Morgunblaðið - 01.10.2021, Síða 26

Morgunblaðið - 01.10.2021, Síða 26
FRÉTTASKÝRING Víðir Sigurðsson Bjarni Helgason Eftir stormasama daga í byrjun september þegar karlalandsliðið í fótbolta kom saman til þriggja leikja í undankeppni heimsmeistaramóts- ins fór umræðan um meint ofbeldis- mál landsliðsmanna á fleygiferð á ný í gær. Arnar Þór Viðarsson landsliðs- þjálfari skýrði þá frá því á frétta- mannafundi að hann hefði ákveðið að velja ekki Aron Einar Gunn- arsson í hópinn fyrir leikina gegn Armeníu og Liechtenstein sem fram fara á Laugardalsvellinum 8. og 11. október. Arnar vísaði jafnframt á bug fréttum þess efnis að stjórn KSÍ hefði fyrirskipað honum að velja ekki Aron í hópinn. Allt fyrrverandi og verðandi stjórnarfólk Knattspyrnusambands Íslands sem Morgunblaðið ræddi við í gær hafnaði því að KSÍ hefði á ein- hvern hátt haft áhrif á liðsvalið. Samkvæmt heimildum blaðins á þó sitthvað eftir að koma upp á yf- irborðið á næstu dögum og nokkrir af eldri landsliðsmönnum Íslands munu íhuga að draga sig út úr lands- liðshópnum vegna málsins. Aron sendi síðan frá sér yfirlýs- ingu þar sem hann kvaðst hafa gefið kost á sér og ekki beðið Arnar Þór um neinn trúnað varðandi ástæður þess að hann hefði ekki verið valinn. Aron kveðst ekki hafa fengið að ræða málið við KSÍ eða verið gefinn kostur á að standa á rétti sínum gagnvart ávirðingum. „Á samfélagsmiðlum hefur verið til umræðu atburður sem sagt er að hafi átt sér stað í Kaupmannahöfn 2010,“ segir Aron m.a. í yfirlýsing- unni, og síðan: „Um leið og ég hafna öllu ofbeldi þá lýsi ég því yfir að ég hef aldrei gerst brotlegur gagnvart neinum eða neinni. Ég ætla mér ekki að vera ráða einstaklingi fyrir nokkrum ár- um, sem kom upp í júlímánuði og hefur leitt til þess að hann hefur ekkert spilað með Everton á þessu keppnistímabili. Arnar valdi þá Svein Aron Guð- johnsen, Ara Leifsson, Elías Má Ómarsson, Stefán Teit Þórðarson og Elías Rafn Ólafsson í hópinn, allt leikmenn með örfáa landsleiki á bak- inu, eða engan eins og í tilfelli Elías- ar markvarðar. Draga reyndir leikmenn sig út úr landsliðinu? - Aron ekki valinn - Hafnar umræðu á samfélagsmiðlum og vill gefa skýrslu AFP Yfirlýsing Aron Einar Gunnarsson hafnar ásökunum á samfélagsmiðlum og er óhress með að vera settur út úr íslenska landsliðinu í knattspyrnu. meðvirkur gagnvart dómstól göt- unnar varðandi atvik sem á að hafa átt sér stað fyrir ellefu árum síðan. Hafi einhver eitthvað út á mig að setja þá bið ég viðkomandi vinsam- legast að hlífa mér ekki, ásaka mig frekar og nafngreina og gefa mér kost á að verja mig. Það er heið- arlegt. Vegna þessa alls hef því ákveðið að óska eftir því við lög- regluyfirvöld að fá að gefa skýrslu um þetta kvöld fyrir ellefu árum.“ Kári verður ekki með Auk Arons verður Kári Árnason ekki með gegn Armeníu og Liech- tenstein en hann einbeitir sér að verkefnum með Víkingum sem eiga fyrir höndum undanúrslitaleik í bik- arnum og mögulega úrslitaleik. Hann hefur því að öllum líkindum þegar spilað sinn síðasta landsleik þó hann kæmi mögulega til greina í leikina í nóvember. Alfreð Finnbogason, Sverrir Ingi Ingason, Rúnar Már Sigurjónsson, Hörður Björgvin Magnússon, Arnór Sigurðsson og Kolbeinn Sigþórsson eru allir meiddir og Jón Daði Böðv- arsson er ekki í leikæfingu. Arnór Ingvi Traustason var ekki valinn í hópinn síðast og heldur ekki núna. Þá lagði Hannes Þór Halldórsson markvörður landsliðshanskana á hilluna eftiir leikinn gegn Þjóð- verjum í september. Gylfi Þór Sigurðsson er heldur ekki inni í myndinni. Hann er enn þá í farbanni á Bretlandseyjum vegna máls hans, meints brots gegn ólög- MARKVERÐIR: Rúnar Alex Rúnarsson, Leuven Patrik S. Gunnarsson, Viking S. Elías Rafn Ólafsson, Midtjylland VARNARMENN: Birkir Már Sævarsson, Val Ari Freyr Skúlason, Norrköping Hjörtur Hermannsson, Pisa Jón Guðni Fjóluson, Hammarby Guðmundur Þórarinss, New York Brynjar Ingi Bjarnason, Lecce Alfons Sampsted, Bodö/Glimt Ari Leifsson, Strömsgodset MIÐJUMENN: Birkir Bjarnason, Adana Demispor Guðlaugur Victor Pálsson, Schalke Ísak B. Jóhannesson, Köbenhavn Þórir Jóhann Helgason, Lecce Stefán Teitur Þórðarson, Silkeborg Andri F. Baldursson, Köbenhavn SÓKNARMENN: Jóhann Berg Guðmunds., Burnley Viðar Örn Kjartansson, Vålerenga Albert Guðmundsson, AZ Alkmaar Jón Dagur Þorsteinsson, AGF Mikael Anderson, AGF Elías Már Ómarsson, Nimes Andri Lucas Guðjohnsen, R.Madrid Sveinn Aron Guðjohnsen, Elfsborg Íslenski lands- liðshópurinn 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. OKTÓBER 2021 EM U17 kvenna Undanriðill í Serbíu: Ísland – Norður-Írland ........................... 3:1 Emilía Óskarsdóttir 41., Margrét Lea Gísladóttir 54., Elísa Lana Sigurjónsdóttir 90. – Naomi McLaughlin 43. Serbía – Spánn.......................................... 1:2 _ Spánn fékk 9 stig, Ísland 6, Norður-Ír- land 3 og Serbía ekkert. _ Spánn, Ísland og Norður-Írland leika áfram í A-deild í seinni hluta undankeppn- innar í vor en Serbía fellur í B-deild. Evrópudeildin A-riðill: Lyon – Bröndby........................................ 3:0 Sparta Prag – Rangers ............................ 1:0 _ Lyon 6, Sparta Prag 4, Bröndby 1, Rang- ers 0. B-riðill: Real Sociedad – Mónakó.......................... 1:1 Sturm Graz – PSV Eindhoven ................ 1:4 _ PSV Eindhoven 4, Mónakó 4, Real Socie- dad 2, Sturm Graz 0. C-riðill: Legia Varsjá – Leicester ......................... 1:0 Napoli – Spartak Moskva ........................ 2:3 _ Legia 6, Spartak Moskva 3, Napoli 1. Leicester 1. D-riðill: Fenerbahce – Olympiacos ...................... 0:3 - Ögmundur Kristinsson var ekki í leik- mannahópi Olympiacos. Royal Antwerp – Eintracht Frankfurt .. 0:1 _ Olympiacos 6, Eintracht Frankfurt 4, Fenerbahce 1, Royal Antwerp 0. E-riðill: Lazio – Lokomotiv Moskva ..................... 2:0 Marseille – Galatasaray........................... 0:0 _ Galatasaray 4, Lazio 3, Marseille 2, Lo- komotiv Moskva 1. F-riðill: Braga – Midtylland.................................. 3:1 - Elias Rafn Ólafsson var í marki Midtjyll- and og varði vítaspyrnu. Ludogorets – Rauða stjarnan ................. 0:1 _ Rauða stjarnan 6, Braga 3, Ludogorets 1, Midtjylland 1. G-riðill: Celtic – Leverkusen ................................. 0:4 Ferencváros – Real Betis ........................ 1:3 _ Leverkusen 6, Real Betis 6, Ferencváros 0, Celtic 0. H-riðill: West Ham – Rapid Vín ............................ 2:0 Genk – Dinamo Zagreb............................ 0:3 _ West Ham 6, Dinamo Zagreb 3, Genk 3, Rapid Vín 0. Sambandsdeild Evrópu A-riðill: Alashkert – HJK Helsinki....................... 2:4 LASK Linz – Maccabi Tel Aviv .............. 1:1 _ Maccabi Tel Aviv 4, LASK 4, HJK 3, Alashkert 0. B-riðill: Gent – Anorthosis..................................... 2:0 Partizan Belgrad – Flora Tallinn............ 2:0 _ Partizan Belgrad 6, Gent 6, Flora Tallinn 0, Anorthosis 0. C-riðill: CSKA Sofia – Bodö/Glimt ...................... 0:0 - Alfons Sampsted lék allan leikinn með Bodö/Glimt. Zorya Luhansk – Roma ........................... 0:3 _ Roma 6, Bodö/Glimt 4, CSKA Sofia 1, Zo- rya Luhansk 0. D-riðill: AZ Alkmaar – Jablonec .......................... 1:0 - Albert Guðmundsson lék í 89 mínútur og skoraði sigurmark AZ. CFR Cluj – Randers................................. 1:1 - Rúnar Már Sigurjónsson lék ekki með CFR vegna meiðsla. _ AZ 4, Jablonec 3, Randers 2, CFR 1. E-riðill: Feyenoord – Slavia Prag ......................... 2:1 Union Berlín – Maccabi Haifa................. 3:0 _ Feyenoord 4, Slavia Prag 3, Union Berlín 3, Maccabi Haifa 1. F-riðill: Köbenhavn – Lincoln Red Imps............. 3:1 - Ísak B. Jóhannesson kom inn á hjá FCK á 60. mínútu og Hákon Arnar Haraldsson á 80. mínútu en Andri Fannar Baldursson var ekki með vegna meiðsla. PAOK – Slovan Bratislava ..................... 1:1 - Sverrir Ingi Ingason lék ekki með PA- OK vegna meiðsla. _ Köbenhavn 6, PAOK 4, Slovan Bratislava 1, Lincoln Red Imps 0. G-riðill: Tottenham – Mura ................................... 5:1 Vitesse – Rennes ...................................... 1:2 _ Tottenham 4, Rennes 4, Vitesse 3, Mura 0. H-riðill: Basel – Kairat Almaty ............................. 4:2 Omonia Nikósía – Qarabag...................... 1:4 _ Qarabag 4, Basel 4, Kairat 1, Omonia 1. Bandaríkin Chicago Fire – New York City .............. 2:0 - Guðmundur Þórarinsson lék fyrstu 76 mínúturnar með New York City. CF Montréal – New England ................. 1:4 - Róbert Orri Þorkelsson var ekki í leik- mannahópi Montréal og Arnór Ingvi Traustason ekki í hópi New England. Svíþjóð B-deild: Eskilstuna – Öster ................................... 1:1 - Alex Þór Hauksson kom inn á hjá Öster á 90. mínútu. 4.$--3795.$ Magdeburg hélt áfram sigurgöngu sinni í þýsku 1. deildinni í hand- knattleik í gærkvöld og vann Mel- sungen á útivelli, 27:24. Magdeburg hefur þar með unnið fyrstu sex leiki sína og er á toppnum. Tvö önnur lið eru þó enn með fullt hús stiga því bæði Kiel og Füchse Berlín hafa leikið fjóra leiki og unnið þá alla. Ómar Ingi Magnússon var sem fyrr í aðalhlutverki í sóknarleik Magdeburg en hann skoraði fimm mörk og átti fjórar stoðsendingar. Þá var Gísli Þorgeir Kristjánsson með bæði mark og stoðsendingu. Sjötti sigurinn hjá Magdeburg AFP Drjúgur Ómar Ingi Magnússon var enn og aftur í stóru hlutverki. Mikil eftirvænting er í röðum Þrótt- ara í Reykjavík fyrir fyrsta úrslita- leik félagsins í bikarkeppni í fót- bolta en Þróttur mætir Breiðabliki í úrslitaleiknum í Mjólkurbikar kvenna á Laugardalsvellinum í kvöld. Þróttarar skýrðu frá því að miðasala á leikinn gengi mjög vel og stefnt væri á að slá áhorf- endametið á úrslitaleik kvenna sem er 2.435 manns. Heilmikil dagskrá er fyrirhuguð hjá Þrótturum frá klukkan 16 og fram að leik og útlit er fyrir að leikið verði í góðu haust- veðri í Laugardalnum. Mikil eftirvænt- ing hjá Þrótti Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Úrslitaleikur Breiðablik og Þróttur mætast í Laugardalnum í kvöld. Þeir Albert Guðmundsson og Elías Rafn Ólafsson sem voru valdir í ís- lenska landsliðshópinn í knatt- spyrnu í gær létu báðir til sín taka í Evrópuleikjum gærkvöldsins. Albert skoraði sigurmark hol- lenska liðsins AZ Alkmaar sem sigr- aði Jablonec frá Tékklandi, 1:0, í Sambandsdeildinni. Hann renndi boltanum í netið af stuttu færi eftir góða rispu og fyrirgjöf vinstri bak- varðarins á 53. mínútu leiksins. AZ tók með því forystuna í sínum riðli með fjögur stig eftir tvo leiki. Elías Rafn gerði sér lítið fyrir og varði vítaspyrnu eftir 35 mínútna leik fyrir danska liðið Midtjylland sem sótti Braga heim til Portúgals í Evrópudeildinni. Danirnir voru lengi vel yfir í leiknum en máttu að lokum sætta sig við ósigur, 3:1. Þá standa Alfons Sampsted og fé- lagar í norska meistaraliðinu Bodö/ Glimt vel að vígi í sínum riðli í Sam- bandsdeildinni eftir markalaust jafntefli gegn CSKA Sofia í Búlgaríu og eru komnir með fjögur stig eftir tvo leiki. _ Harry Kane skoraði þrennu fyr- ir Tottenham á síðustu 22 mín- útunum eftir að hafa komið inn á sem varamaður í 5:1 sigri enska liðs- ins á Mura frá Slóveníu í Sam- bandsdeildinni. Dele Alli og Giovani Lo Celso höfðu komið Tottenham í 2:0 á fyrstu átta mínútum leiksins. _ Declan Rice og Said Benrahma tryggðu West Ham 2:0 sigur á Rapid Vín frá Austurríki í Evrópudeildinni á heimavelli sínum í London. _ Leicester tapaði hins vegar óvænt 1:0 fyrir Legia í Póllandi þar sem Mahir Emreli skoraði sig- urmark pólska liðsins í fyrri hálf- leiknum. AFP Skoraði Albert Guðmundsson tryggði AZ þrjú stig. Albert skoraði og Elías varði víti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.