Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.09.2021, Síða 32
SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2021
AVANA model 2570
L 224 cm Leður ct. 15 Verð 509.000,-
L 244 cm Leður ct. 15 Verð 529.000,-
LEUCA model 3186
L 167 cm Leður ct. 15 Verð 369.000,-
L 207 cm Leður ct. 15 Verð 419.000,-
STAN model 3035
L 170 cm Leður ct. 15 Verð 399.000,-
L 206 cm Leður ct. 15 Verð 449.000,-
ESTRO model 3042
L 164cm Leður ct. 10 Verð 359.000,-
L 198 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
LEVANTE model 3187
L 204 cm Leður ct. 25 Verð 459.000,-
L 224 cm Leður ct. 25 Verð 479.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur
(Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15
Frakkinn Arsène Wenger, þróunarstjóri alþjóðaknattspyrnu-
sambandsins (FIFA), leggur til að heimsmeistaramótið í knatt-
spyrnu verði haldið á tveggja ára fresti. Þetta kom fram í viðtali
við hann í franska blaðinu L’Equipe á föstudaginn. Hann sting-
ur einnig upp á því að undankeppni vegna HM og EM fari fram í
einum og sama glugganum að hausti.
Meginreglan yrði sú að undankeppnin færi fram í beit að
hausti, til dæmis í október, og síðan yrði stórmót að sumri, að
loknum tímabilum félagsliðanna. Þess á milli yrðu leikmennirnir
um kyrrt hjá félagsliðum sínum sem myndi kalla á mun færri
ferðalög, auk þess sem minna rof kæmi í deildarkeppnir hinna
ýmsu landa. Wenger sér fyrir sér að leikjum í undankeppnum
yrði fækkað og að lögbundin hvíld, 25 dagar hið minnsta, tæki
við eftir lokakeppnina að sumri. Hann sér fyrir sér að þetta nýja
fyrirkomulag taki gildi árið 2028.
Paul Pogba og félagar í franska
landsliðinu eru ríkjandi heims-
meistarar í knattspyrnu.
AFP
HM á tveggja ára fresti
Arsène Wenger var um langt árabil knatt-
spyrnustjóri enska félagsins Arsenal.
Arsène Wenger leggur til að HM í knatt-
spyrnu verði haldið á tveggja ára fresti.
Uppi varð fótur og fit hér í fá-
sinninu í byrjun september árið
1971 þegar spurðist út að stór-
menni væri mögulega á leið til
landsins. Morgunblaðið sá meira
að segja ástæðu til að slá upp
baksíðufrétt um málið.
„Maður einn, James Stewart
að nafni var væntanlegur til Ís-
lands í gær. Ekki þætti það í frá-
sögur færandi undir venjulegum
kringumstæðum. En þar eð
þessi virtist ætla að slá um sig
meira en gengur og gerist, fóru
menn að velta ýmsu fyrir sér —
skyldi þetta vera kvikmyndaleik-
arinn frægi, James Stewart?“
Kappinn var væntanlegur frá
Gander á Nýfundnalandi og
hafði ætlað að panta fjórar hót-
elíbúðir á Hótel Loftleiðum en
gat hins vegar ekki fengið nema
tvær. Þá hafði hann leigt sér veg-
legan einkabíl ásamt einkabíl-
stjóra, auk einkaleiðsögumanns.
Emil Guðmundsson, mót-
tökustjóri á Loftleiðum, gat ekki
staðfest í samtali við blaðið
hvort um leikarann fræga væri
að ræða en menn veltu því svo
sannarlega fyrir sér þar á bæ.
Málið upplýstist á hinn bóginn
aldrei en í næsta tölublaði Morg-
unblaðsins kom fram að James
Stewart hefði aldrei komið til
landsins; hann hefði orðið veð-
urtepptur í Gander og afpantað
heila klabbið hér. Skellur.
GAMLA FRÉTTIN
Kom hér
um bil til
Íslands
James Stewart, löngu áður en hann kom hér um bil til Íslands, ásamt
franskri leikkonu sem hét því skemmtilega nafni Simone Simon.
AFP
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Kris Kristofferson
tónlistarmaður
Gunnar Hilmarsson
tónlistarmaður
Sigurmundur Gísli Einarsson
bankastarfsmaður