Morgunblaðið - 15.09.2021, Qupperneq 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2021
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Þetta er bók sem er sett saman úr
efni sem ég hef verið að leika mér að
því að skrifa síðustu tuttugu árin. Ég
gerði þetta þegar ég vildi hvíla mig á
tónlistinni,“ segir sellóleikarinn
Gunnar Kvaran um nýútkomna bók
sína Tjáningu. „Þá fannst mér svo
gott að skrifa niður hugleiðingar og
hugsa um tilveruna.“
Það hafi komið fyrir að hann hafi
lesið upp úr þessum skrifum sínum
fyrir vini og vandamenn og þeir þá
hvatt hann til þess að gefa þau út.
„Þegar tíminn leið fór ég að hugsa
ráð mitt. Fyrir tveimur árum fór ég
síðan að hugsa að þótt það væri ekki
nema fyrir mig sjálfan, börnin mín
og fjölskylduna þá væri dálítið snið-
ugt að safna þessu saman. Þá
hringdi ég í nemanda minn fyrrver-
andi, sem var hjá mér fyrir 40 árum,
Svanhildi Óskarsdóttur handrita-
fræðing hjá Árnastofnun.“ Gunnar
bað hana að líta á þetta efni og setja
saman ef henni litist svo á. „Hún tók
mér afskaplega vel.“
Mikilvægt að vanda til verka
Verkinu er skipt í þrjá hluta og
listaverk eftir góðan vin Gunnars,
Pál Guðmundsson frá Húsafelli, má
finna við upphaf hvers hluta auk
þess sem mynd af verki hans „Föln-
ar fögur fold“ prýðir kápuna.
„Margrét Guðjónsdóttir þjóðfræð-
ingur tölvusetti allt verkið fyrir mig
og hvatti mig sífellt til dáða. Helga
Gerður Magnúsdóttir sá síðan um
hönnun verksins. Það sem mér
finnst skemmtilegt við hennar hönn-
un á þessari bók er hvernig hún not-
ar tvenns konar letur. Mér finnst
það mjög fallegt. Við reyndum að
vanda til verka eins og hægt er,“
segir Gunnar.
„Ég er mjög glaður yfir að hafa
komið þessu frá mér og mjög þakk-
látur fyrir þetta útlit á bókinni því
mér finnst útlit bóka hafa mikið að
segja. Stjúpfaðir minn, Hafsteinn
Guðmundsson, var bókaútgefandi og
hönnuður og hann lagði gífurlega
mikið upp úr útliti bóka. Svo ég fékk
inn með móðurmjólkinni ákveðnar
hugmyndir um að maður ætti að
vanda til verka. Ekki bara að inni-
haldið væri gott heldur væri líka
mikilvægt að bókin væri vel gerð.
Þannig getur maður séð hvernig
barnið verður fyrir áhrifum.“
Gunnar segist vera afar þakklátur
fyrir þann stuðning sem hann hefur
fengið við gerð bókarinnar. „Þetta
fólk sem hefur unnið með mér hefur
verið svo jákvætt og hvatt mig
áfram. Það var alveg geysilega dýr-
mætt og ég met það svo mikils. Sam-
starfsfólk, vinir og fjölskylda geta
haft svo mikil og góð áhrif á hvað
maður getur gert í lífinu.“
Í Tjáningu má finna hugleiðingar
um tónlist, trú og tilveruna, nokkrar
sögur af ferli Gunnars sem tónlistar-
manns auk ljóða hans. „Þar kennir
ýmissa grasa. Ég hef ekki haft
áhuga á að skrifa ævisögu mína en
þeir sem þekkja mig munu sjá ýmis-
legt persónulegt birtast í þessari
bók og að því leyti er hún svolítið
sjálfsævisöguleg.“
Boðskapur kærleika og friðar
Spurður hvernig tónlistin og trúin
kallist á í verkinu segir Gunnar:
„Þetta tvennt, tónlistin og trúin, er
svo samtvinnað í mínum huga. Mjög
frægur bandarískur píanisti, Rudolf
Serkin, var spurður að því hvernig
hann undirbyggi tónleika og hann
svaraði: „I practice and I pray,“ eða
„Ég æfi mig og ég biðst fyrir.“ Í allri
stærstu tónlist veraldar, frá öllum
tímum, er mikill boðskapur. Það er
boðskapur kærleika, friðar, fegurðar
og snilli. Þessi boðskapur er ekki
settur fram án trúar.
Það sem mér finnst mikilvægast í
trúnni er hvernig maður lifir lífinu.
Trúin er afskaplega vítt hugtak. En
mér finnst stórkostlegur trúarlegur
boðskapur felast í því að iðka tónlist
og trúa á það sem maður er að gera í
þessari stórbrotnu tónlist sem mað-
ur er svo heppinn að hafa aðgang
að.“
Gunnar tekur tónskáldið Johann
Sebastian Bach sem dæmi. „Hann
var alveg geysilega trúaður maður
enda skrifaði hann stórfengleg
trúarleg verk. En burtséð frá því er
hin svokallaða veraldlega tónlist
Bachs gegnsýrð af trúarlegum
mætti hans. Það skín alltaf í gegn.
Þetta getur auðvitað verið mjög per-
sónubundið en fyrir mér eru tónlist-
in og trúin tvær hliðar á sama máli.“
„Lífið er mikil ögrun“
Auk skrifa um tónlist og trú eru
hugleiðingar um lífið og tilveruna
áberandi í verki Gunnars. „Lífið er
mikil ögrun. Ef maður ætlar að gera
eitthvað gott úr sínu lífi þá þarf mað-
ur virkilega að halda á spöðunum,
maður þarf að nýta hæfileika sína.
Við lendum í ýmsum erfiðleikum en
ef lífið væri ekki á köflum erfitt þá
væri ekkert gaman að þessu. Ef lífið
gerði ekki þessar kröfur til okkar að
við nýttum það sem í okkur býr af
hæfileikum, vilja og styrk, og legði
fyrir okkur verkefni, myndi það ekki
þroska okkur. Möguleikinn til
þroska liggur svo oft í því að sigrast
á erfiðleikum og þar með á sjálfum
sér. Þarna finnst mér trúin hafa
hjálpað mér geysilega mikið. Ég hef
hreinlega sagt: „Nú hef ég lagt allt í
þetta sem ég get og nú bið ég um
hjálp,“ og mér finnst ég hafa fengið
hana.“
Algjörlega framúrskarandi
Gunnar er kominn hátt á áttræðis-
aldur og því farinn að draga úr tón-
leikahaldi og kennslu. „Ég er enn að
kenna svolítið, ég hef mjög gaman af
því. Það er alveg dásamlegt.“ Hann
byrjaði að kenna 19 ára gamall og
hefur því kennt í 58 ár. „Ætli ég
hætti ekki þegar ég er búinn að ná
60 árum. Þá verður þetta orðið gott.
Ég myndi taka svo sterkt til orða að
það að kenna hafi verið mín köllun.
Það hefur gefið mér alveg gífurlega
mikið að fá að vera hluti af uppbygg-
ingu þessa unga fólks og ég er svo
hamingjusamur að sjá í dag unga
tónlistarfólkið okkar. Það er al-
gjörlega framúrskarandi. Mér finnst
undravert að hugsa um þá þróun
sem hefur átt sér stað í íslensku tón-
listarlífi síðastliðin fjörutíu ár.“
Gunnar trúir því að tónlistin geti
skipt sköpum í lífi fólks. „Ég hef
áhyggjur af því að ungt fólk sem fer
út af sporinu hafi ekki neinn and-
legan bakhjarl að leita til. Það er
kannski sjálfhverft að segja þetta en
ég held að tónlist, tónlistarnám og
tónlistariðkun sé ein besta forvörn
sem til er. Mér finnst eins og tónlist-
arnám og tónlistariðkun sé vernd-
andi hjúpur yfir börnum og ung-
mennum. Það er heilandi afl í góðri
tónlist.“
Morgunblaðið/Eggert
Höfundur „Ég er mjög glaður yfir að hafa komið þessu frá mér og mjög þakklátur fyrir þetta útlit á bókinni því mér
finnst útlit bóka hafa mikið að segja,“ segir Gunnar Kvaran sellóleikari um verk sitt Tjáningu.
„Það er heilandi afl í góðri tónlist“
- Bókin Tjáning hefur að geyma hugleiðingar og ljóð Gunnars Kvarans sellóleikara - Um tónlist,
trú og tilveruna - „Fyrir mér eru tónlistin og trúin tvær hliðar á sama máli,“ segir höfundurinn
»Margar helstu stjörnur
skemmtanalífsins vest-
anhafs, þeirra á meðal tón-
listarfólk, leikarar og af-
reksfólk í íþróttum, mættu
í vikubyrjun á glyssýningu
Met Gala í New York.
Viðburðurinn er haldinn í
Metropolitan-listasafninu
og er tilefnið að safna fé
fyrir búningadeild safnsins
sem geymir margar frægar
og merkar flíkur.
AFP
Glæsileg Tónlistarkonan Billie Eilish var einn gestgjafa kvöldsins.
Kærustupar Rihanna og A$AP Rocky tóku sig vel út á rauða dreglinum.
Töff Tónlistarkonan Jennifer Lopez þótti að vanda smekkleg í
múnderingu sinni. Hún bar hatt og stórgerð hálsmen vel.
Glamúrsýning stjarnanna á Met Gala í New York
Gullbrynja Rapparinn Lil Nas X vakti athygli
fyrir gullbrynjuna sem hann klæddist.
Eftirminnileg
Fyrirsætan
Hunter Schafer
hefur látið mál-
efni hinsegin
fólks sig varða.