Morgunblaðið - 13.09.2021, Side 29

Morgunblaðið - 13.09.2021, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2021 M eToo-bylgjan fór vart fram hjá neinni mann- eskju þegar hún tröll- reið netheimum fyrir nokkrum árum. Fyrir marga var flóð frásagnanna merki um ákveðinn sigur innan jafnréttisbaráttunnar sem kallaði fram gleði. Fyrir aðra voru þessar stanslausu sögur upp- spretta mikillar vanlíðanar og óhamingju. Vanessa mín myrka er gríp- andi skáldsaga sem kemur með ferskt og áhuga- vert sjónarhorn inn í þessa umræðu þar sem blendnar tilfinn- ingar, afneitun og sektarkennd leika stórt hlutverk. Bókin segir frá ungri konu, Vanessu Wye, sem er neydd til að endurskoða ástarsamband sem hún átti með 42 ára enskukennara sín- um þegar hún var 15 ára, í kjölfar þess að nafnið hans verður áberandi í frásögnum í #MeToo-bylgjunni árið 2017. Bókin fer með lesendur í gegnum tímaflakk þar sem annars vegar er skyggnst inn í minningar Vanessu frá skólaárum hennar og hins vegar líf hennar í nútímanum þar sem hún er neydd til að horfast í augu við hvers eðlis samskipti hennar við kennara sinn, Jacob Strane, voru. Verkið er fyrsta útgefna skáld- saga höfundarins Kate Elizabeth Russell og hefur hún vakið mikið umtal enda tekst hún á við flókin og eldfim málefni sem eru afar vand- meðfarin: tælingu, barnaníð og kyn- ferðislegt ofbeldi. Hefur höfundur verið gagnrýndur fyrir að notfæra sér sögur og persónulega reynslu annarra sér til framdráttar og skáldsagan kölluð ein sú umdeild- asta frá árinu 2020. Í bókinni tekst Russell á við mikil- væg vandamál á borð við stofnana- bundna og menningarlega þætti sem vinna kerfisbundið gegn þolendum ofbeldis. Þó bókin fjalli fyrst og fremst um tælingu og barnaníð má þó einnig greina almenna gagnrýni á þráhyggju samfélagsins gagnvart unglegu útliti kvenna. Þráhyggju sem femínistar á 21. öldinni hafa sumir hverjir líkt við barnagirnd. Tæling er síður en svo auðvelt við- fangsefni til að greina frá og skilja en höfundi tekst með sannfærandi hætti að varpa ljósi á flókinn tilfinninga- veruleika þolanda sem er oft og tíðum mótsagnakenndur og illskiljanlegur fyrir aðstandendur. Á sama tíma og Russell nær að gera grein fyrir hvað það er í fari Jacob Strane sem fær Vanessu til þess að falla fyrir honum þá fer aldrei á milli mála að hér er ekki um ástarsögu að ræða. Valda- ójafnvægið er dregið fram með skýr- um hætti og gerir hún vel grein fyrir stöðu Vanessu, bæði gagnvart kenn- aranum og einnig skólayfirvöldum. Hafa einhverjir líkt bókinni við nú- tíma frásögn Lólítu, þar sem ekkert er fegrað og viðeigandi orðfæri er notað til að greina frá sambandinu; misnotkun og barnaníð. Kemur fyrir að lýsingar Russell gangi fram af manni og kallar bókin fram mikla siðferðislega togstreitu. Bæði hvað varðar afstöðu manns gagnvart ákvörðunum aðalsögu- persónunnar, og einnig afstöðu manns gagnvart því hvernig höf- undur fjallar um efni bókarinnar. Er ég enn að gera það upp við mig hvort ég dáist að hugrekkinu sem felst í því að greina frá kynferðislegri misnotk- un í smáatriðum líkt og Russell gerir, eða hvort ég telji hana hafa gengið óþarflega langt. Velti ég fyrir mér hvar mörkin liggja þegar kemur að því að skapa mynd í höfði lesanda af nakinni 15 ára stúlku uppi í rúmi með 42 ára karlmanni. Að því sögðu er bókin hispurslaus og geymir sannfærandi frásögn af hugarheimi ungrar konu sem reynir að fóta sig í lífinu samhliða því sem hún glímir við eftirmál misnotkunar. Kannski er nauðsynlegt að ögra vel- sæmismörkum til að hægt sé að segja með réttum hætti frá jafn átakanlegu viðfangsefni og þessu. Frumraun Vanessa mín myrka er fyrsta útgefna skáldsaga Kate Elizabeth Russell og hefur hún vakið mikið umtal, að því er fram kemur í gagnrýni. Blendnar tilfinningar, afneitun og sektarkennd Skáldsaga Vanessa mín myrka bbbbn Eftir Kate Elizabeth Russell. Harpa Rún Kristjánsdóttir íslenskaði. Kilja 420 bls. Króníka. HÓLMFRÍÐUR MARÍA RAGNHILDARDÓTTIR BÆKUR Barna- og unglingasýningar Þjóð- leikhússins munu verða nýttar í kennsluefni sem Menntavísindasvið Háskóla Íslands mun útbúa í sam- starfi við fræðsludeild leikhússins, að því er fram kemur í tilkynningu frá leikhúsinu. Hafa þau tekið höndum saman um gerð kennsluefnis fyrir börn og unglinga sem mun byggjast á barna- og unglingasýningum Þjóð- leikhússins sem eru í sýningu hverju sinni og nýtast vel til að auka læsi ungmenna á leiklist og bæta aðgengi þeirra að leikhúsi. Kennsluefnið er hugsað jöfnum höndum fyrir almenna kennara og leiklistarkennara, eins og segir í til- kynningunni. Björn Ingi Hilmarsson frá fræðsludeild Þjóðleikhússins og Jóna Guðrún Jónsdóttir og dr. Rannveig Björk Þorkelsdóttir frá leiklistarkjörsviði Menntavísinda- sviðs Háskóla Íslands, skrifuðu undir samstarfssamning um verk- efnið í síðustu viku. Þær sýningar sem um ræðir þetta leikárið eru m.a. Vloggið eftir Matthías Tryggva Haraldsson, Kaf- bátur eftir Gunnar Eiríksson og Ég get eftir Peter Engkvist. Hefja sam- starf um kennsluefni Samið Björn Ingi, Jóna og Rann- veig við undirritun samningsins. Viðskipti

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.