Morgunblaðið - 15.09.2021, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2021
2021 ALÞINGISKOSNINGAR
DAGMÁL
Andrés Magnússon
Stefán Einar Stefánsson
Inga Sæland, formaður Flokks
fólksins, fer vígreif inn í síðustu
daga kosningabaráttunnar. Hún
segist finna fyrir miklum meðbyr
þessa dagana og að þar sé flokk-
urinn að uppskera fyrir þrotlausa
vinnu á vettvangi þingsins. Enginn
hafi lagt fram jafn mörgt þing-
mannamál og hún og nokkur þeirra
hafi hlotið áheyrn meirihlutans.
Inga er gestur í Dagmálum í dag,
opnu streymi á mbl.is, og svarar þar
spurningum um stefnu flokks síns.
Hann boðar kerfisbreytingar sem
miða að því að bæta stöðu hinna
verst settu í samfélaginu. Á það
m.a. að nást með því að skattleys-
ismörk verði í einni svipan færð í
350 þúsund krónur. Það verði jafn-
framt skilyrði flokksins fyrir hvers
kyns samstarfi að kosningum lokn-
um.
30 milljarða pakki
Spurð út í hvort flokkurinn hafi
reiknað kostnaðinn við þessa að-
gerð, segir Inga að hann liggi fyrir
og sé ekki óyfirstíganlegur. Þó hafi
flokkurinn viljað færa mörkin ofar,
en þess sé ekki kostur nú.
„Eini kostnaðurinn sem er sýni-
legur er um 30 milljarðar sem ríkið
verður að koma með til sveitarfélag-
anna, því að þeir sem eru með
lægstu tekjurnar […] fjármunirnir
sem eru að fara frá þeim eru í formi
útsvars til sveitarfélaganna. Það er
það sem ríkissjóður þyrfti og við
ætlumst til að hann taki á sig og
skili til sveitarfélaganna.“
Hún segir það ekki kalla á skatta-
hækkanir, heldur tilfærslur og
breytingar á núverandi skattkerfi.
„Við viljum færa persónuafslátt-
inn frá mér, og örugglega eruð þið
báðir með það há laun að ég myndi
hrifsa hann af ykkur líka. Ég myndi
taka persónuafsláttinn af þeim sem
hafa miklu meira en nóg fyrir sig og
færa hann til þeirra sem eiga bágt.
Þetta eru um 56 milljarðar króna í
þessu tilfærslukerfi sem fara frá
hinum efnameiri til þeirra sem þurfa
virkilega á okkar hjálp að halda.“
Á hvaða launum er fólkið sem
verður fyrir þessum skerðingum?
„Þetta er fallandi persónu-
afsláttur sem byrjar strax að falla í
öðru þrepinu þegar þú ert kominn
með rétt tæpar 600 þúsund krónur.
Þeir sem eru í meðallaunum eða
undir því fá heldur fleiri krónur en
færri. Við getum dálítið stýrt því
með kvarðanum hvort við getum lát-
ið hann falla hratt eða vera aflíð-
andi.“
Þið viljið þá hækka skatta á fólk
með 600.000 krónur eða meira?
„Ja, það má kannski orða það sem
svo. Við viljum alla vega taka pínu-
lítið af persónuafslættinum. Það er
sanngjarnt, réttlátt og eðlilegt,“
sagði Inga og ítrekaði í léttum dúr
að hún myndi hækka skattinn enn
meira á fyrirspyrjendur í þættinum.
Kallar eftir grundvallarbreyt-
ingum á fjármálakerfinu
Inga fer ófögrum orðum um ís-
lenska fjármálakerfið og vill láta
banna verðtryggingu á neytenda-
og fasteignalánum. Flokkurinn hafi
viljað aftengja verðtrygginguna
vegna þeirra áhrifa sem kórónu-
veiran hefur haft á verðbólgu, en að
bannið eigi þó að gilda til framtíðar.
Hún segir það nauðsynlegt. Fátækt
fólk sé neytt til að taka verðtryggð
lán þar sem greiðslubyrði óverð-
tryggðra lána sé svimandi há.
Hún er þá spurð hvernig Flokkur
fólksins vilji verja fólk fyrir áhrifum
verðbólgunnar á óverðtryggð lán
sem séu ekki síður næm fyrir þeim
vágesti og segir hún mikilvægt að
biðla til bankanna um að þeir lækki
vexti.
„Vextir eru t.d. alltof, alltof, alltof
háir miðað við stýrivexti. Þetta er
bara grín […] þeir borga okkur ekk-
ert fyrir innlánin okkar. Þeir borga
okkur ekkert fyrir fjármagnið sem
þeir fá að valsa um með sem við er-
um að leggja inn sem innlán.“
Hvernig viltu taka á þeirri stöðu?
„Við verðum bara að halda áfram
að eiga Landsbankann okkar og láta
hann verða ígildi viðskiptabanka.
Við verðum bara að gjöra svo vel að
taka allt kerfið og fínstilla það upp á
nýtt. […] Hér eigum við banka sem
okrar og kúgar og pínir okkur eig-
endur sína. Við eigum líka að að-
skilja viðskipti og fjárfestingu. Við
eigum ekki að láta það líðast að inn-
lánin okkar séu notuð í misvitrar
fjárfestingar bankanna og þeir
borga okkur núll komma eitthvað
prósent fyrir að fá peningana okkar
en svo þurfum við að borga þeim
margra prósenta – 6-7 prósenta
vexti til að fá þá lánaða til baka.“
Bankarnir kúga fólk
Hvað á að gera við innlán bank-
anna megi þeir ekki fjárfesta fyrir
þau?
„Þeir eiga bara að gjöra svo vel
að passa þá og ávaxta fyrir okkur
og vera með þetta algjörlega að-
skilið. Þeir eiga bara að fara eins
og lífeyrissjóðirnir að gambla með
peningana og fara með þá á er-
lenda markaði og kaupa ein-
hverjar tuskubúðir í London […]
Þei eiga alla vega ekki að kúga
hinn almenna Íslending. Fátækt
fólk getur ekki komið sér þaki yfir
höfuðið. Bankarnir eru fyrir fólk-
ið, fólkið er ekki fóður fyrir bank-
ana sem skila hér tugum milljarða
í arð.“
Hrein blessun að losna
við Ólaf Ísleifs og Karl Gauta
Flokkur fólksins lenti í klemmu
eftir að helmingur þingflokksins
tók þátt í óvarlegu spjalli á
Klaustri haustið 2018. Þá var
þeim Karli Gauta Hjaltasyni og
Ólafi Ísleifssyni vikið úr flokkn-
um.
„Þó að það sé ekki fallegt að
segja það þá var það blessun fyrir
Flokk fólksins og varð þess
valdandi að við Guðmundur Ingi
vorum algjörlega frjáls að þeim
verkum sem við vorum að vinna
án þess að nokkur væri að skipta
sér af því.“
Komu Ólafur og Karl í veg fyrir
að þið gætuð um frjálst höfuð
strokið?
„Já, það var í rauninni alltaf
svona þrúgandi fannst mér þetta
andrúmsloft í kringum þá og ég er
að heyra það núna út á við að
þeim leið ekki sérlega vel að vera í
þingflokki með tveimur öryrkjum.
Þetta var svolítið mikið fyrir neð-
an þeirra virðingu. Svo ég ítreka
að við vorum virkilega blessuð að
taka þá ákvörðun að láta þá fara.“
Vill nýja nálgun fjármálakerfis
- Skattahækkanir á fólk með tæpar 600 þúsund á mánuði og yfir - Vill banna verðtryggingu og
biðla til bankanna að lækka vexti - 350 þúsund króna skattleysismörk kosti 30 milljarða króna
Morgunblaðið/Eggert
Dagmál Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, er í formannaviðtali í dag og fer yfir stefnuna af skörungsskap.
Opinn fundur með Sigmundi Davíð,
Karli Gauta og Nönnu Margréti
15. september kl. 20:00. Bæjarbraut 7, Garðabæ.
Landskjörstjórn staðfesti á fundi
sínum í hádeginu í gær ákvörðun
yfirkjörstjórnar í Suðurkjördæmi
um að hafna framboði Ábyrgrar
framtíðar til alþingiskosninga í
kjördæminu. Þetta staðfesti Kristín
Edwald, formaður landskjör-
stjórnar, við mbl.is í gær.
Á fundi sínum gekk landskjör-
stjórn frá auglýsingu framboðslista
til birtingar í öllum kjördæmum,
nema hvað Y-listi Ábyrgrar fram-
tíðar verður eingöngu í framboði í
Reykjavíkurkjördæmi norður.
Formaður yfirkjörstjórnarinnar
sagði að undirskriftir 31 meðmæl-
anda hefði vantað upp á að skilyrði
um fjölda meðmælenda yrði upp-
fyllt, og veitti framboðinu þriggja
og hálfrar klukkustundar frest til
að bæta úr. Jóhannes Loftsson, for-
maður Ábyrgrar framtíðar, kærði
ákvörðunina til landskjörstjórnar.
Sagði hann ástæðu kærunnar þá að
ómögulegt hefði verið að ná inn til-
skildum fjölda á þeim tíma sem
uppgefinn var, þar sem fólk sem
ekki er með rafræn skilríki gat ekki
skilað inn meðmælum nema á papp-
ír.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kosningar Landskjörstjórn gekk frá framboðslistum á fundi sínum í gær.
Framboðinu hafnað
- Landskjörstjórn gengur frá auglýs-
ingu framboðslista í öllum kjördæmum