Morgunblaðið - 15.09.2021, Page 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2021
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Alþjóðaflug til áfangastaða í Evrópu
í júlí og ágústmánuði sl. var aðeins
39,9% af fjölda flugferða til Evrópu-
landa í farþegaflugi fyrir heimsfar-
aldurinn á árinu 2019, samkvæmt
rannsókn ForwardKeys-fyrirtækis-
ins, sem sérhæfir sig í greiningu og
upplýsingaöflun í ferðaþjónustu.
Ísland er í hópi þeirra Evrópu-
landa sem hefur gengið nokkuð bet-
ur en öðrum löndum að ná sér á strik
í millilandaflugi í sumar. Staðfestar
bókanir í alþjóðaflugi til Íslands í júlí
og ágúst voru 61,8% af farþegaflugi
til landsins í sömu mánuðum fyrir
tveimur árum og er Ísland í 4. sæti á
lista 20 Evrópulanda í samanburði
ForwardKeys.
Grikkland er efst á listanum þar
sem komufjöldi í alþjóðaflugi til
landsins var 85,7% í júlí og ágúst
samanborið við sömu mánuði 2019.
Kýpur og Tyrkland koma svo í 2. og
3. sæti. Önnur norræn ríki hafa síður
náð að rétta úr kútnum og komast á
sama stig og árið 2019 skv. þessum
samanburði og voru t.a.m. flugferðir
til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar
í júlí og ágúst í sumar aðeins 31-36%
af því sem var í sömu mánuðum á
árinu 2019.
Neðst á listanum eru Þýskaland
(26,7%), Rússland (23,2%), Írland
(21,9%) og Bretland (14,3%).
Tekið er fram í umfjöllun um
rannsóknina að Grikkland og Ísland
séu meðal þeirra landa sem urðu
fyrst til að opna fyrir komur ferða-
manna sem eru fullbólusettir, geta
framvísað neikvæðu PCR-prófi eða
vottorði um fyrri sýkingu af völdum
kórónuveirunnar.
Skv. tölum Ferðamálastofu og
Isavia sem birtar voru í seinustu
viku voru brottfarir erlendra far-
þega frá Keflavíkurflugvelli tæplega
152 þúsund í ágúst sl. eða ríflega tvö-
falt fleiri en í ágúst í fyrra en um
60,3% af fjölda brottfara í sama mán-
uði árið 2019. omfr@mbl.is
Ísland í 4. sæti í
fjölda flugferða
- Löndum gengur misvel að ná sér á strik
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Við Leifsstöð Komur til Íslands voru
61,8% af því sem var sumarið 2019.
ÓTAKMARKAÐ GOLF Á ALICANTE
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 GOLF@UU.IS
GIST Á ALICANTE GOLF EÐA EL PLANTIO GOLF
10.000 KR.AFSLÁTTUR Á MANN EF BÓKAÐER FYRIR 24. SEPTEMBER.* GILDIR Á ALLAR GOLFFERÐIR TILALICANTE GOLF EÐA ELPLANTIOSEPTEMBER - OKTÓBER
EL PLANTIO GOLF RESORT
El Plantio er vinsælasti golfstaður okkar á
Spáni. Þessi skemmtilegi staður er steinsnar
frá Alicanteborg og því tilvalið fyrir þá sem
vilja spila golf og njóta menningarinnar í
Alicante. Golfvöllurinn við hótelið er 18 holu
völlur sem hentar fyrir alla kylfinga.
ALICANTE GOLF RESORT
Alicante Golf er í 15 mínútna fjarlægð frá
miðborg Alicante og 10 mínútum frá bænum
San Juan. Stutt er í verslun og á ströndina
og nokkur skref á golfvöllinn. Alicante Golf
inniheldur sex par 3 holur, sex par 4 holur og
sex par 5 holur, sem þýðir að þú munt aldrei
spila sömu holu tvisvar í röð með sama par.
INNIFALIÐ
ÓTAKMARKAÐ GOLF
INNRITUÐ TASKA 20 KG OG HANDFARANGUR
GOLFBÍLL INNIFALINN
FLUTNINGUR Á GOLFSETTI
VAL UM MORGUNVERÐ EÐA HÁLFT FÆÐI
ÍSLENSK FARARSTJÓRN
AKSTUR TIL OG FRÁ FLUGVELLI
TILBOÐ SEPTEMBER - OKTÓBER
EL PLANTIO VERÐ FRÁ 179.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
Val um morgunverð eða hálft fæði, morgunverður innifalinn í verði
ALICANTE GOLF VERÐ FRÁ 179.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
Val um morgunverð eða hálft fæði, morgunverður innifalinn í verði
Hópar margæsa hafa víða sést á vestanverðu
landinu að undanförnu, en gæsirnar eru ný-
komnar af varpstöðvunum á heimskautssvæðum
í Norðaustur-Kanada, á leið til vetrarstöðva í Ír-
landi. Margæsir dvelja um tíma á landinu vor og
haust, hvílast hér og nærast.
Þær fyrstu koma hingað í lok marsmánaðar á
vorin og fjölgar jafnt og þétt þar til stofninn er
hingað kominn um miðjan maí. Þær eru mjög
samstiga er þær halda áleiðis til Kanada 27. maí,
plús/mínus einn dagur, og segir Guðmundur A.
Guðmundsson, dýravistfræðingur á Náttúru-
fræðistofnun, að nánast megi stilla klukkuna eft-
ir því hvenær þær fara héðan á vorin. Síðsumars
koma þær fyrstu um 20. ágúst og þær síðustu
fara um 20. október.
Erfitt flug yfir Grænlandsjökul
Þegar varp gengur vel eru fjölskyldur áber-
andi í hópunum sem hingað koma á haustin, en
ungar fylgja foreldrum sínum í tæpt ár. Það er
ekki fyrr en næsta varp nálgast að þeir eru
hraktir að heiman meðan á vordvölinni á Íslandi
stendur, að sögn Guðmundar.
Flug margæsa frá vetrarstöðvum til varp-
stöðva er alls á fimmta þúsund kílómetra og þar
af er leggurinn frá Íslandi til N-Kanada um þrjú
þúsund kílómetrar. Meðal annars er flogið yfir
Grænlandsjökul, sem eflaust er erfitt fyrir þétt-
holda gæsirnar sem safnað hafa forða hér til
varpsins. Alls er talið að deilitegundin sem kem-
ur við á Íslandi telji tæplega 40 þúsund fugla.
aij@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fargestur á vestanverðu landinu
Nánast hægt að stilla klukkuna eftir tímasetningu margæsa
Vor og haust Margæsir á flugi á Seltjarnarnesi í gær, en þær staldra oft við á golfvelli Seltirninga á Suðurnesi. Héðan halda þær til Írlands.
Sjómannadagsráð hefur dregið til
baka uppsögn sína á rekstri hjúkr-
unarheimilisins Ísafoldar, en ráðið
hafði áður sagt upp samstarfssamn-
ingi við Garðabæ um reksturinn. Í
byrjun september var síðan greint
frá því að stefnt væri að því að Vig-
dísarholt ehf. tæki reksturinn yfir
um áramót. Að sögn Maríu Harðar-
dóttur forstjóra Hrafnistu hefur ver-
ið gengið frá samningum við Sjúkra-
tryggingar Íslands um reksturinn.
Fjallað var um málið á fundi bæj-
arráðs Garðabæjar í gær og lagt
fram bréf frá Sjúkratryggingum Ís-
lands. Í því segir m.a.: „SÍ telja upp-
sögn á svo viðkvæmum og viðamikl-
um samningum, hvort sem litið er til
heimilismanna eða starfsmanna, al-
varlegt mál sem ekki megi fara létt-
vægt með. Hins vegar, í ljósi að-
stæðna allra og á grundvelli þess að
sjómannadagsráð og forstjóri Ísa-
foldar (Hrafnistu) telja rekstrarhæfi
nú tryggt, fallast SÍ á að uppsögn
verði dregin til baka.“
Sjúkratryggingar vitna til bréfs
frá Hrafnistu um að rekstrargrund-
völlur sé betri en á horfðist er samn-
ingum var sagt upp. Hrafnista muni
með útsjónarsemi og ábyrgð í
rekstri geta aukið rekstrarhæfi Ísa-
foldar, sem muni ekki koma niður á
núverandi þjónustu við íbúa og sam-
ræmast að fullu gildum og hug-
sjónum um að tryggja íbúum úrvals-
þjónustu og öruggt umhverfi, eins
og rakið er í bréfi SÍ. aij@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ísafold Samið við Sjúkratryggingar.
Draga upp-
sögn á Ísa-
fold til baka
- SÍ segja uppsögn
vera alvarlegt mál