Morgunblaðið - 13.09.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.09.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2021 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. A 595 1000 Porto At h. t 4. nóvember í 3 nætur Verð frá kr. 99.900 Helgarferð til Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is Páll Ásgeir Ásgeirsson leiðsögu- maður segir Skógræktina vera að bregðast hlutverki sínu hvað varðar að vernda og rækta upp land í Þórs- mörk. Fé hefur fengið að ganga um norðanverða Þórsmörk undanfarin átta sumur og fleira fé sást í Mörkinni í sumar, að sögn Páls. Fé gengur óhindrað úr Almenningum, afrétt norðan Þórsmerkur, yfir í Þórsmörk. Þórsmörk er friðað land og sam- kvæmt lögum má ekki beita sauðfé þar. Í samtali við Morgunblaðið segir Hreinn Óskarsson, sviðsstjóri þjóð- skóga hjá Skógræktinni, að Þórs- mörk þoli vel ágang sauðkindarinnar. „Við sjáum ekkert stórkostlega mikl- ar skemmdir á gróðri, annað en bara för og að þarna sé lággróður bitinn. En það sem við vitum er að smábirki sem er að koma upp er líka bitið. Það að fé gangi inn á landið hægir á fram- vindu birkiskógarins,“ segir Hreinn. Unnið hefur verið markvisst að skógrækt í Þórsmörk í meira en hálfa öld . Þá hefur hún verið beitarfriðuð í hartnær hundrað ár. Afréttin í grennd við Þórsmörk var friðuð árið 1990 og girðing á milli Þórsmerkur og Almenninga fjalægð sumarið 1991. Tuttugu árum seinna var tekin sú ákvörðun að reka mætti fé aftur upp í Almenninga en þó færra fé en áður. Ekki var girt á milli Almenninga og Þórsmerkur í kjölfar- ið. Kostnaðarsamt að girða Á Almenningum mega vera um 180 fjár í heildina og að sögn Hreins fóru um 50 yfir í Þórsmörk á síðasta ári. „Núna í ár vitum við ekki hversu margar fóru yfir í Þórsmörk því bændur voru sjálfir búnir að smala. Við höfum alltaf smalað á sama degi og bændur smala úr Almenningum,“ segir Hreinn. Mjög erfitt sé að girða svæðið og sú framkvæmd yrði mjög kostnaðar- söm. „Það kom frá ráðuneytinu að það fengist ekki fjármagn til að end- urnýja girðingarnar,“ segir Hreinn. „Þetta er enginn heimsendir en þetta hægir auðvitað á framvindu birkiskóganna, það er það helsta sem við sjáum á móti því að fá fé aftur þarna inn. Það er heldur búið að fjölga fé sem fer þarna yfir. Þetta er ekki þannig að skógurinn sé að hopa en þetta hægir á framvindunni. Við vildum helst að birkið fengi að dreif- ast óheft en þetta er eitt það besta sem sauðkindin fær, smábirki.“ Misst sjónar á tilganginum Páll segir Skógræktina sýna bænd- um óþarflega mikið umburðarlyndi og að hún ætti að taka harðari afstöðu í að vernda svæðið. „Ef Skógræktin ræður ekki við það verkefni að vernda Þórsmörk fyrir þessum ágangi, þá verður að fá einhvern ann- an í að gæta þessarar skógræktar,“ segir Páll. Enn fremur segir hann þetta vera furðulegan hugsunarhátt með bak- söguna í huga. „Það er búið að rækta skóg í Þórsmörk í meira en hálfa öld og það fjölgar með hverju árinu þeim kindum sem ganga inn í Mörkina. Á þá Skógræktin bara að yppa öxlum og segja að þetta sé allt í lagi, við þol- um þetta vel? Er þá ekki bara næsta skref að fara að reka féð inn í Þórs- mörk og beita hana eins og hverja aðra afrétt?“ Ef þetta sé afstaða Skógrækt- arinnar þá sé hún búin að missa sjón- ar á því verkefni sem henni var upp- haflega falið, að vernda Þórsmörk og græða hana upp. Segir Skógræktina bregðast hlutverki sínu - Fé gengið í Þórsmörk síðustu sumur þrátt fyrir friðun Morgunblaðið/Árni Sæberg Þórsmörk Undanfarin sumur hefur fé gengið óhindrað úr afréttinni yfir í hina beitarfriðuðu Þórsmörk. Hreinn Óskarsson Páll Ásgeir Ásgeirsson. Ari Páll Karlsson ari@mbl.is Kópavogsvöllur stenst ekki þær kröfur sem Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, setur um lýsingu í sínum sjónvarpsútsendingum og mun því meistaraflokkur kvenna hjá Breiðabliki ekki geta spilað sína heimaleiki á heimavelli, en liðið tryggði sér sæti í Meistaradeild Evr- ópu á dögunum. „Sjónvarpið gerir kröfur um 800 LUX,“ segir Eysteinn Pétur Lárus- son, framkvæmdastjóri Breiðabliks. Hann segir Breiðablik skoða nú hvað hægt sé að gera en á heildina litið sé félagið í erfiðri stöðu. „Það er kannski hægt að eiga við núverandi möstur og gera eitthvað á vellinum til þess að ná þessu sem þarf að ná. Ef það gengur ekki þá er það bara Laugardalsvöllur,“ segir hann og bætir við að þó svo að gaman sé að spila á þjóðarleikvanginum þá séu ýmis vandamál sem fylgi. Laugardalsvöllur sé ekki heima- völlur Breiðabliks og sé á grasi en ekki gervigrasi líkt og Kópavogsvöll- ur þar sem liðið æfir. Þar að auki sé óvíst hvort hægt verði að spila á Laugardalsvelli yfir veturinn þar sem hann er ekki upphitaður líkt og heimavöllurinn. „Varðandi leikina sem verða í nóv- ember og desember vitum við ekkert hvernig tíðin verður og ekki víst að Laugardalsvöllur sé klár í það. Við erum bara ekki í góðri stöðu með þetta mál, það er bara þannig. Það hefði þurft að setja 800 LUX á hann á sínum tíma,“ segir Eyþór. Þegar ákveðið var í janúar 2019 hvernig endurnýja skyldi ljósin var sam- þykkt með fjórum atkvæðum gegn einu í bæjarstjórn að ljósstyrkur upp á 500 LUX væri nóg. Pétur Hrafn Sigurðsson, bæjarfulltrúi Samfylk- ingarinnar í Kópavogi, kaus gegn ákvörðuninni og lagði fram þá bókun að lýsingin mætti ekki kröfum nú- tímans. Eðlilegra væri að lýsingin yrði 800 LUX. Hann segir í samtali við Morgun- blaðið að hann hafi á sínum tíma vilj- að að bæjarstjórn myndi sýna „ákveðna framsýni“ og uppfæra lýs- inguna í samræmi við kröfur UEFA. Í bókun bæjarstjóra frá fundinum segir að lýsingin sem varð fyrir val- inu „standist þær kröfur sem gerðar eru til lýsingar á knattspyrnuvöll- um“. Pétur segir að um sé að ræða kröfur KSÍ sem hljóða aðeins upp á 500 LUX. Með því að velja kraft- minni flóðlýsingu hafi sparast 18 milljónir. Liðið er á sama tíma sagt hafa þegar unnið sér inn 76 milljónir með því að tryggja sér sæti í Meist- aradeildinni. „Auðvitað á það að vera markmið sveitarfélagsins að búa til aðstöðu fyrir sín íþróttafélög og gera þá að- stöðu sem besta,“ segir Pétur. Aftur á móti sé félagið nú í þeirri stöðu að mögulega þurfi að senda kvennaliðið úr landi að spila heimaleiki sína yfir háveturinn. Færeyjar séu til að mynda með völl sem standist allar kröfur og veðurskilyrði. Heimavöllurinn stenst ekki kröfur - Breiðablik gæti þurft að spila heimaleiki Meistaradeildarinnar í útlöndum - Bærinn sparaði 18 millj- ónir en liðið græddi 76 milljónir - Félagið í erfiðri stöðu - Betri völlur í Færeyjum en hér heima Morgunblaðið/Árni Sæberg Laugardalur Flóðlýsingin á Laug- ardalsvelli stenst kröfur UEFA. Ari Páll Karlsson ari@mbl.is Mikið tjón varð þegar höfuðstöðvar Kapalvæðingar í Reykjanesbæ brunnu á fimmtudag og allar teng- ingar fyrirtækisins með. „Það eru tvö þúsund heimili sem eru tengd í net og sjónvarp hjá okk- ur, skólabyggingar Reykjanesbæjar og fleiri fyrirtæki. Það er búið að bjarga ýmsu,“ segir Börkur Birgis- son, framkvæmdastjóri Kapalvæð- ingar, og bætir við að nú sé reynt að koma sambandi á þau heimili sem duttu út. Hann segir Gagnaveitu Reykjavíkur hafa um helgina unnið með þeim með það að leiðarljósi. Þá muni Míla bætast við hópinn í dag. Sýni bestu hliðar í hamförum Börkur segir íbúa Reykjanesbæj- ar hafa sýnt aðstæðunum mikinn skilning. „Íslendingar sýna yfirleitt sínar bestu hliðar í hamförum. Við eigum rosalega sterka og góða við- skiptavild hérna í Reykjanesbæ og höfum haft í gegnum árin. Við erum að gera okkar besta, þetta er eitt- hvað sem tekur sinn tíma og það er ekki hægt að gera þetta hraðar. Allir angar eru úti og vonandi tekst að klára þetta á næstu dögum.“ Þeim viðskiptavinum sem urðu fyrir sambandsleysi hefur boðist að nettengja heimilið í gegnum far- símakerfi Nova meðan unnið er að lausn. Skortur á tækjabúnaði sökum heimsfaraldursins setur þó strik í reikninginn. „Þú ferð ekkert og sæk- ir þúsund 4G-netbeina í miðjum heimsfaraldri. Við reiknum með að fá meira af þeim í vikunni.“ Þar sem tengirýmið fyrir ljósleið- ara brann var ákveðið að flytja allar heimatengingar Kapalvæðingar yfir á kerfi Gagnaveitu Reykjavíkur. Það taki þó sinn tíma. Fyrirtækið vinnur nú hörðum höndum við að koma tengingum sínum aftur í lag. „Rafholt er búið að vera að vinna við að koma okkar ljósleiðarateng- ingum í gang aftur og það er nánast komið.“ Þau viti þó ekki hvenær allt verður komið í fyrra horf. „Með hverjum degi vitum við meira, en erfitt er að fá sérhæfðan tæknibúnað með engum fyrirvara.“ Þá sé Kapal- væðing þakklát þeim fyrirtækjum sem hafi hjálpað auk starfsfólks. Allar tengingar urðu eldi að bráð - Bruni í höfuðstöðvum Kapalvæðingar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.