Morgunblaðið - 15.09.2021, Blaðsíða 31
ÍÞRÓTTIR 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2021
Jason Daði Svanþórsson, sóknarmaður Breiðabliks, var besti leikmaðurinn
í 20. umferð úrvalsdeildar karla í knattspyrnu, Pepsi Max-deildarinnar, að
mati Morgunblaðsins. Jason Daði átti frábæran leik fyrir Blika þegar liðið
vann 3:0-sigur gegn Íslandsmeisturum Vals á Kópavogsvelli en hann gerði
sér lítið fyrir og lagði upp tvö mörk í leiknum og fékk tvö M í einkunn hjá
blaðinu fyrir frammistöðu sína.
Fjórir aðrir leikmenn fengu tvö M, þeir Jónatan Ingi Jónsson og Matt-
hías Vilhjálmsson, sem áttu frábæran leik fyrir FH þegar liðið vann Stjörn-
una, Kennie Chopart sem fór fyrir liði KR sem vann Keflavík og Skaga-
maðurinn Viktor Jónsson sem var öflugur í sigri ÍA gegn Leikni.
20 . umferð
í Pepsi Max-deild karla 2021
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
23-4-3
Anton Ari Einarsson
Breiðablik
Erlingur
Agnarsson
Víkingur
Jason Daði Svanþórsson
Breiðablik
Matthías
Vilhjálmsson
FH
Jónatan Ingi
Jónsson
FH
Höskuldur
Gunnlaugsson
Breiðablik
Árni Vilhjálmsson
Breiðablik
Kennie Chopart
KR
Mikkel Qvist
KA
Viktor Jónsson
ÍA
Aron Kristófer Lárusson
ÍA
2
3 1
2
3
4
5 7
4
4 1
Jason bestur í 20. umferð
Sauðárkróki fékk 18 M og hafnaði í
öðru sæti. Michel átti frábært sum-
ar með liði Tindastóls og átti hvern
stórleikinn á fætur öðrum í mark-
inu. Þrátt fyrir það tókst henni
ekki að koma í veg fyrir fall liðsins
úr efstu deild en liðið, sem var ný-
liði í deildinni, hafnaði í níunda og
næstneðsta sætinu.
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir,
leikmaður Breiðabliks, og Kather-
ine Cousins, miðjukona úr Þrótti,
fengu báðar 16 M í sumar og urðu
jafnar í þriðja til fjórða sæti. Ás-
laug Munda lék hins vegar fimmtán
leiki í sumar en Cousins lék sautján
en Áslaug Munda hélt í háskóla-
nám til Bandaríkjanna seinni part
ágústmánaðar og missti því af síð-
ustu þremur umferðunum.
Arna Sif valin oftast
Cousins stýrði miðjuspili Þróttar
af mikilli yfirvegun í allt sumar en
liðið, sem spáð var falli í spá fyrir-
liða, þjálfara og forráðamanna liða
í deildinni, hafnaði í þriðja sætinu.
Arna Sif Ásgrímsdóttir, fyrirliði
Þórs/KA, varð fimmta með 15 M en
hún var besti leikmaður Akureyr-
inga í sumar og var níu sinnum í
liði umferðarinnar hjá Morg-
unblaðinu, oftast allra.
Natasha Anasi, fyrirliði Kefla-
víkur, varð sjötta með 15 M en hún
átti stóran þátt í því að Keflavík
hélt sæti sínu í deildinni. Keflavík,
sem var nýliði líkt og Tindastóll,
hafnaði í áttunda sæti deildarinnar
og tryggði sæti sitt endanlega í
efstu deild í lokaumferðinni.
Liðsfélagi hennar Aerial Chav-
arin og Íslandsmeistarinn Elín
Metta Jensen fengu báðar 13 M í
sjöunda til áttunda sætinu. Chav-
arin var langmarkahæsti leikmaður
Keflavíkur í sumar með 7 mörk en
Elín Metta skoraði 11 mörk í sex-
tán leikjum og endaði sem þriðji
markahæsti leikmaðurinn.
Íslandsmeistarar Vals voru það
lið sem fékk flest M en liðið vann
deildina nokkuð örugglega og
tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn
25. ágúst þegar tvær umferðir voru
eftir af tímabilinu. Silfurlið Breiða-
bliks fylgdi fast á hæla Valskvenna
með 95 M en önnur lið áttu nokkuð
langt í land með að ná efstu tveim-
ur liðunum sem voru í sérflokki í
sumar eins og svo oft áður.
Keflavík fékk 76 M, fleiri M en
bæði Þór/KA og ÍBV sem enduðu í
sjötta og sjöunda sætinu, og þá
fékk Fylkir, sem hafnaði í neðsta
sæti deildarinnar, 65 M, þremur
meira en Tindastóll.
Úrvalslið Morgunblaðsins
Hér fyrir ofan má sjá úrvalslið
keppnistímabilsins 2021 hjá
Morgunblaðinu, ellefu byrjunar-
liðsmenn og tíu varamenn. M-
gjöfin ræður alveg liðsvalinu og til
þess að komast í byrjunarliðið
þurfti að fá 12 M. Þær Tiffany Sor-
napo, markvörður Keflavíkur, og
Andrea Rut Bjarnadóttir, leik-
maður Þróttar úr Reykjavík, fengu
báðar 12 M en þurfa að sætta sig
við að verma varamannabekkinn að
þessu sinni.
Íslandsmeistarar Vals eiga þrjá
fulltrúa í byrjunarliðinu og einn á
varamannabekknum. Breiðablik á
tvo fulltrúa og einn á varamanna-
bekknum. Þróttur á einn fulltrúa í
liðinu og einn á bekknum og þá á
Stjarnan einn fulltrúa í byrjunar-
liðinu og tvo á bekknum.
Selfoss á tvo fulltrúa á vara-
mannabekknum, Þór/KA á einn í
byrjunarliðinu og einn á vara-
mannabekknum og ÍBV á einn full-
trúa á varamannabekknum. Kefla-
vík á svo tvo fulltrúa í
byrjunarliðinu og einn á vara-
mannabekknum og Tindastóll á
einn fulltrúa í byrjunarliðinu.
Hér fyrir ofan eru svo fimm
bestu leikmennirnir í hverju liði
deildarinnar, samkvæmt M-
gjöfinni.
_ Einkunnagjöf Morgunblaðsins
er á þá leið að leikmaður þarf að
eiga góðan leik til að fá eitt M,
mjög góðan leik til að fá tvö M og
frábæran leik til að fá þrjú M.
Íþróttafréttamenn Morgunblaðsins
og mbl.is voru á öllum 90 leikjum
deildarinnar, lýstu þeim beint á
mbl.is, fjölluðu um þá í blaðinu og
þar voru einkunnir birtar eftir
hvern leik fyrir sig.
3-4-3
Hversu oft leikmaður var valinn í lið umferðarinnar2
Varamannabekkur
Fjöldi sem leikmaður fékk á leiktíð2
11
Ída Marín
Hermannsdóttir
Valur
Hulda Björg
Hannesdóttir
Þór/KA
Tiffany Sornpao
Keflavík
Brenna Lovera
Selfoss
Hildigunnur Ýr
Benediktsd.
Stjarnan
Andrea Rut
Bjarnadóttir
Þróttur
Olga Sevcova
ÍBV
12 12
11
11
11
10
5
1
5
4
3
3
3
Karítas
Tómasdóttir
Breiðablik
10
4
Amber Kristin Michel
Tindastóll
18
6
Lið ársins 2021 hjá Morgunblaðinu
Eva Núra
Abrahamsdóttir
Selfoss
11
3
Áslaug Munda
Gunnlaugsdóttir
Breiðablik
16
7
Aerial Chavarin
Keflavík
13
2
Natasha Anasi
Keflavík
14
6
Dóra María
Lárusdóttir
Valur
12
6
Agla María Albertsdóttir
Breiðablik
20
8
Elín Metta Jensen
Valur
13
3
Katherine Cousins
Þróttur
16
6
Arna Sif
Ásgrímsdóttir
Þór/KA
15
9
11
Betsy Hassett
Stjarnan
1
Mist Edvardsdóttir
Valur
12
5
Anna María
Baldursdóttir
Stjarnan
12
6
Anna María Baldursdóttir (18) 12
Hildigunnur Ýr Benediktsd. (17) 11
Betsy Hassett (15) 11
Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir (18) 7
Málfríður Erna Sigurðardóttir (12) 6
Stjarnan 80
Brenna Lovera (16) 11
Eva Núra Abrahamsdóttir (17) 11
Emma Checker (18) 8
Hólmfríður Magnúsdóttir (11) 7
Barbára Sól Gísladóttir (13) 6
Selfoss 79
Sæunn Björnsdóttir (18) 10
Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir (11) 8
María Eva Eyjólfsdóttir (18) 7
Shannon Simon (16) 7
Þórdís Elva Ágústsdóttir (16) 5
Fylkir 65
Amber Kristin Michel (18) 18
Bryndís Rut Haraldsdóttir (18) 7
Laufey Harpa Halldórsdóttir (17) 6
Murielle Tiernan (17) 5
María Dögg Jóhannesdóttir (18) 5
Tindastóll 62
Stuðningsmenn þýsku meistaranna í
Bayern München geta leyft sér að
hlakka til vetrarins í Meistaradeild
Evrópu í knattspyrnu. Bayern byrj-
aði frábærlega í riðlakeppninni í gær
og vann öruggan 3:0 sigur á Barce-
lona á útivelli í G-riðlinum. Robert
Lewandowski skoraði tvö og Thom-
as Müller eitt.
Young Boys vann Manchester
United 2:1 í F-riðli í Sviss. Það tók
Cristiano Ronaldo ekki nema þrett-
án mínútur að skora en hann lék síð-
ast fyrir United í Meistaradeildinni í
úrslitaleiknum árið 2009. Aaron
Wan-Bissaka, bakvörður United,
fékk rauða spjaldið á 35. mínútu og
þá tók leikurinn aðra stefnu. Nicolas
Ngamaleu og Jordan Siebatcheu
skoruðu fyrir Young Boys í síðari
hálfleik. Siebatcheu skoraði á
fimmtu mínútu í uppbótartíma eftir
skelfileg mistök hjá Jesse Lingard.
Sigurvegararnir í keppninni,
Chelsea, unnu Zenit Petersburg 1:0 í
London með marki Romelu Lukaku.
Young Boys vann
United í Sviss
- Draumabyrjun fyrir Bayern
AFP
Sviss Jordy Siebatcheu fagnar sigri
Young Boys gegn United í gær.
_ Birna Berg Haraldsdóttir, lands-
liðskona í handknattleik og leikmaður
ÍBV, varð fyrir því óláni að slíta kross-
band í hægra hné í leik ÍBV gegn
Gróttu í 16-liða úrslitum bikarkeppn-
innar á Seltjarnarnesi á föstudaginn
síðasta. Þetta er í þriðja sinn sem hún
slítur krossband og verður hún því frá
út tímabilið hið minnsta vegna þessa.
_ Davíð Smári Lamude, þjálfari Kór-
drengja í 1. deild karla í knattspyrnu,
hefur verið úrskurðaður í fimm leikja
bann fyrir framkomu sína í leik Kór-
drengja og Fram í Lengjudeildinni sem
fram fór á Domusnova-vellinum í
Breiðholti á laugardaginn síðasta.
Þjálfarinn fékk að líta sitt annað rauða
spjald í sumar í uppbótartíma en hann
rauk tvívegis inn á völlinn, eftir að hafa
fengið að líta rauða spjaldið, til þess
að láta dómara leiksins, Egil Arnar
Sigurþórsson, heyra það. Að auki
fengu Kórdrengir 15.000 króna sekt
vegna brottvísunarinnar.
_ Guðrún Brá Björgvinsdóttir, úr
Keili, heldur áfram keppni á Evrópu-
mótaröðinni í golfi í þessari viku. Guð-
rún Brá hafnaði í 47. sæti á svissneska
meistaramótinu sem lauk á sunnudag.
Guðrún var þá á parinu samanlagt.
Guðrún keppir næst í Frakklandi en
mótið fer fram á Chateaux-vellinum og
hefst á fimmtudag. Verður það fimm-
tánda mótið hjá Guðrúnu á mótaröð-
inni á þessu ári en hún er í 76. sæti á
stigalistanum. Fimm mót eru eftir á
tímabilinu.
_ Sóttvarnahólf á íþróttakappleikjum
hérlendis mega nú taka við 500 áhorf-
endum. Nýjar sóttvarnareglur tóku
gildi á miðnætti og voru kynntar af
Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðis-
ráðherra í gær.
Eitt
ogannað