Morgunblaðið - 15.09.2021, Side 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2021
Hægt hefur gengið að setja upp
Minnisvarða um brostin loforð
Reykjavíkurborgar á Kjalarnesi.
Íbúar þar samþykktu gerð minn-
isvarðans í íbúakosningu Hverf-
isins míns í Reykjavík 2019.
Minnisvarðinn og verkefni um
hundagerði á Kjalarnesi voru
rædd á fundi íbúaráðs Kjalarness
9. september. Guðni Ársæll Indr-
iðason og Olga Þorsteinsdóttir,
sem bæði sitja í íbúaráðinu, fengu
það verkefni á fundi ráðsins í vor
að fylgja þessum málum eftir.
„Þessi verkefni voru valin í
kosningu íbúa. Þess vegna verður
að standa við þau. Hins vegar
hefur kerfi borgarinnar átt erfitt
með að klára þessi mál,“ sagði
Guðni. Þau ræddu við starfsmann
borgarinnar og skoðuðu að-
stæður. Hugmyndir að hunda-
gerði og minnisvarðanum voru
rissaðar upp sendar til borg-
arinnar. „Það átti að hafa sam-
band við mig eftir sumarfrí, en ég
hef ekkert heyrt enn þá,“ sagði
Guðni.
Berglind Hönnudóttir sendi inn
hugmyndina um minnisvarðann á
sínum tíma. Í rökstuðningi sagði:
„Reykjavík og Kjalarnes samein-
uðust 1997, þá var gefin út bók
með loforðum sem er kölluð bláa
bókin. Bókin er full af loforðum
um þjónustu og uppbyggingu í
hverfinu sem ekki hefur verið
staðið við.“
Vantar stóru loforðin
Þegar 20 ár voru frá sameining-
unni fóru fulltrúar Kjalnesinga og
embættismenn í gegnum Bláu
bókina og mátu árangurinn. „Það
var staðið við ýmislegt, en ekki
stóru loforðin um mikla uppbygg-
ingu á Kjalarnesi,“ sagði Guðni.
gudni@mbl.is
Minnisvarði um
brostin loforð
- Íbúarnir kusu að
fá minnisvarðann
Bláa bókin Innihélt fögur fyrirheit
vegna sameiningarinnar 1997.
Brún gígsins í Geldingatölum nær
nú upp í 334 metra hæð yfir sjó.
Ekki vantar nema 20 metra upp á
að gígurinn sé jafn hár og Stóri-
Hrútur, að sögn Jarðvísindastofn-
unar Háskóla Íslands.
Rúmmál nýja hraunsins var orðið
142,7 milljónir rúmmetra þann 9.
september. Það hafði aukist um
23,8 milljónir rúmmetra frá 10.
ágúst. Flatarmál hraunsins hafði
einnig aukist lítillega og var orðið
4,63 ferkílómetrar 9. september en
var 4,37 ferkílómetrar 10. ágúst.
Hraunið hefur ekki breitt mikið úr
sér heldur hlaðið upp lítilli en til-
tölulega brattri dyngju.
Þoka og lítil skýjahæð hafði lengi
hindrað töku loftmynda yfir gos-
stöðvunum þar til tókst að taka nýj-
ar myndir þann 9. september.
Landlíkön sem gerð voru eftir mæl-
ingunum voru borin saman við eldri
gögn.
Meðaltal hraunrennslis síðustu 32
daga reyndist vera 8,5 rúmmetrar á
sekúndu. Jarðvísindastofnun segir
að nokkuð kröftugt gos hafi verið
um það bil helming tímabilsins en
legið niðri þess á milli. Með-
alrennslið þegar gaus úr gígnum
gæti því hafa verið um 17 rúmmetr-
ar á sekúndu.
„Á þessum mánuði sem liðinn er
frá síðustu mælingu hefur hraun
runnið í vestanverða Meradali,
Syðri-Meradal og norðurhluta Geld-
ingadala og Nátthaga. Flatarmálið
hefur aukist sáralítið, enda hraun-
rennsli mest á yfirborði svo hraunin
í hverri hrinu hafa ekki náð út að
jaðrinum á ofangreindum stöðum,“
segir í frétt Jarðvísindastofnunar.
Ekki hafði gosið í sjö daga þegar
nýja mælingin var gerð. Frá 8.
ágúst til 2. september komu 16
hrinur þar sem gaus af verulegum
krafti. Þess á milli var gígurinn
tómur og minnst 70 m djúpur.
gudni@mbl.is
Hraunið hefur
hrannast upp
- Rúmmál hraunsins jókst talsvert á
milli mælinga en flatarmálið minna
Eldgosið í Geldingadölum 19. mars -9. sept.
Flatarmál hrauns, km2
4,63
9. september var flatarmál hraunsins um
4,63 ferkílómetrar sem er á við
um 660 Laugardalsvelli
Heimild: Jarðvísindastofnun HÍ, Náttúru-
fræðistofnun Íslands og Landmælingar Íslands
Hraunflæði, m3/s
8,5
Rennslið svarar til
að vera um 34
vörubílshlöss á mínútu
mars apríl maí júní júlí ágúst sept.
mars apríl maí júní júlí ágúst sept.
Hraunrennslið við síðustu
mælingu var um
8,5 rúmmetrar
á sekúndu
GEFÐU STARFSFÓLKINU
DAGAMUN
Suðurlandsbraut 30 | 577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is
Í nýrri reglugerð um samkomutak-
markanir miðast almennar fjöldatak-
markanir við 500 manns og 1.500
gegn framvísun hraðprófs. Þá er af-
greiðslutími veitingahúsa lengdur um
eina klukkustund, en breytingarnar
áttu að ganga í gildi á miðnætti í nótt.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra kynnti þessar tilslakanir að
loknum ríkisstjórnarfundi í gær.
„Við náttúrlega gengum mjög
langt um mánaðamótin júní-júlí, og
það er það sem nágrannaríki okkar
eru að gera núna. Við höfum fengið
þá reynslu að fá mjög hastarlega
bylgju yfir okkur þannig að við teljum
ekki forsvaranlegt að aflétta öllu í
einu skrefi aftur því þá gætum við
lent í sömu stöðu með fullbólusett
samfélag,“ segir Svandís, spurð hvers
vegna hún gekk ekki lengra.
Hefur talað fyrir afléttingum
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
dómsmálaráðherra vildi sjá enn frek-
ari afléttingar: „Ég hef auðvitað talað
fyrir á þessum fundum sem og öðrum
umfangsmeiri afléttingum þegar
staðan er eins góð og blasir við. Engri
grímuskyldu, auknu frelsi og eðli-
legra lífi. Þetta er ágætt skref en að
mínu mati kallar staðan sem er uppi
ekki á íþyngjandi aðgerðir heldur að
við förum frekar að treysta fólki fyrir
sínum eigin sóttvörnum og ábyrgð,
byggt á þeirri reynslu sem allir Ís-
lendingar hafa fengið á síðustu 19
mánuðum.“
Þó að hún hefði viljað sjá heilbrigð-
isráðherra ganga lengra segir hún
skrefið mikilvægt og telur að það
muni sérstaklega vera til bóta fyrir
ungmenni á skólaaldri. Júlíus Viggó
Ólafsson, forseti Sambands íslenskra
framhaldsskólanema, tekur í sama
streng.
„Tíðindin eru vissulega gleðiefni
fyrir framhaldsskólanema. Staðnám-
ið er mikilvægt og við vorum þess
vegna mjög ánægð með að það héldi í
byrjun annar, en nýjustu breytingar
veita nú nemendafélögunum betra
umhverfi til að halda viðburði fyrir fé-
lagsmenn sína,“ segir Júlíus Viggó
baldurb@mbl.is
Rýmri takmarkanir
taka gildi í dag
- Grímuskylda áfram - Framhaldsskólanemar fagna
Breytingar á samkomutakmörkunum
Frá og með 15. september til 6. október Heimild: Stjórnarráðið
Almennar fjöldatakmarkanir verða
500 manns en nálægðar-
takmörkun verður
almennt óbreytt 1 metri
Hámarks-
fjöldi á hrað-
prófsvið-
burðum
verður
1.500
manns
Veitingastaðir, þar sem heimilaðar
eru áfengisveitingar, mega
hafa opið til miðnættis
og verða að tæma
staðinn fyrir kl. 01.00
Grunn- og
framhalds-
skólum verður gert heimilt
að halda
samkomur fyrir
nemendur fyrir
allt að 1.500
gesti
Kjósendum á
kjörskrá í
Reykjavíkurkjör-
dæmunum tveim-
ur hefur fækkað
um alls 690 frá al-
þingiskosningun-
um 2017, sam-
kvæmt nýjum
tölum frá skrif-
stofu borgar-
stjórnar.
„Það er gjarnan talað um mikið
uppbyggingarskeið í Reykjavík, en
það segir ákveðna sögu þegar kjör-
skráin minnkar á fjórum árum. Ein-
mitt á tímabili þegar var mikill hag-
vöxtur í landinu,“ sagði Eyþór
Laxdal Arnalds, borgarfulltrúi og
oddviti Sjálfstæðisflokksins í borg-
arstjórn.
„Það er alveg ljóst að margir hafa
flutt úr borginni miðað við þessar
tölur. Það er þvert á það sem borgar-
stjóri hefur sagt um þetta mikla upp-
byggingarskeið. Þetta er hluti af
þeim tölum sem sýna að straumur-
inn liggur ekki bara í Mosfellsbæ og
Garðabæ heldur einnig í Reykja-
nesbæ og Árborg. Væri allt eðlilegt
hefði átt að fjölga talsvert á kjör-
skránni í Reykjavík. Þetta er enn ein
sönnun þess að fólkið er að fara ann-
að en til Reykjavíkur.“ Kjörskrá var
samþykkt á fundi borgarráðs 9. sept-
ember. gudni@mbl.is
Kjósendum fækkar í Reykjavík
- Margir hafa flutt úr borginni, segir Eyþór Arnalds
Eyþór L.
Arnalds