Morgunblaðið - 15.09.2021, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 15.09.2021, Qupperneq 25
MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2021 ✝ Þórunn Arndís Eggertsdóttir fæddist í Reykjavík 25. október 1952. Hún lést 7. sept- ember 2021 á Landspítalanum Fossvogi. Foreldrar henn- ar voru Eggert Guðjónsson vél- virki, f. 17.11. 1918, d. 27.4. 1996, og Geirlaug Þórarinsdóttir hús- freyja, f. 13.8. 1916, d. 4.5. 2000. Bræður hennar eru Guðjón Ingi, f. 12.9. 1946, og Oddur Jónas, f. 25.3. 1949. Þórunn var gift Hákoni Þor- grími Jónssyni, f. 16.6. 1950. Börn þeirra eru þrjú: 1) Eggert, f. 8.11. 1974, giftur Guðrúnu Kristínu Valgeirsdóttur. Börn Eggerts eru a) Halldór Örn, f. 2000, b) Hákon Logi, f. 2007, c) Viktor Páll, f. 2012, og d) stjúp- sonur, sonur Guð- rúnar, Gabríel Alex- ander, f. 2004. 2) Jón, f. 6.11. 1976, giftur Álfheiði Viðars- dóttur. Dóttir Jóns er a) Karen Sif, f. 1997. Börn Jóns og Álf- heiðar eru b) Iðunn Ósk, f. 2003, c) Bald- ur Már, f. 2008, og d) Óðinn Þór, f. 2011. 3) Sonja Dögg, f. 25.5. 1982, sambýlismaður hennar er Magnús Kr. Sigurðsson. Börn þeirra eru a) Emilía Björk, f. 2016, og b) Óliver Elí, f. 2019. Þórunn ólst upp í Laugarnes- hverfinu í Reykjavík og stundaði meðal annars nám við Húsmæðra- skólann á Staðarfelli áður en hún fluttist vestur á Barðaströnd vor- ið 1973. Útförin fer fram frá Laug- arneskirkju 15. september 2021 klukkan 15. Það er svo ótrúlegt að vera að skrifa minningagrein um tengda- mömmu. Hún fór allt of fljótt frá okkur og það er skrýtið að eiga aldrei aftur eftir að spjalla við hana, ræða við hana um helstu fréttir og að hafa hana ekki með okkur að fagna hinum ýmsu áföngum í framtíðinni. Ég hitti Þórunni í fyrsta skipti þegar ég fór með Jóni vestur á þorrablót í Birkimel. Mér var hent beint í djúpu laugina ef svo má segja, því ég hitti ekki bara verðandi tengdaforeldra, heldur alla aðra úr sveitinni sama kvöld. En Þórunn og Hákon tóku mér sannarlega opnum örmum og með okkur Þórunni tókst strax góð vinátta sem aldrei kom brestur í. Hún var ræðin og fyndin og ekk- ert var henni óviðkomandi, að henni fannst. Hún varð ein af mín- um uppáhaldskonum í lífinu, leið- beinandi og fylgin sér. Ég minnist þess með mikilli hlýju hvað hún tók vel á móti mér í fjölskylduna og mér fannst ég alltaf hafa þekkt hana. Ég fann strax hvað það var gott að tala við hana og ekkert vandamál var svo stórt eða svo lít- ið að hún reyndi ekki að leysa það. Því að þannig var hún, alltaf að hjálpa og alltaf að hugsa um aðra. Þegar okkur Jóni fæddist dóttir í Þýskalandi 10 vikum fyrir tímann var tengdamamma komin með beint númer hjá yfirlækni vöku- deildarinnar hér innan skamms, því við skyldum komast með hana heim sem fyrst. Þórunn var glysgjörn og vildi vera fín og það voru miklar gæða- stundir þegar stelpurnar okkar sátu með ömmu að naglalakka sig og skoða skartgripina hennar. Það var gaman að fara með henni í búðir og skoða fallega hluti og oftar en ekki keypti hún eitthvað fallegt handa krökkunum. Stund- um keypti hún líka eitthvað handa mér sem hún vissi að mér þótti fallegt, og eru þessir hlutir mér enn kærari í dag. Amma átti líka alltaf kex og strákarnir nutu þess að fá mjólk og kex og spila ólsen við ömmu á kvöldin þegar við vor- um fyrir vestan. Þórunn passaði líka stundum fyrir okkur þegar hún kom í heimsókn og sagði okk- ur að gera eitthvað skemmtilegt og þá voru miklar gæðastundir með ömmu. Þórunn var fljót að kynnast fólki og var dugleg að halda sam- bandi við það. Það var gaman að fá hana í heimsókn til okkar og með henni og ömmu minni tókst mikil vinátta. Þær sátu saman í eldhúsinu hjá ömmu, drukku mik- ið kaffi og spjölluðu um allt milli himins og jarðar. Þórunn hringdi svo reglulega í ömmu til að spjalla og ömmu þótti svo vænt um það allt fram á síðasta dag. Það er því með miklum trega að ég kveð yndislegu tengdamóð- ur mína, stórbrotna konu sem var svo stór hluti af mínu lífi. Stórt skarð er höggvið í fjölskylduna og við yljum okkur við minninguna um elsku Þórunni. Ég mun alltaf sakna hennar en ég veit að amma bíður í Sumarlandinu með kaffi- bollann fyrir hana. Ástarkveðja, Álfheiður Viðarsdóttir. Elsku, elsku Þórunn. Ég trúi því eiginlega ekki að komið sé að kveðjustund. Þú ert búin að vera hjá mér síðustu daga, bregður upp í huga mér, iðulega hlæjandi við eldhúsborðið á Vaðli með græna kaffiglasið í hendi, hálffullt af mjólk með smá kaffidreitli. Það koma upp ótal minningar úr sveitinni minni, Vaðall var allt- af heim og það fannst þér ekki leiðinlegt. Þar eyddi ég öllum sumrum og vildi hvergi annars staðar vera. Þú tókst þannig við uppeldinu hluta af ári og þurftir að tækla prakkarastrikin sem fylgja sumrinu í sveitinni. Þá minnist ég þess sérstaklega þegar ég útskrifaðist loksins úr háskóla. Þú varst í bænum og tókst ekki annað í mál en að vera viðstödd útskriftina, enda áttir þú svo mikið í mér. Uppdubbuð mættir þú í Hörpu og komst svo með mér heim eftir athöfnina. Þar vildir þú sitja og spjalla yfir kaffi- bolla við eldhúsborðið og skildir ekkert í mér að eiga ekki nema rjóma í kaffið, sem þú þáðir nú samt og líkaði ekkert illa við. Það var svo gott að koma í sveitina sína aftur síðasta haust, bæði í sumarfrí og smala- mennsku. og þær minningar munu ylja um ókomna tíð. Þú varst einstök í orðsins fyllstu merkingu. Gjöfin Ég veit ekki hvort þú hefur huga þinn við það fest að fegursta gjöf sem þú gefur er gjöfin sem varla sést. Ástúð í andartaki, augað sem glaðlega hlær, hlýja í handartaki, hjarta sem örar slær. Allt sem þú hugsar í hljóði heiminum breytir til. Gef þú úr sálarsjóði sakleysi, fegurð og yl. (Úlfur Ragnarsson) Hvíl í friði elsku besta Þórunn. Rebekka Helga. Mig langar að minnast yndis- legrar vinkonu, Þórunnar á Vaðli, með nokkrum orðum þótt í raun þurfi meira en nokkur orð til þess. Ég kynntist henni fyrst þegar við vorum að vinna saman í fiski á Patró 1998 og þá gerði ég mér engan veginn grein fyrir hversu stór þáttur hún ætti eftir að vera í lífi mínu. Í desember 2000 eignast ég Halldór son minn með Eggerti syni hennar og upp frá því eignast ég dásamlega vinkonu sem ég gat alltaf leitað til. Hún var Halldóri frábær amma og það besta sem hann vissi var að fara í sveitina til ömmu og afa. Fyrstu árin lét hann stjana við sig en seinni árin fór hann til að hjálpa þeim með búskapinn. Þórunn var svo sann- arlega vinur vina sinna og gerði allt fyrir fólkið sitt og fékk ég oft njóta þess, það er fátt ef nokkuð sem hún gerði ekki fyrir Halldór. Eftir að ég eignast Díönu og Odd tók hún þeim eins og þau væru hennar, þau fengu til að mynda alltaf jólagjafir frá henni. Þegar Díana var lítil var hundur á Vaðli sem hét Perla og bað Díana alltaf um að fara til ömmu og Perlu. Díana tók upp á því að slá þessum orðum saman og eftir það talaði hún um ömmu Perlu og þótti Þór- unni afar vænt um það. Voru til að mynda jólakortin merkt frá ömmu Perlu. Þórunn og Hákon hjálpuðu mér svo mikið þegar Halldór minn var lítill, sérstaklega fyrstu árin. Ég kem ég aldrei til með að geta þakkað þeim nóg fyrir það. Síðastliðið vor sendi ég nokkrar hveitikökur með Halldóri þegar hann fór í sauðburð til ömmu sinnar og afa. Þórunn hringdi í mig stuttu seinna og bað mig að baka smá fyrir sig, sem var að sjálfsögðu ekkert mál. Ég sagði við Þórunni að ég vildi ekki taka neitt fyrir baksturinn þar sem hún ætti þetta inni hjá mér. Hún var hins vegar ekki á því máli og hafði betur í þeim samræðum okkar eins og svo oft áður. Þórunn var miklu meira en bara amma Halldórs; hún var hluti af fjölskyldunni. Hún þekkti ömmur mínar meðan þær lifðu, foreldrar og systkini þekktu hana öll og fylgdust því allir með skyndilegum veikindum hennar. Takk elsku Þórunn fyrir allt sem þú gerðir fyrir Halldór og okkur fjölskylduna. Ég er svo þakklát fyrir hvað þú tókst Halldóri og mér opnum örmum frá fyrsta degi. Finnst sárt að hafa ekki getað gefið til baka eins og ég hefði viljað. Elsku Hákon, Eggert, Jón, Sonja og fjölskyldur, ég votta ykkur mína allra dýpstu samúð. Missir ykkar er mikill. Finnst tilheyrandi að ljúka þessu, líkt og Þórunn kvaddi mig yfirleitt: Bless elsku vinkona. Fanney Inga. Fáein kveðjuorð til að þakka liðna tíma. Við áttum margar góð- ar stundir saman í gegnum árin. Minningar sem ylja á þessari stundu. Við áttum góðar stundir við sláturgerðina á haustin. Öll símtölin þegar þú sagðir mér hvað var að gerast hjá börnunum þínum, þú varst svo innilega stolt af þeim og ánægð með þau. Barnabörnin veittu þér líka svo mikla gleði og þú sagðir mér stolt sögur af þeim. Ófá áramót höfum við átt saman með ykkur hjónum, það eru ógleymanlegar minning- ar. Skemmtilegar minningar frá landbúnaðarsýningum hér heima og erlendis. Ferðirnar með kven- félaginu Neista, bæði innanlands- og utanlandsferðir. Börnin okkar Árna og barnabörn minnast Þór- unnar á Vaðli með hlýju og þakka henni væntumþykju og gjafmildi í gegnum árin. Fyrir allar þessar minningar og vinskapinn í gegn- um árin vil ég þakka þér, kæra vinkona. Við fjölskyldan biðjum góðan guð að styrkja og varðveita elsku Hákon, börnin ykkar og barnabörn. Far í friði. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Guðrún á Krossi. Þórunn Arndís Eggertsdóttir Elsku systir okkar, mágkona og frænka, GÍGJA GUÐFINNA THORODDSEN, Starengi 6, Reykjavík, sem lést 8. september, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 21. september klukkan 15. Ásta St. Thoroddsen Bolli Héðinsson Einar Gunnar Guðmundsson Sverrir Bollason Atli Bollason Brynhildur Bolladóttir Ólafur E. Thóroddsen Ólöf Jónína Thoroddsen Hrafnhildur Thoroddsen Faðir okkar, EINAR GUÐLAUGSSON, lést á heimili sínu 30. ágúst. Útför fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 16. september klukkan 13. Athöfninni verður streymt frá www.streyma.is. Margrét Bóthildardóttir Guðlaug Einarsdóttir Okkar ástkæra DAGBJÖRT LÁRA SVERRISDÓTTIR lífeindafræðingur lést á heimili sínu í San Diego 28. desember 2019. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 21. september klukkan 13. Daniel Michael Kempf Shakara Thompson Sverrir Edvaldsson Gerd Jorunn Christensen Ragnheiður D. Steinþórsd. Logi Hjartarson Björgvin Daði Sverrisson Helena Ketilsdóttir Ásgerður Sverrisdóttir Hilmir Þór Kjartansson Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, SIGTRYGGS SVEINS BRAGASONAR. Elísabet Jóhannsdóttir Ragnheiður V. Sigtryggsd. Ágúst Loftsson Ingibjörg Sigtryggsdóttir Niclas Jessen Vilhjálmur, Kjartan, Loftur, Nói Leó, Rúrik og Dagbjört Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTJÁN ÓLAFSSON, áður til heimilis á Hraunbraut 43 í Kópavogi, lést á Hjúkrunarheimilinu Grund 7. september. Útförin fer fram í kyrrþey. Þökkum hlýhug og vinsemd, sérstakar þakkir til starfsfólks V3 á Grund. Edda Bergmann Guðmundsdóttir Gróa Kristjánsdóttir Þorvaldur Þorvaldsson Kristján Þorvaldsson Helena Sif Magnúsdóttir Edda Sif B. Þorvaldsdóttir Guðmundur Hreinn Gíslason Gróa Mjöll, Róbert Ingi, Gísli Þór og Óliver Ingi ✝ Jóna Guðrún Kristinsdóttir fæddist í Reykjavík 26. apríl 1931. Hún lést á Heilbrigð- isstofnun Suð- urnesja 29. júní 2021. Foreldrar henn- ar voru Kristinn Jónsson, f. 7. feb. 1899, d. 20. sept. 1949 og Álfheiður Jóna Jónsdóttir, f. 24. des. 1903, d. 22. des. 1982. Systkini Jónu voru Sig- urbjörg Lilja, f. 1925, Sig- urbjörn, f. 1927, Guðbjartur, f. 1933 og Einar, f. 1934. Þau eru öll látin. Jóna giftist Sveini Jenssyni matreiðslumanni frá Seyð- isfirði, f. 12. júní 1928, þann 14. júní 1952. Foreldrar hans voru Esther Jóhannesdóttir og Jens Pétur Sveinsson en Sigmar Brynjólfsson gekk honum í föð- urstað. Bróðir Sveins var Kjart- an Jensson, hann er látinn. Hálf- systkini hans eru Ellert Líndal Jensson og Hulda Jensdóttir. Börn Jónu og Sveins eru: 1) Jón Heiðar, f. 31. ágúst 1952, hann var giftur Sigrúnu Guð- jónsdóttur, f. 20. okt. 1953, d. 3. sept. 2013, þau eignuðust Hólm- fríði, Svein Gunnar og Berg- lindi. Núverandi sambýliskona er Sigrún Harpa Hauksdóttir. 2) Esther Selma, f. 23. sept. 1953, hún var gift Frið- riki Gissurarsyni, f. 21. mars 1949, þau slitu samvistum og eiga þau Hjördísi, Katrínu og Fjólu. 3) Lilja, f. 3. maí 1955, barnsfaðir hennar var Páll Arnar Ragnarsson sem er látinn, þau eign- uðust Gylfa Þór. 4) Sveinbjörn, f. 30. maí 1967, hann á soninn Aron Viktor. Ung að árum eða 14 ára göm- ul til tvítugs vann Jóna í sælgæt- isgerðinni Ópal. Stuttu síðar kynntist hún eiginmanni sínum og hófu þau búskap í Laug- arnesinu og síðar í Nökkvavog- inum. Árið 1956 gerðust þau ein af frumbyggjum Árbæj- arhverfis. Ásamt því að ala upp börnin vann Jóna í Selásbúð. Vegna starfa Sveins lá leið þeirra hjóna víða. Árið 1963 voru þau á Höfn í Hornafirði. Árið 1969-1972 ráku þau hjónin Hótel Varmahlíð í Skagafirði. Þau fluttu svo til Njarðvíkur 1977. Jóna átti auðvelt með að laga sig að nýjum heimkynnum og gekk í hlutina af áræði. Jóna Guðrún eignaðist 4 börn, 8 ömmubörn, 13 langömmubörn og 1 langalangömmubarn. Bálför hefur farið fram og jarðsett í Hafnarfjarðarkirkju- garði. Elsku amma Jóna, mig langar til að þakka þér fyrir ljúfu og góðu stundirnar sem ég átti með þér. Allt frá því að ég var skírð á 50 ára afmælisdegi þínum og þar til við vorum tvær saman og ég hélt í hönd þína þegar þú kvadd- ir. Minningarnar eru margar, jólaböllin í Stapanum og svo jóla- matur hjá ykkur afa á eftir, það var svo gaman, öll fjölskyldan saman alveg eins og þú vildir hafa það. Pönnukökurnar þínar vin- sælu. Ferðalögin í Húsafell og gistinæturnar hjá þér og afa með heita pottinum úti í garði. Það var alltaf svo gott að koma til ykkar og finn ég fyrir mikilli hlýju og þakklæti þegar ég hugsa til þín. Þín Fjóla. Jóna Guðrún Kristinsdóttir Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birt- ingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.