Morgunblaðið - 13.09.2021, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2021
M
eToo-bylgjan fór vart
fram hjá neinni mann-
eskju þegar hún tröll-
reið netheimum fyrir
nokkrum árum. Fyrir marga var
flóð frásagnanna merki um ákveðinn
sigur innan jafnréttisbaráttunnar
sem kallaði fram gleði. Fyrir aðra
voru þessar stanslausu sögur upp-
spretta mikillar
vanlíðanar og
óhamingju.
Vanessa mín
myrka er gríp-
andi skáldsaga
sem kemur með
ferskt og áhuga-
vert sjónarhorn
inn í þessa
umræðu þar sem
blendnar tilfinn-
ingar, afneitun og sektarkennd leika
stórt hlutverk.
Bókin segir frá ungri konu,
Vanessu Wye, sem er neydd til að
endurskoða ástarsamband sem hún
átti með 42 ára enskukennara sín-
um þegar hún var 15 ára, í kjölfar
þess að nafnið hans verður áberandi
í frásögnum í #MeToo-bylgjunni
árið 2017. Bókin fer með lesendur í
gegnum tímaflakk þar sem annars
vegar er skyggnst inn í minningar
Vanessu frá skólaárum hennar og
hins vegar líf hennar í nútímanum
þar sem hún er neydd til að horfast í
augu við hvers eðlis samskipti
hennar við kennara sinn, Jacob
Strane, voru.
Verkið er fyrsta útgefna skáld-
saga höfundarins Kate Elizabeth
Russell og hefur hún vakið mikið
umtal enda tekst hún á við flókin og
eldfim málefni sem eru afar vand-
meðfarin: tælingu, barnaníð og kyn-
ferðislegt ofbeldi. Hefur höfundur
verið gagnrýndur fyrir að notfæra
sér sögur og persónulega reynslu
annarra sér til framdráttar og
skáldsagan kölluð ein sú umdeild-
asta frá árinu 2020.
Í bókinni tekst Russell á við mikil-
væg vandamál á borð við stofnana-
bundna og menningarlega þætti sem
vinna kerfisbundið gegn þolendum
ofbeldis. Þó bókin fjalli fyrst og
fremst um tælingu og barnaníð má þó
einnig greina almenna gagnrýni á
þráhyggju samfélagsins gagnvart
unglegu útliti kvenna. Þráhyggju sem
femínistar á 21. öldinni hafa sumir
hverjir líkt við barnagirnd.
Tæling er síður en svo auðvelt við-
fangsefni til að greina frá og skilja en
höfundi tekst með sannfærandi hætti
að varpa ljósi á flókinn tilfinninga-
veruleika þolanda sem er oft og tíðum
mótsagnakenndur og illskiljanlegur
fyrir aðstandendur. Á sama tíma og
Russell nær að gera grein fyrir hvað
það er í fari Jacob Strane sem fær
Vanessu til þess að falla fyrir honum
þá fer aldrei á milli mála að hér er
ekki um ástarsögu að ræða. Valda-
ójafnvægið er dregið fram með skýr-
um hætti og gerir hún vel grein fyrir
stöðu Vanessu, bæði gagnvart kenn-
aranum og einnig skólayfirvöldum.
Hafa einhverjir líkt bókinni við nú-
tíma frásögn Lólítu, þar sem ekkert
er fegrað og viðeigandi orðfæri er
notað til að greina frá sambandinu;
misnotkun og barnaníð.
Kemur fyrir að lýsingar Russell
gangi fram af manni og kallar bókin
fram mikla siðferðislega togstreitu.
Bæði hvað varðar afstöðu manns
gagnvart ákvörðunum aðalsögu-
persónunnar, og einnig afstöðu
manns gagnvart því hvernig höf-
undur fjallar um efni bókarinnar. Er
ég enn að gera það upp við mig hvort
ég dáist að hugrekkinu sem felst í því
að greina frá kynferðislegri misnotk-
un í smáatriðum líkt og Russell gerir,
eða hvort ég telji hana hafa gengið
óþarflega langt. Velti ég fyrir mér
hvar mörkin liggja þegar kemur að
því að skapa mynd í höfði lesanda af
nakinni 15 ára stúlku uppi í rúmi með
42 ára karlmanni.
Að því sögðu er bókin hispurslaus
og geymir sannfærandi frásögn af
hugarheimi ungrar konu sem reynir
að fóta sig í lífinu samhliða því sem
hún glímir við eftirmál misnotkunar.
Kannski er nauðsynlegt að ögra vel-
sæmismörkum til að hægt sé að
segja með réttum hætti frá jafn
átakanlegu viðfangsefni og þessu.
Frumraun Vanessa mín myrka er fyrsta útgefna skáldsaga Kate Elizabeth
Russell og hefur hún vakið mikið umtal, að því er fram kemur í gagnrýni.
Blendnar tilfinningar,
afneitun og sektarkennd
Skáldsaga
Vanessa mín myrka bbbbn
Eftir Kate Elizabeth Russell.
Harpa Rún Kristjánsdóttir íslenskaði.
Kilja 420 bls. Króníka.
HÓLMFRÍÐUR MARÍA
RAGNHILDARDÓTTIR
BÆKUR
Barna- og unglingasýningar Þjóð-
leikhússins munu verða nýttar í
kennsluefni sem Menntavísindasvið
Háskóla Íslands mun útbúa í sam-
starfi við fræðsludeild leikhússins,
að því er fram kemur í tilkynningu
frá leikhúsinu.
Hafa þau tekið höndum saman
um gerð kennsluefnis fyrir börn og
unglinga sem mun byggjast á
barna- og unglingasýningum Þjóð-
leikhússins sem eru í sýningu
hverju sinni og nýtast vel til að
auka læsi ungmenna á leiklist og
bæta aðgengi þeirra að leikhúsi.
Kennsluefnið er hugsað jöfnum
höndum fyrir almenna kennara og
leiklistarkennara, eins og segir í til-
kynningunni.
Björn Ingi Hilmarsson frá
fræðsludeild Þjóðleikhússins og
Jóna Guðrún Jónsdóttir og dr.
Rannveig Björk Þorkelsdóttir frá
leiklistarkjörsviði Menntavísinda-
sviðs Háskóla Íslands, skrifuðu
undir samstarfssamning um verk-
efnið í síðustu viku.
Þær sýningar sem um ræðir
þetta leikárið eru m.a. Vloggið eftir
Matthías Tryggva Haraldsson, Kaf-
bátur eftir Gunnar Eiríksson og Ég
get eftir Peter Engkvist.
Hefja sam-
starf um
kennsluefni
Samið Björn Ingi, Jóna og Rann-
veig við undirritun samningsins.
Viðskipti