Morgunblaðið - 05.10.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 2021
MEÐ DINNU OG HELGA
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS
SKÍÐAFRÍ Á ÍTALÍU 2022
Nú er tíminn til að bóka skíðaferðina eftir áramót!
Við erum með vikulegt beint flug til Ítalíu þar sem
farþegar okkar geta valið úr tveimur frábærum
skíðasvæðum, Pinzolo og Madonna.
Kláfur tengir skíðasvæðin Pinzolo og Madonna
svo auðvelt er að nýta sér bæði skíðasvæðin.
Dinna og Helgi eru hokin af skíðareynslu og hafa
marga skíðafjöruna sopið enda voru þau ung gefin
saman í skíðaskála í Bláfjöllum.
Innifalið, flug, gisting, flutningur á skíðabúnaði,
íslensk fararstjórn og innritaður farangur
VERÐ FRÁ:129.900 KR.
á mann m.v. tvo fullorðna og tvö börn í tvíbýli með hálfu fæði
SKÍÐI
2022PINZOLO EÐAMADONNA
ÍSLENSK
FARARSTJÓRN OG
FLUTNINGUR Á
SKÍÐABÚNAÐI
INNIFALIÐ Í VERÐI
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Alls greindust 25 innanlandssmit
vegna Covid-19 í fyrradag. Í gær
voru 1.816 í sóttkví, 500 í skimunar-
sóttkví og 369 í einangrun.
Átta sjúklingar voru á Landspít-
alanum vegna Covid-19 klukkan níu í
gærmorgun, þar af var eitt barn. Sjö
sjúklinganna voru á bráðalegudeild-
um og einn á gjörgæslu og var hann í
öndunarvél. Þá voru 370 sjúklingar,
þar af 144 börn, á Covid-göngudeild
spítalans. Meðalaldur þeirra var 63
ár.
Þeim sem eru 60 ára og eldri og
þeim sem eru á ónæmisbælandi lyfj-
um er boðin örvunarbólusetning, eða
þriðja sprautan, gegn Covid-19.
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir,
framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins,
segir að byrjað hafi verið á því að
gefa íbúum hjúkrunarheimila örvun-
arskammt af bóluefninu.
Þeir sem eru orðnir 70 ára eru
boðaðir í örvunarbólusetningu þegar
minnst þrír mánuðir eru frá annarri
bólusetningu og þeir sem eru á aldr-
inu 60-69 ára þegar sex mánuðir eru
liðnir frá síðustu sprautu.
„Það eru einhverjir boðaðir í örv-
unarbólusetningu í hverri viku,“ seg-
ir Ragnheiður Ósk. Yfirleitt hefur
fólk fengið bóluefni frá Pfizer og
sumir frá Moderna en bæði efnin eru
svonefnd mRNA-bóluefni. Ekki
skiptir máli hvort bóluefnið fólk fær
og er notað það bóluefni sem er næst
fyrningu.
Hjá Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins er fólk bólusett á Suður-
landsbraut 34 en annars á heilsu-
gæslustöðvum. Ragnheiður Ósk
segir að ekki nema um helmingur
boðaðra hafi mætt í þriðju spraut-
una. Mætingin mætti því vera betri.
gudni@mbl.is
Um 50% þiggja
örvunarsprautu
- Nota mRNA-bóluefni í þriðju sprautu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bólusetning Nú er fólki boðin þriðja
sprautan, örvunarbólusetning.
BAKSVIÐ
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Formenn stjórnarflokkanna hafa
haldið áfram að hittast einir síns liðs,
en hafa sagt sínu fólki að góður gang-
ur sé í viðræðunum. Helst standi í
þeim að gera út um óútkljáð og erfið
mál frá síðasta kjörtímabili, en þau
vilja formennirnir leysa áður en
lengra er haldið við að setja saman
nýjan stjórnarsáttmála.
Sem fyrr er það útgangspunktur
að Katrín Jakobsdóttir gegni áfram
embætti forsætisráðherra, en stjórn-
arþingmenn, sem Morgunblaðið
ræddi við í gær, telja líklegast að
fjármálaráðuneytið verði áfram á
forræði Sjálfstæðisflokksins, hvort
sem Bjarni Benediktsson haldi áfram
í því embætti eða eftirláti það öðrum.
Í upphafi viðræðna töluðu framsókn-
armenn um að Sigurður Ingi Jó-
hannsson gæti í ljósi fleiri þingsæta
gert tilkall til stóls forsætisráðherra
eða fjármálaráðherra, en nú er frek-
ar rætt um að hann verði ráðherra
nýs innviðaráðuneytis. Þar mun
helsta fyrirstaðan vera sú að Vinsti
græn eru ófús til þess að láta skipu-
lagsmálin af hendi úr umhverfisráðu-
neytinu.
Skipti á ráðuneytum
og ráðherrum hugsanleg
Formennirnir munu hafa kastað á
milli sín hugmyndum um skiptingu
annarra ráðuneyta, en viðræður eru
ekki komnar á það stig að neitt sé far-
ið að skýrast um það. Ekki er loku
fyrir það skotið að verkefni verði
færð milli ráðuneyta og jafnvel víð-
tækari breytingar gerðar á stjórnar-
ráðinu.
Þau sjónarmið hafa einnig verið
viðruð að rétt sé að flokkarnir skiptist
á einhverjum ráðuneytum. Ríkis-
stjórnin hafi gott af því að leyfa fersk-
um vindum að blása um ganga ráðu-
neytanna og ekki endilega heppilegt
að menn gerist of þaulsætnir í fag-
ráðuneytunum svonefndu.
Í því samhengi hefur einnig verið
rætt um að hugsanlega verði fyrir-
huguð ráðherraskipti á miðju kjör-
tímabili, enda ýmsir í þingflokkunum
sem vilja gjarnan fá að spreyta sig í
ráðuneyti, en fátt er árangursríkara
til þess að halda ráðherrum við efnið
en tifandi klukka sem enginn veit
hverjum glymur í fyllingu tímans.
Allt mun það þó vera á umræðustigi
og ekkert frágengið.
Erfiðu málin þarf að leysa
Stjórnarþingmenn segja að for-
mennirnir hafi ekki upplýst þing-
flokkana um viðræðurnar nema í
meginatriðum, en þingflokksfunda
er að vænta í þessari viku. Þeim ber
saman um að þær hafi gengið vel og
gott hljóð sé í formönnunum. Helstu
ásteytingarsteinarnir séu „erfið
mál“ frá nýliðnu kjörtímabili, sem
þurfi að leysa áður en lengra er hald-
ið.
Þar á meðal eru mál eins hálendis-
þjóðgarður, friðunarmál og orkunýt-
ing, útlendingamál, ríkisútgjöld og
skattar.
Á þeim hafi allir flokkarnir sterk-
ar skoðanir og sum þeirra snerti á
grundvallaratriðum sem flokkarnir
eigi erfitt með að semja um, en ein-
mitt þess vegna hafi þau reynst svo
erfið í meðförum á liðnu kjörtíma-
bili. Um sum þeirra eigi jafnframt
við að þó svo að formennirnir kynnu
að geta náð saman um þau, sé ekki
víst að þingflokkar eða aðrar flokks-
stofnanir fallist á þær.
„Það miðar vel áfram, en það er
samt enn langt í land,“ var lýsingin,
sem einn stjórnarþingmaðurinn not-
aði í samtali við blaðið í gærkvöld.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kjörbréf Fyrsti fundur undirbúningsnefndar kjörbréfanefndar Alþingis fór fram í gær, en að sögn Birgis Ármanns-
sonar, formanns hennar (t.h.), var þar farið yfir vinnulag, lagarammann og nauðsynlega upplýsingaöflun, auk þess
sem rætt var um helsta viðfangsefnið, lögmæti talningar og meðferð kjörgagna í Norðvesturkjördæmi.
Ræða að skiptast á ráðuneytum
- Formenn stjórnarflokka halda áfram viðræðum - Vilja fyrst útkljá deiluefni frá fyrra kjörtímabili
„Það sem skiptir máli er að fólk sé
meðvitað um það að við erum ekki
að taka neina áhættu, það er rýmt
frekar fyrr en seinna,“ segir Björn
Ingimarsson, sveitarstjóri Múla-
þings.
Síðdegis í gær ákvað ríkislög-
reglustjóri í samráði við lögreglu-
stjórann á Austurlandi að lýsa yfir
hættustigi almannavarna á Seyðis-
firði vegna hættu á skriðuföllum.
Greint var frá því að hreyfingar
hefðu mælst á fleka sem liggur milli
skriðusársins frá 2020 og Búðarár.
Hreyfingar hefðu ekki mælst utan
þess svæðis. Spáð er úrkomu á
Seyðisfirði þegar líður á vikuna.
Níu hús voru rýmd í gær, við
Fossgötu 4, 5 og 7 og við Hafnar-
götu 10, 12, 14, 16b, 18c og 25. Þá er
umferð um göngustíg meðfram
Búðará bönnuð á meðan hættustig
er í gildi en gert er ráð fyrir að rým-
ing vari fram yfir helgi.
Fjöldahjálparstöð var opnuð í
Herðubreið í gær. Björn sveitar-
stjóri segir að fundað verði með íbú-
um Seyðisfjarðar eftir næstu helgi til
að ræða hættuna og að sérfræðingar
muni fara yfir málin og skýra fyrir
íbúum.
Björn segir að nú séu töluvert
fleiri mælar en áður var og mælingar
því nákvæmar. Ekki verði teflt á
tvær hættur ef það mælist einhver
hreyfing heldur sé gripið til rýming-
ar. „Síðan skulum við ætla að reynsl-
an leiði í ljós hvenær þess þurfi og
hvenær ekki í framtíðinni,“ segir
Björn. „Þarna eru býsna nákvæmar
mælingar, þar sem við höfum alltaf
átt von á því að það yrðu rýmingar
og að þær yrðu einu sinni eða oftar
en einu sinni.“ rebekka@mbl.is
Níu hús rýmd á Seyðisfirði í gær
Morgunblaðið/Eggert
Flóð Mikið tjón varð á Seyðisfirði
síðla árs í fyrra vegna aurskriðna.
- Hætta á skriðuföllum - Tökum enga áhættu, segir sveitarstjóri Múlaþings