Morgunblaðið - 09.08.2021, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 09.08.2021, Qupperneq 27
var tveimur sek- úndum frá heims- meti Hichams El Guerroujs. _ Frakkar eru ól- ympíumeistarar karla í handknatt- leik eftir 25:23- sigur í æsispenn- andi úrslitaleik gegn Danmörku á leik- unum í Tókýó. Tókst þeim þar með að hefna fyrir ósigurinn gegn Dönum í úrslitunum um gullið á Ólympíu- leikunum í Ríó árið 2016. Nedim Remili var markahæstur Frakka með fimm mörk en Dika Mem og Hugo Descat skoruðu báðir þrjú. _ Brasilíska karlalandsliðið í knatt- spyrnu er ólympíumeistari eftir 2:1- sigur á Spáni í framlengdum úrslita- leik í Tókýó. Brasilíumenn hafa því hreppt gullið tvisvar í röð en þeir urðu einnig meistarar á heimavelli í Ríó árið 2016. Matheus Cunha kom Brasilíu í forystu rétt fyrir hálfleik. Þrumufleyg- ur Mikels Oyarzabals jafnaði metin eftir klukkutíma leik. Það þurfti því að grípa til framlengingar þar sem vara- maðurinn Malcom skoraði sigur- markið á 108. mínútu. _ Knattspyrnumaðurinn Romelu Lu- kaku er nálægt því að snúa aftur til Englands eftir að hafa hjálpað Inter að verða ítalskur meistari í sumar. Enska stórliðið Chelsea og Inter eru nálægt samkomulagi um framherjann en samkvæmt Sky Sports mun Chelsea greiða 97,5 millj- ónir punda fyrir leikmanninn. _ Norska kvenna- landsliðið í hand- knattleik, sem Þórir Hergeirsson þjálfar, vann sann- kallaðan stórsigur í gegn því sænska í leiknum um bronsverðlaunin á Ólympíuleikunum í Tókýó. Lokatölur urðu 36:19 og yf- irburðir norska liðsins gífurlegir. Nor- egur vann þar með sín önnur brons- verðlaun í röð á Ólympíuleikum eftir að hafa einnig tekið bronsið á leik- unum í Ríó árið 2016. Liðið hefur því komist á verðlaunapall á öllum þrenn- um leikunum undir stjórn Þóris, en hann gerði liðið að ólympíumeisturum í Lundúnum árið 2012. Frakkland varð ólympíumeistari eftir sigur á Rúss- landi, 30:25. _ Íslenska stúlknalandsliðið í hand- knattleik skipað leikmönnum 17 ára og yngri vann gífurlega öruggan 28:19-sigur gegn því tyrkneska í B- deild Evrópumeistaramótsins í Lithá- en í gærmorgun. Íslenska liðið vann 35:23-sigur á Lettlandi í fyrsta leik og er með fullt hús stiga. _ Knattspyrnumaðurinn Aron Sig- urðarson er að skipta frá Royal Union Saint Gilloise í Belgíu yfir til Horsens í Danmörku. Aron er 27 ára gamall og hefur leikið sem atvinnumaður frá árinu 2016. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. ÁGÚST 2021 Ný nöfn verða rituð á bikarana sem Íslandsmeistararnir í golfi fá til varðveislu í eitt ár á milli Íslands- móta. Hulda Clara Gestsdóttir og Aron Snær Júlíusson sigruðu á Ís- landsmótinu sem lauk á Jaðarsvelli á Akureyri síðdegis í gær og var því um tvöfaldan sigur að ræða hjá Golf- klúbbi Kópavogs og Garðabæjar. Er það í fyrsta skipti. Hulda Clara er einnig fyrsta kon- an úr GKG sem sigrar á Íslands- mótinu í golfi. Hulda er aðeins 19 ára gömul og tók forystuna strax á fyrsta keppnisdegi af fjórum. Hún haggaðist varla þótt hún væri með forystuna svo gott sem allt mótið og vann með sjö högga mun. Ragnhild- ur Kristinsdóttir úr GR varð í öðru sæti annað árið í röð. Hulda Clara lék á 286 höggum og var samtals á tveimur höggum yfir pari. Hún var lengst af undir pari en gaf aðeins eft- ir á lokasprettinum og fékk tvöfald- an skolla á lokaholunni. Aron Snær var í baráttunni um sigurinn á Íslandsmótinu í fyrra en þá reyndist Bjarki Pétursson sterk- ari. Nú kláraði Aron dæmið og gerði það á sannfærandi hátt. Aron notaði 278 högg og lauk keppni á samtals sex höggum undir pari. Jóhannes Guðmundsson úr Golfklúbbi Reykja- víkur varð annar á tveimur höggum undir pari samtals. kris@mbl.is Tvöfaldur sigur hjá GKG - Ný nöfn rituð á bikarana eftir Íslandsmótið í golfi á Jaðarsvelli - Hulda Clara Íslandsmeistari aðeins 19 ára gömul - Aron Snær lék á sex höggum undir pari Ljósmynd/golf.is Ung Hulda sýndi stáltaugar þrátt fyrir ungan aldur. Ljósmynd/golf.is Sannfærandi Nú var komið að Aroni að vinna mótið. Belgía Beerschot – Royal Union St. Gilloise .... 0:3 - Aron Sigurðarson var ekki í leikmanna- hópi St. Gilloise. Rússland Dinamo Moskva – Moskva ...................... 2:1 - Hörður Björgvin Magnússon hjá CSKA er frá keppni vegna meiðsla. Bandaríkin OL Reign – Houston Dash ...................... 5:1 - Andrea Rán Hauksdóttir var ónotaður varamaður hjá Houston. Toronto – New York City....................... 2:2 - Guðmundur Þórarinsson var ónotaður varamaður hjá New York. Danmörk AaB – AGF................................................ 2:0 - Jón Dagur Þorsteinsson lék fyrstu 67 mínúturnar. Köbenhavn – Bröndby ............................ 4:2 - Hákon Arnar Haraldsson var ekki í leik- mannahópi Köbenhavn. Randers – SönderjyskE .......................... 1:0 - Kristófer Ingi Kristinsson kom inn á hjá Randers á 84. mínútu. B-deild: Lyngby – Esbjerg .................................... 5:0 - Sævar Atli Magnússon kom inn á hjá Lyngby á 68. mín., en Frederik Schram var varamarkvörður. Freyr Alexandersson þjálfar liðið. - Ísak Óli Ólafsson og Andri Rúnar Bjarnason léku ekki með Esbjerg. Svíþjóð Gautaborg – Hammarby......................... 0:0 - Kolbeinn Sigþórsson lék fyrstu 80 mín- úturnar með Gautaborg. - Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn með Hammarby. Häcken – Östersund ................................ 5:0 - Valgeir Lunddal Friðriksson kom inn á hjá Häcken á 80. mínútu og Oskar Tor Sverrisson eftir 71 mínútu. Elfsborg – Degerfors .............................. 3:0 - Hákon Rafn Valdimarsson var ekki í leikmannahópi Elfsborg. B-deild: Brage – Jönköping .................................. 3:2 - Bjarni Mark Antonsson var ekki í leik- mannahópi Brage. B-deild: Kalmar – Alingsås ................................... 1:1 - Andrea Thorisson lék síðari hálfleikinn með Kalmar. Noregur Viking – Kristiansund............................. 3:2 - Samúel Kári Friðjónsson kom inn á hjá Viking á 65. mínútu. - Brynjólfur Willumsson var ekki í leik- mannahópi Kristiansund. Molde – Haugesund................................. 5:4 - Björn Bergmann Sigurðarson var ekki í leikmannahópi Molde. Sandefjord – Lilleström.......................... 1:1 - Viðar Ari Jónsson lék fyrstu 83 mínút- urnar og skoraði fyrir Sandefjord. Möndalen – Tromsö................................. 2:3 - Adam Örn Arnarson var ekki í leik- mannahópi Tromsö. Vålerenga – Kolbotn ............................... 3:0 - Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik- inn með Vålerenga en Amanda Andradóttir var ónotaður varamaður. >;(//24)3;( KNATTSPYRNA Úrvalsdeild karla, Pepsí Max-deildin: Samsungvöllur: Stjarnan – Breiðablik19:15 Úrvalsdeild kvenna, Pepsí Max-deildin: JÁVERK-völlur: Selfoss – Þróttur R. 19:15 2. deild kvenna: Extra völlurinn: Fjölnir – Fram ...............19 Hertz völlurinn: ÍR – KH .....................19:15 Í KVÖLD! Ólympíuleikarnir Konur, úrslitaleikur: Japan – Bandaríkin .............................. 75:90 Leikur um bronsverðlaun: Serbía – Frakkland .............................. 76:91 Karlar, úrslitaleikur: Bandaríkin – Frakkland ...................... 87:82 Leikur um bronsverðlaun: Ástralía – Slóvenía.............................. 107:93 4"5'*2)0-# Ólympíuleikarnir Konur, úrslitaleikur: Frakkland – Rússland ......................... 30:25 Leikur um bronsverðlaun: Noregur – Svíþjóð ................................ 36:19 - Þórir Hergeirsson þjálfar Noreg. Karlar, úrslitaleikur: Frakkland – Danmörk ......................... 25:23 Leikur um bronsverðlaun: Egyptaland – Spánn............................. 31:33 EM kvenna U17 B-deild: Lettland – Ísland.................................. 23:35 Tyrkland – Ísland................................. 19:28 %$.62)0-# Júlían Jóhann Karl Jóhannsson varð í gær Evrópumeistari í réttstöðu- lyftu í +120 kg flokki í þriðja sinn á ferlinum í Pilsen í Tékklandi. Júlían hefur áður krækt í gull á EM, það gerði hann sömuleiðis árin 2018 og 2019, einnig í réttstöðulyftu. Júlían var nálægt því að tryggja sér gullverðlaunin fyrir saman- lagðan árangur á mótinu í gær er hann reyndi við nýtt heimsmet. Hann náði að lyfta 420 kg í rétt- stöðulyftu en sú lyfta var dæmd ógild vegna tæknigalla. Í kjölfarið reyndi hann við 420,5 sem hefði ver- ið nýtt heimsmet, en náði ekki að koma þeirri þyngd upp. Hefði 420 kílógramma lyftan verið dæmd lögleg hefði hann tryggt sér gullverðlaunin fyrir samanlagðan árangur. Júlían vann sér hins vegar inn bronsverðlaun fyrir saman- lagðan árangur með því að lyfta 400 kílógrömmum í hnébeygju, 315 kíló- grömmum í bekkpressu og 390 kíló- grömmum í réttstöðulyftu, saman- lagt 1105 kílóum. Réttstöðulyfta er eins og sjá má sérgrein Júlíans, en hann hefur þrisvar á ferlinum sett heimsmet í greininni. Á síðasta ári lyfti Júlían 409 kg í greininni á Íslandsmótinu síðasta sumar, en heimsmet eru hins vegar aðeins tekin gild þegar þau eru sett á alþjóðlegum mótum. gunnaregill@mbl.is Fékk gull og brons á EM - Sem fyrr í sérflokki í réttstöðulyftu Morgunblaðið/Íris Afreksmaður Júlían J.K. bætti enn einni skrautfjöðrinni í hattinn. FH varð á laugardag þrefaldur bik- armeistari í frjálsum íþróttum en FH bar sigur úr býtum í karla- flokki, kvennaflokki og saman- lagðri keppni. ÍR varð í öðru sæti í öllum þremur flokkum. FH vann nauman sigur í karlaflokki þar sem Hafnarfjarðarliðið endaði með 39 stig, einu stigi meira en ÍR. Sig- urinn var öruggari í kvennaflokki þar sem FH fékk 35 stig gegn 29 hjá ÍR. FH vann alls sjö greinar á mótinu en ÍR níu. Morgunblaðið/Sigurður Unnar Bikarmeistarar FH-ingar fagna þreföldum sigri í Kaplakrika. Stór dagur fyrir FH-inga

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.