Morgunblaðið - 13.09.2021, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2021
DAGMÁL
Andrés Magnússon
Stefán Einar Stefánsson
„Flokkurinn var stofnaður fyrir síð-
ustu þingkosningar, en við ákváðum að
fara ekki fram þá, heldur að snúa okk-
ur að endurreisn verkalýðshreyfingar-
innar. Af því að við erum sósíalista-
flokkur þá teljum við það ekkert síður
og jafnvel mikilvægari vettvang held-
ur en hinn borgaralega lýðræðisvett-
vang eins og sveitarstjórnir og þing.“
En nú tók fylgið undir sig stökk.
„Ég var spurður að þessu í vetur,
hvert fylgið væri að fara, og ég sagði
að þegar við birtum listana myndi fylg-
ið tvöfaldast og síðan mun það tvöfald-
ast eftir það.“
Þessum orðum fer Gunnar Smári
Egilsson, formaður framkvæmda-
stjórnar Sósíalistaflokksins, um stöðu
flokksins nú þegar nokkrir dagar eru
liðnir af kosningabaráttunni. Hann er
gestur í hressilegu samtali á vettvangi
Dagmála.
Ríkisstjórnin mun falla
Kannanir benda til mjög dreifðs
fylgis og stjórnarmeirihlutinn virðist
ætla að halda áfram fái hann umboð til
þess …
„Nei, hann fellur. Alveg sannfærður
um það. Þessi ríkisstjórn hefur ekki
innistæðu til þess að halda áfram.“
Nú varstu sjálfur hallur undir frjáls-
hyggju á árum áður, stór-kapítalisti
árin fyrir hrun, gekkst næst í múslima-
félagið, vildir ganga Noregskonungi á
hönd og nú Sósíalistaflokkinn. Finnst
þér skrýtið þó sumir spyrji hvort þér
sé alvara eða hvort þetta sé bara lang-
dreginn gerningur?
„Þarf maður ekki að eiga kapítal til
þess að vera kapítalisti? Ég átti ekki
kapítal.“
Starfsmaður en ekki kapítalisti
Áttirðu ekki valrétt á því?
„Það er ekki að vera kapítalisti, það
er að vera starfsmaður.“
En er þér alvara?
„Það er munur á því að stofna
stjórnmálaflokk og hinu. Þegar þú ert
að vísa til meintrar nýfrjálshyggju
minnar í kringum 1990, þá var ég að
gagnrýna Sjálfstæðisflokkinn, sem
þóttist vera mikið fyrir frelsi og svona,
en þá getur verið klókara að gagnrýna
hann frá hægri en vinstri.“
Eru þetta þá bara klókindi?
„Nei, það er munur á að vera í
stjórnmálabaráttu og að vera fríliði úti
í hinni almennu umræðu.“
En þú hafnar því að hafa verið kap-
ítalisti þegar þú varst að vinna með
mönnum sem höfðu tugmilljarða um-
svif, þú varst að kaupa stórfyrirtæki
hér heima og erlendis, ferðaðist í
einkaþotum, á forstjóralaunum og for-
stjórajeppum. Snýrð svo við blaðinu og
talar um að það þurfi að brjóta niður
stórfyrirtæki vegna þess að fólk hafi
það ekki nógu gott í samfélaginu.
„Ég lifi í kapítalísku samfélagi og
þarf að vinna innan þess. Ég er blaða-
maður og var lengst af á jaðrinum, en
komst að því að það er ekki til langlífis.
Þegar kom að því að bjarga Frétta-
blaðinu frá þroti, þá rifjaðist upp saga
Morgunblaðsins, svo ég leitaði til
kaupmanna í Reykjavík. Af því að ég
vissi að við áttum ólíka en sameigin-
lega hagsmuni.“
Þú varst þá aldrei kapítalisti, þú
bara notfærðir þér kapítalista?
„Allt þetta tal um Baugspenna, eins
og Baugur hafi verið stjórnmálaafl, er
hlægilegt. Það að hafa verið Baugs-
penni var að skrifa innan þeirrar rit-
stjórnarstefnu sem ég og fleiri mót-
uðum, sem var ögrandi fyrir
Morgunblaðið og Kolkrabbann. Þeir
sem svöruðu mér þá voru Sjálfstæð-
isflokkurinn og stórkapítalið á Ís-
landi.“
En hérna rétt áðan sagðir þú að
stórfyrirtæki mættu ekki gína yfir
samfélaginu, nema þegar þú ert þar –
er það trúverðugt?
„Ég trúði því – og ég skal játa að það
voru mistök – að ritstjórnum væri vörn
í því að vera almenningshlutafélag.
Það var kannski barnaskapur hjá
mér.“
Tjáningarfrelsi en ekki kapítal
En fjölmiðlasumarið 2004 skrifaðir
þú fjölda leiðara um að ekkert mætti
trufla eignarhald stórfyrirtækja á fjöl-
miðlum …
„Það snerist um tjáningarfrelsið.“
Nei, það snerist um eignarhaldið.
„Það mega allir gefa út það sem þeir
vilja, þó það raski hagsmunum Morg-
unblaðsins og Kolkrabbans. Þið eruð
hér í vinnu fyrir fjölmiðil í eigu auð-
hringa.“
Þú talar um Kolkrabbann eins og
hann sé í fullu fjöri, notar orð eins auð-
hringi, stéttarbaráttu, samvinnuhreyf-
inguna og svo framvegis. Viltu færa
samfélagið aftur til 1971, skrúfa litinn
niður í sjónvarpinu eða hvert er þetta
að fara?
„Það samfélag, sem ég ólst upp í,
var byggt upp af öflugum almanna-
hreyfingum, verkalýðshreyfingunni,
samvinnuhreyfingunni og fleiri með
virkri stjórnmálaþátttöku almennings.
Þetta hafði alls konar áhrif í samfélag-
inu, sem var valddreifðara og fjöl-
breyttara …“
Eru ekki að lýsa einhverri útópíu
sem aldrei var?
„Ég er bara að segja að á þessum
árum var virk stjórnmálaþátttaka al-
mennings áberandi. Núna lifum við í
samfélagi þar sem eru flokkar sem eru
tómar skeljar á gríðarlegum ríkis-
styrkjum. Það gerir forystuna óháða
grasrótinni, sem er stórhættulegt.“
Lygari verði látinn þrífa klósett
En nú ert þú að gefa kost á þér til
Alþingis og það er ekki óeðlilegt að
fólk spyrji um ábyrgð þína þegar þú
tekur stórt upp í þig. Þú leggur til að
sjálfstæðishúsinu Valhöll verði breytt í
almenningssalerni og að tiltekinn mað-
ur eigi að skúra þar …
„Maður sem hefur borið út alls kon-
ar lygar um mig.“
Og þú hefur líka haft í heitingum við
Hæstarétt ef hann fer ekki eftir ykkar
kröfum.
„Nei, það er ekki alveg þannig.“
Sagðirðu ekki að það ætti að ryðja
Hæstarétt ef hann dæmdi öðruvísi en
ykkur þætti réttast?
„Ja, við lifum við það vandamál að
tiltekinn flokkur hefur haft völd í
gegnum dómsmálaráðuneytið og
raunverulega ráðið dómara á öllum
dómstigum meira og minna áratugum
saman.
Við gerðum könnun um daginn sem
sýndi að 66% töldu að spilling væri
vandamál í íslenskum stjórnmálum.
Þjóðfélög sem lenda í að gömul valda-
klíka hefur dreift sér út um allt sam-
félagið, er í stjórnsýslunni, í dómskerf-
inu og út um allt …“
Ertu að segja að stjórnsýslan á Ís-
landi og dómskerfið sé valdaklíka?
„Já.“
Lausn í nýjum lýðveldum
Það er mjög alvarlegt mál ef maður
sem er að fá fljúgandi fylgi í könnunum
og koma mörgum þingmönnum inn, sé
með það að stefnu að ryðja Hæstarétt
og að því er virðist stjórnkerfið, af því
að sá hópur er skilgreindur sem valda-
klíka. Þetta eru rosaleg orð.
„Það hefur gerst í sögunni, þar sem
fólk hefur misst samfélag sitt í svona,
að þá hefur verið gripið til þess ráðs að
búa eitthvað til eins og 2. lýðveldið. Við
erum gerspillt samfélag.“
Telurðu að dómsvaldið sé spillt?
„Ég tel að það hafi skipulega verið
settir inn menn í Hæstarétt, sem eru
líklegir til þess að verja meint eignar-
hald stórútgerðarinnar. Að það sé
skipulagt samsæri.
Og ef það er þannig, að Hæstiréttur
stoppar það að almenningur fái að nota
sínar auðlindir, þá verðum við að
bregðast við því. Ég er að benda á að
aðrar þjóðir hafi brugðist við því að
stofna nýtt lýðveldi.“
Bíddu við, þú segir að það sé skipu-
legt samsæri hvernig Hæstiréttur hafi
verið skipaður til þess verja eitt til-
tekið mál.
Bakherbergi einhvers staðar
„Auðvitað, það vita það allir.“
Hver stýrir þessu samsæri?
„Það veit ég ekki. Það er eitthvert
bakherbergi einhvers staðar. Þið ætt-
uð að vita það.“
Enga dellu hér, hver stýrir slíku
samsæri?
„Hverjir hafa völdin á Íslandi?
Þú hefur þá einhverja innsýn sem
við höfum ekki.
„Inn í Sjálfstæðisflokkinn? Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur lagt fæð á mig í
30 ár.“
Ertu að segja að flokkur með 25%
fylgi hafi hér öll völd? Og að hin 75%
geti ekki rönd við reist?
„Það er sorgin í íslenskum stjórn-
málum.“
Af hverju, er það glundroðinn á
vinstri kantinum?
„Ég veit það ekki, vald er náttúrlega
sterkt.“
Skipaðir til að verja kvótakerfið
Morgunblaðið/Eggert
Dagmál Gunnar Smári Egilsson, leiðtogi Sósíalista, í viðtali við Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson. Þar er farið ofan í kjölinn á málum.
- Gunnar Smári Egilsson í formannaviðtali við Dagmál - Segir að ryðja þurfi dómskerfið og stjórn-
kerfið sem sé klíkuvettvangur - Segir dómara við Hæstarétt hafa verið skipaða til að verja kvótakerfið
2021 ALÞINGISKOSNINGAR
Bætt
hreinlæti
í nýjum heimi
Fáðu ráðgjöf fyrir þitt fyrirtæki
www.hreint.is s: 589 5000 hreint@hreint.is