faraldrinum og myndu standa
frammi fyrir mun hærri vaxta-
kostnaði ef seðlabankinn ákvæði að
herða hjá sér peningastefnuna.
Stjórn SBE ákvað í júlí að viðhalda
lágum stýrivöxtum til að styðja við
efnahagsbata á evrusæðinu, m.a. í
ljósi mögulegra dempandi áhrifa
delta-afbrigðis kórónuveirunnar
sem núna breiðist hratt um heim-
inn. Seðlabankinn gæti þó þurft að
breyta um stefnu ef verðbólga fer
úr böndunum en í Evrópu líkt og
annars staðar í heiminum hefur
mátt greina merki um nokkuð
skarpa verðbólgu samhliða þeim
efnahagslegu umskiptum sem urðu
þegar erfiðasta skeið kórónuveiru-
faraldursins virtist að baki.
Myndu fyrst hætta
skuldabréfakaupum
Verðbólga á evrusvæðinu mæld-
ist 1,9% í júní og 2,2% í júlí og
munaði þar mest um hækkandi
eldsneytisverð. Ef eldsneytis- og
matvælaliðirnir eru undanskildir
var verðbólga 0,9% í júní og 0,7% í
júlí.
Weidmann sagði Welt am Sonn-
tag að hann gæti ekki útilokað að
verðbólga héldi áfram að hækka.
„Alltént mun ég leggja ríka
áherslu á að verðbólgustigið verði
ekki of hátt, rétt eins og þarf að
gæta þess að verðbólga verði ekki
of lítil.“
Seðlabanki Evrópu hefur sett
sér það markmið að halda verð-
bólgu í kringum 2% og segir
Weidmann að ef hert verður á
peningastefnunni muni SBE fyrst
af öllu hætta skuldabréfakaupum
undir merkjum PEPP-verkefnis-
ins svokallaða sem ætlað var sem
neyðarúrræði í kórónuveirufar-
aldrinum, og í framhaldinu
minnka umsvif APP-skuldabréfa-
kaupaverkefnisins sem bankinn
kynnti fyrst til sögunnar árið
2014. Þá fyrst kæmi til greina að
hækka stýrivexti, að mati Weid-
manns.
Herði peningastefnuna
óháð lánabyrði evruríkja
- Verðbólga mælist yfir markmiðum Seðlabanka Evrópu - Seðlabankastjóri
Þýskalands segir lánaþörf evruríkjanna ekki mega lita ákvarðanir SBE
Jens Weidmann
landið er laust við þá pólitísku
spennu sem t.d. einkennir Kína.
Financial Times greinir frá að
vegna smitvarna hafi margar
verksmiðjur í Víetnam þurft að
senda starfsfólk sitt heim og er
hætta á að það muni hafa veruleg
áhrif á aðfangakeðjur alþjóða-
hagkerfisins. Þannig hefur taív-
anska félagið Pou Chen og suð-
urkóreska félagið Changshin, sem
framleiða strigaskó fyrir Adidas
og Nike, bæði lokað risaverk-
smiðjum sínum í Víetnam. Verk-
smiðja Pou Chen í Ho Chi Minh er
sú stærsta í landinu og var slökkt
á skósaumavélunum þar hinn 14.
júlí en aðrar verksmiðjur fyrir-
tækisins í Víetnam hafa þurft að
draga verulega úr framleiðslu-
getu sinni.
Vandinn er ekki bundinn við
textíl- og fataiðnaðinn og hefur
t.d. raftækjaframleiðandinn Sam-
sung þurft að minnka afköst verk-
smiðja sinna í Ho Chi Minh um
nærri helming. Varar markaðs-
rannsóknafélagið Eurasia Group
við því að versnandi kórónuveiru-
faraldur í Víetnam kunni að hafa
neikvæð áhrif á framboð á neyt-
endavarningi á komandi jóla-
vertíð. ai@mbl.is
Kórónuverusmitum hefur fjölgað
svo mikið í Víetnam að und-
anförnu að verksmiðjur hafa
neyðst til að hætta starfsemi
tímabundið. Þar til í sumar hafði
Víetnam gengið óvenju vel að
halda smitum í lágmarki en nú
greinast þar á bilinu 7.000 til
8.000 smit daglega. Er ástandið
verst í Ho Chi Minh, stærstu borg
Víetnams, en þar tóku strangar
nýjar smitvarnareglur gildi
snemma í júlí, m.a. með ýmsum
kvöðum um aðbúnað verksmiðju-
starfsfólks.
Í seinni tíð hefur iðnaður af
ölllu mögulegu tagi vaxið hratt í
Víetnam, einkum vegna þess að
athafnamenn njóta þar góðs af
lægri launakostnaði en víða ann-
ars staðar í Asíu auk þess sem
Bylgja í Víetnam
raskar framleiðslu
- Verksmiðjur lokaðar vegna smit-
varna og aðfangakeðjur í uppnámi
AFP
Áfall Verslað á markaði í Hanoi. Víetnam hefur misst tökin á faraldrinum.
9. ágúst 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 125.17
Sterlingspund 174.19
Kanadadalur 100.1
Dönsk króna 19.874
Norsk króna 14.18
Sænsk króna 14.539
Svissn. franki 137.82
Japanskt jen 1.14
SDR 178.3
Evra 147.8
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 179.7833
« Þökk sé hærra
heimsmarkaðs-
verði á olíu og bata
í eftirspurn reynd-
ist hagnaður sádi-
arabíska ríkis-
olíufélagsins Saudi
Aramco langt um-
fram spár á öðrum
ársfjórðungi. Nam
hagnaðurinn jafn-
virði 25,46 milljarða dala á fjórð-
ungnum til og með 30. júní, sem er
nærri því fjórfalt betri árangur en á
sama tímabili í fyrra. Reuters greinir frá
að markaðsgreinendur reiknuðu að
jafnaði með 23,2 milljarða dala hagn-
aði.
Svipaða sögu er að segja af öðrum
risum í olíugeira og upplýsti t.d. Exxon
Mobil í síðasta mánuði að félagið hefði
skilað 4,69 milljarða dala hagnaði á
öðrum ársfjórðungi sem eru mikil um-
skipti frá því fyrir ári þegar félagið var
rekið með 1,08 milljarða dala tapi. Shell
skilaði 5,53 milljarða dala hagnaði á
öðrum ársfjórðungi, sem er langtum
betri árangur en á sama tímabili í fyrra
þegar 638 milljóna dala afgangur var af
starfseminni.
Í samræmi við áætlanir sínar hyggst
Saudi Aramco greiða hluthöfum 18,8
milljarða dala arð en eins og lesendur
muna voru 1,5% hlutafjár ríkis-
olíufélagsins seld almenningi og fjár-
festum í árslok 2019. FT greinir frá að
stjórnendur Aramco hyggist nýta góðan
tekjuafgang til að greiða upp skuldir og
fjárfesta í meiri framleiðslugetu. Er
þetta ólíkt stefnu annarra olíufyrirtækja
sem eru mörg að búa í haginn fyrir
minnkandi olíuframleiðslu vegna vax-
andi þrýstings frá stjórnvöldum og fjár-
festum um að minnka útblástur.
Amin Nasser, forstjóri Saudi Aramco,
sagði hluthöfum á sunnudag að félagið
sæi stór tækifæri í þeirri vanfjárfest-
ingu í framleiðslugetu sem einkenndi
markaðinn í dag. Upplýsti Nasser jafn-
framt að innan við tvö ár vanti í að ljúka
skipulagningar- og hönnunarvinnu sem
ætti að leiða til þess að framleiðslugeta
Aramco geti farið úr 12 milljónum fata á
dag upp í 13 milljónir fata. ai@mbl.is
Uppgangur hjá
Saudi Aramco
Amin Nasser
STUTT