Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.09.2021, Blaðsíða 2
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.9. 2021
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
., '*
-�-"%
,�rKu!,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
Iðnaðareiningar
í miklu úrvali
Svo djörf gerðist ég um daginn að ég skellti mér til Kaupmannahafn-
ar og fór þar með í fyrsta sinn út fyrir landsteinana í tuttugu mán-
uði. Það var sannarlega ljúft að ferðast og minna mál en ég hélt. Í
Danmörku gengur lífið sinn vanagang og þar ber enginn grímu neins
staðar, nema á Kastrup. Meira að segja leigubílstjórinn sem keyrði okkur
frá vellinum vildi ekkert hafa okkur farþeganna með grímu. Við ættum
að slaka líka aðeins á hér á landi.
Að öðrum og alvarlegri málum er harmleikurinn í Afganistan efstur á
baugi. Mikið finn ég til með afgönsku þjóðinni. Það er ekki hægt að setja
sig í hennar spor. Á meðan við völsum frjáls um götur Reykjavíkur, og
Kaupmannahafnar þegar því er að skipta, eru aðrir ekki jafn heppnir.
Sannarlega ekki.
Hér í blaðinu má lesa viðtal við
ung hjón sem hingað eru flúin, en
bæði voru í lífshættu í Afganistan.
Þau eru hámenntuð og hafa starf-
að fyrir stjórnvöld og hún verið
ötul í jafnréttisbaráttu. Nú er sú
barátta þar töpuð og landið horfið
aldir aftur í tímann hvað jafnrétti
og stjórnarhætti varðar. Konur
eiga ekki lengur að láta í sér
heyra, hvað þá mennta sig og láta
til sín taka. Talibanar leita nú með
logandi ljósi af fólki eins og þeim
og þeirra bíða aðeins grimm örlög.
Framtíð afgönsku þjóðarinnar er
svört eins og eiginmaðurinn benti á. Kolsvört og engin glæta í augsýn.
Hjónin ungu þurfa nú að reiða sig á hjálpsemi Íslendinga, hjálpsemi
sem er okkur ljúf og skyld. Það mætti sannarlega hjálpa fleirum en þeim
sem eru á lista stjórnvalda því hvert mannslíf er dýrmætt.
Hjónin eru slypp og snauð og geta aldrei snúið aftur til heimalandins.
Mögulega sjá þau aldrei aftur bræður sína og systur, foreldra og vini.
Hjónin tóku þá erfiðu ákvörðun að skilja barnið sitt eftir hjá ættingjum
og flýja þegar tækifærið gafst. Barnið lenti í andnauð í þvögunni sem
myndaðist fyrir utan flugvöllinn og var hætt komið. Faðirinn þurfti að
hnoða litla brjóstkassann þar til barnið tók að anda á ný. Það var annað
hvort að skilja barnið eftir eða vera öll eftir. Framtíð barnsins var í húfi
og litli Arsalon hefði ekki verið vel settur foreldralaus í stríðshrjáðu
landi.
Hjónin eru nú óhult en bíða milli vonar og ótta eftir að fá barnið sitt til
sín. Það er þyngra en tárum taki að þurfa að skilja tveggja mánaða gam-
alt barn eftir; rífa það bókstaflega af brjósti móðurinnar og fara frá því
yfir hálfan hnöttinn. Það er nokkuð sem enginn ætti að þurfa að upplifa.
Þvílík skelfing.
Frá Köben til Kabúl
Pistill
Ásdís
Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
’
Barnið lenti í andnauð
í þvögunni sem mynd-
aðist fyrir utan flugvöllinn
og var hætt komið. Fað-
irinn þurfti að hnoða litla
brjóstkassann þar til
barnið tók að anda á ný.
Bjartur Jóhannes Björnsson
Nei, ekki neitt. Bara vinna og vera
heima að chilla.
SPURNING
DAGSINS
Ætlar þú í
haustferð?
Ósk Laufdal
Já, vonandi, ég er búin að kaupa
miða til Flórída.
Bjarki Tómas Leifsson
Nei, ekki vegna Covid.
Arnheiður Fanney
Grétarsdóttir
Nei, það er nóg að gera í skóla og
vinnu.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Morgunblaðið/Unnur Karen
STEFÁN JÓHANNSSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Áföll og
ofbeldi
Forsíðumyndina tók
Eggert Jóhannesson
Námskeið Áföll og Ofbeldi - Orsakir og Afleiðingar verður haldið í
AKOGES salnum, Lágmúla 4, miðvikudaginn 8. september kl. 9:00
til 16:00. Fundarstjóri er Stefán Jóhannsson, MA, fjölskyldufræð-
ingur. Frekari upplýsingar eru á https://ec-board.com/.
Um hvað verður fjallað á þessu námskeiði?
Á námskeiðinu verða samankomnir fagmenn að tala um
áföll og ofbeldi frá ólíkum hliðum. Þarna verður okkar
helsti sérfræðingur í forvörnum, Árni Einarsson, og
einnig mun Sigurlína Davíðsdóttir fjalla um uppeldis-
aðferðir og áhrif þeirra. Guðrún Ágústa Ágústsdóttir
talar um áhættuhegðun ungmenna, Esther Helga Guð-
mundsdóttir um áhrif áfalla og ofbeldis á þróun mat-
arfíknar og átraskana og Kári Eyþórsson ræðir áföll og
ofbeldi út frá fíkn.
Á ekki líka að fjalla um kvikmynd?
Jú, kvikmyndin er gömul og heitir Viðkvæmt er hjarta barns-
ins. Hún sýnir vel áhrif áfengisneyslu foreldra á börnin og of-
beldi þeirra. Þetta er um þrjú börn og það sem er athyglisvert
er að þau bregðast við á ólíkan hátt. Efnislega er myndin með
gífurlega sterk skilaboð og sýnir vel að börn bregðast við á
ýmsan máta við ofbeldi. Sum rífa kjaft á meðan önnur þegja. Í
gamla daga þótti til dæmis besta ráð við óþekkt rassskelling.
Þá átti að berja óþekktina úr krakkagríslingum. Í dag er notað
sem hegning að taka tölvu og síma af þeim.
Hvaða fólk viljið þið fá á námskeiðið?
Við viljum ná til alls fólks sem hefur upplifað áföll og ofbeldi í
sínu lífi og viljum bæði fá fagfólk og áhugafólk. Þetta námskeið
á að vera fróðlegt og hjálplegt. Við erum ekki endilega alltaf
með rétta svarið við öllu.
Er gott ráð að hegna barni með því að taka af því
símann?
Ég myndi ekki mæla með því, hegningar virka ekki.