Morgunblaðið - 09.08.2021, Page 32
Hólmfríður María Ragnhildardóttir
hmr@mbl.is
Íris Björk Óskarsdóttir-Vail er ís-
lenskur bakari búsett í Dover Fox-
trott í Maine í Bandaríkjunum. Þar
rekur hún ásamt eiginmanni sínum
og tengdafjölskyldu bakarí sem sel-
ur meðal annars íslenskar kleinur,
ostaslaufur og sérbökuð vínarbrauð.
Fædd og uppalin fyrir norðan
Íris er fædd og uppalin á kúa-
búinu Dæli í Skíðadal fyrir norðan.
24 ára hóf hún bakaranám í MK og
árið 2014 varð hún fyrst kvenna til
að fara með sigur af hólmi í keppn-
inni um köku ársins sem haldin er
af Landssambandi bakarameistara.
Vann hún síðan sem yfirbakari hjá
17 sortum þangað til hún flutti út til
Maine eftir að hún trúlofaðist kær-
asta sínum. Hefur hún verið búsett
þar síðan.
Starfaði Íris til að byrja með sem
bakari hjá bakaríinu Spruce Mill
Farm and Kitchen. Þegar þeim
rekstri var lokað nú í mars brá
tengdafaðir hennar á það ráð að
stofna fjölskyldubakaríið Vail‘s
Custom Cakes and Bakery og vildi
hann að Íris sæi um baksturinn. Að
sögn Írisar hefur tengdafaðir henn-
ar ekki mikla reynslu af rekstri
fyrirtækja og tók hún hann því ekki
mjög alvarlega þegar hugmyndina
bar fyrst á góma. „Þetta gerðist allt
mjög hratt. Þetta var bara nokkrum
dögum eftir að bakaríinu var lokað.
Ég hélt bara að hann væri að
djóka.“
Seldist upp á tveimur tímum
Ekki liðu nema tveir mánuðir frá
því atvinnuleysið skall á þar til nýja
fjölskyldubakaríið opnaði dyr sínar
fyrir viðskiptavinum. Aðspurð segir
hún reksturinn ganga vonum fram-
ar en opnunardaginn seldist allt
upp á tveimur tímum.
Sem stendur er Íris eini bakarinn
í fyrirtækinu og hefur nóg af verk-
efnum. Hún vaknar klukkan eitt að
nóttu til og er mætt í vinnuna upp
úr tvö til að ná að undirbúa fyrir
opnun og fylla hillurnar af bakkelsi.
Sér Íris einnig um að baka og
skreyta sérpantaðar kökur fyrir
ýmis tilefni en bakaríið sérhæfir sig
í slíkum verkefnum. Þeir sem
þekkja til verka Írisar hjá 17 sort-
um vita að hún er enginn aukvisi
þegar kemur að því að skreyta og
búa til fallegar kökur.
Spurð hvernig Bandaríkjamenn-
irnir taki í íslensku kleinurnar segir
hún viðtökurnar almennt góðar.
„Ég heyrði í einum sem fannst þær
ekkert sérstakar því þær eru nátt-
úrlega ekki jafn dísætar og amer-
ískt bakkelsi en fólki finnst gaman
að smakka eitthvað öðruvísi.“ Bak-
aríið leggur upp úr að gera allt frá
grunni en að sögn Írisar er það ekki
endilega vaninn í Bandaríkjunum.
Oft á tíðum er matur búinn til fram
í tímann og hefur staðið í frosti áð-
ur en hann er framreiddur. Segir
Íris það oft koma viðskiptavinum
skemmtilega á óvart hve mikill
metnaður er lagður í sætabrauðið.
Vonar hún nú að bakaríið haldi
áfram að standa undir sér svo fyrir-
tækið geti í framtíðinni fært sig yfir
í annað húsnæði og stækkað við sig.
Bakarí í Maine undir
íslenskum áhrifum
- Íris Björk bakar kleinur og snúða fyrir Bandaríkjamenn
Bakarí Vail-fjölskyldan hjálpast að við reksturinn. Til hægri á myndinni er
Íris Björk, við hlið hennar eru tengdaforeldrar hennar, Jenniffer Duffy-Vail
og Charlie Vail, og neðst á myndinni er mágkona hennar Hannah Vail.
Ljósmynd/Íris Björk
Kleinur Íslendingar kannast flestir við bakkelsið sem er að finna í bakaríinu.
Heimildarmyndin Húsmæðraskólinn, sem Stefanía
Thors leikstýrði, er ein 13 kvikmynda víðsvegar að úr
heiminum sem tilnefndar hafa verið til þátttöku í
keppninni LongShots sem haldin er á vegum BBC. RIFF
– Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík er í samstarfi
við LongShots og tilnefndi myndina í keppnina en alls
voru 110 myndir tilnefndar. Í keppnina eru valdar mynd-
ir sem þykja segja sögur af mannlegri tilveru sem eru
hvetjandi og spennandi. Húsmæðraskólinn fjallar um
hinn horfna heim íslensku húsmóðurinnar og hvernig
hlutverk húsmæðraskóla hefur breyst í áranna rás.
Heimildarmyndin Húsmæðraskól-
inn keppir í LongShots hjá BBC
MÁNUDAGUR 9. ÁGÚST 221. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Ný nöfn verða rituð á bikarana sem Íslandsmeistararnir
í golfi fá til varðveislu í eitt ár á milli Íslandsmóta.
Hulda Clara Gestsdóttir og Aron Snær Júlíusson sigr-
uðu á Íslandsmótinu sem lauk á Jaðarsvelli á Akureyri
síðdegis í gær og var því um tvöfaldan sigur að ræða
hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar. Er það í fyrsta
skipti, en Hulda er fyrsta konan úr GKG sem verður Ís-
landsmeistari í fullorðinsflokki. Blíðskaparveður var á
Akureyri meðan á mótinu stóð og Íslandsmeistararnir
nýttu sér það og léku stöðugt og gott golf. »27
Ný nöfn rituð á bikarana eftir
Íslandsmótið í golfi á Akureyri
ÍÞRÓTTIR MENNING