Morgunblaðið - 01.10.2021, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 01.10.2021, Qupperneq 1
SMARTLAND Harpa Ómars-dóttir veithvernigvið eigumað hugsaum hárið áokkur. Toppurinn erað komasterkur inn. „Ég er svoddan frík” Sædís ÝrJónasdóttirhannarlitríkar flíkursem slegist er um. Förðunar-tískan 2021! Matti heimurinnhittir glans-heiminn. Svava Kristín Grétars- dóttir íþrótta-fréttakonaer meðeinstakanfatastíl. „Ég elskadragtir, samfest-inga og satín-blússur” ’ LeikkonanSvandís Dóraljóstrar uppfegurðar-leyndarmálum sínum. ER LÍFIÐBARA SKÍTUGURSOKKUR? Vala læðistekki með-fram veggjum ífatavali ValgerðurAnna Ein-arsdóttir ersérfræðingur íað útbúa „onenight only“búninga og flíkur. 1. október 2021 Vala Gestsdóttir lýsir því á að alast u F Ö S T U D A G U R 1. O K T Ó B E R 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 230. tölublað . 109. árgangur . TÍSKA, MANN- LÍF OG FÓLK SMARTLAND 48 SÍÐUR Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði í knattspyrnu, kveðst aldrei hafa brotið af sér og segir að sér sárni að hafa verið settur til hliðar af KSÍ vegna krafna sem byggjast á óljósum orðrómi. Hann er ekki í landsliðshópnum sem Arnar Þór Viðarsson landsliðs- þjálfari tilkynnti í gær vegna lands- leikja gegn Armeníu og Liechten- stein 8. og 11. október. Arnar sagði að það hefði verið sín ákvörðun að velja ekki Aron í liðið en Aron er ekki á sama máli. „Ég get aðeins dregið þá ályktun að komandi sjálfkjörin stjórn KSÍ hafi umboðslaus beitt sér fyrir því að mér yrði slaufað,“ sagði Aron Einar í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gær. Hann vísaði jafnframt til um- ræðna á samfélagsmiðlum um at- burð sem sagt sé að hafi átt sér stað í Kaupmannahöfn árið 2010. „Vegna þessa alls hef því ákveðið að óska eftir því við lögregluyfirvöld að fá að gefa skýrslu um þetta kvöld fyrir ellefu árum,“ sagði Aron jafn- framt í yfirlýsingunni. RÚV sagði í fréttum klukkan tíu í gærkvöld að samkvæmt heimildum hefði verið lögð fram kæra vegna málsins á sínum tíma en hún síðan dregin til baka. Nýverið hefði verið óskað eftir því að rannsókn málsins yrði tekin upp að nýju. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins eru nokkrir af reyndari leikmönnum landsliðsins að velta því fyrir sér að draga sig út úr landsliðs- hópnum vegna málsins en nú þegar eru mikil forföll í liðinu vegna meiðsla leikmanna. »26 Aron vill fá að gefa skýrslu - Draga leikmenn sig úr landsliðinu? Aron Einar Gunnarsson „Þetta fór ótrúlega af stað og hefur ekki stoppað. Allt skilar sér. Ef þú kaupir buxur á 1.500 krónur þá fara þessar 1.500 krónur í starfið í Kubuneh,“ segir Þóra Hrönn Sigur- jónsdóttir í Vestmannaeyjum en þar hefur hún rekið verslunina Kubuneh og selur þar notuð föt. Allur ágóði af sölunni rennur til starfsemi heilsugæslunnar í bænum Kubuneh í Gambíu. Verslunin var opnuð í desember á síðasta ári og Þóra segir viðtökurnar langt um- fram væntingar. „Ég er alltaf að bíða eftir deginum þegar enginn kemur. Hann hefur ekki komið enn þá,“ sagði Þóra við fréttaritara Morgunblaðsins í Eyjum. Í heilsugæslunni í Gambíu starfa 12 manns. Þar hafa um 15 þúsund manns aðgengi að þjónustunni. Ousman er hjúkrunarfræðingur og helsti tengiliður Þóru í þorpinu. Hann segir aðstoð Þóru hafa skipt gríðarlega miklu máli. „Án hennar hefði heilsugæslu- stöðinni verið lokað um síðustu ára- mót svo við eigum henni allt að þakka. Fólkinu sem býr á eyjunni hennar [Vestmannaeyjum] og versl- ar í búðinni hennar,“ segir Ousman við Morgunblaðið. »11 Fór ótrúlega af stað og stoppar ekki Gambía Börn í þorpinu Kubuneh sem bíða eftir skoðun á heilsugæslunni. - Verslun í Eyjum sem selur notuð föt rekur heilsugæslu í litlum bæ í Gambíu _ „Ekki hefur tekist að ná mark- miði stjórnarskrárinnar fernar kosningar í röð,“ skrifar Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórn- málafræði við Háskóla Íslands, í aðsendri grein í blaðinu í dag. Vísar hann til þess að í 31. grein stjórnarskrárinnar er kveðið á um að úthluta eigi jöfnunarsætum til að tryggja að flokkar fái þing- mannatölu „í sem fyllstu sam- ræmi við heildaratkvæðatölu sína“. Telur Ólafur ljóst að Alþingi hafi „vanrækt skyldu sína að laga kosningalög að breyttum veru- leika“ sem hann segir einfalt að gera með því að fjölga jöfn- unarþingsætum. » 15 Segir Alþingi van- rækja skyldu sína Þóroddur Bjarnason Baldur Arnarson Flugfélagið Atlanta mun á næstu mánuðum taka sjö nýjar flutningaþotur í notkun en félagið er nú með níu slíkar þotur í rekstri. Baldvin Hermannsson, forstjóri Atlanta, segir eftirspurn eftir fraktflugi hafa stóraukist samhliða samdrætti í farþegaflugi í kjölfar kórónuveiru- faraldursins. Ekki síst flugi langdrægra breiðþotna milli heimsálfa. Því vanti flutningsgetu í kerfið. „Þetta hefur verið rússíbanareið síðan faraldur- inn skall á. Þá vorum við að fljúga 15 vélum og vor- um með miklar áætlanir um áframhaldandi nýliðun og stækkun á flotanum. Það fór allt í vaskinn í far- aldrinum.“ Nú eingöngu með fraktvélar „Undanfarið höfum við þó byggt upp reksturinn og erum nú eingöngu með fraktvélar, alls níu 747 Boeing-fraktvélar. Eftirspurnin hefur stöðugt auk- ist síðustu tólf mánuði. Áður fyrr komu 65-70% af okkar tekjum úr farþegaflugi,“ segir Baldvin. Atlanta mun nýta tvær farþegaþotur í fraktflug en þær höfðu verið á jörðu niðri síðan faraldurinn hófst. Fór önnur þeirra í loftið í fyrradag. Þá skrifaði Atlanta í síðustu viku undir langtíma- samning um leigu á tveimur Boeing 747-fraktvélum og er áformað að taka þær í notkun í janúar og febr- úar. Með því verður félagið með þrettán fraktvélar. „Þessu til viðbótar erum við að ljúka samningum um rekstur á þremur Airbus 340-þotum,“ segir Baldvin. Síðastnefnda leigan verði hugsanlega tímabundin meðan umframeftirspurn ríkir í frakt- flugi. Sú fyrsta fer í loftið í október en Baldvin von- ast til þess að flugfélagið verði með alls 16 vélar í notkun í febrúar. Hann segir aðspurður að það fari eftir nýtingunni hversu margir verði ráðnir í áhafnir á þessum sjö nýju vélum. Um hundrað íslenskir flugmenn starfi nú hjá félaginu og hafi nóg að gera. Nýju þoturnar muni fara heimhorna á milli. Bæta við sjö þotum - Flugfélagið Atlanta fjölgar þotum úr níu í sextán vegna mikillar eftirspurnar - Forstjórinn segir samdrátt í farþegaflugi hafa skapað skort á flutningarými Í dag hefst árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands, Bleika slaufan, und- ir slagorðinu „VERUM TIL“. Áhersla átaksins í ár er að „vera til“. Að lifa lífinu og vera til staðar þegar kona greinist með krabbamein og tilveran breytist snögglega. Í ár er Bleika slaufan hönnuð af Hlín Reykdal skartgripahönnuði og er hún fá- anleg fyrir 2.900 krónur á bleikaslaufan.is. Allur ágóði rennur þá til Krabbameinsfélagsins. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bleika slaufan hafin og stendur út október

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.