Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.09.2021, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.9. 2021
08.05 Rita og krókódíll
08.10 Regnbogasögur
08.13 Ég er fiskur
08.15 Veira vertu blessuð
08.16 Örstutt ævintýri
08.18 Ást er ást
08.20 Brúðubíllinn
08.45 Litli Malabar
08.50 Blíða og Blær
09.15 Monsurnar
09.25 Tappi mús
09.30 Adda klóka
09.55 Angelo ræður
10.00 It’s Pony
10.25 K3
10.35 Angry Birds Toons
10.40 Mörgæsirnar frá Mada-
gaskar
11.00 Ævintýri Tinna
11.25 Top 20 Funniest
12.05 Nágrannar
13.45 Friends
14.20 Bump
14.55 Kviss
15.35 Draumaheimilið
16.05 Ireland’s Got Talent
17.05 Fyrsta blikið
17.40 60 Minutes
18.26 Veður
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.40 Sportpakkinn
18.50 Ísland í dag
19.05 Gulli byggir
19.45 Augnablik í lífi – Ragn-
ar Axelsson
20.10 The Heart Guy
21.00 Grace
22.30 Animal Kingdom
23.20 Timber Creek Lodge
23.45 Delilah
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 . 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
20.30 Tónlist á N4
20.30 Heimur norðurljósa
21.00 Tónlist á N4
Endurt. allan sólarhr.
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur er svarið
20.00 Blönduð dagskrá
22.30 Gegnumbrot
20.00 Herrahornið Kl. 20.15
(e)
20.30 Mannamál (e)
21.00 Suðurnesja-magasín
Víkurfrétta (e)
21.30 Pólitík með Páli Magn-
ússyni (e)
Endurt. allan sólarhr.
08.30 Dr. Phil
10.35 The Block
11.25 The Biggest Loser
12.55 Bachelor in Paradise
15.35 Top Chef
16.50 The King of Queens
17.10 Everybody Loves
Raymond
17.55 Ást
18.25 Með Loga
19.05 The Block
20.10 Best Home Cook
21.10 Law and Order: Special
Victims Unit
22.00 Yellowstone
22.45 Love Island
23.35 The Royals
06.55 Bæn og orð dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Hringsól.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Á tónsviðinu.
09.00 Fréttir.
09.03 Svona er þetta.
10.00 Fréttir og veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta í Selfoss-
kirkju.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
13.00 Sögur af landi.
14.00 Víðsjá.
15.00 Lestin.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Sumartónleikar.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Það sem breyt-
ingaskeiðið kenndi
mér.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Edgar Allan Poe í ís-
lenskum bókmennta-
heimi.
20.30 Kynstrin öll.
21.15 Lífið og skólinn.
22.00 Fréttir og veðurfréttir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
00.05 Næturútvarp Rásar 1.
07.15 KrakkaRÚV
07.16 Refurinn Pablo
07.21 Kúlugúbbarnir
07.44 Poppý kisukló
07.55 Kátur
08.07 Stuðboltarnir
08.18 Konráð og Baldur
08.31 Hvolpasveitin – Hvolpar
bjarga hvítum úlfi/
Hvolpar bjarga týndum
ferðalangi
08.54 Hrúturinn Hreinn
09.01 Úmísúmí
09.24 Múmínálfarnir
09.46 Eldhugar – Josephina
van Gorkum – bar-
áttukona ástarinnar
09.50 Sammi brunavörður
10.00 Vísindahorn Ævars
10.05 Fjörskyldan
10.40 Sætt og gott
11.00 Silfrið
12.10 Auðhyggjan alltumlykj-
andi – Heilsa
12.55 Páll Pampichler og
Karlakór Reykjavíkur
13.35 Kappsmál
14.30 Heilabrot
15.00 Menningin – samantekt
15.15 HM stofan
15.50 Ísland – N-Makedónía
17.50 HM stofan
18.20 Táknmálsfréttir
18.30 KrakkaRÚV
18.31 Stundin okkar
18.50 Landakort
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.45 Aftur heim?
21.00 Fjölskyldubönd
21.55 Á meðan hjartað slær
23.35 Ófærð II
9 til 13 100% helgi með Stefáni Valmundar Stefán
spilar góða tónlist og fer yfir valið efni úr morgun- og
síðdegisþáttum K100.
13 til 16 100% helgi með Þór Bæring Þór Bæring
og besta tónlistin á sunnudegi. Þór er góður að þefa
uppi það sem fjölskyldan getur gert sér til skemmt-
unar á sunnudögum.
16 til 18 Tónlistinn Topp40 Dj Dóra Júlía fer yfir 40
vinsælustu lög landsins á eina opinbera vinsældalista
Íslands sem er unninn í samstarfi við félag hljóm-
plötuframleiðenda.
Tónlist er al-
gjörlega magnað
fyrirbæri sem get-
ur haft heilandi
áhrif og oft kallað
fram einhverja
ósjálfráða gleði. Ég
rakst á dásamlegt
myndband af litlu
barni sem er að
heyra fiðluleik í fyrsta skipti á ævi sinni.
Viðbrögðin eru svo falleg og einlæg þar sem barnið
stendur upp agndofa, gengur rakleiðis að fiðluleik-
aranum og horfir til hans aðdáunaraugum áður en það
faðmar fótlegg fiðluleikarans sem kippir sér ekkert
upp við þennan dygga aðdáanda.
Sjáið myndbandið við ljósa punktinn á k100.is.
Dásamleg viðbrögð
barns við fiðluleik
„Ég gat ekki einu sinni borðað kjöt
um tíma eftir að ég byrjaði í líkfræð-
unum, sérstaklega þegar kom að því
að læra smurninguna. Þegar maður
flettir líkamanum upp þá áttar mað-
ur sig betur á því hvaðan steikin
kemur ... Ég veit ekki hvað skal
segja, eitthvað kemur yfir mann. Í
framhaldinu fór ég líka að umgang-
ast minn eigin líkama af meiri virð-
ingu en áður eftir að hafa komið að
smurningu og krufningu vegna þess
að ég gerði mér grein fyrir því
hversu heppin við erum að ganga
upprétt. Maður fær mjög góða til-
finningu fyrir því hvernig líkaminn
virkar. Við erum öll þessar fínstilltu
verur sem göngum uppréttar og
gerum alla þessa gölnu hluti.“
Þannig komst Carla Harvey,
söngkona bandaríska málmbandsins
Butcher Babies, að orði í hlaðvarp-
inu Side Jams With Bryan Reesman
en hún er ekki bara með gráðu í lík-
fræðum, heldur hefur hún einnig
réttindi sem útfararstjóri. Eitthvað
sem margir málmhausar hugsa ugg-
laust um en koma sér aldrei í.
Harvey bendir á í samtalinu að
fæstir hafi hugmynd um hvaða ferli
hefur átt sér stað áður en hinn látni
er lagður í kistuna fyrir útför. Það
sé líklega eins gott. „Þetta er allt
öðruvísi en fólk heldur. Smurningin
er grjóthart ferli. Ég var líka við
krufningar. Þetta getur verið dálítið
villimannslegt og subbulegt og fæst-
ir verða ónæmir fyrir ferlinu. Minnir
í raun um margt meira á vísinda-
verkefni. En þetta er eitthvað sem
fæstir sjá, koma til með að sjá og
myndu líklega ekki eiga gott með að
gleyma,“ bætir hún við.
Harvey starfar einnig sem
sorgarráðgjafi, auk þess að vinna
með fólki sem sjálft er dauðvona.
Hún segir margt líkt með þessu
tvennu en um leið ólíkt.
„Með sorgarráðgjöf minni aðstoða
ég fólk sem glímir við missi af ein-
hverju tagi; hvort sem það hefur
misst ástvin, vinnuna eða skilið.
Hlutverk dánarráðgjafans er á hinn
bóginn að aðstoða þá sem eru dauð-
vona við að loka sínu lífshlaupi. Ég
geri þeim grein fyrir því að ýmislegt
stendur til boða sem þeim var ef til
vill ekki ljóst, auk þess að skýra út
fyrir þeirra nánustu hvað sé á seyði.
Ég hjálpa fólki með pappírsvinnu
sem þarf að sinna og sit jafnvel bara
með því í algjörri þögn, held í hönd-
ina á því og er einfaldlega til staðar
fyrir það á erfiðum tímum þegar
ekki allir láta sjá sig.“
Sumum skjólstæðingum Harvey
er ekki kunnugt um hina hliðina á
lífi hennar, tónlistina, en aðrir óska
sérstaklega eftir henni af þeim sök-
um.
„Það eru ekki allir sem ég veiti
ráðgjöf málmhausar en margir. Svo
virðist sem ekki allir sem unna
málmi kunni að bera sig eftir hjálp.“
Spurð hvers vegna hún haldi að
það sé svarar Harvey: „Ég hygg að
margir málmhausar séu í ein-
hverjum skilningi réttindalaust fólk.
Fólk sem er utangarðs og á því ekki
að venjast að sýna tilfinningar. Það
gera sér ekki allir grein fyrir því en
það felst mikil losun í málminum;
þegar fólk fer á tónleika stuðlar það
að bættri heilsu með því að öskra og
henda sér í pyttinn. Konur eiga auð-
veldara með að ræða um tilfinningar
sínar en karlar, þannig að skjólstæð-
ingar mínir eru að miklu leyti málm-
karlar. Og það hefur verið geggjað
að sjá ljósið kvikna og þá opna sig og
ræða óhindrað um tilfinningar sínar.
Í því er fólgin heilun.“
Carla Harvey ásamt ást-
manni sínum, Charlie gamla
Benante, trymbli Anthrax.
AFP
MÁLMYNJA, SORGARRÁÐGJAFI OG ÚTFARARSTJÓRI
Kryfur, huggar
og kyrjar