Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.09.2021, Blaðsíða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.9. 2021
G
uðni Bergsson, formaður
Knattspyrnusambands Ís-
lands (KSÍ), sagði af sér
vegna háværrar gagnrýni á viðbrögð
sambandsins við ásökunum á hendur
landsliðsmönnum í fótbolta karla um
ofbeldi og kynferðislega áreitni.
Guðni játaði að hafa haft vitneskju
um málið eftir að hafa áður neitað
því í viðtali í liðinni viku.
Jafnframt var tilkynnt um breytingu
á leikmannahópi fyrir landsleik við
Rúmena. Þar kom fram að Kolbeinn
Sigþórsson myndi ekki leika með,
en á daginn kom að hann var leik-
maðurinn sem borinn var sökum.
Lögregla tók til við rannsókn á and-
láti konu á geðdeild Landspítalans,
en talið er að það hafi borið til með
saknæmum hætti. Hjúkrunarfræð-
ingur var handtekinn, grunaður um
að vera valdur að dauða konunnar.
118 kórónuveirusmit greindust um
liðna helgi, en þá lágu 14 manns
veikir af henni á sjúkrahúsi og hafði
fækkað um helming frá fyrri viku.
Tólf þeirra voru á bráðalegudeild,
helmingurinn óbólusettur, en tveir
lágu á gjörgæsludeild, þó ekki í önd-
unarvél. Einn lést af völdum Co-
vid-19 um helgina, sá 33. frá upphafi
faraldursins en sá þriðji í þessari
síðustu bylgju.
Icelandair lét af flugi til Vest-
mannaeyja, en farþegar hafa reynst
færri en vonir stóðu til. Flugfélagið
Ernir gafst upp á flugi þangað í
fyrra. Íris Róbertsdóttir bæjar-
stjóri lýsti áhyggjum af því og segir
Eyjar þurfa bæði ferju og flug yfir
til meginlandsins.
Maðurinn sem lögregla á Egils-
stöðum skaut í liðinni viku er á
batavegi og kominn úr gjörgæslu.
Hann hafði sjálfur haft uppi vopna-
skak og skothríð þegar lögreglan
skaut hann.
Konur í aðgerðahópnum Aðför að
heilsu kvenna lýstu yfir vonbrigðum
með fund sinn með Svandísi Svav-
arsdóttur heilbrigðisráðherra og
þóttu svör ráðherrans um krabba-
meinsskimanir rýr í roðinu.
. . .
Stjórn KSÍ fetaði í fótspor formanns
síns og sagði af sér í heilu lagi eftir
að hafa sætt víðtækri gagnrýni fyrir
meðvirkni og þöggun með ætluðum
gerendum innan vébanda sam-
bandsins. Klara Bjartmarz, fram-
kvæmdastjóri KSÍ, sagði liðna daga
hina erfiðustu sem hún hefði lifað í
27 ára starfi.
Kórónuveirufaraldurinn er nú tal-
inn í rénun á ný, en ekki hafa færri
dagleg smit greinst frá upphafi 4.
bylgjunnar svonefndu.
Byssumaðurinn á Egilsstöðum var
úrskurðaður í tveggja vikna gæslu-
varðhald, en rannsókn málsins snýst
m.a. um tilraun til manndráps, vald-
stjórnarbrot, líkamsárás, hótanir og
barnaverndarbrot.
Ríkiseignir og framkvæmdasýsla
ríkisins verða sameinaðar í eina
stofnun, en jafnframt verða nöfnin
sameinuð í eitt heiti „Fram-
kvæmdasýslan – Ríkiseignir“ svo
enginn verði sár.
Mun minna mældist af makríl á
norðurslóðum en venja hefur verið,
um níundi hluti þess sem var árið
2017.
. . .
Kórónuveirukreppan er sú önnur
dýpsta í sögu hagmælinga á Íslandi,
en aðeins kreppan í kjölfar banka-
hrunsins 2008 slær hana út. Sam-
drátturinn var mjög snarpur, en um
6,5% samdráttur varð í landsfram-
leiðslu. Aftur á móti standa nokkrar
vonir til þess að hún aukist ört aftur,
ólíkt hefðbundum kreppum.
Sorpa hefur verið kærð til Persónu-
verndar fyrir að krefjast glærra
plastpoka utan um heimilissorp, en
endurvinnslufyrirtækið hefur inn-
heimt sérstakt aukagjald frá 1. júlí
sé komið með það í ógagnsæjum
pokum. Sorpa er í rusli yfir þessu og
segist ekkert skrá hjá sér um inni-
haldið.
Vincent Tan, hinn malasíski eigandi
Icelandair Hotels, hyggst leggja fé-
laginu til nýtt hlutafé á komandi vik-
um, en þau bókfærðu 4,8 milljarða
króna tap í fyrra og eru tæknilega í
vondum málum.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytið vill sporna við niðursveiflu
efnahagslífs vegna heimsfaraldurs-
ins og hefur því veitt 100 milljónir
króna til byggingar varanlegra
salerna við hringveginn.
Aukin ferðalög innanlands hafa leitt
til þess að allt að sex vikna bið getur
orðið eftir bílviðgerð á verkstæðum
höfuðborgarsvæðisins.
Hagstofa Evrópusambandsins hefur
komist að því að í gervallri Evrópu
sé áfengi næstdýrast á Íslandi.
Aðeins í Noregi er áfengi dýrara.
Áfengisverð hér á landi er 2,4 sinn-
um hærra en að meðaltali í Evrópu
en meira en þrisvar sinnum hærra
en í Ungverjalandi, þar sem það er
lægst.
Til stendur að herða eftirlit með far-
þegum Strætó til þess að ganga úr
skugga um að allir borgi rétt far-
gjald. Er m.a. heimilt að sekta fólk
um allt að 30.000 kr. fyrir að svindla
sér í strætó.
. . .
Enginn virðist vita hvað við taki hjá
KSÍ, en Þórhildur Gyða Arnars-
dóttir, sem steig fram með ásakanir
á hendur Kolbeini Sigþórssyni, seg-
ir að afsögn formanns og stjórnar
sambandsins hafi verið algjört lág-
mark og vildi einnig að fram-
kvæmdastjórinn segði upp. Hann
fór í starfsleyfi. Kolbeinn sendi hins
vegar frá sér yfirlýsingu og kvaðst
iðraðst framkomu sinnar við Þór-
hildi og vinkonu hennar, en bar af
sér sakir um áreitni eða ofbeldi.
Þegar rýnt er í skoðanakannanir
kemur í ljós að aðeins þriðjungur
svarenda er viss um hvaða flokk
hann ætlar að kjósa. Hinir segjast
vel geta hugsað sér að kjósa aðra
flokka. Taka nú kosningasmalar að
ókyrrast.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
hefur gengið vel á höfuðborgarsvæð-
inu undanfarna daga, en hún hófst
13. ágúst. Að sögn sýslumanns er
kjörsóknin meiri en fyrir alþingis-
kosningarnar 2017.
Trausti Jónsson veðurfræðingur
heldur veðurregistur og segir eigin-
lega sumardaga í Reykjavík hafa
verið 24 í sumar. Á Akureyri hefðu
þeir hins vegar verið 70 talsins.
Skaftárhlaup hófst en í minna lagi
og er talið ná hámarki skjótt.
Þegar nýtt Alþingi kemur saman að
loknum kosningum mun Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir að líkindum
vera aldursforseti þingsins og stýra
fundi uns nýr forseti Alþingis hefur
verið kjörinn.
Helgi Magnússon fjárfestir seldi
hlut sinn í Bláa lóninu, sem hefur
verið afar arðsamur undanfarin ár,
en að vonum ekki í ferðamannaþurrð
kórónukreppunnar. Stoðir keyptu.
. . .
Íslenska landsliðið í fótbolta karla
tapaði 0:2 í landsleik við Rúmena á
Laugardalsvelli.
Búist er við öðru jökulhlaupi, en
vatnsborðið í Grímsvötnum á
Vatnajökli hefur hækkað mikið upp
á síðkastið og hefur raunar ekki ver-
ið hærra síðan fyrir Gjálpargos árið
1996.
Sjálfstæðismenn efa að tillögur
Samfylkingar um stóreignaskatt
standist stjórnarskrá.
Viðreisnarfólk er misánægt með að
landsþing flokksins hafi fellt tillögur
stjórnar um að prófkjör verði
meginreglan við val á lista. Tillagan
var ein forsenda sáttar milli Þor-
gerðar Katrínar Gunnarsdóttur for-
manns og Benedikts Jóhannessonar,
stofnanda og fyrrverandi formanns
flokksins.
Bifreiðastöð Oddeyrar verður látin
víkja af sínum stað í miðbæ Akur-
eyrar næsta vor, en þar er verið að
breyta deiliskipulagi. Hún er jafn-
framt eina sjoppan í bænum og
menningarlíf þessa höfuðstaðar
Norðurlands því í uppnámi.
Ferðavenjur á höfuðborgarsvæðinu
hafa breyst í ár, en fleiri fara með
einkabíl í vinnuna nú en í fyrra, og
færri með strætó. Þeir eru sjálfsagt
að bíða eftir borgarlínunni.
Grunnskólakennarar segja ringul-
reið í skólum landsins vegna reglna
heilbrigðisráðherra um sóttkví
skólabarna. Eru þær sagðar flóknar
og óskýrar.
Tónlistarhátíðinni Airwaves var
frestað, annað árið í röð.
Látinn er Jón Sveinbjörnsson, pró-
fessor emeritus við guðfræðideild
Háskóla Íslands, 93 ára að aldri.
Fótboltakarlar
í kreppu
Þungt var yfir Eiði Smára
Guðjohnsen, aðstoðarþjálfara
landsliðs karla í fótbota, á
blaðamannafundi KSÍ á mið-
vikudag, enda hefur annan eins
skugga aldrei borið á liðið.
Áður höfðu formaður KSÍ og
síðan stjórn þess sagt af sér.
Morgunblaðið/Eggert
29.8.-3.9.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
ÚRVAL ÚTILJÓSA
www.rafkaup.is Ármúla 24 • S. 585 2800
Opið
sunnudag
kl. 12–16