Morgunblaðið - 15.09.2021, Page 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2021
Nú liggur fyrir hvaða kvikmyndir
verða sýndar í flokknum Fyrir
opnu hafi á Alþjóðlegri kvikmynda-
hátíð í Reykjavík, RIFF, en í hon-
um eru ávallt sýndar nýjar myndir
hæfileikaríkra leikstjóra sem hlotið
hafa lof og viðurkenningu.
Helmingur myndanna í flokknum
í ár hlaut ýmist tilnefningu eða
verðlaun á kvikmyndahátíðinni í
Cannes í sumar, að því er fram
kemur í tilkynningu frá hátíðinni.
Myndirnar átta sem sýndar verða
eru eftirfarandi:
Síðasta kvikmyndasýningin /
Last Film Show
Indversk mynd sem segir af níu
ára dreng, Samay, sem býr með
fjölskyldu sinni í afskekktu þorpi á
Indlandi. Þegar hann uppgötvar
kvikmyndir í fyrsta sinn verður
hann gjörsamlega heillaður og
stelst í bíó daglega. Þar vingast
hann við sýningarstjórann og borg-
ar fyrir sýningar með hádegis-
matnum sínum.
Brighton fjórða / Brighton 4th
Fyrrverandi fjölbragðaglímu-
kappi ferðast frá Tblísí í Georgíu til
Brooklyn til að bjarga syni sínum
frá fjárhættuspilaskuld. Hann man-
ar lánardrottin í hringinn með því
skilyrði að sigri hann verði dreng-
urinn laus allra mála. Myndin hlaut
þrenn verðlaun á Tribeca-hátíðinni
í sumar; fyrir besta leikara í aðal-
hlutverki, bestu kvikmynd og besta
handritið í alþjóðlega flokknum.
Keyra bílinn minn /
Drive My Car
Aðlögun á smásögunni „Karlar
án kvenna“ eftir Haruki Murakami.
Leikstjóra er boðið að stýra leikriti
á hátíð í Hiroshima ekki löngu eftir
andlát eiginkonu hans. Bílstjórinn
hans er stóísk kona og með þeim
myndast trúnaðarsamband.
Myndin hlaut fjórar tilnefningar í
Cannes.
Stóra frelsi / Große Freiheit
Í Þýskalandi eftirstríðsáranna
situr Hans ítrekað bak við lás og
slá sökum kynhneigðar sinnar.
Honum býður við klefafélaganum
sem er dæmdur morðingi en með
þeim takast síðar ástir. Myndin
hlaut fjórar tilnefningar og þrenn
verðlaun á Cannes.
Tungl, 66 spurningar /
Selene 66 Questions
Ung kona sem býr í París þarf
að snúa aftur til Aþenu til að ann-
ast föður sinn sem hún hefur átt í
litlu sambandi við. Við tekur til-
finningaþrungið sumar þar sem
hún kemst að ýmsu leyndu í hans
fari og samband þeirra verður
betra.
Flensa Petrovs /
Petrovy v grippe
Umfjöllunarefni þessarar mynd-
ar er dagur í lífi myndasagnahöf-
undarins Petrovs og fjölskyldu
hans í Rússlandi eftir fall Sovét-
ríkjanna. Petrov er veikur og bor-
inn af vini sínum Igor dágóðan spöl
og flakkar hann milli heima í hug-
anum.
Ég er þinn maður /
Ich bin dein Mensch
Vísindakona ákveður að taka
þátt í óvenjulegri tilraun; að búa
með vélmenni með gervigreind í
þrjár vikur. Vélmennið er eins og
manneskja að öllu leyti og hannað
sem hinn fullkomni lífsförunautur.
Kýr / Cow
Fyrsta heimildarmynd breska
verðlaunaleikstjórans Andreu Arn-
old. Myndin er sögð hápólitísk og
draga upp nærmynd af hversdags-
lífi tveggja kúa. Er hún sögð frá
sjónarhorni kýrinnar Lumu og
fylgst með daglegu lífi hennar í
nokkur ár. Fólk kemur þar lítið við
sögu.
Vélmenni, kýr og bíótöfrar
- Átta áhugaverðar kvikmyndir verða
sýndar í Fyrir opnu hafi á RIFF
- Helmingur þeirra hlaut tilnefningar
eða verðlaun á í Cannes í sumar
Kýr Heimildarmynd sem fjallar um kýr og koma menn þar lítt við sögu.
Bíó Samay heillast af kvikmyndum í Síðustu kvikmyndasýningunni.
Í fangelsi Í þýsku kvikmyndinni Stóra frelsi segir af ástum fanga.
Edda Halldórs-
dóttir sýningar-
stjóri verður með
síðustu hádegis-
leiðsögnina um
sýninguna Eilíf
endurkoma –
Kjarval og sam-
tíminn á Kjar-
valsstöðum í dag
kl. 12. Á sýning-
unni mynda verk
Jóhannesar S. Kjarvals þráð sem
tengir tvenna tíma; verkum hans
teflt fram með verkum myndlistar-
manna sem sett hafa svip sinn á ís-
lenskt listalíf hin síðustu ár. Skrán-
ing í leiðsögnina er ekki nauðsynleg.
Edda segir frá
Edda
Halldórsdóttir
Sundbíó er einn af föstum liðum
RIFF og verður engin breyting þar
á í ár. Sundbíóið fer fram föstu-
dagskvöldið 1. október kl. 19.30 í
Sundhöllinni og verður gaman-
myndin The Life Aquatic with
Steve Zissou, eða Á sjó með Steve
Zissou, þá sýnd. Verður mikið lagt í
þessa uppákomu, skv. tilkynningu,
og mega gestir búast við óvæntum
uppákomum. Myndin gerist að
mestu á sjó, eins og sjá má af titl-
inum, og þá einnig neðansjávar.
Kvikmyndinni var leikstýrt af
bandaríska leikstjóranum Wes
Anderson og eru margir þekktir
leikarar í henni, þeirra helstir Bill
Murray, Owen Wilson, Cate Blanch-
ett, Willem Dafoe, Jeff Goldblum og
Anjelica Huston. Myndin fjallar um
sjávarkönnuðinn Steve Zissou sem
er að vinna að nýrri heimildarmynd
en félagi hans deyr í óvenjulegu há-
karlaslysi. Zissou og áhöfn hans
fara í leiðangur til að finna hákarl-
inn og lenda í ýmsum ævintýrum á
leiðinni. Takmarkaður fjöldi miða
verður í boði og miðasala á riff.is.
Á sjó í sundbíói
Sundbíó Frá sundbíói í Sundhöllinni í
Reykjavík fyrir þremur árum.
Morgunblaðið/Eggert