Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.09.2021, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.09.2021, Blaðsíða 29
McCrory við sögu í nokkrum þáttum í sjónvarpi eftir það. Í Fjölskyldu- böndum leikur hún á móti Richard Gere, sem þar birtist í sínu fyrsta stóra hlutverki í sjónvarpi. Helen Elizabeth McCrory fæddist í Paddington á Englandi árið 1968, dóttir velskrar móður og skosks föð- ur. Hún dróst ung að leiklist og lagði stund á nám við Drama Centre í Lundúnum. McCrory hlaut eldskírn sína á sviði í hinu nafntogaða verki Oscars Wilde, The Importance of Being Earnest, árið 1990 þar sem hún lék hina geðþekku Gwendolen Fairfax. Hver uppfærslan rak aðra næstu árin og McCrory vann til margra verðlauna fyrir leik sinn. Árið 1993 spreytti hún sig fyrst í sjónvarpi og átti eftir að koma víða við næstu 27 árin. Frægust er hún líklega fyrir að hafa túlkað Polly Gray í hinum feykivinsælu þáttum Peaky Blinders frá 2013 til 2019. Cillian Murphy, meðleikari hennar í þáttunum, minntist hennar með mikilli hlýju eftir að tilkynnt var um fráfallið. Hún hefði verið falleg, fyndin og umhyggjusöm manneskja en einnig ofboðslega hæfileikarík leikkona sem lyfti hefði hverri per- sónu, hverri senu sem hún lék í hærra plan. Af öðrum vinsælum þáttum sem hún lék í má nefna The Jury og Penny Dreadful. Hinsta hlutverk McCrory í sjónvarpi var í tryllinum Roadkill á liðnu ári. McCrory kom einnig við sögu í fjölmörgum kvikmyndum; birtist okkur fyrst á hvíta tjaldinu sem vændiskona í Interview With a Vampire árið 1994, strangt tiltekið vændiskona númer tvö. Hún lék í Greifanum af Monte Cristo árið 2002 og þremur árum síðar lék hún móð- ur Casa gamla nova í mynd um þann ágæta kappa. Ekkert form leiklistar var henni óviðkomandi og árið 2003 lék McCrory í stuttmynd sem glímdi við áleitna spurningu: Does God Play Football eða Spyrnir almættið? Til allrar óhamingju þekkir sá er hér heldur á penna ekki til verksins en myndi glaður vilja vita svarið! Lék Cherie Blair í tvígang Árið 2006 fór McCrory með hlutverk forsætisráðherrafrúarinnar Cherie Blair í hinni frægu mynd The Queen, sem hverfist um sviplegt fráfall Diönu prinsessu. Svo sannfærandi var hún í túlkun sinni að hún fékk annað tækifæri til að leika Blair, í sjónvarpsmyndinni The Special Relationship fjórum árum síðar. Michael Sheen lék Tony Blair í báðum þessum myndum (enda slá- andi líkur forsætisráðherranum fyrrverandi) og var meðal fyrstu manna til að minnast hennar eftir andlátið. „Svo fyndin, svo ástríðu- full, svo klár og ein besta leikkona okkar tíma,“ tísti hann. „Við vorum bara krakkar þegar við kynntumst en ég sá frá fyrstu stundu að hún væri sérstök. Það var heiður að þekkja hana og fá tækifæri til að vinna með henni.“ Margir muna einnig eftir McCrory í hlutverki Narcissu Malfoy í einum þremur kvikmynd- um um galdraguttann knáa Harry Potter. Hún átti raunar upphaflega að leika Bellatrix Lestrange en varð að segja sig frá því verkefni á þeim tíma vegna þess að hún var ólétt. JK Rawling, höfundur Harrys Potters, minntist McCrory með þessum orð- um á Twitter: „Ég er miður mín vegna fráfalls Helen McCrory, stór- kostleg leikkona og dásamleg kona sem yfirgaf okkur allt of snemma.“ Allra seinasta hlutverk McCrory var í teiknimyndinni Charlotte sem verður frumsýnd í þessum mánuði á kvikmyndahátíðinni í Toronto. McCrory og Lewis gengu í heilagt hjónaband árið 2007 og eiga tvö börn, dótturina Manon og soninn Gulliver. McCrory lét sig alla tíð góðgerðarmál varða, ekki síst mál sem sneru að börnum, og eitt af seinustu verkum hennar var að safna ásamt eiginmanni sínum háum upphæðum fyrir heilbrigðisþjónust- una í Bretlandi vegna heimsfarald- urs kórónuveirunnar. Meðal þeirra sem minntust henn- ar fyrir það framlag var Sadiq Khan, borgarstjóri Lundúna. „Mjög sorg- leg tíðindi. Helen McCrory var hæfi- leikakona án hliðstæðu og hafði áhrif á líf ófárra barna í Lundúnum með góðgerðarstarfi sínu.“ Svo mörg voru þau orð. Helen McCrory snerti bersýnilega streng í brjóstum margra samferðarmanna. Helen McCrory þótti hæfileikarík og var vel liðin af kollegum sínum. AFP 5.9. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Eru sparifötin hrein? ENDURGERÐ Ísraelinn Hagai Levi ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur en hann hefur end- urgert hina rómuðu sjónvarpsseríu Ingmars Bergmans Scenes from a Marriage frá 1973 sem síðar varð að kvikmynd. Jessica Chastain og Oscar Isaac feta í fótspor Liv Ull- man og Erlands Josephsons og leika hjón sem leggjast í djúpstæða krufningu á hjónabandi sínu, lífinu og tilverunni. Nýju þættirnir gerast í samtímanum og verða frumsýndir um næstu helgi á HBO. Vottar Bergman virðingu sína Jessica Chastain leikur í þáttunum. AFP BÓKSALA Í ÁGÚST Tekið saman af Félagi íslenskra bókaútgefenda 1 Hún á afmæli í dag Anders Roslund 2 Palli Playstation Gunnar Helgason 3 Fimmtudags- morðklúbburinn Richard Osman 4 Bréfið Kathryn Hughes 5 Litla bókabúðin við vatnið Jenny Colgan 6 Heyrðu mig hvísla Mons Kallentoft 7 Sagnalandið Halldór Guðmundsson 8 Þín eigin saga – Rauðhetta Ævar Þór Benediktsson 9 Dæs Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir 10 Undir 1.000 kr. fyrir tvo Áslaug Björg Harðardóttir 11 Risasyrpa – rokkstjörnur Walt Disney 12 Gönguleiðir á hálendinu Jónas Guðmundsson 13 Kennarinn sem kveikti í Bergrún Íris Sævarsdóttir 14 Sterk Margrét Tryggvadóttir 15 Að telja upp í milljón Anna Hafþórsdóttir 16 Hvað veistu um Ísland? Gauti Eiríksson 17 Ísadóra Nótt á afmæli Harriet Muncaster 18 Blóðberg Þóra Karítas Árnadóttir 19 Listin að vera fokk sama Mark Manson 20 Ísadóra Nótt fer í skóla Harriet Muncaster Allar bækur Einvers staðar stendur þessi setn- ing: Segðu mér hvað þú lest og ég skal segja þér hver þú ert. Minn lestraráhugi tók stökk- breytingu fyrir 66 árum þegar ég gekk inn í litla bókasafnið í Kópa- vogsskóla stautandi læs. Seinna þegar ég las Námur Sal- ómons konungs eftir R. Haggard tengdi ég upp- lifun þeirra er fundu námurnar við mína. Fjár- sjóður var fundinn og síðan hefur bókalestur verið mitt helsta tóm- stundagaman. Ekki vissi ég í þessari fyrstu bókasafnsheimsókn að bókavörð- urinn var eitt mesta ljóðskáld okk- ar tíma. Jón úr Vör hafði þá nokkr- um árum áður gefið út ljóða- bókina Þorpið sem olli straum- hvörfum í ís- lenskri ljóðlist. Ljóðin lýsa upp- vaxtarárum skáldsins á Vest- fjörðum. Enginn hugsandi maður sem les ljóðin verður sá sami að lestri loknum. Lífsviðhorfin breytast. Undir leið- sögn Jóns fann ég fjölmarga gull- mola bókmenntanna og þær bæk- ur les ég aftur og aftur. Þrúgur reiðinnar eftir John Steinbeck er ein þeirra bóka sem ég met mik- ils. Þeir Steinbeck og Halldór Lax- ness fengu Nóbelsverðlaunin á svipuðum tíma. Það er athygl- isvert að stórvirki þeirra Þrúg- urnar og Sjálfstætt fólk, sem að öllum líkindum hafa verið afger- andi við ákvörðun Nóbelsnefnd- arinnar, kallast á. Báðar fjalla um fólk í leit að betra lífi. Bjartur fer með sitt fólk út á erfiða heiðina en Joad og fjölskylda hans fara hina leiðina, úr óbyggilegum sléttum miðfylkjanna vestur til Kaliforníu. Báðir höfundarnir fengu að kenna á þröngsýni samlanda sinna ekki síst vegna þessara bóka. Hvort sem fólki líkar betur eða verr er leitin að betra lífi að heiman sígild og á ekki síst við í dag og þá í enn meira mæli en áður. Ég er í ágætum bókaklúbbi sem sendir mér reglulega bækur. Reyndar er þar dálítið um smælki. En svo detta inn snilldarbækur. Fyrir nokkru lauk ég við fjórbók norska rithöfundarins Roy Jak- obsen um eyjalíf í Norður-Noregi. Lokabókin er Augu Rigels. En það er fleira matur en feitt ket og spennubækur ýmiskonar eru alltaf á náttborðinu. Ég hef dá- læti á Michael Connelly sem skrif- ar jöfnum höndum bækur um aðalpersónur sínar, Harry Bosch lögreglumann, Mike Haller lög- fræðing og rannsóknarblaða- manninn Jack McEvoy. Það er óhætt að mæla með þessum höf- undi fyrir spennu- sögufíkla. Að lokum: Bók- in í höndum mín- um núna er Sögur úr Síðunni eftir Böðvar Guð- mundsson. Greinilega byggð á bernskuminn- ingum höfundar. Hreint út sagt dásamleg lesning. FRÍMANN INGI ER AÐ LESA Fjársjóður var fundinn Frímann Ingi Helgason er fyrrverandi kennari og stjórnandi við Iðnskólann í Reykjavík.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.